Þjóðviljinn - 09.12.1982, Qupperneq 16
MQWIUINN
Fimmtudagur 9. desember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382. 81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmvndir 81257, Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Gífurleg hálka á göt-
um og gangstéttum:
Mörg slæm
byltan
Mörgum varð á fótaskortur í
þeirri fljúgandi hálku sem var
víðast hvar í Reykjavík í gær. Eftir
kuldakastið sem stóð yfir í nokkrar
vikur hefur nú brugðið svo við að
hlýnað hefur talsvert í veðri sem
hefur orðið til mikillar svcllmynd-
unar. A slysadeild Borgarspitalans
var allmikið um að fólk kæmi
vegna óhappa í hálkunni. í gær
voru þó fá alvarleg slys utan þess
að ein kona lærbrotnaði.
Pjóðviljinn brá sér uppá slysa-
deild ígær og hafði þar tal af Hrafn-
keli Oskarssyni lækni og sagði
hann að þrátt fyrir hina miklu
hálku hefðu slysin á fólki ekki
aukist neitt að ráði. Það kæmi aðal-
lega til af því að þegar skilyrði
versnuðu færi fólk yfirleitt var-
lega fyrsta kastið en síðan ykist
straumurinn á slysadeildina þegar
á liði. Hrafnkell sagði að það væiu
mestmegnis rosknar konur sem illa
yrðu úti í hálkunni. Hann sagði að
fyllsta ástæða væri til að brýna fyrir
fólki, bæði gangandi og akandi
vegfarendum að fara sér hægt.
Sem fyrr er hægt að fá mann-
brodda hjá velflestum skósmiðum
og skósölum.
- hól.
„Ég var að koma heim úr skólanum
þegar ég rann til og datt og kom illa
niður þannig að hægri handleggur
brotnaði“, sagði Gunnar Andrés-
son sem var nýkominn úr aðgerð
þegar Þjóðviljinn náði tali af hon-
um. Þegar óhappið vildi til var
hann klæddur íþróttaskóm með hrá
gúmmíbotni. Ljósm.: - Atli.
Félagar greiða
atkvæði
ekki félögin
I frétt Þjóðviljans í gær um for-
val vegna framboðslista Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra varð slæm misritun.
Þar scm átti að standa flokksfélagi
stóð flokksfélag.
„Forvalið fer fram með þeim
hætti að í fyrri umferð á hver flokks-
félagi í kjördæminu að tilnefna
fjóra menn án röðunar, en þeir
þurfa að koma antk úr tveim fé-
lögum. Tilnefna má mann utan fé-
lags“. Þannig var setningin rétt, og
síðan fylgdi að í síðari untferð
tækju þátt átta efstu menn, ef þeir
samþykktu, og kjörnefnd hefði
heimild til þess að bæta við
tveimur. Kosningin fer þannig
fram að hver flokksmaður numer-
ar 1-4 á listann, og talið er án
vægis. Fyrri umferð lýkur 15. janú-
ar ’83, en þeirri síðari 5. febrúar
’83. - ekh.
Á fundi sem Barnaverndarnefnd
Reykjavíkurborgar og fleiri aðilar
efndu til í fyrrakvöld var rætt um
notkun myndsegulbanda með tilliti
til barna og þar samhljóða sam-
þykkt ályktun þar sem skorað er á
viðkomandi yfírvöld að setja strax
lög um starfsemi kapalkerfa og að
eftirlit með innflutningi myndseg-
ulbanda verði komið á.
Auk Barnaverndarnefndar
borgarinnar stóðu að fundinum
umsjónarfóstrur með dagvistun á
einkaheimilum og Samtök dag-
mæðraíReykjavík.Umþaðbil 100
manns sóttu fundinn og voru um-
ræður um málefnið fjörugar.
Frummælendur voru Guðfinna
Eydal sálfræðingur sem einkurn
ræddi um þær hættur sem felast í
óhóflegri notkun myndbanda á
heimilum fyrir yngri börn og með
hvaða hætti hin skaðvænlegu áhrif
kæmu fram. Þá ræddi dr. Elías
Héðinsson félagsfræðingur einkum
um ofbeldi á myndsegulböndum og
áhrif þess á eldri börn og unglinga.
Skýrði hann frá rannsóknum sem
gerðar hafa verið erlendis á þeim
þætti. Verður nánar skýrt frá fram-
söguerindum í Þjóðviljanum síðar.
Á fundinum var eins og áður
sagði samþykkt samhljóða ályktun
sem borin var upp af Guðfinnu
Eydal og Steinunni Jóhannesdótt-
ur. Hún hljóðar á þessa leið
„Fundur haldinn 7. desember 1982
að tilhlutan Barnaverndarnefndar
Reykjavíkurborgar, umsjónar-
fóstra með dagvistun á einka-
heimilum og Samtaka dagmæðra,
skorar á viðkomandi yfirvöld að sjá
til þess að þegar í stað verði komið
á eftirliti með innflutningi rnynd-
segulbanda og lög sett um starfsemi
kapalsjónvarpskerfa með tilliti til
barna og unglinga“.
- v.
Guðmundur J. á alþingi í gær
Mikil hækkun
búvöruverös
Nauðsynlegt að endurskoða verð-
miðunarkerfi landbúnaðarafurða
- Hækkun búvöruverðs um 13-,
22% 1. desember, um leið og vísi-
töluskerðing tekur gildi, vekur með
manni ugg og skclllngu, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson í um-
ræðu utan dagskrár á alþingi í gær.
Sagði Guðmundur að þessi hækk-
un hlyti að leiða til þess að neysla
minnkaði á landbúnaðarafurðum.
Það þætti tæpast hyggilegur bú-
skapur. Lagði Guðmundur til að
verðmyndarkerfí landbúnaðarins
yrði tekið til rækilegrar endur-
skoðunar.
Guðmundur J. Guðmundsson
tók skýrt frant, að bændur væru
yfirleitt ekkert ofhaldnir í tekjum,
en liins vegar væri þetta kerfi ótækt
fyrir neytendur og almennt launa-
fólk. Guðmundur benti einnig á,
að sláturhússkostnaður væri þrisv-
ar sinnum hærri hér á landi en í
Nýja-Sjálandi, þarsem laun væru
hærri. Utflutningsbætur væru áætl-
aðar 262,5 miljónir króna á næsta
ári auk þess sem röskar 55 miljónir
færu uppí lántöku vegna niður-
greiðslna 1980 til 1982. Ýmislegt,
benti til þess að óþarfa milliliða-
kostnaður og margflókið verðmynd-
unarkerfi væri úr sér gengið.
Spurði Guðmundur hvort ekki
væri skynsamlegra að greiða niður
landbúnaðarvörur ofan í lands-
menn heldur en ofan í útlendinga.
Pálmi Jónsson landbúnaðarráð-
herra sagði hækkanirnar hafa orðið
samkvæmt lögum. Þær hefðu m.a.
orðið svo miklar vegna þess, að
niðurgreiðslur hefðu ekki aukist.
Hækkanirnar á landbúnaðaraf-
urðum hefðu síður en svo orðið
meiri en á öðrum kostnaði til
heimilishalds á undanförnum miss-
erum. Margir fleiri tóku til máls í
gær um þessi mál. - óg.
Niðurfelling fasteignagjalds af Hjónagörðum
Yrði veruleg réttarbót
segir Pétur J. Eiríksson formaður stjórnar Félagsstofnunar
„Við höfum átt viðræður við menn í mcnntamála- og félagsmálaráðu-
neytinu til að fá undanþágu frá greiðslu fasteignagjaldsins af Hjónagörðum
og það er greinilegt að með þessu frumvarpi ríkisstjórnarinnar er verið að
verða við óskum okkar“, sagði Pétur J. Eiríksson, formaður stjórnar
Félagsstofnunar stúdenta í samtali við Þjóðviljann í gær.
Á alþingi hefur verið lagt framt frumvarp félagsmálaráðherra um lækk-
un gjaldstofns fasteignagjalda á höfuðborgarsvæðinu, með það fyrir
augum að hækkun fasteignagjalda í Reykjavík og nágrenni verði ekki
meiri á milli ára en annars staðar á landinu. Auk þess er lagt til að
fasteignagjöld af hjónagörðum stúdenta og heimavistum verði felld niður.
„Hér er því geysimikið hagsmunamál stúdenta komið á rekspöl og
óskandi að frumvarpið verði sem fyrst að lögum. Ég hygg að í ár nemi
umrædd gjöld um það bil 300 krónum á íbúð á mánuði sem gæti þýtt
lækkun leigunnar úr unt 1800 krónunt á mánuði niður í ca 1500 krónur.
Við urðum að setja þessi gjöld til borgarinnar inn í leiguna enda skuldaði
Félagsstofnun stúdenta fasteignaskatt af Hjónagörðum allt aftur til ársins
1977. Með þessu ákvæði í frumvarpi félagsmálaráðuneytisins er verulega
komið til móts við okkur í erfiðri fjárhagsstöðu", sagði Pétur J. Eiríksson
að lokum.
- v.