Þjóðviljinn - 21.12.1982, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 21.12.1982, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN Þriðjudagur 21. desember 1982 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482og81527. umbrot 8)285. Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslú blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Menningarsjóður Félags leikstjóra á Islandi: Færð á vegum: Allt ófært á Norður- og Austurlandi Kvikmyndin Með allt á hreinu var frumsýnd um helgina: Umtalið besta auglýsingin í Mosfellssveit urðu nokkrar skemmdir í veðrinu, bæði á nýbyggingum, svo og á þökum húsa þegar plötur losnuðu og fuku á sunnudaginn. Ljósmyndari Þjóðviljans tók þessa mynd af nýbyggingu í Mosfellssveit sem skemmdist nokkuð eins og sjá má. (Ljósm. Atli). dals og i gær átti aö ryöja frá Pat- reksfirði aö Brjánslæk. Ekki þýddi aö reyna aö ryöja vegi í gær á Norðurlandi og Austfjörðum vegna veðurs, en þeir hjá Vegagerðinni sögðu að stefnt væri að því að halda vegum opnum fram á föstudag ef þess yrði nokkur kostur og bíða snjóruðningstæki þess nú að veður gangi niður svo hægt sé að hefja vegaruðning. - S.dór. Sæmileg færð er sunnanlands Segja má að allir vegir séu ófærir frá Holtavörðuheiði, norður og austur um land, allt að Kirkjubæj- arklaustri. Aftur á móti er fært frá Reykjavík um Suðurnes og eins austur úr í Árnes og Rangárvalla- sýslu og allt að Klaustri, en lengra verður ekki farið sem stendur. Þessar upplýsingar fékk Þjóðvilj- inn hjá Vegageröinni í gær. Þá var veöur farið að ganga niður í Mýrdal og töldu menn vegi þar færa að Klaustri. Eins var fært um HvalfjÖrð og Borgarfjörð en um sunnanvert Snæfellsnes var þungfærí, en sæmi- lega fært á norðanveröu nesinu. Eins var fært í-Búðardal en þar fyrir vestan flestir vegir illfærir. Þá var fært milli Patreksfjarðar. og Bíldu- Sigurjón Ólafsson látinn Sigurjón Ólafsson myndhöggv- ari lést í Reyk javík í gærmorgun, 74 ára aö aldri. Sigurjém fæddist á Eyrarbakka 21. október 1908. Hann lærði málaraiön í Reykjavík og höggmyndalist í Kaupmanna- höfn og Róm. Sigurjón var búsett- ur í Kaupmannahöfn fram yfir stríð, en síöan í Reykjavík. Sigur- jón var í fremstu röð listamanna um áratugaskeið og eftir hann liggur fjöldi höggrhynda og lista- verka. „Sjálfur er ég ákaflcga ánægður með þessa mynd og ég hef ekki orð- ið var við annað hjá þeim áhorf- endum myndarinnar sem ég hef hitt. Það virðist vera skemmtilegur tónn í fólki“, sagði Ágúst Guð- mundsson leikstjóri myndarinnar „Með allt á hreinu“, sem frumsýnd var í Háskólabíói sl. laugardag. „Þessi ntynd hefur verið ótrúlega stuttan tíma í sköpun og við hófum til dæmis ekki myndatökur fyrr en 16. júní í sumar. Síðan þá hef ég svo verið fjarverandi í tvo rnánuði þegar ég ferðaðist um Bandaríkin með myndina Land og synir, sem varð til hér unt árið. Meginástæðan fyrir því hversu skamman tíma þessi mynd hefur tekið í vinnsiu er allt það hæfileikafólk sem með mér starfaði. Krakkarnir urðu mér oft undrunarefni með uppátækjum sínum og hversu fljótir þeir voru að tileinka sér hlutina", sagði Ágúst leikstjóri ennfremur. - Nú virðist manni eftir að hafa séð myndina að hún hafi mikið orð- ið til frá stund til stundar. Að þið hafið ekki verið rígbundin af hand- ritinu. „Jú, það er alveg rétt. Þegar við hittumst fyrir um það bil ári til að undirbúa þetta verk, var á borðinu ákveðin hugmynd um Tívolí og segir Ágúst Guð- mundsson leikstjóri Einstaklega skemmtilegt að vinna að þessari mynd og mér finnst mjög skemintilegur tónn í því fólki sem hefur séð myndina, sagði Ágúst Guðmundsson lcikstjóri í spjalli við Þjóðviljann. Hér sést hann á milli Stuðmannanna Tómasar og Val- geirs. Ljósm. Atli. Stuðmenn. Hún breyttist ntjög í meðförum en þegar tökur hófust lá ákveðinn söguþráður fyrir með skrifuðu atriðahandriti. Smám saman sannfærðist ég um að betra væri að binda textann ekki allt of mikið niður heldur hafa handritið meira til hliðsjónar. Því er það svo að sum atriði myndarinnar urðu endanlega til fyrir framan mynda- vélarnar". - Og hvað með framhaldið. Ert þú með einhverjar hugmyndir í pokahorninu? „Ég er að hugsa mitt ráð þessa dagana og þótt margar hugmyndir séu á reiki hefur ekkert verið á- kveðið um framhaldið. Það væri t.d. vissulega gaman að vinna meira með Stuðmönnum og þeim sem komu við sögu í Með allt á hreinu, en af því verður allavega ekki strax". - Þetta er dýrt fyrirtæki, eða hvað? Hvað þurfið þið að fá marga áhorfendur? „Við höfunt nú ekki reiknað það nákvæmlega út en við vonumst bara til að sem flestir láti sjá sig. Við höfum ekki staðið fyrir miklu auglýsingabrambolti því við erum þeirrar skoðunar að myndin sjálf og það umtal sem hún fær verði besta auglýsingin". - v. Ágústi Guð- mundssyni veitt viður- kenning Ágústi Guðmundssyni leik- stjóra og kvikmyndagerðarmanni hefur verið veitt viðurkenning Menningarsjóðs félags leikstjóra á íslandi fyrir störf að kvikmynda- stjórn. Viðurkenningin nemur 13.500 kr. og er þetta í þriðja sinn sem hún er veitt og í fyrsta sinn sem kvikmyndaleikstjóri fær hana. Ágúst Guðmundsson hefur á undanförnum árum verið í fremstu röð íslenskra kvikmyndaleikstjóra og hafa myndir hans vakið mikla athygli og hlotið góða dóma bæði hér heima og erlendis. Á síðast- liðnu rúmu ári hefur Ágúst unnið að þremur kvikmyndum og var ein þeirra „Með allt á hreinu" frum- sýnd um síðustu helgi. í stjórn Menningarsjóðs Félags leikstjóra á íslandi eiga sæti Gunn- iaugur Ástgeirsson formaður, Ásdís Skúladóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir. - lg- Minnisvarði um Jón Baldvinsson í gær voru liðin 100 ár frá fæðingu Jóns Baldvinssonar, sem á þriðja áratug var formaður Al- þýðuflokksins og forseti Alþýðu- sambands íslands. I tilefni af því hafa Alþýðuflokkurinn og Ál- þýðusambandið ákveðið að reisa Jóni Baldvinssyni ntinnisvarða í þakklætisskyni fyrir brautryðjend- astörf hans í þágu íslenskrar alþýðu. Kjartan Jóhannsson formaður Alþýðuflokksins og Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ sendu frá sér frétt um þessa ákvörðun í gær. - ekh. Alusuisse í fjölmiðlaleik: Reynlr að spíla á sundurþykkju hér segir Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra Um helgina birtist í Morgunblað- inu skeyti sem Alusuisse sendi iðnaðarráðherra og er það birt sem aðal frétt blaðsins þann dag. Þjóð- viljinn innti Hjörleif Guttormsson iðnaðarráðherra eftir þessu skeyti, sem honum og Morgunblaðinu var sent. Já, það er rétt að ég fékk skeyti frá Alusuisse sl. föstudag og svo virðist sent það hafi veriö sent.sam- tímis til Morgunblaðsins, blaðinu til birtingar eins og raunar gerðist líka í vikunni áður. Þetta skeyti á að heita svar við orðsendingu okk- ar 10. des. sl. þar sem ég leiðrétti rangtúlkun Alusuisse á afstöðu okkar og tók fram að sáttatillaga frá fundi 7. des. sl. væri enn í gildi. Efnislega er fátt nýtt í þessu svari Alusuisse. Þeir ítreka fyrri skilyrði sín og gagnkröfur og herða frekar á í þeim efnum frá því sem áður hafði komið frant. Varðandi sáttatillögu nn'na, telja þeir skorta á nánari útfærslu, en við höfðum farið yfir þau efni lið fyrir lið á fundum 22. nóv. og 6. og 7. des. sl. þannig að Alusuisse á að vera full ljóst hvað í henni felst. Þaö hefur tekið fyrirtækið viku að svara skeyti okkar og ég vek athygli á að Alusuisse telur sér henta að þessar skeytasendingar og áþreif- ingar endurómi í fjölmiðlum jafn- óðum. Með þessu er Alusuisse greinilega að reyna að hafa áhrif á almenningsálitið innanlands og hagnýta sér þá sundrungu seni varð nteð úrsögn Guðmundar G. Þórar- inssonar úr álviðræðunefndinni. Þótt viðbrögð Alusuise að undanförnu bendi ekki til þess að neinn raunhæfur vilji sé hjá þeim til að bregðast við sanngirniskröfum Islendinga, mun ég enn láta reyna á það alveg á næstunni. Á fundi 7. des. sl. var um það rætt að aðilar könnuðu viðhorfin frekar nteð orðsendingum og að efnt yrði til nýs fundar með skömmum fyrir- vara fyrir lok þessa mánaðar, ef einhver von væri til þess að það skilaði árangri, sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra. -S.dór Sáttatillaga iðnaðarráðherra 7. des. sl. • • I. 2. Að ísland fallist á tillögu Alu- suisse um að ágreiningur varðandi skattamáieffti veröi lagður í úrskurð þriggja manfia. Alusuisse samþykki réttmæti þess að rafmagnsverð til ái- versins sé leiðrétt og fallist á verulega byrjunarhækkun orkuverðsins. 3. Báðir aðilar lýsi sig reiðubúna til að ræða og leita samkomu- lags um ö.ll málefni er varða framtíðarsamskipti þeirra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.