Þjóðviljinn - 09.12.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.12.1982, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 9. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Bókakynning í kvöld: Jóna og Sigurður lesa uppúr „ Undir Mexikómána Á bókakynningu í Nýja kökuhús- inu í kvöld (fimmtudag 9. 12. 1982) verða þrjár nýjar bækur kynntar. Hjónin Jóna Sigurðardóttir og Sigurður Hjartarson lesa úr bók sinni „Undir Mexikómána“. Sig- urður og Jóna ferðuðust ásamt börnum sínum um tveggja ára skeið um Mexíkó og segja í bókinni frá þeirri ferð. Nýlega lét Jón Óskar rithöfund- ur frá sér fara ljóðabókina „Næt- urljóð". Jón Óskar mun lesa á bókakynningunni úr ljóðabókinni. Einnig les hann úr þýðingu sinni á skáldsögu frönsku skáldkonunnar Simone de Beauvoir, sem í ís- lensku útgáfunni heitir „Allir menn eru dauðlegir“. Þetta er ein merkasta skáldsaga Simone de Be- auvoir og er fyrsta bókin sem gefin er út á íslensku eftir þennan mikils virta höfund. Upplesturinn hefst kl. 20.30, gengið er inn í Nýja kökuhúsið frá Austurvelli en einnig er Bókaversl- un ísafoldar opin að Austurstræti. Gjöfin sem gefur arð Sodastream tækið er tilvalin jólagjöf fyrir alla fjölskylduna Gerið sjálf gosdrykkina og sparið meira en helming. Sól hf. Þverholti 19. sími 91-26300 Til heiðurs Sigurði Þórarinssyni sjötugum: Vélmenni í iðnaði Sagan af Dimmahmm Sagan af Dimmalimm Nú er þessi sígilda perla íslenskra barna- bóka komin aftur í nýrri útgáfu. IfdgafeU Bókaútgáfan Veghúsastíg 5 Á föstudaginn kemur, 10. desem- ber verður haldin ráðstefna að Hó- tel Sögu um vélmcnni í iðnaði og eru það Fél. ísl. iðnrekenda, Brit- ish Robot Association, og Dansk Robotforening sem standa fyrir henni. Fjöldi vélmenna í iðnaði hefur aukist mjög mikið á undanförnum árum. Japanir standa einna fremst á þessu sviði og voru þar um 17 þúsund vélmenni árið 1981, en gert er ráð fyrir að þau verði um 60 þúsund á árinu 1990. Aðrar þjóðir standa Japönum langt að baki, en flestar iðnaðarþjóðir heims hafa gert áætlanir um stóraukna notkun vélmenna á komandi áratug og má nefna, að gert er ráð fyrir að að fjöldi vélmenna í Frakklandi munu tuttugufaldast á þessu tímabili. Ekkert íslenskt fyrirtæki hefur enn tekið vélmenni í notkun, en væntanlega munu ekki niörg ár líða þangað til þau verða algeng í ís- lenskum iðnaði. Á ráðstefnunni verða flutt fjöl- rnörg erindi um notkun vélmenna í iðnaði og taka þátt í henni þrír er- lendir gestir H. Knudsen og J. Ni- elsen frá Dansk Robotforening og T.E. Brock frá British Robot Áss- ciation. Auk þeirra munu Jón H. Magnússon, verkfræðingur og Ás- mundur Stefánsson, forseti Al- þýðusambands íslands flytja er- indi, en Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðn- rekenda mun setja ráðstefnuna. Ráðstefnustjóri verður dr. Ingjald- ur Hannibalsson frá Félagi ís- lenskra iðnrekenda og mun hann stýra pallborðsumræðum í lok ráðstefnunnar. „Eins og gengur” Norrænafélagið gefur út hljómplötu með 14 söngvísum hans Norraena félagið kynnti í gær ný- ja hljómplötu, sem það gefur út og nefnist hún „Eins og gengur“ og hefur að geyma 14 söngvísur eftir Sigurð Þórarinsson, jarðfræðing. Hljómplatan er gefin út í tilefni sjötugsafmælis Sigurðar fyrr á þessu ári. Hjálmar Ólafsson, formaður Norrænafélagsins sagði að Sigurð- ur Þórarinsson hefðu um langt ára- bil verið mjög virkur félagi í Norr- æna félaginu og hefði því þótt við hæfi að heiðra hann sjötugan með því að félagið gæfi út hljómplötu með söngvísum Sigurðar, sem fyrir löngu er landskunnur fyrir söng- vísur sínar. Dugir þar til að nefna „Að lífið sé skjálfandi," „Þórsmerkurljóð“ og „Vorkvöld í Reykjavík“ svo fátt eitt sé nefnt. I febrúarmánuði sl. efndi Norr- æna félagið til dagskrár í Norræna húsinu, með þýddum og frum- sömdum söngtextum eftir Sigurð. Flytjendur á hljómplötunni „Eins og gengur" er nokkurnveginn sami hópurinn og flutti dagskrána í Norræna húsinu við svo góðar undirtektir að endurtaka þurfti dagskrána samdægurs. Flytjendur á plötunni eru: Arn- aldur Arnarsson, Árni Björnsson, Elías Davíðsson, Erna Ingvars- dóttir, Gerður Gunnarsdóttir, Gísli Helgason, Gunnar Guttorms- son, Hávarður Tryggvason, Kol- beinn Bjarnason, Margrét Gunn- arsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsson, Sigrún Jóhannesdóttir og Sigurður Rúnar Jónsson. Upptakan fórfram í Norræna húsinu. - S.dór LIU lýsir furðu sinni Stjórn LÍÚ sendi í gær frá sér fréttatilkynningu, þar sem hún lýs- ir yfir furðu sinni á framkvæmd skuldbreytinga í sjávarútvegi, sem ríkisstjórnin ákvað að gera í september sl. Segir ennfremur að svo virðist sem engar skuldbreytingar hafi átt sér stað nema við viðskipta- bankana, þótt sjávarútvegsráð- herra hafi lofað að þær næðu einnig til viðskiptaaðila útgerðarinnar. Flytjendur á blaðamannafundi í Norræna húsinu í gær, fr. v. Gunnar Guttormsson, Elías Davíðsson, Arnaldur Arnarsson, Árni Björnsson og Gísli Helgason. Ljósm. eik. Hjónareglan Jafnréttisráð vekur athygli á málinu Jafnréttisráð hefur sent frá sér fréttatilkynningu jafnframt því sem það hefur ritað félagsmála- ráðuneytinu og farið fram á að það hlutist til um það við dómsmála- ráðherra að „tcknar verði saman aðgengilegar upplýsingar í hand- hægu formi um réttarstöðu aðila í óvígðri sambúð“. Virðist mikill misskilningur ríkja um réttarstöðu sambúðarfólks og nauðsynlegt að uppfræða almenning betur um þetta mál. Jafnréttisráði berast margar fyrirspurnir um lagaleg réttindi fólks, sem jafnréttislögin taka ekki til og er áberandi yfirgnæfandi meirihluti þessara fyrirspurna um fjárhagsstöðu við slit á óvígðri sambúð. Fréttatil- kynningin er svohljóðandi: Jafnréttisráð vill vekja athygli á, að almennur misskilningur virðist ríkja hér á landi varðandi réttar- stöðu fólks í óvígðri sambúð. Er sá misskilningur fólginn í því að réttarstaða sambúðarfólks verði sú sama og hjóna eftir 2-5 ára sambúð. Slíku er ekki til að dreifa nema í einstaka tilfelli s.s. varðandi skattlagningu ef sambúðaraðilar óska eftir því, tryggingabætur að uppfylltum vissum skilyrðum o.fl. Sérstök ástæða er til að vara við því, að við fjárhagsskipti vegna slita á óvígðri sambúðu gildir hclm- gildir ekki ingaskiptarcglan ekki einsog við hjónaskilnað, heldur almennar eignarréttarreglur. T.d. myndi sá seni skráður er fyrir eign almennt verða talinn eigandi hennar, nema annaö sannaðist.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.