Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.01.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 >i44u*i F ramk væmdastj óra- skipti á Þjóðviljamim Nú um áramótin skipti um framkvæmdastjóra á Þjóðviljanum, en þá lét Eiður Bergmann af því starfi og við tók Guðrún Guð- mundsdóttir. Eiður hóf störf sem afgreiðslustjóri á Þjóðviljanum í mars árið 1949 og hefur því að baki tæplega 34 ára starfsaldur á Þjóðviljanunt. Framkvæmdastjórastarfinu hefur hann gegnt í 19 ár. Um leið og starfsmenn blaðsins allir þakka Eiði Bergmann störf hans á umliðnum árum í þágu blaðsins og góða viðkynningu, bjóðum við Guðrúnu velkomna til starfa. Guðrún er viðskiptafræð- ingur að menntun, útskrifaðist í maí 1981, og starfaði áður sem kerfisfræðingur hjá Háskóla ís- lands. Úthlutað úr Rit- höfundasjóði ríkis- útvarpsins: Nína Björk Arnadóttir hlaut styrkinn Á gamlársdag var Nínu Björk Árnadóttur úthlutað styrk úr Rit- höfundasjóði ríkisútvarpsins. StyTk- veiting þess hefur farið fram ár- lega um langt skcið og oft verið út- hlutað til fleiri en eins rithöfundar. Að þessu sinni rann styrkurinn óskiptur, 60 þúsund kr., til Nínu Bjarkar. Jónas Kristjánsson formaður sjóðsins sagði við afhendinguna á gamlársdag að Rithöfundasam- band íslands hefði eindregið lagt til að styrkurinn kæmi í einn stað nið- ur til þess að fjárveitingin yrði veigameiri og kæmi að betri notum til skrifta. Rithöfundasjóður Ríkisútvarps- ins er myndaður af framlagi Ríkis- útvarpsins og rithöfundalaunum sem útvarpinu ber að greiða sam- kvæmt samningi en höfundar finn- ast ekki til að greiða. í stjórn sjóðs- ins eru Andrés Björnsson útvarps- stjóri og Ingibjörg Þorbergs dag- skrárstjóri, tilnefnd af Útvarpinu, Olga Guðrún Árnadóttir rithöf- undur og Þórir S. Guðbergsson rit- höfundur, tilnefnd af Rithöfunda- Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands óskar Nínu Björk Árnadóttur til hamingju í Þjóðminjasafninu á gamlársdag. Ljósm. eik. sambandinu og Jónas Kristjánsson 57 skáld og rithöfundar hlotið styrk sem er formaður sjóðsins, skipaður úr Rithöfundasjóði ríkisútvarps- af menntamálaráðherra. Alls hafa ins. Áramótaávarp forætisráðherra: voðiim vís” „Þá er „Við heyrunt stundum þá kenn- ingu, að vísasti vegur til að afstýra styrjöld og tryggja frið sc jafn her- styrkur stórvelda. Það má vera að 3%aukning var á viðkomu farþeg- flugvéla á Keflavíkurflugvelli á nýliðnu ári, en alls fóru 9.48% fleiri farþegar um völlinn á árinu 1982 heldur en 1981. Farþegar úr slíkt jafnvaegi hafi stundum komið í veg fyrir stríð. En ef báðir stór- aðiljar óttast að hinn hafi meiri hernaðarmátt, þá er voðinn vís. Þá landi voru 150.877, farþegar til landsins 152.411 og viðkomufar- þegar (transit) 169.489, eða sam- tals 472.787 farþegar. -ekh þarf að auka vígbúnaðinn til að ná jafnvæginu og tryggja það. Tor- tryggni og ótti hinna stcrku og stóru er háskalcgri hcldur en kvíði hinna veiku og smáu“, sagði Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra m.a. í upphafi áramótaávarps síns. Auk friðarmála ræddi forsætis- ráðherra ítarlega um fyrirhugaða stjórnarskrárbreytingu ög sagði hugsanlegt að stjórnarskrárnefnd myndi skila af sér tillögum í þessum mánuði. Þá fjallaði Gunnar unt þau áföll sem þjóðarbúið varð fyrir á liðnu ári vegna minnkandi sjávar- afla og ræddi um þann trassaskap og kæruleysi í vöruvöndun sem hefur valdið því að afurðir okkar úr besta hráefni eru endursendar okk- ur sem ónýtar og óætar. Hér væri um að ræða víti til varnaðar, slíkt gengi ekki lengur. Farþegar um Keflavíkurflugyöll: 9,5% aukning Menntamálaráðherra mótmælir ákvörðun borgarráðs: / Ohelmilt er að synja utanbæjarfólki um námsvist Menntamálaráðherra hefur sent borgarstjóra Reykjavíkur bréf þar sem segir, að ákvörðun borgarráðs um námsvistargjöld séu markleysa og hafi ekkert gildi - borgaryfirvöldum sé nteð öllu óheimilt að synja utanbæjarnemendum um að hefja nám í skólum í Reykjavík. Bréf þetta er sent í tilefni af auglýsingu þeirri, er borgarstjór- inn í Reykjavík birti í dagblöðum rétt fyrir jólin, þar sem sagði að nemendur, sem áttu lögheimili 1. des. sl. utan Reykjavíkur, Mos- fellshrepps, Seltjarnarness, Kóp- avogs, Garðabæjar, Bessastaða- hrepps og Hafnarfjarðar, fengju ekki að hefja nám í iðnskóla, fjöl- brautaskólum, Kvennaskólanum eða framhaldsdeildum, sern reknar eru af borgarsjóði, haustið 1983, nema þeir framvísi greiðsluskuldbindingu heimilis- sveitarfélags eða kvittun fyrir greiðslu námsvistargjalds fyrir viðkomandi námsönn. Borgaryf- irvöld báru við lélegum heimtum námsvistargjalda annarra sveitarfélaga en ofangreindra. f bréfi menntamálaráðherra er vakin athygli á, að meginhluti kostnaðar við fræðslumál í Reykjavík sé greiddur af ríkis- sjóði en ekki borgarsjóði. Þá vitnar menntamálaráðherra til ákveðinna lagagreina máli sínu til stuðnings, en orðrétt segir í bréfinu: „I þessu sambandi vekur ráðu- neytið athygli borgaryfirvalda á: 1) að heimild til töku náms- vistargjalds er einungis að finna í lögum nr. 68/1966 um iðnfræðslu. Samkvæmt 2. gr. þeirra laga eru iðnfræðsluskólar verknáms- skólar iönaðarins, iðnskólar, sér- skólar einstakra iðngreina og meistaraskólar. Unt námsvistar- gjald er fjallað í 45. gr. laganna eins og henni var breytt með lögum nr. 18/1971,7. gr. Þarsegir m.a. að standi sveitarfélag ekki að iðnfræðsluskóla skuli það greiða námsvistargjald til þeirra skóla, sem nemendur úr sveitar- félaginu sækja. Sveitarfélag nem- anda telst í þessu santbandi lög- heimilissveit þess atvinnurekstr- ar, sem nemandinn stundar nám hjá, ef hann hefur náms- samning, en annars lögheimilis- sveit nemandans. Menntamála- ráðuneytið ákveður árlega náms- vistargjald að fengnum sameigin- legum tillögum þeirra sveitar- stjórna, sem að rekstri viðkom- andi skóla stantla. Jöfnunar- sjóður sveitarfélaga annast upp- gjör námsvistargjalds milli sveitarfélagá, sem hlut eiga að máli. 2) að ráðuneytinu hafa engar tillögur borist frá Reykjavíkur- borg unt námsvistargjöld utan- bæjarnema í iðnfræðsluskólum i borginni. Menntamálaráðuneytinu er í lögum falið að ákveða námsvist- argjöld vegna iðnfræöslu að fengn- um tillögum. Slík gjöld hefur ráðnuneytið ekki ákveðið fyrir árið 1983, enda engar tillögur borist um það efni. Ákvörðun borgarráðs um námsvistargjöld er markleysa og hefur ekkert gildi. Samkvæmt framansögðu er Reykjavíkurborg óheimilt að synja utanbæjarncmcndum um að hefja nám í iðnfræðsluskólum þótt þcir hafi eigi grcitt námsvist- argjald eða sveitarfélag þeirra eða meistari þeirra hafi eigi gefið grciðsluskuldhindingu. Að því er aðra skóla varðar en iðnfræðsluskóla brestur með öllu lagahcimild til töku námsvistar- gjalds og cr borgaryfirvöldum ó- heimilt að synja utanbæjarnem- endum um að hefja nám í skólum í Reykjavík.“ ast Tímaritið Réttur: Grein um nýjan hairéttarsáttmáia 3. hefti Réttar 1982 kom út skömmu fyrir áramót og er þar m.a. fjallað um hnignun og hrun hcimskapítalisinans. Meðal greina í Rétti cru „Nýr haf- réttarsáttmáli og afstaða Banda- ríkjastjórnar“, eftir Lúðvík Jóseps- son, „Dulda námsskráin" eftir Gerði G. Óskarsdóttur, „El Salva- dor“ eftir Óskar Guðmundsson, auk greina um ýmis mál cftir rit- stjórann Einar Olgcirsson. Birt eru tvö Ijóð cftir Rocue Dalt- on og í heftinu eru minningarorð um dr. Kristján Eldjárn fyrrum forseta íslands. Nýjar reglur um merkingar á far- angri flugfarþega: Töskur merkist utan og innan Nú um áramótin tóku gildi nýjar reglur Alþjóðasambands flugfé- laga IATA um merkingar á farang- ri flugfarþega. Samkvæmt þeim ber farþegum að merkja allan inn- ritaðan farangur meö nafni og heimilisfangi bæði að utan og innanverðu. Utan á ferðatöskum og öðrum farangri þarf einnig að koma fram dvalarstaður farþega á áfangastað, t.d. hótel, eða annað það heimilisfang sem viðkomandi hefur meðan á dvöl stendur. Tilgangurinn með þessum nýju reglum er sá að auðveldara verði að koma öllum farangri tryggilega til skila og flýta því að hafa upp á eigendum óskilafarangurs. Enn- fremur dregur þetta fyrirkomulag úr líkum á að farþcgar taki ranga tösku á flugstöðvum. -lg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.