Þjóðviljinn - 04.01.1983, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 04.01.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. janúar 1983 Frá fundinum í Hrísey. Verkafólk á Raufarhöfn hlýðir á mál erindreka ASÍ. Vinnuverndarári ASÍ að ljúka: Stutt BSRB í sumar hefur verið unnið kappsamlega að uppbyggingu orlofsheimilahverfis BSRB að Eiðum. Vegur hefur verið lagður niður að Eiðavatninu við Lagar- fljót, þar sem hverfið er að rísa. Þegar hafa verið reist 17 hús. Tólf aðildarfélög BSRB nrunu eiga hús í þessu nýja orlofsheimila- hverfi. Kennarasamband Islands mun eiga 2 hús, Starfsmannafé- lag ríkisstofnana 3 hús, Starfs- nrannafélag Reykjavíkurborgar 2 hús og hvert eftirtalinna félaga eitt hús: Félag íslenskra síma- manna, Hjúkrunarfélag íslands, Landssamband lögreglumanna, Póstmannafélag íslands, Starfs- mannafélag Kópavogs, Starfs- mannafélag Akureyrar, Starfs- mannafélag Ríkisútvarpsins, Starfsmannafélag Vestmanna- eyja og Starfsmannafélag Húsa- víkur. Þá munu heildarsamtökin, BSRB, eiga eitt húsanna. HFI hefur nú þegar lagt fram 221,S25,00 úr Orlofsheimila- sjóði. Áætlað heildarverð húsanna er 825 þúsund og hluti HFÍ er 275 þúsund að viðbættri hækkun samkvæmt byggingavísitölu. Bann við notkun asbest Stjórn BSRB samþykkti á fundi sínum 20.09, að styðja. framkomnar kröfur um bann við notkun asbest. Jafnframt var Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, skipaður fulltrúi BSRB og ASÍ í nefnd, sem hefur það hlutverk að yfirfara reglur vegna notkunar þessa efnis. Nýr starfsmaður Á fundi st'num 4.10 samþykkti stjórn BSRB. að ráða nýjan starfs- mann til bandalagsins. Sá er HeJgi Már Arthursson, og nrun hann vinna jöfnum höndum að útgáfu- og fræðslumálum á vegum BSRB. Hann hefur fram til þessa sinnt skyldum verkefnum fyrir BSRB auk þess að vinna að launasamanburði ríkisstarfs- manna, í félagi við starfsmann launadeildar fjármálaráðuneytis. Afdrep fyrir börn Stjórn BSRB hefur samþykkt, að komið verði upp aðstöðu fyrir börn til leikja og dægrastyttingar á skrifstofu BSRB. Afdrep af þessu tagi færast í vöxt í stofn- unurn og eru talin nauðsynleg þeirra vegna sem erindi eiga í viðkomandi stofnanir. og starfið rétt að byrja! frá Seyðisfirði. Hafa þeir félagar haldið um 90 fundi víðs vegar um landið og hefur þátttaka á fund- unum verið afar misjöfn. Vinnu- staðafundir hafa verið vel sóttir en almennir félagsfundir utan vinnutíma öllu fámennari. Fjölmennustu fundirnir voru á Akureyri og Dalvík þar sem fjölmennustu vinnustöðunum var einfaldlega lokað þegar erindrekarnir komu og öllum starfsmönnum smalað upp í félagsheimili! f viðtali við þá félaga í síðasta tölublaði Vinnunnar kenrur fram að langmest hafi þeir verið spurðir unr hávaða og varnir gegn honum. Víða hefði verið búið að kjósa öryggistrúnaðarmenn á vinnustöðununr og ættu þeir að vera komnir á alla stærstu vinnu- staðina innan tíðar. Þeir Hilmar og Jón telja gagn að slíkum erind- rekstri tvímælalaust og að slíkt starf hljóti að vera eitt af brýn- ustu verkefnum ASÍ, ekki ein- ungis þar senr fjallað er um vinnuverndarmálin heldur og ,aðra málaflokka. - v. Framkvæmdanefnd Vinnuverndar- árs Aiþýðusambandsins hefur m.a. gefið út 10 veggspjöld og II bæklinga sem fjalla um aðbúnað á vinnustöð- um. Sumir þeirra hafa verið prent- aðir í allt að 11.000 eintökum. Á 34. þingi Aiþýðusambands Islands var samþykkt að hclga ár- ið 1982 vinnuverndarmálum. Ætlunin cr að vekja verulega at- hygli á þessu hagsinunamáli verkafólks og stuðla að úrbótum með kynningu, fræðslu og um- ræðum um þessi mál. Var jafn- framt ákveðið að koma á fót sérs- takri framkvæmdancfnd vinnu- verndarráðsins og ráða sérstakan framkvæmdastjóra og starfs- menn eftir efnum og ástæðum. Frá því í október sl. hafa tveir menn þeyst um landið í erind- rekstri fyrir Alþýðusamband ís- lands og rekið áróður fyrir aukinni vinnuvernd. Þar hafa verið á ferð þeir Hilmar Jónasson frá Hellu og Jón Guðmundsson Erindrekar ASÍ um vinnuverndarmálin hafa haldið um 90 fundi með verkafólki síðan í október. Hilmar Jónasson til vinstri og Jón Guð- mundsson. 90 fundir haldnir um landið í haus Samvinnuferðir-Landsýn: Vinsælar skiptiferöir Samvinnuferðir-Landsýn hef- ur á liðnum sumrum beitt sér fyrir skiptiferðum aðildarfélaga verkalýðssamtaka hér hcima og erlendis. Þessar ferðir hafa verið geysivinsælar enda áreiðanlega einhver allra ódýrasti ferðamát- inn sem völ er á. í nýútkomnum feróafréttum Samvinnuferða-Landsýnar eru fréttir af þessum skiptiferðum verkalýðssamtakanna. Þar segir m.a. að á síðasta sumri hafi hátt í 400 manns tekið þátt í skipti- ferðum til Danmerkur og að fjöldi Dana hafi komið hingað til Is- lands. Er nefnt sem dæmi um verð skiptiferðanna að tæplega 3ja vikna ferð með flugi, gistingu, fæði, rútuferðum og íslenskri fararstjórn hafi kostað aðeins um 6.000 krónur. Síðan segir: „Lykill að þessum góðu kjör- um felst í raun í þessu eina orði „skiptiferð". Um er að ræða sam- starf við verkalýðssamtök og ferðaskrifstofu þeirra í Dan- mörku og á sama tíma og íslend- ingar fljúgautan til gistingar í orl- ofshúsum þarlendra stéttarfélaga koma útlendingar í sömu flugvél til baka og dveljast þá m.a. íorlofshúsum íslensku stétt- arfélaganna. Þannig næst góð sætanýting í flugvélinni báðar leiðir, gistikostnaður er greiddur með gagnkvæmum afnotum af orlofshúsunum og skipulagningin er að meira eða minna leyti í höndum stéttarfélaganna sjálfra.“ í ferðafréttunum segir einnig að ráðinn hafi verið nýr starfs- maður til fyrirtækisins sem sér- staklega er ráðinn til að annast og efla samskiptin við aðildarfélögin og félagsmenn þeirra. Hann heitir Helgi Daníelsson. - v.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.