Þjóðviljinn - 09.12.1982, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. desember 1982
Ofbeldi gegn
á heimilum
„Þegar fyrstu kvennaathvörfm
voru opnuð í Bretlandi fyrir um
10 árum tóku menn þessu sem
hálfgerðu gríni. Það var ekki fyrr
en skýrslur frá þessari starfsemi
voru birtar, að farið var að taka
þetta alvarlega. Nú eru starfrækt
kvennaathvörf í öllum stærri
borgum í Brctlandi og í London
einni eru ein 7-8 athvörf. Yfirleitt
eru nauðgunarathvörf og athvörf
fyrir konur sem beittar eru of-
beldi aðskilin, en ég tel æskilegra
að þetta sé undir sama þaki, eins
og gert verður í kvennaathvarf-
inu hér í Reykjavík“.
Cathy Roberts, sem hingað er
komin í tilefni af opnun kvenna-
athvarfs í Reykjavík, segir þann-
ig frá stofnun kvennaathvarfa í
Bretlandi, en Bretland var fyrsta
landið sem setti á stofn slíka starf-
semi. Cathy er félagsfræðingur
að mennt og hefur unnið mikið
að ráðgjöf og rannsóknum varð-
andi ofbeldi gegn konum og er
hún nú að vinna að doktorsrit-
gerð um þetta efni. Og hún segir
meira frá kvennaathvörfum:
„í langflestum Evrópulöndum
og í Bandaríkjunum eru slík at-
hvörf. I Bandaríkjunum er höf-
uðáhersla lögð á athvörf fyrir
konur sem hefur verið nauðgað
og eru þau í nánum tengsium við
sjúkrahúsin. Þáhefurmikið verið
fjallað um afskipti lögreglunnar
þar vestra af nauðgunum og nú er
æ algengara að lögreglukonur
með sérstaka þjálfun fjalii um slík
mál. Það má segja að það sé
óeðlilegt að þjálfun lögreglunnar
miðist nær eingöngu við meðferð
á glæpamönnum, þar sem talið er
að um 90% af tíma lögregluþjóna
fari í að sinna fórnarlömbum af-
brota, slysa o.s.frv.“
Vísbending
um stöðu
konunnar í
þjóðfélaginu
„Hvernig hafa karlmenn al-
mennt tekið þessum athvörfum?“
„Flestir karlmenn nú orðið líta
ofbeldi gegn konum alvarlegum
augum. Þetta vandamál er til í
öllum stéttum þjóðfélagsins.
Konur sem hafa langskóla-
menntun, t.d. læknar og lög-
fræðingar, leita iðulega til okkar
vegna barsmíða eiginmanns, þótt
stærsti hópurinn sé heimavinn-
andi konur með börn. Það virðist
algengara að konur sem eru fjár-
hagslega háðar eiginmanni sínum
eða sambýlismanni séu beittar of-
beldi en aðrar. Það er mjög al-
gengt að konur sem á einhvern
hátt eru veikburða, t.d. barnshaf-
andi, nýbúnar að eiga börn eða
heilsulausar, séu beittar líkam-
legu.ofbeldi. Þetta eru óhugnan-
legar staðreyndir.
Hvað nauðgun viðvíkur, þá er
það ekki lagabrot í Bretlandi að
nauðga eigjnkonu sinni, og til að fá
dóm fyrir ofbeldi, þarf helst að
beinbrjóta konuna. Ef þú hins
vegar lemur mann niður á götu
úti varðar það við lög“.
„Telur þú ástandiö sé eins
siæmt hér á landi og í Bretlandi?“
„í Bretlandi virðist ástandið
heldur fara versnandi en hitt,
þrátt fyrir miklar umræður um
málið. Við teljum að ofbeldi á
konum
heimilum sé ein hliðin á krepp-
unni og atvinnuleysinu. Af því
sem ég hef kynnt mér málið hér á
landi, virðist mér þetta vera al-
varlegt vandamál hér eins og ann-
ars staðar. Það má þó búast við
að það taki einhvern tíma fyrir
konur að nýta sér kvennaathvarf
hér því í fámenni er fólk jafnan
hrætt við umtal“.
„Nú höfum við talað mest um
konur scm beittar cru ofbeldi. -
Hvað um karlmennina sjálfa? Er
um einhvers konar endurhæfmgu
að ræða fyrir karlmenn sem
uppvísir eru að ofbeldi gegn
konum?“
„Enn sem komið er er lítið um
það. Fyrst þarf að fá það viður-
kennt, að það sé ekki allt í lagi að
berja konur eða nauðga. í Ame-
ríku eru þó komnir af stað hópar
sem vinna með karlmönnum sem
staðnir hafa verið að ofbeldi eða
nauðgunum og án efa á þetta eftir
að koma víðar. Ennþá líta flestir
þeirra sem beita konur ofbeldi.
ekki á það sem glæp“.
„En hversu saklausar eru kon-
urnar? - Koma aldrei til ykkar
karlmenn, sem konur hafa
barið?“
„Nei, það virðist ekki vera al-
gengt, þótt það sé til. Staðreyndin
er að karlmaðurinn er í langflest-
um tilvikum miklu sterkari og
harðhentari og konur ráðast því
síður á.þá að fyrra bragði. Konur
hafa yfirleitt miklu minni hand-
styrk, þótt þær taki oft á móti þeg-
ar ráðist er á þær. Við viljum
heldur ekki þjálfa konur í að
berjast við sambýlismenn sína
eða aðra karlmenn."
„Ef litið er til baka. - Hafa kon-
ur alltaf verið barðar af karl-
mönnum?“
„Nei, þetta fer mjög mikið eftir
þjóðfélögum. Og miðað við
aukin mannréttindi og framfarir
almennt er varla hægt að segja að
mikið hafi miðað á þessu sviði.
Ofbeldi gegn konum er yfirleitt
falið og fer að mestu fram innan
veggja heimilisins og afskipti af
því hafa lengst af þótt truflun á
friðhelgi einkalífsins. Það má
segja að orsakir þess sé fyrst og
fremst að rekja til almennrar
stöðu kvenna, fremur en til
þeirra einstaklinga sem ofbeldinu
beita. Sem dæmi má nefna að í
Kína var mikið um þetta fyrir
byltinguna, sen eftir byltingu var
það tekið mjög föstum tökin og
karlmenn „endurhæfðir" ef svo
má segja. Við teljum að nú sé
mjög lítið um það þar, enda
einkaréttur og friðhejgi heimil-
anna annar en við eigum að venj-
ast. Konur eru sjaldan háðar
mönnum sínum fjárhagslega,
börn eru fá og félagsleg samvera
mjög mikil.
Ef við lítum aftur í söguna má
finna mörg tímabil og þjóðfélög
þar sem ofbeldi gegn konum var
næstum óþekkt. í gömlum kelt-
neskum lögum ífá bví fyrir kristni
og í frumkristni er tekið mjög
hart á þessu. Víkingarnir, sem al-
mennt þóttu fremur herskáir og
jafnvel grimmir litu barsmíðar á
konum mjög alvarlegum augum,
eins og mörg dæmi úr fornum
sögum sýna. Það er því ekkert
sem segir að þetta þurfi að vera
svona. Þetta er fyrst og fremst
lýsing á því þjóðfélagi sem fólkið
býr við og þeirri stöðu sem kon-
um er þar búin“, sagði Cathy að
lokum.
Þessa daga sem hún dvelst hér
starfar hún með starfsmönnum
Kvennaathvarfsins og aðstand-
endum þess, en hún fer af landinu
í dag, fimmtudag.
Sími Kvennaathvarfsins er
2 12 0 5.
-þs
Ósigur Reagans:
Þingið hafnar MX-eldflaugum
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings fel
dollara fjárveitingu til þess að korr
Wyoming, en sem kunnugt er af frél
ákveðið að fara fram á það við þingii
upp í Wyoming á næstunni.
Úrslitin eru mikið áfall fyrir víg-
búnaðarstefnu Reagans og sýna
um leið vaxandi áhrifamátt banda-
rísku friðarhreyfingarinnar á
bandaríkjaþingi. 245 þingmenn
greiddu atkvæði gegn tillögunni en
176 voru henni fylgjandi.
MX-eldflaugin
MX-eldflaugarnar eru full-
komnustu langdrægu eldflaugarn-
ar sem hafa verið smíðaðar til
þessa. Þeim er hægt að skjóta með
meiri nákvæmni en áður hefur
þekkst og þeim er hægt að skjóta
heimsálfa á milli. Hver eldflaug ber
allt að 12 sprengjuodda, sem hver
um sig hefur innbyggðan stýribún-
að þannig að með einni sendingu er
hægt að senda 12 kjarnorkuspreng-
ur er hafa samanlagðan sprengju-
mátt 88 Hiroshima-sprengja á 12
mismunandi skotmörk.
Núna eiga Bandaríkjamenn
1052 langdrægar eldflaugar sem
staðse.ttar eru á landi með saman-
lagt 2152 kjarnorkusprengjum
innanborðs. Samsvarandi tölur
fyrir Sovétríkin eru 1398 eldflaugar
og trúlega á 5. þúsund kjarnorku -
sprengjur en þá er þess að geta að
Bandaríkin hafa 76% af öllum sín-
um kjarnorkusprengjum í kaf-
bátum eða langfleygum flugvélum
á meðan Sovétríkin hafa 75% af
sínum kjarnorkusprengjum á
landi, þar sem þær eru í rauninni
viðkvæmari fyrir eyðileggingu.
Þeir Kennedy og Hatfield telja
að Bandaríkin gætu eyðilagt allar
kjarnorkusprengjur Sovétmanna á
Ji í lýrradag tillögu um 998 miljón
i upp 5 fyrstu MX-eldflaugunum í
um þá hefur Ronald Reagan nýlega
að 100 slíkar eldflaugar verði settar
landi með 200 MX-eldflaugum
(17.600 Hiroshima-sprengjum).
Hugmynd Reagans að koma
MX-eldflaugunum fyrir á tak-
mörkuðu svæði byggist á því að ein
kjarnorkusprenging muni ekki
geta grandað þeim öllum, en hins
vegar muni loftþrýstingurinn og
rykmökkurinn sem fylgdi slíkri
sprengingu bægja fleirieldflaugum
frá, þannig að ávallt yrði hægt að
skjóta hluta þessara eldflauga til
baka í gagnárás. Margir hafa látið í
ljós efasemdir um þessi rök.
MX-eldflaugarnar eiga að vera
grafnar í 60 metra djúpum brunn-
um sem eru byggðir úr hertri um-
gjörð.ogeiga að vera 600 m. ámilli
brunna eða sílóa.
Ógnunarstefnan
Þegar Reagan tilkynnti um á-
kvörðun sína hinn 23. nóvember
s.l. sagði hann að - Bandaríkin
„kysu tíeldur að Sovétmenn tækju
niður SS-18 eldflaugar sínar en að
þurfa að grafa fleiri holur, en við
getum náð jafnvægi með því að
gera annað hvort“.
Hér er því um hliðstæða aðgerð
að ræða og Bandaríkin og Nato
hafa hugsað fyrir Evrópu: annað
hvort einhliða afvopnun Sovét-
ríkjanna eða áframhaldandi stór-
hert vopnakapphlaup.
/ •
A kostnað Evrópu.
Afstaða meirihluta þingmanna í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings til
þessara hugmynda er fróðleg í ljósi
þeirrar umræðu, sem farið hefur
Sprengjuhöfuð í MX-eldflaug. Eld-
flaugin getur farið á milli hcimsálfa
og borið allt að 12 kjarnorkuspreng-
juodda er samanlagt jafngilda 88
Hiroshimasprengjum og hægt er að
beina að 12 mismunandi skot-
mörkum.
fram hér í Evrópu undanfarið um
hinar fyrirhuguðu meðaldrægu
Evrópueldflaugar og tvíhliða á-
kvörðun Nato frá því í desember
1979.
Bandaríkin hafa aldrei háð stríð
við aðrar þjóðir á eigin landi, og
margir Evrópumenn hafa ályktað
sem svo að með því að leggja meg-
ináherslu á herðingu vígbúnaðar-
kapphlaupsins í Evrópu hafi
Bandaríkin viljað auka spennu í
heiminum á kostnað Evrópuríkja
fyrst og fremst. Úrstlitin í þessari
atkvæðagreiðslu gætu stutt þau
rök. Vikuritið Newsweek segir að
viðbrögð manna í Wyoming við
hugmyndum Reagans hafi verið
blendin. Það er kannski dæmigert
fyrir umræðu sumra um þessi mál,
að ríkisstjórinn í Wyoming gerði
málið að gamanmáli og sagði að
Reagan hefði verið „eins og tán-
ingsstúlka er kæmi heim til sín
klukkan þrjú að morgni með
Gideon-biblíu undir hendinni".
Margir sögðu að þetta gæti ekki
aukið á hættuna þar sem þeir væru
þegar umkringdir af Minuteman-
eldflaugum, á meðan kaupsýslu-
menn fögnuðu ákvörðuninni þar
sem hún mundi þýða 70 miljón
dollara tekjur á ári fyrir fyrirtæki á
staðnum. Að sjálfsögðu hefur frið-
arhreyfingin á staðnum barist gegn
uppsetningu þessara eldflauga.
Brot á Salt-II
Sovétríkin hafa haldið því fram,
að ákvörðunin urn uppsetningu
þessara eldflauga væri brot á
SALT-II er kveði svo á að báðir
aðilar skuldbindi sig til að koma
ekki upp nýjum skotpöllum. Þótt
Reagan hafi hætt við að leggja
SALT-II samninginn fyrir Banda-
ríkjaþing til staðfestingar á sínum
tíma á þeirn forsendum að hann
væri Sovétmönnum í hag, þá hafa
bæði ríkin virt hann í reynd hingað
til. Meðal þeirra sem tekið hafa
undir þessa gagnrýni Sovétmanna
er bandarískur sérfræðingur í túlk-
un samningsins, sem sagði í álits-
gerð er hann gerði fyrir hina virtu
Arms Control Association í
Bandaríkjunum, að „ekki liggi vafi
á að áætlunin brjóti í bága við grein
6 í samningnum." Þá hefur Kjeld
Olesen, fyrrverandi utanríkisráð-
herra Danmerkur einnig tekið
undir þessi sjónarmið er hann lét í
ljós vonbrigði sín með að Banda-
ríkin ætluðu að brjóta samninginn
með þessum hætti.
Bandaríkjastjórn hefur haldið
því fram að áætlunin fæli ekki í sér
brot á samningnum, þar sem á-
formað er að hafa eldflaugarnar í
sérstökum lausum rörum ofan í sí-
lóunum.
Skynsemi eða ógnun
Úrslit atkvæðagreiðslunnar er
einnig athyglisverð í ljósi þess að
þegar þeir Kennedy og Hatfield
skrifuðu bók sína um frystingu víg-
búnaðarkapphlaupsins í apríl s.l.
höfðu þeir hlotið stuðning urn 190
þingmanna fyrir þingsályktunartil-
lögu sinni sarna efnis. Nú greiða
hins végar 245 þingmenn atkvæði
gegn fjárveitingu til MX-
áætlunarinnar á meðan 176 eru
henni fylgjandi. Þetta sýnir vax-
andi styrk þeirra sem leysa vilja
vígbúnaðarkapphlaupið með skyn-
semi en ekki með ógnunum.
Þá er það einnig athyglisvert að
hér á íslandi hafa bæði Ólafur Jó-
hannesson utanríkisráðherra fram-
sóknarmanna og Björn Bjarnason
sérfræðingur Sjálfstæðisflokksins í
vígbúnaðarmálum lýst stuðningi
sínum við ógnunarstefnuna þar
sem gengið er út frá því sem eðli-
legum hlut að Nato beiti kjarn-
orkuvopnum að fyrra bragði í
stríði. Ólafur Jóhannesson lýsti því
nýverið yfir í viðtali við Þjóðvilj-
ann að ísland væri skuldbundið
hinni tvíhliða ákvörðun Nato frá
1969, sem byggir á ógnunarstefn-
unni og Björn Bjarnason lýsir því
sem eðlilegum varnarviðbrögðum
Nato að beita fyrir sér kjarnorku-
vopnum í Evrópu „þar sem þau eru
í senn ódýrari kostur en venjuleg
vopn og þau krefjast ekki jafn
margra manna undir vopnum“.
(Morgunbl., 7.des. s.l.). Skyldu
þaðvera íslenskir þjóöarhagsmunir
sem krefjast þess að gengið sé út
frá því sem eðlilegum hlut að gripið
verði til kjarnorkuvopna í stríði í
Evrópu ?
-ólg.