Þjóðviljinn - 21.12.1982, Side 8

Þjóðviljinn - 21.12.1982, Side 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. desember 1982 bókmenntir Bergþóra Gísladóttir skrifar um bókmenntir Mömmustrákur Höfundur: Guðni Kolbeinsson Myndir: Ragnar Lár Útgefandi: Vaka, 1982. Við sem gefum okkur í það um- deilda hlutverk að skrifa um bækur, fáum oft orö í eyra, enda tæpast við öðru að búast, þar sem í svona skrifum felst gjarnan ein- hverskonar mat. Það er að sjálf- sögðu misjafnt hvað lagt er til grundvallar í slíku mati, en hvað sem allri bókmenntafræðilegri þekkingu líður hlýtur alltaf smekk- ur og gildismat að vega þungt, en hvort tveggja er umdeilanlegt. Mér fellur alltaf þungt að lasta skrif ann- arra og hef því komið mér í svipaða aðstöðu og Gunnar á Hlíðarenda gagnvart vígaferlum sínum forð- um, sem hann lýsir svo í samtali við Kolskegg bróður sinn: „Hvað ég veit“ segir Gunnar, „hvort ég mun því óvaskari maður en aðrir menn, sem mér þykir meira fyrir en öðr- um mönnum að vega menn.“ Að sama skapi og mér er óljúft að Brennum mömmubarnið æpti Villi. „vega“ í skrifum mínum, er mér það lj úf ánægja að lesa og skrifa um bækur, sem mér þykja góðar, þótt það sé í reynd oft erfiðara að festa fingúr á og lýsa kostum bókar held- ur en-göllum. Þannig er um þessa bók. Hún er í senn ánægjuleg lesn- ing og svo sönn, að maður situr eftir og hugsar um persónur hennar sem lifandi fólk, sem hljóti að lifa sínu h'fi einhversstaðar yfir utan síður bókarinnar. Gömul saga en þó ný Sagan segir frá ungum dreng, sem á fyrst og fremst móður sína að og virðist öruggur um sinn hag og sáttur við hlutskipti sitt. Hann veit ekki hver faðir hans er og elur með sér draum að kynnast honum. En ekki geta allir draumar ræst og eiginlega skiptir það litlu máli sam- anborið við þá aðsteðjandi hættu að þurfa e.t.v. að eiga móður sína með öðrum. Sagan segir frá innri baráttu, sem mömmustrákur verð- ur að heyja þegar öryggi hans er ógnað á þennan hátt. Auðvitað gerist ótal margt annað í lífi þessa unga manns. Honum er strítt á því að vera mömmustrákur og ekki bætir það úr skák að hann leikur sér með dúkkur og ekki er alltaf gott að vita hvað að manni snýr frá vinum og óvinum. En allt er þetta lítilræði miðað við þá ógn, sem honum stafar af keppinautnum um hylli móðurinnar. Yrkisefnið er ekki nýtt. Um þetta hefur oft verið fjallað og m.a. af snillingi íslenskra barnabókmennta, Stefáni Jóns- syni. Og hvað sem öllum fyrir- myndum líður finnur Guðni sér sinn tón til að lýsa þeim flóknu til- finningum, sem upp koma við slík- ar aðstæður. Frásagan er hlý og laus við væmni. Og ekki má gleyma hinum glettna undirtón sem gefur verkinu fyllingu. Bókin er á góðu og eðlilegu máli og læsileg þeim sem náð hafa nokkru valdi á lestri. Og auðvitað hentar hún einnig vel til upplestrar fyrir þá sem ekki geta stautað sjálfir. Orlitlir eftirþankar Ég er stöðugt að reka mig á að börn meta bækur á sinn hát.t og oft ólíkt því, sem við fullorðin ætlumst til og búumst við. Við lítum á verk- ið sem heild og leggjum mikið upp úr því hvernig ólíkir þættir tengjast innbyrðis. Við lesum sögu frá upp- hafi til enda. Börn (þau sem ég þekki) gera aðrar kröfur. Þau grípa einstaka þætti og einstök atvik sög- unnar og virðast hafa af þeim fullt gaman, burt séð frá allri heildar- framvindu mála. Einn mér nákom- inn 8 ára sagði um þessa bók: Mér finnst mest gaman að sögunni um indjánaleikinn. Hún var alveg æðislega spennandi. Þegar ég síðan spurði hann hvort hann væri búinn að lesa bókina, svaraði hann: Eiginlega, fyrst las ég þær sögur, sem voru mest spennandi. En það voru að hans mati „Indjánaleikur er svaka spennandi“ og „Bílstjór- inn vildi aldrei stoppa." En svo heita tveir af 10 köflum bókarinn- ar. Svona á ekki að lesa bækur, eða hvað? í bókinni eru myndir eftir Ragnar Lár. Mér finnst þær nokk- uð stirðbusalegar og bæta litlu við það sem höfundurinn segir okkur í rituðu máli. En þetta er nú bara stíllinn hans Ragnars Lár og við því er lítið að segja. í þessu sem öðru gildir ólíkur smekkur og hver verð- ur að dæma fyrir sig. Mér finnst bókinni hefði hæft betur annar og mýkri og léttari stíll. - bg Árni Bergmann skrifar um bókmenntir Vistfræði fyrir byrjendur. Eftir Stephen Cruall og VVilliam Kankin. Þýðandi Pétur Reimarsson. Svart á hvílu, 1982. Svart á hvítu er eitt af þeim nýju forlögum sem upp hafa skotið kolli. Móðurskip útgerðarinnar er Slangurorðabókin, sem býður menn að skoða sig um á „ófínum" málsslóðum og verður sú bók skemmtileg bæði þeim sem fyrir aldurs sakir veit ekki nema fátt um það hvað höfuðsntiðir slangursins, unglingarnir eru að plotta, og svo þeim sem hafa áhuga á þenslu- Móðólfur karlinn í Móðólfsfelli vitjar mcyjarmálanna. við tímaritið Mad, og mannfólki jafnt sem ýmsum lífverum öðrum eru lagðar í munn ýmislegar og ein- att vel háðskar athugasemdir við þá hörmungasögu sem viðskipti mannkyns við náttúru og auðlindir er. Það er ljóst að þetta er vinstrim- annakver: þar er mikil áhersla lögð á það, að kapítalisminn sé í eðli sínu andstæð.ur sjónarmiðum þeirra sem vilja spara orku og hrá- efni, sem vilja fara varlega með vatn og loft, sem vilja dreifa valdi svo að hver og einn beri sem mesta ábyrgð á sínu umhverfi, þeirra sem spyrja ekki bara um hagvöxt, held- ur líka um það hvers eðlis hagvöxt- ur er og hvaða verði keyptur. Um' leið vita bókarhöfundar af því, að marxisminn og byltingarríkin hafa framið miklar vanrækslusyndir í Myndasöguaöferðin og þarfar upplýsingar möguleikum orða og orðasam- auðkenndur er með því að þar fari banda yfirleitt. bækur „fyrir byrjendur." Önnur er Tvær bækur koma út í flokki sem um Freud og kenningar hans og Styrkur til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Bretlandi Breska sendiráðið í Reykjavík hefur tjáð íslenskum stjórnvöldum að The British Council bjóði fram styrk handa íslendingi til náms eða rannsóknastarfa við háskóla eöa aðra vísindastofnun í Bretlandi háskólaárið 1983-84. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi og að öðru jöfnu vera á aldrinum 25-30 ára. Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 15. janúar n.k. Umsókn skulu fylgja staðfest afrit prófskírteina og meðmæli. Tilskilin eyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig í breska sendiráðinu, Laufásvegi 49, Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 15. desember 1982. afdrif þeirra, hin er um vistfræði. Báðar bera bækurnar sterkan keim af einhverju sem kannski mætti kalla æskumenningu. Það á að bjóða upp á nýjar og aðgengilegar og skemmtilegar leiðir til að miðla fróðleik. Upplýsingarnar eru ekki reiddar fram í sérlega hátíðlegu formi. „Slangur" fær að njóta sín í textanum. Og síðast en ekki síst: bækurnar eru einskonar svar við myndasögumenningunni, sem oft- ast er höfð til að fara með „skrípó" eða sýna yfirnáttúrlega garpa. Hver síða er samfléttun texta og mynda og má hvorugt án annars vera. Myndakosturinn er reyndar fjölbreytilegur - þar eru ljósmynd- ir, gamlar teikningar, myndefni fræðibóka sem og persónur í ætt vistfræðilegum efnum og einnig tekið mikinn þátt í skemmdarverk- um hagvaxtarhyggjunnar. Sá sem hefur um nokkurt skeið fylgst með vistfræðiumræðunni mun kannast við margt eða flest það sem í bókinni er sagt. En það rýrir ekki gildi hennar sem skemmtilegrar „byrjendabókar" sem leitast við að koma þýðing- armiklum upplýsingum á framfæri, ekki síst við þá kynslóð sem hefur vanist á ofurvald myndarinnar. Texti og mynd, fróðleikur og skemmtun, vinna oft vel saman í bók sem þessari og betur en gerist t.d. í ýmsum flottum fræðsluritum, sem eru svo glæsilega myndskreytt, að textinn vill týnast. Frá konu til allra Þórunn Sigurðardóttir skrifar um bókmenntir Lucienne Lanson: Frá konu til konu. Skjaldhorg. í kjölfar aukinnar umræðu um jafnréttismál hafa heyrst raddir, sem vilja gera sem minnst úr „sér- stöðu“ konunnar hvað snertir líf- fræðilega þætti, - blæðingar, barn- eignir og allt annað sem að því lýtur. Af hræðslu við að konur verði endanlega viðurkenndar sem hið „veika" kyn vegna óteljandi „veikindamöguleika“ er tengjast líffræðilegu hlutverki þeirra vilja þessar raddir kveða niður allt tal um einhverja erfiðleika samfara hinum líffræðilegu staðreyndum. Ekki veit ég hvort konum er mikill greiði gerður með því að reyna að fela þann beiska sannleik, að mikill hluti kvenna, líklega meirihluti, þjáist meira eða minna, - skemmri eða lengri hluta ævinnar af ein- hverjum fylgikvillum hins líffræði- lega hlutverks eða óhjákvæmi- Iegum „hliðarverkunum." Og það verður hennar einkamál. Hvaða kona biður t.d. vinnu- veitanda sinn um frí mánaðarlega, vegna þess að hún hefur svo miklar blæðingar, að skrifstofuhúsgögnin eru í stórhættu? Líklega er nógu erfitt fyrir hana að fá kaup í barn- eignarfríinu eða, ef henni er skipað að liggja í rúminu á meðgöngu vegna hættu á fósturláti. Um leið og menn tala með tárin í augunum um fóstureyðingar, er ekki viður- kennt að konur fái að halda kaupinu sínu, þegar þær verða að liggja í rúminu á meðgöngu til að missa ekki fóstrið. Þetta kann að vera undarlegur formáli, en þó kannski nauðsyn- legur þegar fjalla á um bók sem tekur fyrir það sem einkum og sérí- lagi fylgir því að tilheyra hinu margfræga kvenkyni. Bókin „Frá konu til konu“ ætti kannski að heita „Frá konu til karlmanns", því svo brýnf sem það er að skýra kon- um frá ýmsum staðreyndum varð- andi þessi flóknu mál, er sannar- lega ekki vanþörf á að fræða karl- mennina einnig. Bók þessi er skrifuð af sérfræð- ingi í kvensjúkdómum, Lucienne Lanson. Hún er kona og ætti það að vera kostur þegar um þessi mál er fjallað. Bókin fjallar af þekk- ingu og skilningi um efnið, án þess að vera óþægilega afsakandi eða hispurslaus. An þess að ástæða sé til að gera lítið úr starfi þeirra fjölmörgu karlmanna sem sérhæfa sig í kvenlækningum, hlýtur sér- staða kvenna í þessum efnum að vera ótvíræð. Allt of fáar konur hafa snúið sér að kvenlækningunr. Og það er ekki hægt að horfa fram hjá samhengi á milli fjarveru kvenna í þessu fagi og ýmissa „framfara“ á sviði t.d. getnaðar- varna. Nær allar getnaðarvarnir sem fram hafa komið síðustu ára - tugina eru ætlaðar konum og allar hafa þær einhver áhrif, andleg eða líkamleg. Á meðan blása karlmenn í smokkana sína og segja að það sé eins og að éta karamellu með bréf- inu að sofa hjá konu og nota smokk. Ef til vill er kúgun kvenna al- mennt á vinnumarkaði og á heimil- um lang mest þegar kemur að hinni líkantlegu sérstöðu. Öll þessi atriði eru vel rakin í bókinni með virð- ingu og hlýju til kvenna og öllu sem þeim fylgir. Hér er tekið á vanda- málununr, en ekki reynt að gera lítið úr þeim. Kaflinn um grindar- holsskoðunina er ágætur og sannar þá kenningu að enginn karlmaður eigi að fá leyfi til kvenlækninga nema að hafa sjálfur sest upp í „gálgann" og dinglað þar fyrir framan múg og margmenni. Þetta mega allar konur reyna, fyrr eða síðar, hvort sem þeim líkar betur eða verr. þs

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.