Þjóðviljinn - 21.12.1982, Blaðsíða 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN I>riðJudaRur 21. desember 1982
Tillaga um
lækkun
fasteigna-
skatta
Til nokkurra tíðinda dró undir
lok síðasta f'undar neðri dcildar
alþingis á laugardag er verið var að
at'greiða frumvarp um breytingu á
lögum um tekjustofna sveitarfé-
laga. Olafur Kagnar Grímsson
flutti breytingatillögu um nýtt
ákvæði í frumvarpið, þarsem sagði
að hækkun fasteignaskatta mætti
ekki fara yflr 65% á milli ára. Þor-
valdur Garðar Kristjánsson mót-
mælti þessari tillögu og kvað af-
greiðslu málsins vera samkomu-
lagsatriði á milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu.
Ákvæði unn þetta atriði, sem
Ólafur Ragnar gerði tillögu um,
var í upphaflegri mynd frumvarps-
ins þegar það var lagt fram af ríkis-
stjórn. Hins vegar hafði félags-
málanefnd neðri deildar lagt til að
þetta ákvæði yrði fellt niður úr
frumvarpinu. I meðferð neðri
deildar hafði komið fram breyting-
artillaga frá Guömundi J.
Guðmundssyni samhljóða tillögu
Ólafs Ragnars. í neðri deildinni
var sú breytingartillaga felld.
Eftir að Helgi Seljan forseti efri
deildar, hafði gert fundarhlé fyrir
félagsmálanefnd efri deildar, var
gengið til atkvæða um frumvarpið
og sérstaklega um breytingartil-
lögu Ólafs Ragnars.
I ljós kom að einungis Alþýðu-
bandalagsmenn, Alþýðuflokks-
menn og Gunnar Thoroddsen í efri
deild neyttu færis til að reyna að
lækka skatta. Sjálfstæðisflokkur-
inn og Framsókn notuðu ekki þetta
tækifæri. - óg.
Hækkanir til
kv ikmyndas j óðs
og Náttúru-
verndarráðs
Kvikmyndasjóöur fær til viðbót-
ar á fjárlögum 3 miljónir en Náttúr-
uverndarráð fékk 1.5 miljón
króna. Þessar hækkanir voru flutt-
ar af fjárveitinganefnd og Geir
Gunnarsson gerði grein fyrir þeim
við þriðju umræðu fjárlaga. - óg.
Lánasjóður og
Háskólinn
fá viðbót
Lánasjóöur íslenskra náms-
manna fékk 12 miljónir til viöbótar
og 48 miljónir króna lánsheimild í
meðförum fjárveitinganefndar
fyrir lokaumræðu fjárlaga.
Þá er framlag ríkisins alls orðið
226.943 miljónirog með lánum 364
miljónir 943 þúsund.
Til Háskóla íslands eru til við-
bótar 5 miljónir.
- óg.
12 miljónir í
sjónvarp í júlí
Aukasjónvarpsscndingar í júlí-
mánuði næstkomandi koma til með
að kosta rúmar tólf' miljónir, sagði
Geir Gunnarsson er hann gerði
grein fyrir breytingatillögum fjár-
veitinganefndar við þriðju um-
ræðu fjárlaga sl. laugardag.
Þessum aukna kostnaði á m.a.
aö mæta meö hækkun afnotagjalds
á næsta ári, sjónvarps um 60%,
hljóðvarps um 55% og hækkun
auglýsingagjalds.
- óg.
Gunnar Thoroddsen um bráðabirgðalög um áramót:
afgreidd á
laugardag
Alþingi lauk störfum fyrir jóla-
leyfi sl. laugardagskvöld. Á laugar-
daginn voru fjárlög til þriðju um-
ræðu, lokaumræðu. Eins og fram
kemur annars staðar voru niður-
s.töðutölur fjárlaga 12 miljarðar
975 miljónir að þessu sinni. Geir
Gunnarsson formaður fjárveiting-
anefndar mælti fyrir breytingatil-
lögum nefndarinnar sem allar voru
samþykktar (sjá annars staðar á
síðunni). Á laugardaginn var einn-
ig samþykkt þingsályktunartillaga
um frestun þinghalds til 17. janúar.
Geir Gunnarsson formaður fjár-
veitinganefndar hefur staðið í
ströngu undanfarna daga.
Fullorðins- Bráðabirgðalög um fiskverð
helgisgæslan ef brýna nauðsyn ber til
Lögð fyrir þingið strax eftir áramót
200 þúsund kró'nur voru sam-
þykktar til fulloröinsfræðslu til að
greiða kostnað viö nám fyrir ófag-
lært starfsfólk á dagheimilum. Geir
Gunnarsson geröi grein fyrir þess-
ari viðbót viö þriöju umræðu fjár-
laga á tilþingi á hiugardaginn. Þá
var samþykkt viöbót til Landhelg-
isgæslunnar um 3.6 miljónir.
- óg.
Á laugardagskvöldiö mælti
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra fyrir þingsályktunartillögu
ríkisstjórnarinnar um frestun þing-
halds til 17. janúar. I ræðu sinni gat
forsætisráðherra þess að ekki yrðu
gefin út bráðabirgðalög nema um
brýnustu mál, svosem hækkun tisk-
verðs. Það yrði heldur ekki gert
nema í samráði við alla flokka.
Sjávarútvegsráðherra hefur boðað
skipun nefndar með fulltrúum allra
Ilokka til að fjalla um lisk-
verðsmálin.
Gunnar Thoroddsen sagöi að
ekki yrði gripið til bráðabirgðalaga
nema brýnasta nauðsyn bæri til. Og
ef slík bráðabirgðalög yrðu gefin út
myndu þau þegar vera lögð fyrir
alþingi þegar það kemur saman
eftir áramót.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
Olal'ur G. Einarsson þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins og
Sighvatur Björgvinsson þingfl.
formaður Alþýðuflokksins sögðu
að flokkar þeirra treystu ekki ríkis-
stjórninni til að hafa löggjafarvald-
iö. Þess vegna myndu þeir greiða
atkvæði á móti þingsályktunartil-
lögunni.
Eftir nokkrar umræður var
þingsályktunartillagan samþykkt.
-óg.
Hækkun til
Þróunarstofnunar
í máli Geirs Gunnarssonar kom
fram, að fjárveitinganefnd hefði
ákveðið að íeggja til hækkun á fram-
lagi til Þróunarstofnunar íslands
úr 12.391 í 13 miljónir 641 þúsund.
Þessi viðbót var samþykkt af
alþingi á laugardaginn með fjár-
lögum.
- óg.
Réttur íslands tryggður:
Eignarréttur að auð
lindum hafbotnsins
Fruinvarp til laga
Eignarréttur íslenska ríkisins að
auðlindum hafsbotnsins verður
tryggður ef frumvarp þar um sem
lagt var fyrir alþingi sl. fimmtudag
Frá Guðrúnu Helgadóttur um slysatryggingasjóð:
Fá loksins greiddan
lífeyri með börnum
Á föstudag varð að lögum á
alþingi frumvarp um alm.trygg-
ingar, þar sem kveðið er á um að
barnalífeyrir skuli greiddur með
börnum þeirra lífeyrisþega, sem
lífeyris njóta úr slysatrygginga-
sjóði. Þeir sem slasast hafa við vinnu
undir stýri, við íþróttaiðkun eða
björgunarstörf, hafa hingað til ein-
ungis fertgið lífeyri greiddan með
börnum sem fædd voru áður en
slysið varð. Flutningsmaður þessa
frumvarps er Guðrún Helgadottir.
Er hér að sjálfsögðu um hið mesta
réttlætismál að ræða.
Þetta er fyrsta þingmannafrum-
varpið sem afgreitt verður sem lög
á yfirstandandi þingi. _
verður að' lögum. Þar er sagt að
ísland sé eigandi allra auðlinda á og
í hafsbotninum utan setlaga og svo
langt til hafs sem fullveldisréttur ís-
lands nær samkvæmt lögum. Auð-
lindir samkvæmt löguin þessum
taka til allra ólífrænna og lífrænna
auðlinda á og í hafsbotninum.
Þar segir og að enginn megi leita
að efnum til hagnýtingar nema að
fengnu skriflegu leyfi iðnaðarráð-
herra. Slík leyfi verði bundin við
ákveðin svæði og gilda til ákveðins
tíma, sem ekki má vera lengri en 30
ár.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hjörleifi Guttormssyni iðnaðar-
ráðherra er frumvarpið afrakstur
nefndar sem starfað hefur á vegum
ráðuneytisins um hagnýtar hafs-
botnsrannsóknir. Nefndin gaf út
vandaðan bækling utn setlagarann-
sóknir í fyrra og nú er þetta grund-
vallarmál Islands komið í frum-
varpsformi frá nefndinni.
Formaður nefndarinnar var Árni
Þ. Árnason skrifstofustjóri, en
Bcncdikt Sigurjónsson fyrrum
hæstaréttardómari og Guðmundur
Eiríksson þjóðréttarfræðingur
höfðu hönd í bagga með frumvarps-
gerðinni.
-óg.