Þjóðviljinn - 24.12.1982, Page 2

Þjóðviljinn - 24.12.1982, Page 2
2 siÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. desember 1982 hvihmyndír Kf>ill Ólaf'sson: Leikari af guðs náð. Stuðmenn í stuði Ingibjörg Haraldsd. skrifar Með allf á hreinu, íslaiui, 1982. Leiksfjórn: Agúst (iuðmundsson. Kvikinviidun: Dave Bridj’es. Tónlist: Stuðmenn_oj> (irýlurnar. Leikendur: Kf>ill Olal'sson, Ragn- liildur (iísladóttir, K)>}>ert Þorleifs- son, Jakob Magnússon, Anna Björnsdóttir, Flosi Olal'sson, Sæ- mundur Pálsson o.ll. I’að er vel til liinclið að frumsýna siingva- oggleðimyndina Með allt á lireinu nú í svartasta skammdeg- inu. jiegar meirihluti landsmanna er að stressast uppiir skónum vegna yfirvolandi jólahalds og |veirra Ijárhagslegu hremminga sem því l'vlgja. A þessum síðustu og verstu tímum er það hreinn munaður að fá að hkvja ærlega í tvo fíma samfleytt og gleyma á meðan livtir jólaskórinn kreppir. Með allt á hreinu er tiinlistar- mvnd. og skilgreiningiii sem aðstandendur hennar nota. si'ingva- og gleðimvnd. hæfir henni einkar vel. Tónlistin skiptir öllu ntáli. er uppistaða og þungamiðja myndarinnar. og gleðin beinlínis streymir af t jaldinu útí áhorfenda- salinn. I'etta er græskulaust gíiman, mestan part. þiitt ýmsum skotum sé skotið. Skotmörkin svnast mér aðallega vera í hinum íslenska poppheimi og þarf eflaust meiri þekkingu á þeim heimi heldur en ég bý yfir til að meta aö íullu hvar Stuðmenn hitta beint í mark, hverjum er verið að stríða. Með þessum fyrirvara þykist ég geta haldiö því fram að Með allt á hreinu sé næsta góðlátleg grín- mynd og alls engin ádeilumynd. Stuðmenn áttu hugmyndina, og þetta er fyrst og fremst þeirra kvik- mynd, þeirra „show". I'eirraer líka húmorinn. a.m.k. finnst mér ég kannast við hann úr þeim gömlu stuðmannalögum sem óskalaga- þættir liafa miölaö mérgegnum ár- in, þott það mundi vefjast fyrir mér aö skilgreina þann húmor nánar. Smitandi gleði Agúst Guðmundsson heldur utanum þetta alltsaman föstu en Ijúfmannlegu taki, einsog hans er von og vísa. I lann leyfir æringjun- um að ærslast en sér um að ekkert fari úr böntlum. sem veröur að telj- ast þrekvirki. Myndin ber það ein- hvernveginn með sér að andrúms- loftið við gerð hennar hafi veriö gptt og ailir liafi skemmt sér mæta- vel. Þessháttar skilar sér yfirleitt í hinu endanlega þródúkti. Gleðih er smitandi. Söguþráðurinn. sem spunninn er til að tengja saman lcigin og gera mvndina að ciðru og meira en myndskreyttri hljómplötu. er þunnur, en haglega spunninn. Grýlurnareru til kallaðar og koinið af stað einskonar stríði milli kynj- anna. Stríðið er. háð á tveimur víg- völlutn: í einkalífinu og atvinnu- lífinu, rétt einsog í raunveruleikan- um sjálfum. Þetta er stríð milli tveggja einstaklinga og milli tveggja hljómsveita. Söngvarar hljómsveitanna, Kristinn Styrkárs- son Proppé (Egill Ólafsson) og ilarpa Sjöfn (Ragnhildur Gísla- dóttir), eru elskendur sem rífast í upphafi myndar og ná saman í myndarlok á hérumbil hefðbund- inn Uollywoodmáta. Rifrildi þeirra hleypir af stað grimmilégri samkeppni hljómsveitanna tveggja á tónleikaferð um landið, sam- keppni sem endiir með því að hljómsveitirnar ná saman aftur unr leið og söngvararnir. Allt er þetta náttúrulega of einfalt og hefðbund- ið fyrir Stuðmenn, og þeir geta ekki á sér setið að skennna formúl- una og skilja áhorfandann eftir í óvissunni. Að „meika það“ Fólkiö sem við kynntumst í þess- ari inynd er allt haldiö þeirri áráttu að vilja endilega slá í gegn, „meika það“ einsog það heitir í myndinni, en á fínu máli væri þetta kallað framadraumar. Hámark framans er að „meika það" í útlöndum, verða heimsfrægur. Þessi árátta mun liafa hrjáö íslenska poppara allt trá dögum I lljóma og gerir víst enn. og í myndinni er óspart gert grín aö henni. Mun kannski ein- hverjum þykja á sér hoppað. Með allt á lireinu er tónlistar- mynd, sem fyrr segir, og leikend- urnir eru flestir tónlistarfólk, frem- ur en leikarar. Mér virðist það ekki koma að sök, enda gera hlutverkin ekki störar kröfur um leikræna inn- lifiin. Nokkrir standa sig afbragðs vel. Egill Ólafsson er leikari af guðs náð, það vissu menn áður og kemur enguni á óvart. Hinsvegar kentur Eggert Þorleifsson mjög skemmtilega á óvart í hlutverki Dúdda, hljóðfæraflutningsmanns- ins sem hvað eftir annað lendir í að bjarga því sem bjargað verður þegar allt er komið f óefni á böllun- um þar sem Stuðmenn skemmta. Skyggnilýsingarnar hans eru t.d. óborganlegar. Par að auki tókst Eggerti mætavel að túlka barnslega hégómagirni og auðsærða lund þessarur persónu, og er ég illa svik- in et hann er ekki efni í góðan gam- anleikara. Vonandi fær hann tæki- færi til að staðfesta þá kenningu mína sem fyrst. Myndin er morandi í bröndur- um. sem eru afskaplega staðbundn- ir. Ég held það sé óhætt að segja að þetta sé rammíslensk kvik- mynd. Engu að síður-eða kannski einmitt þessvegna - held ég aö luin hljóti að eiga erindi út fyrir land- steinana. Og hún á örugglega erindi til flestra aldurshópa. Það hafa allir gott af að hlæja, líka þeir sem eru að örmagnast í jólastressinu. Hver verður lygalaupur mánaðarins? Og hér kemur enn ein lygasagan og aö þessu sinni frá Selfossi. Höfundur hennar keppir um titilinn lygalaupur des- embermánaðar. Þeir sem vilja taka þátt í keppninni setjist niöur og skrifi eins góöa lygasögu, helst þó ekki lengri en 1-2 vélritaðarsíður. Heimilisfangið er Þjóöviljinn, Síðurmúla 6, Rvík c/o Guðjón Friðriksson. Himnaríki og helvíti I sveit nokkurri norður í landi, bar það til tíðinda dag nokkurn í enduðunt þorra, að einsetumaðurinn Jón bóndi Kormáksson á íllbrunastöðum dó. Gerðist þetta frostavetur- inn mikla, þann er svo margir til vitna. Kvöld eitt, hafði Jón bóndi verið á leið heim til bæjar, frá að gefa kindum þeim er í fjárhúsinu voru moðtuggu, þar sem aljt ætilegt hey var upp- etið. Snjóalög voru mikil og höfðu verið allt frá haustdög- um, því hafði fénaður verið á gjöf allan tímann, var það þó huggun harmi gegn að fénu fækkaði dag frá degi, vegna hors. Leið sú er Jón bóndi gekk frá fjárhúsinu til bæjar, var um 300 m. iöng og heldur upp á við. Er Jón var u.þ.b. hálfnaður á göngu sinni, veit hann ekki fyrr til en hann frýs fastur í snjóinn og fær sig livergi hreyft. Hann finnur nú hvernig doði færist um sig allan, honunt hitnar og fer að líða vel. Líður nú langur tími og er þá sem Jóni fari loks að skiljast það að hann sé fros- inn - dáinn. Hann lítur nú á líkama sinn og verður hálf skömmustulegur yfir því að deyja í þessunt galla, hann hafi þó átt betri föt inni í bæ, einnig finnst honum gúmmískórnir lítt viöeigandi, en þó tekur alveg yfir að hafa haft hendurnar svona aftan við bak. vinstri hendi hangandi í lófa þeirrar hægri. En við þessu er ekkert hægt að gera, hann þarf að drít'a sig til himins hið snarasta. Hann ákveður þó að kíkja heim að eldhúsglugga til að aðgæta hvað frostið mældist á gamfa frost- mælinum. Sá hann sér til gleði að frostið var tæpar 50 gráður og hugsaði með sér að það væri eins gott, því það hefði þótt saga til næsta bæjar hefði hann frosið í kannski 20 gráðum. Hefst nú hinsta gangan, þessi langa. Honuni gramdist að eng- inn mjólkurbíll æki þessa leið, enda alveg viss um að Bjössi hefði leyft sér að sitja í. Hann velti fyrir sér hvurn andskotann fólkið drykki þarna uppi fyrst Bjössi keyrði ekki til þeirra mjólk. Má ske límonaði, má ske límonaði, heyrðist karl tauta einhvers staðar ofan við skýin. Han setti nú upp vaktakerfi á gönguna. gekk í 8 tíma, hljóp jafn lengi og hvíldi sig svo í 8 tíma, þetta gaf góða raun og sóttist ferðin nú vel. Veit hann nú ekki fyrr til en hann sér skammt frá sér háan og mikinn steinvegg. sem næreins langt og augað eygir til beggja hliða. en þar sem hann var nýbvrjaður á hlaupavakt. hleypur hann nú meðfram veggnum. staðráðinn í að hlaupa þar til hann kæmi að hliðinu hinu gullna. þar sent það hlaut að vera einhvers stað- ar við þennan vegg. Jón hafði nú heppnina með sér, eftir ca. 4tíma hlaup kemur hann að hliðinu. Hann hallar sér nú upp að veggnum og blæs mæðinni svolitla stund, fer síðan að lesa á dyrasífnann en þar voru ótal nöfn og sér að við neðstu bjöll- una stendur. húsvörður, á hana þrýstir hann og bíður. Heyrir hann nú að sagt er í dyrasímann, Hver er þar? Jón Kormáksson mættur hér, svar- ar hann. Átti von á þér, kem niður, sagði röddin. Líður nú örskömm stund, áður en hliðinu er hrundið upp og út kemur hár maður, dökk- hærður, laglegur með mikið skegg, íklæddur skikkju og í sandölum. Og hver ert þú? spyr Jón. Ég heiti Pétur, segir mað- urinn og kem hér til að segja þér, aö hingað inn keríiur þú ekki. Við guð ákváðum á fundi í síðasta mánuði aö hleypa ekki fleirum bændum hingað inn, vegna þeirrar erfiðu stöðu sem þeir hafa konrið þjóð sinni í með offramleiðslu á kjöti og mjólk, en ef þú gengur hérna niður þessa götu til enda og beygir þar til vinstri, skaltu prufa að banka upá hús númer 2 en þar býr Andskotinn og hann vantar fólk núna, veit ég er, því hann var að auglýsa eftir mann- skap í gær, vertu sæíl. Jón bóndi hugsar nú mál sitt, heim í sveitina fer ég ekki, hjá Himnasamsteypunni fæ ég ekki að vera, svo þá er bara að prufa það sjðasta. Hann þrýsti á bjöll- una á húsi númer 2. en undir henni stóð Andskotinn. Hurðin opnast og út kemur myndar- legur eldri maður, vel rakaður í dýrum fötum, heilsar og býður Jón velkominn. Við vorum ein- mitt að auglýsa eftir fólki, segir hann, svo það var gott þú komst hingað. Hjá okkur er unnin 40 stunda vinnuvika, þú færð gott kaup og skattfrjálst því við svíkjum allt undan hér. Ég leigi þér 2ja herbergja íbúð í blokk á lágu verði og engri fyrirfram- greiðslu, ef þú vinnur hjá mér, einnig greiði ég fullar verðbæt- ur á laun á þriggja mánaða fresti, en það gerir Himnasam- steypan ekki, líst þérekki vel á? Jú, svara Jón bóndi. Okey, þá ertu ráðinn, byrjar strax í fyrra- málið klukkan 8. Jón Kormáksson fékk síðan afhenta lyklana að íbúðinni og gekk þangað til að skoða. íbúðin reyndist fullbúinágætum húsgögnum. og Jón fær sér sæti í djúpa sófanum í stofunni, kveikir á sjónvarpinu. þykir dagskráin óskemmtileg, stillir á vídeóið og fer að horfa á kvik- mynd. Upp i huga hans koma alískonar gamlar hugsanir: Hvað var séra Guðgeir á Holi aftur að tala um þegar ég fór síðast til messu? Ingjaldur Arnþórsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.