Þjóðviljinn - 24.12.1982, Síða 13
Föstudagur 24. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Sextugur 25. desember
Böðvar Pétursson
Ég má til meö að biðja Þjóðvilj-
ann að taka litla afmæliskveðju til
Böðvars Péturssonar, verslunar-
manns, sem 'nú ersextugur, bæði til
að árna honum heilla og þakka
honum liðinn tíma og baráttufé-
lagsskap.
Ég kynntist Böðvari í lok
heimsstyrjaldarinnar í pólitísku
starfi á vegum Sósíalistaflokksins
og Æskulýðsíylkingarinnar. Hann
var þar. ungur að árum. í röð for-
ystumanna er mig bar að garði.
Böðvar var einlægur í félagsstörf-
unt og hreif menn með sér að
rnaður tali nú ekki um fórnfýsina
sent öllum var til fyrirmyndar.
Böðvar var rökfastur og fimur
fundarmaður og talaði alltaf blaða-
laust. Pessi mynd af Böðvari kem-
ur mér fyrir hugskotssjónir þegar
ég hugsa til hans á sextugsafmæl-
inu. Eitt reyndi ég að læra af
Böðvari í þá daga, sent nefna mætti
félagsleg samráð. Sterkasti þáttur-
inn í starfsstíl Böðvars var sá, hve
mjög hann sem forystumaður
leitaði eftir samráði við ielaga sína
unt félagslegar ákvarðanir; árang-
ur félagslegra athafna er undir því
korninn hversu vel þær eru „vald-
aðar".
Margs er að minnast frá þessum
tíma og bjart er yfir þeim ntinning-
unt. Ég vil flytja Böðvari hugheilar
þakkir fyrir hin dýrmætu störf hans
í þágu þeirrar hugsjónar sem bind-
ur okkur satnan, hvort sem þau
störf tengdust sjálfri kvikunni í
stjórnmálaátökum þess tíma, svo
sem 30. mars og stóra Dagsbrún-
arverkfallinu, eða þau lutu að fé-
lagslegri uppbyggingu svo sem
Landnemanum eða skíðaskálan-
unt, svo eitthvað sé nefnt.
Böðvar er einnig mjög athafna-
samur á öðrum félagslegum svið-
um. Hann er göngugarpur mikill
og hefur starfað með ágætum innan
Ferðatelags lslands. I lann er feiki-
legur áhugamaður unt knattspyrnu
og hefur veriö í stjórn Fram um
árabil. Hann var og lengi í æsku-
lýðsráði Reykjavíkur.
Böðvar byrjaði að vinna hjá
Ragnari í Smára 1949. og hefur
veitt Bókaútgáfunni Helgafelli for-
stöðu æ síöan. I tengslum við það
starf hefur hann starfað innan
hagsmunasamtaka verslunarfólks
og getið sér þar hið best orð fyrir
atorku, raunsæi og samviskusemi.
Hann var í nefnd þeirri er undirbjó
stofnun Landssambands íslenskra
verslunarmanna og í fyrstu stjórn
þess og síðan, svo og í stjórn Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur frá
1978.
Böðvar er fæddur á jóladag 25.
desember 1922. Afmæliskveðja
mín er því einnig bundin jólahátíð-
inni.
Ég vil enda hana með því að minna
Böðvar á ræðu sem við hevrðum eitt
sinn Sigfús heitinn Sigurhjartar-
son flytja á fundi ungra sósíalista
og ræddi hann þá m.a. um söfnuði
frumkristinna manna. Sigfús vitn-
aði t þessi orð Postulasögunnar:
....En í hinunt fjölmenna hóp
þeirra. sem trú höfðu tekið, var eitt
hjarta og ein sál. og enginn þeirra
taldi neitt vera sitt. er hann átti.
heldur var þeim allt sameigin-
legt... því að eigi var heldur neinn
þurfandi meðal þeirra. því ;tð allir
landeigendur og húseigendur
seldu, og komu með andvirði hins
selda, og lögðu fyrir fætur postul-
anria, og sérhverjum var úthlutað
eftir því sem hann hafði þörf
fyrir...“
Okkur fannst þessi lýsing á hin-
um frumkristnu söfnuðum gefa
skýra og ótvíræða mynd og vís-
bendingu um það samfélag sem
byggja verður á vitrænum og sið-
rænum grundvelli, samstarfs, sam-
hjálpar og sameignar.
Lifðu heill,
Ingi R. Helgason.
Böðvar. það hefur spurst þú
verðir sextugur á jóladag. Síst af
öllu leiddi ég hugann að því í vor
þegar þú hafðir næstum sprengt
mig af mæði á E'sju, að munaöi 15
árurn á okkur. Eða þá i fyrra þegar
við ferðafélagarnir eltum þig um
Hengil, tinda og skörð en náöum
þér ekki frekar en regnboganum.
Það er ansi hart finnst manni, að
hafa varla þrek á við sextugan
mann, en af því að þú átt í hlut, tek
ég samanburðinn ekki nærri mér.
Böðvar. Pað hugsa áreiðanlega
margir hlýtt til ykkar þessa daga,
jólabarnsins og þín. Spor þín eru
víða, spor elju og framsækni. Af
umtali veit ég að þú varst skrattans
ári góöur knattspyrnumaður og ég
veit líka hve vel þú hefur unnið
stéttarfélagi þínu V.R. annars veg-
ar og pólitískum flokki Itins vegar.
svo báðir hafa grætt en hvorugur
goldið hins. Ég hef einnig sannfrétt
að þú hafir starfað vel sem íélagi
og stjórnarmaður Ferðafélagsins.
Hitt veit ég hinsvegar gerst og af
eigin raun. að þú ert góður feröa-
maður og ágætur ferðafélagi og á
þeim slóðunt höfum við lengi vitað
hvor af öðrum.
Þegarmér datt í hug að senda
þér kveóju í þessu formi, kviknaði
á ýmsum perum í sálarkompunni. í
örfá skipti ár hvert telst þaö ekki
syndsamlegt í ferðum Ferðafélags-
ins, að hafa meðferðis pela í sokk-
bol og dreypa á honum', einkum að
vetrarlagi. Ekki ætla ég að bera á
þig brennivínsdrukk. stakan regl-
umanninn. Fyrir mína parta met ég
það hins vegar við þig að þú ert
aldrei svo illyrmislega edrú. að vit-
ið taki „alfarið" völdin af gleðinni,
heldur ertu ávallt á þinn hógláta
máta hrókur fagnaðarins. en pass-
ar að skvnsemin fari ekki af bæ.
Úr því ég er byrjaður að tala urn
vín við þig bindindismanninn, ætla
ég að minna þig á það, að þú
stuðlaðir að því eftir krókaleiöum
að mér var gefið vín, þegar lá lífið
við sem aldrei áður né síðar.
Pann 17. ágúst fvrir nær áratug
gerði slydduhríð og sterkviðri á
afréttum sunnan jökla. Svo illt var
veðrið að gestir sæluhússins í
Veiðivötnum komust trauðla til
kamars en gerðu öll sín stvkki
innan dyra. Aðfararnótt 18. ágúst á
sjötta tímanum brast tjald okkar
3ja félaga þar sem við höföum látið
fyrirberast við Hrafntinnusker.
Blautir og kaldir urðum við að
þæfa hnédjúpan krapasnjó á leið til
Landmannalauga. Seint á sunnu-
dagskvöldi urðum við að gefast
upp þrotnir að kröftum á melöld-
unum suðuraf Brennisteinsöldu.
Við skriðum í blauta pokana og
vöfðum tjalddúknum utanum okk-
ur og áttum vonda nótt. Næsta dag
var besta veöur en sökum þrek-
leysis létum við eftir liggja hluta
ferðabúnaðarins, en stauluðumst
reikulir i spori urn Laugahraun til
skála F.í.
Seint nuinuni við félagar gleyma
móttökunum í skálanum og ekki
áttir þú Böðvar minnstan þátt í
þeini og einhvern dularfullan útveg
hafðirðu á því konjaki sem best
hefur bragðast mér og látið var
seytla um æðar vorar og hraknings-
manna eins og töfralyf.
Sjálfboðið hljópstu einnig eftir
böggum okkar uppí fjöll og varst
reyndar kominn til baka áður en
nokkur vissi að þú hefðir farið.
Ekki ætla ég að hafa þessa
kveðju lengri, enda náttúrlega tíu
árum of snemma á ferðinni. Hins
vegar óska ég þess, kæri félagi og
veit að ég tala í nafni fjölmargra
ferðafélaga okkar. að tala áranna
vaxi þér ekkert í augum, en þú
haldir áfram ao sækja fjallkonuna
heim og dveljir oft og lengi við fald-
inn hennar hreinan.
Lifðu heill.
Júhannes Kiríksson
60 ára er á jóladag Böðvar Pét-
ursson. verslunarmaður hjá Bóka-
útgáfunni Helgafell. einn ötulasti
forystumaður verslunarsamtak-
anna.
Böövar er einn hæfasti félags-
málamaður sem ég hef haft kynni
af. ósérhlífinn, ötull og óvenju
nærnur þegar þarf að setja sig inn í
mál.
Pað hefur verið rriikið lán fyrir
samtök verslunarmanna og verka-
lýössamtökin að hann skuli hafa
helgað þeim krafta sína eins mikið
og hann hefur gert. Annars má
segja að þegar félagmál eiga í hlut
þá sé honum ekkert öviðkomandi,
sama hvort það eru mál verkalýðs-
hreyfingarinnar, félagsmál sam-
vinnuhreyfingarinnar og ferðamál.
Böðvar hefur verið einn af aðal-
sam ningamön num versl unarsam-
takanna frá því að samtökin fóru
fyrst að semja um sín kjör. Hann
átti sæti í undirbúningsnefnd að
stofnun Landssambands verslunar-
manna og hefur verið í fram-
kvæmdastjórn þess lengst af, einn-
ig hefur hann verið í stjórn Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur í
mörg ár. Pá hefur hann starfað
mikiö að lífeyrissjóðsmálum sam-
takanna, átti sæti í nefnd þeirri sem
samdi fyrst um þau mál ogátti mik-
inn þátt í að semja fyrstu reglugerð
sjóðsins. Einnig hefur liann frá
upphafi átt sæti í orlofsnefnd V.R.
og er þá fátt eitt upptalið af því
mikla starfi sem hann hefur unnið
fyrir samtök verslunarmanna.
Böðvar er einnig mikill áhuga-
maður urn mál Samvinnuhreyfingar-
innar og hefur átt sæti í stjórn
K.R.O.N. í mörg ár. Ekki má
gleynta áhuga hans á feröamálum.
en á því sviði liggur hann ekki á liöi
sínu frekar en annarsstaðar og er í
stjórn Feröafélags lslands.
Að lokum þakka ég þér fyrir
langt og ánægjulegt samstarf sem
viö höfum átt í gegnum árin og
óska þér og fjölskyldu þinni til
hamingju meö daginn, gleðilegra
jóla og farsæls kontandi árs.
Ouðmundur Júnsson.
25. des. verður íþróttamaður-
inn, verkalýösforinginn og feröa-
garpurinn Böðvar Pétursson, ver-
zlunarstjóri í Unuhúsi 60 ára.
Kynni okkar Böðvars hófust
fyrir röskum 20 árum, er ég fór að
feröast á vegum Ferðafélags ís-
lands. Kynnin urðu svo nánari eftir
að viö vorum báöir komnir í stjórn
F.Í., en þar hefur Böðvar. átt sæti
síðan 1976 og ávallt verið endur-
kjörinn síðan. Auk þess að vera
ágætur vinur og ferðafélagi, er
hann nteð alduglegustu ferða-
mönnum og á það einkum við urn
gönguferðir. Hann er enginn lág-
lendismaður og lítið gefinn fyrir
byggðarölt og fjörulall, enda
beinist áhugi hans aðallega að fjall-
göngum og þá helzt að þeint fjöll-
um. sent erfiðust eru til uppgöngu,
án þess þó að þurfa að klifra þau.
Klifur var ekki í tízku, þegar
Böðvar var strákur, annars hefði
hann örugglega lent í því. Svo
áhugasamur er Böðvar á göngum,
að hann verður helzt alltaf að vera
fremstur í flokki og gengur því
flesta menn af sér þó yngri séu.
Pessu vara þeir sig stundum ekki á,
sem óvanir og ókunnugir eru,
halda að þetta eigi að vera svona og
reyna aö elta „gamla manninn",
sent oft getur reynzt erfitt. Viö hin-
ir erum reynslunni ríkari og röltum
rólega á eftir.
Ekki hef ég minnstu hugmynd
um hvað Böðvar hefur gengið á
mörg fjöll. Ef til vill veit hann það
sjálfur. en á flest helztu fjöll býzt ég
viö að hatin hafi gengið. Nú þegar
farið er að reikna í mannárum og
öðru þvíumlíku má fullyrða aö
kappinn er búinn að ganga margar
mannhæðir. Hann kallar það ekki
fjall. sem rís undir 500 m yfir um-
hverfi sitt. þaö er hæöir og ójöfnur,
sem á leið lians verða til fjalla.
Böövar hefur alla tíö frá því aö
liann geröist félagi i F. í. látið vel-
ferð þess sig miklu varða og viljað
veg þess sem mestan. Sem stjórn-
armaður hefur liann átt sæti í feröa-
og útbreiðslunefnd. í öllum störf-
um reynist hann betri en etiginn og
vorið tillögugóöur og alltaf gott til
hans aö leita. Vil ég fyrir hönd
stjórnar Ferðatélags Islands óska
lionum og fjölskyldu lians allra
heilla um leiö og þess er óskaö aö
við megum njóta starfskrafta hans i
mörg ár enn. 60 ár er ekki hár
aldur. Böðvar!
(írétar Kiríksson
Undirbuningsfelag Saltverksmiðju
á Reykjanesi hf.
Sjóefnavinnsian hf.
Skipti á hlutabréfum.
Á síöasta aðalfundi Undirbúningsfélags salt-
verksmiöju á Reykjanesi hf. var ákveöiö að
féiagið sameinaöist Sjóefnavinnslunni hf.
Viö sameininguna fá hluthafar í undirbún-
ingsfélaginu hlutabréf í Sjóefnavinnslunni
hf., sem nemur þreföldu nafnveröi hlutabréfa
þeirra í undirbúningsfélaginu.
Hlutabréf í Undirbúningsfélagi saltverk-
smiöju á Reykjanesi hf, eru hér meö innköll-
uö og fá eigendur þeirra hlutabréf í Sjóefna-
vinnslunni hf í þeirra staö aö viöbættri fram-
angreindri jöfnun. Skiptin fara fram á skrif-
stofu Sjóefnavinnslunnar hf. Vatnsnesveg
14 Keflavík, sími 92-3885 frá og meö 5. janú-
ar 1983.
Stjórn Sjóefnavinnslunnar hf.
Auglýsing
um greiðslu ||
námsvistargjalda *
Reykjavíkurborg hefur um nokkurt skeiö inn-
heimt námsvistargjöld vegna utanbæjar-
nemenda, sem stunda nám í iðnskóla, fjöl-
brautaskólum og sérstökum framhaldsdeild-
um, sem taka viö nemendum aö loknu
grunnskólaprófi.
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa
gert samkomulag um uppgjör slíkra gjalda
sín á milli, en önnur sveitarfélög eru ekki
aðilar aö því samkomulagi og hafa sum
þeirra neitaö greiðslu námsvistargjaldanna.
Borgaryfirvöld hafa nú ákeðið aö nemendur,
sem 1. desember s.l. áttu lögheimili utan
Reykjavíkur, Mosfellshrepps, Seltjarnar-
ness, Kópavogs, Garðabæjar, Bessastaöa-
hrepps og Hafnarfjaröar, fái ekki aö hefja
nám í iönskóla, fjölbrautaskólum, Kvenna-
skólanum eöa framhaldsdeildum sem reknar
eru af borgarsjóði haustiö 1983 og á sama
hátt síðar í upphafi hverrar námsannar,
nema þeir framvísi greiðsluskuldbindingu
heimilissveitarfélaga eöa kvittun fyrir
greiöslu námsvistargjalds fyrir viðkomandi
námsönn.
Sækja veröur um greiðsluskuldbindingu til
skrifstofu eöa oddvita viðkomandi sveitarfé-
lags, en fáist hún eigi verður nemandi að
greiða námsvistargjaldiö hjá borgargjald-
kera, Austurstræti 16. Um rétt nemenda til
greiðslu námsvistargjalds frá heimilissveitar-
félagi fer eftir ákvæöum iönfræöslulaga og
samþykktum viökomandi sveitarstjórnar.
Reykjavík, 21. desember 1982.
Davíð Oddsson