Þjóðviljinn - 21.12.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 21.12.1982, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 21. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 RUV <9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Séra Sig- urður Sigurðarson á Selfossi flytur (a.v.d.v.) Gull í mund-Stefán Jón Haf- stein - Sigrfður Árnadóttir - Hildur Eiríksdóttir 7.25 Leikfimi. Umsjón: Jónína Benediktsdóttir. 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: Bjarni Karlsson talar. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Kom- móðan hennar langömmu“ eftir Birgit Bergkvist Helga Harðardóttir les þýð- ingu sína (21) 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Man ég það sem löngu leið“ Ragn- heiður Viggósdóttir sér um þáttinn. Flutt verður frumsamið og þýtt efni eftir Sigríði Thorlacíus. Lesari: Birna Sigur- björnsdóttir. 11.00 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 11.30 Þjónustuhlutverk Hjálparstofnunar kirkjunnar Þáttur Önundar Björns- sonar. Þriðjudagssyrpa-Páll Þorsteins- son og Þorgeir Ástvaldsson. 14.30 Á bókamarkaðinum Andrés Björns- son sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 15.00 Síðdegistónleikar 15.20 Tilkynningar. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Lagið þitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.00 „SPÚTNIK“ Sitthvað úr heimi vís- indanna Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónar- maður: Ólafur Torfason (RÚVAK) 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.45 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Gömul tónlist í nýjum búningi Hljómsveitin „Sinfonietta" leikur tón- list eftir Johann Sebastian Bach, Gustav Mahler, Claude Debussy og Johann Strauss í útsetningum Antons Weberns, Arnolds Schönbergs, Bennos Sachs og Albans Bergs. - Kynnir: Hjálmar R. Ragnarsson. (Hljóðritun frá austurríska útvarpinu) 21.45 Útvarpssagan: „Söngurinn um sorg- arkrána“ eftir Carson McCullers Eyvindur Erlendsson byrjar lestur þýð- ingar sinnar. 22.35 Oeining eða eining Þáttur í umsjá Hreins S. Hákonarsonar. 23.15 Oní kjölinn Umsjónarmenn: Krist- ján Jóh. Jónsson og Þorvaldur Krist- insson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV - 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Jólatréssögur. Barnamynd frá Tékk- óslóvakíu. Þýðandi Jón Gunnarsson. Sögumaður Sigrún Edda Björnsdóttir. 20.50 Andlegt líf í Austurheimi. (Spirit of Asia) Nýr flokkur. 1. Indónesíía. Skuggaveröld. Breskur heimildarþáttur í átta þáttum um lönd og þjóðir í Suður- og Suðaustur-Asíu, en einkum þó trúar- brögð þeirra og helgisiði að fornu og nýju og hvernig þau rnóta líf fólksins á þeim, stöðum sem vitjað verður. 22.00 Því spurði engin Evans? (Why Didn’t They Ask Evans?) Nýr flokkur. Bresk sakamálamynd í fjórum þáttum gerð eftir sögu Agatha Christie. Leik- stjórar: Tony Wharmby og John Davis. Með helstu hlutverk fara: Francesca Annis, sir John Gielgud, Eric Porter, JameS Warwick, Madeline Smith og Leigh Lawson. Spurning af vörum deyjandi manns beinir aðalsöguhetjun- unt, Bobby og Frances, á slóð slungins og kaidrifjaðs morðingja. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.55 Þingsjá Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónsson. 23.50 Dagskrárlok Útvarpið kl. 21.45. Ný útvarpssaga: Söngurinn um sorgarkrána Eyvindur Erlendsson les þýðingu sína Eyvindur Erlendsson mun í útvarpinu í kvöld, nánar til- tekið kl. 21.45, hefja lestur sinn á sögu bandarísku skáld- konunnar Carson McCullers, Söngurinn um sorgarkrána. Eyvindur hefur sjálfur þýtt söguna, sem tekur við iestri Baldvins Halldórssonar leikara á Skáldinu á Þröm eftir Gunnar M. Magnúss. „Þessi saga fjallar um óvenjulegan ástarþríhyrning þar sem söguhetjurnar eru hver annarri óálitlegri. Fyrsta lykilpersóna er alræmdur vandræðagemlingur, þá kem- ur tröllvaxin kona til sögunn- ar og heldur ófrýnileg, og loks vanskapaður dvergur. McCullers sækir sögusviðið til Suðurrfkja Bandaríkjanna þar sem í þorpi einu hefur ver- ið reist krá og færir hún birtu og yl í líf þorpsbúa. í þorpinu búa erfiðismenn margir og kráin er í raun hið eina sem veitir þeim einhverja gleði t döpru lífinu. Einn góðan veðurdag fer hún á hausinn og með því hrynur veröld fólks- ins sem hana sækir". Svo mæltist Eyvindi þegar Þjóð- viljinn hafði samband við hann í gær. Eyvindur sagði að Carson McCullers hefði skrif- að mikið um einntanaleik fólks, erfiðleika þess til að ná hvað :il annars og oft á tíðum óskýranlega hvöt þess til að hrinda hvert öðru frá sér. Með þekktari bókum höfundarins er The heart is a lonely hunter. Ósmekkleg skrif í Skráargatinu Þjóðviljinn túlkar í síðasta Sunnudagsblaði úrsögn Þórðar Ingva Guðmunds- sonar úr Alþýðubandalaginu. Er þar látið að því liggja að starf hans í stjórnmálallokkn- um ráðist af því hvar helst sé von „frama“ eða „gullinna tækifæra“. Þórður Ingvi var um iangt árabil virtur félagi í Alþýðu- bandalaginu. Við undirrituð höfum á þeim tíma starfað all- nokkuð með honum og viljum láta koma fram, að hann reyndist hinn nýtasti telagi í þeim störfum sem hann tók að sér. Það er hinsvegar meíra en segja má um ýmsa sem skolað hefur inn í okkar hreyfingu og þótt hefur nauðsynlegt að mylja meir undir en Þórð Ingva Guðmundsson. Þegar hann nú kýs að velja sér annan starfsvettvang í stjórnmálum er bæði ómak- legt og ósmekklegt af Þjóð- viljanum að túlka það með þessum hætti. Þess utan er verið að ítreka þann fordóm, sem því miður er almennur, að eigin frarni og metorð séu meginhvatar stjórnmálaþátttöku fólks. Sú hugsun er bæði lágkúruleg og andsósíalísk og því ekki Þjóð- viljanum samboðin. Þegar félagar yfirgefa flokkinn, kjósendum fækkar og Þjóðviljinn missir áskrif- endur, ætti það að verða blaðinu og okkur öllum til annars en barnalegra níð- skrifa af þessu tagi. Virðingarfyllst. Guðmundur Olafsson, Margrét Björnsdóttir. Þórður Ingvi Guðmundsson David Attenborough er leiðsögumaður í nýjum bresk- um framhaldsmyndaflokki sem hefur göngu sína í kvöld. Þættirnir fjalla um lönd og þjóðir í Suður- og Suð-austur- Ásíu, einkum þó trúarbrögð og helgisiði. Líf fólks og lífs- viðhorf verða ofarlega á baugi. í fyrsta þættinum verður staðnæmst í Indónesíu og gengið þar á land á nokkrum þeim eyjum af þeim 13000 sem þar eru. Innbyggjarar hafa huldið í forna helgisiði, og lifnaðar- hættir eru eins fjarri því að vera vestrænir og hugsast get- ur. Trúarbrögðin iðka þeir af miklum krafti með fórnum og gauragangi. Vegna legu eyjanna og fjarlægðar við „hinn siðmenntaða heim“ komast eyjaskeggjar ekki í neina snertingu við hina ind- versku menningu sem hefur haft svo geypileg áhrif á svo margar þjóðir á þessum slóðum. Lifnaðarhættir hafa í raun haldist lítt breyttir í um 2000 ár. Leiðsögumaðurinn, David Attenborugh, fer í þessum þætti í 4 eyjar, en þær eru allar langt frá hver annarri, en eiga þó margt sameiginlegt þegar grannt er skoðað. Skuggaveröld, heitir fyrsti þátturinn í framhaldsmyndaflokkn- um um Austurlönd. Þar verður fjallað um ýmislegt það sem fyrir augu ber í Indónesíu, helgisiði og annað Sjónvarp kl. 22: Því spurði enginn Evans? í kvöld hefst í sjónvarpinu nýr breskur framhaldsmynda- flokkur í fjórum þáttum. Ber hann heitið Því spurði enginn Evans?, og ereftirsamnefndri sögu Agötu Christie. Á sínum tíma stóð mikill styrr um rétt- inn til að gera sjónvarpsmynd eftir þessari sögu, en sjón- varpsstöðin í London, Ric- hard Price Television, hreppti hnossið. Með aðalhlutverk fara Francesca Annis, Sir John Gieguld, Eric Foster, James Warvick, Madeline Smith og Leigh Lawson. I grófum dráttum snýst sög- uþráðurinn um það þegar aðalsöguhetjurnar Frances og Bobby koma á vettvang deyjandi manns. Hann varpar fram spurningu sem kemur þeim á slóð forherts morð- ingja. Leikstjórar eru Tony Wharmby og John Davis. Þessi myndaflokkur er sá fyrsti sem Agatlia Christie gerði fyrir sjónvarp. Sagan gerist á árunum í kringum 1930. Aðalsöguhetjurnar í breska sjónvarpsmyndaflokknum, Því spurði enginn Evans? Bobby og Frances Eyvindur Erlendsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.