Þjóðviljinn - 21.12.1982, Síða 3

Þjóðviljinn - 21.12.1982, Síða 3
Þriðjudagur 21. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Niðurfelling aðflutningsgjalda af taekjum útvarps Spara útvarp- inu 8 miljónir Byrjum að senda út á rás II á næsta hausti, segir Hjörtur Vil- hjálmsson, fjármálastjóri „Þessi breyting á fjárlögum léttir af ríkisútvarpinu um 8 miljónum króna á næsta ári, en þar er um að ræða niðurfellingu aðflutnings- gjalda af sendum, loftnetum og mögnurum og hafa þessi gjöld numið allt af 55% verðs þeirra“, sagði Hörður Vilhjálmsson fjár- málastjóri ríkisútvarpsins í samtali við Þjóðviljann í gær. Við spurðum Hörð hvað ætti að vinna í stækkun dreifikerfis hljóðvarpsins á næsta ári: „Við höfum ekki aiveg gengið frá dreifikerfisáætlun okkar fyrir næsta ár en okkar hugmyndir ganga út á tvöföldun FM-kerfisins sem þýðir 5 nýja FM-senda á næsta ári. Ætlunin er að koma upp send- um á Skálafelli, Girðisholti á Mýr- um, Stykkishólmi, Langholti við Laugarvatn og í Vestmannaeyjum. Með þessu höfum við FM-vætt svæðið vestur í Dali og austur í Vík í Mýrdal. Þetta. verkefni átti að kosta 14.5 miljónir króna en það hefur nú lækkað um 8 miljónir, eins og áður sagði". - En hvað með útsendingu hljóðvarps á rás 2? Flýtir samþykkt alþingis þeirri framkvæmd? „Samþykkt alþingis er okkur hvatning og óneitanlega stuðnings- yfirlýsing við það ágæta verkefni. Starfræksla annarrar rásar hefur lauslega verið rædd í framkvæmda- stjórn útvarpsins og lítils háttar í útvarpsráði. Við höfum talið að uppsetning þannig rásar, sem væri einföld í sniðum, kostaði um það bil 13 miljónir og að 8-10 menn þyrfti að ráða til viðbótar. Við vilj- um mjaka okkur út í þetta verkefni sem allra fyrst og stefnum ótrauðir á þessu nýju rás á næsta hausti". - v. Stuðnfngur vlð ríkisútvarpið segir Andrés Björnsson, útvarpsstjóri „Mér þykir að sjálfsögðu afar vænt um þessa tillögu því að í henni felst stuðningur alþingismanna við þetta baráttumál ríkisútvarpsins um nokkuð langt skeið“, sagði Andrés Björnsson útvarpsstjóri í gær. Við afgreiðslu fjárlagafrum- varpsins á Alþingi sl. laugardag lá fyrir tillaga þar sem kveðið var á um að innflutningsgjöld af tækjum, sem flutt eru inn til aukningar á dreifikerfi sjónvarps, skyldu endurgreidd. Eiður Guðnason al- þingismaður flutti þá breytingartil- lögu sem fól í sér að niðurfeiling gjaldanna gilti um Ríkisútvarpið í heild. Fjárveitingarnefnd dró þá sína tillögu til baka en gerði tillögu Eiðs að sinni. Var hún síðan sam- þykkt. „Við erum að gera okkur vonir um að þessi samþykkt þingsins geti þýtt það að við byrjunt starfrækslu annarrar rásar á vegum útvarpsins á næsta hausti, eða að minnsta kosti tilraunaútsendingar. Þess vegna er okkur starfsmönnum ríkisútvarpsins fengur að umræddri tillögu og hljótum að fagna henni", sagði Andrés Björnsson útvarps- stjóri. - v. Ætti að létta verulega undir segir Eiður Guðna- son, alþingismaður „Ég hel' trú á því að þessi sam- þykkt þingsins létti allverulega undir með ríkisútvarpinu og hér er í höfn mjög mikið réttlætismál þessarar stofnunar, sem ekki hefur otið allt of mikils skilnings á síð- ustu árum hvað Ijárveitingar varðar“, sagði Eiður Guðnason al- þingismaður en hann flutti breyt- ingatillögu við afgreiðslu fjárlaga sem felur í sér að öll aðflutnings- gjöld af tækjum til aukningar á dreifikerfi ríkisútvarpsins, verða felld niður á næsta ári og framveg- is. Þá fól tillaga í sér lækkun eða niðurfellingu aðilutningsgjalda af óáteknum filmum, myndböndum og hljóðböndum fyrir ríkisútvarp- ið. „Ríkisútvarpið hefur til þessa þurft að greiða allt að 50% verðs þessara tækja í formi aðflutnings- gjalda og tolla hvers konar og með þeim hætti hefur ríkið haft ntiklar tekjur af sinni eigin stofnun". Eiður Guðnason kvaðst því afar ánægður nteð að tillaga sín skyldi samþykkt enda væri mikilvægt að ríkisútvarpið stæði betur að vígi en nú er í þeirri ört vaxandi sant- keppni sem stofnunin stæði nú frammi fyrir. - v. Ótölulega margar myndir og teikningar prýða sýninguna um þróunarsögu íslenska torfbæjarins í anddyri Þjóðminjasafnsins. Mynd: Atli. Torfbærinn frá eldaskála til burstabæjar í gær var opnuð í anddyri Þjóð- minjasafnsins yfirlitssýning sem hlotið hefur nafnið „Torbærinn frá cldaskála til burstabæjar.“ Sýnd er þróun íslenska torlbæjarins með fjölda Ijósmynda og tcikninga auk þess sem vönduð sýningarskrá hef- ur verið gefin út. Sýning þessi er farandsýning og er liður í því samstarfi safna í Fær- eyjum, Grænlandi og íslandi sem netnt hetur verið Útnorðursafnið. Hún er sett upp með stuðningi Norræna menningarmálasjóðsins en umsjón nieð sýningu og sýning- arskrá liafði Guðmundur Ólafsson. Efni sýningarinnar er að mestu byggt upp á greinum og upplýsing- um frá Herði Ágústssyni, Gísla Gestssyni, Kristjáni Eldjárn, Aage Koussel, Albert Nillsson, Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili, Þór Magnússyni, Guðmundi Ólafssyni og svörum við spurningaskrá Þjóð- háttadeildar Þjóðminjasafnsins um torfskurð og móverk. Sýningin verður opin öllum á venjulegum sýningartíma safnsins, mánudaga, fimmtudaga og um helgarfrákl. 13.30 til 16.00 fram til 1. febrúar en þá verður hún send út á land. - Ig. Vandodar íslenskar barnabcekur Sólarblíðan, Sesselía og mamman í krukkunni Bráðskemmtileg bók um dugmikla stelpu sem kemur vinstúlku sinni til hjálpar og fær í lið með sér strák sem á töfrastein. Þetta er önnur barnabók höfundarins, Vésteins Lúðvíkssonar, sem er kunnur fyrir skáldsögur sínar, smásögur og leikrit. Malín örlygsdóttir hefur gert bráðfallegar myndir í bókina. Það er ekki sama hvað börn og unglingar lesa - gefum þeim góðar bækur Mál IMI og menning iki Kötturmn sem hvarf Sagan hennar Nínu Tryggvadóttur um konuna sem lifði fyrir kettina sína og köttinn sem brá sér á músaveiðar, prýdd frábærum myndum lista- konunnar. Sígild bók sem lengi hefur verið ófáanleg, en hvert barn ætti að eignast. búkoua Búkolla Ævintýrið góðkunna um Búkollu með myndum Hrings Jóhannessonar. Bókin seldist upp á örskömmum tíma, en er nú aftur fáanleg. Gullfalleg bók handa börnum á öllum aldri. Viltu byrja með mér? Ný unglingabók eftir Andrés Indriðason um feiminn strák í 7. bekk og stelpuna sem kemur ný í bekkinn, myndskreytt af Önnu Cynthiu Leplar. Andrés fékk viðurkenningu Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir bók sína Polli er ekkert blávatn sem kom út í fyrra. Þessi bók svíkur heldur engan. önnur prentun komin. tSmt

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.