Þjóðviljinn - 04.01.1983, Page 15

Þjóðviljinn - 04.01.1983, Page 15
Þriðjudagur 4. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 RUV <9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Þytur“ eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur Hild- ur Hermóðsdóttir les (2) 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Man ég það sem löngu leið“ Ragn- heiður Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.00 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 11.30 Hvað hefur áunnist á ári fatlaðra og ári aldraðra? Umsjón: Önundur Björnsson og Elínborg Björnsdóttir. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor- steinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 14.30 „Leyndarmálið í EngidaÞ' eftir Hug- rúnu Höfundur les (7) 15.00 Miðdegistónleikar 16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna 17.00 SPÚTNIK. Sitthvað úr heimi vísind- anna. Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjón: Ólafur Torfason (RÚVAK) 19.00 Kvöldfréttir. 20.00 Tónleikar frá þýska útvarpinu í Stuttgart. 21.40 Útvarpssagan: „Söngurinn um sorg arkrána“ • eftir Carson McCullers Eyvindur Erlendsson lýkur lestri þýð- ingar sinnar (7) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Fæddur, skírður...“ Umsjón Benón- óný Ægisson og Magnea Matthíasdóttir. 23.20 Tónlist eftir Johannes Brahms. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Jð \ frá lesendum Þakklát fyrir „Stundarfrið” Kristín María Ingimarsdóttir, Egilsstöðum skrifar: Mikið var leiðinlegt að heyra um aumingja vonsvikna sjónvarpsáhorfandann, sem náði ekki upp í nef sitt af hneykslun yfir efnisvali ís- lenska sjónvarpsins og þá sér- staklega leikritinu „Stundar- friður" eftir Guðmund Steinsson. Þótt þessi vonsvikni, nafn- lausi áhorfandi sé svo (ó)- heppinn að búa á suðvestur- horni landsins, þá er ekki það sama hægt að segja um alla, þ.e. dreifbýlistútturnar. Þeirra er tækifæri til að sjá leikrit Þjóðleikhússins eru ekki mörg og farið er með fæstar sýningar Þjóðleikhúss- ins út á land. Á annan í jólum gafst fólki úti á landi tækifæri á að sjá eitthvert mest sótta leikrit, sem Þjóðleikhúsið hefur nokkru sinni sett upp og af eigin raun veit ég að þeir, sem ekki höfðu haft tækifæri til að sjá þetta leikrit, tóku því fegins hendi og voru síður en svo vonsviknir. Að lokum vil ég ráðleggja vonsviknum áhorfendum sjónvarpsins um þessi jól að hafa vaðið fyrir neðan sig á þeim næstu og fá sér í staðinn eina videóspólu með góðum vestra svipuðuin og var á dag- skrá sjónvarpsins á annan í jólum 1981. Velkomin til starfa Þá lítur Barnahornið loks aftur dagsins ljós eftir smá vetradvala. Búið er að tryggja okkur rúmt pláss á gamla góða staðnum á næst öft- ustu síðu. Þá er ekkert annað eftir en að bjóða ykkur öll sömul vel- komin til starfa fyrir Barnahornið á nýju ári. Verið nú dugleg að teikna, skrifa, yrkja og útbúa annað efni fyrir Barnahornið. Þið hljótið að hafa unnið eitthvað skemmtilegt í jólafríinu. Já af hverju ekki að skrifa Barnahorninu og segja okkur hvað þið höfðuð fyrir stafni í jólafríinu. Utanáskriftin er söm og áður. Barnahornið Þjóðviljinn Síðumúla 6 105 Reykjavík. Kannt þú alveg starfrófið? Ef svo er, þá áttu ekki í miklum erfiðleikum með að komast að því hvað er að sjá á þessari mynd. Þú dregur strik frá a-b og b-c og svo koll af kolli þar til myndin er fullgerð. Með bréfinu sendu þær Ásta og Olga þessa fínu mynd. Þetta er litamynd. Þið eigið að lita hana eins og tölustafirnir segja til um. Himinninn er merktur með tölunni 3 og þá á hann að vera blár og sippubandið cr merkt mcð tölunni 6 og á því að vera gult samkvæmt litatöflunni þeirra Ástu og Olgu. RUV e 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og vcður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sögur úr Snæfjölluni Barnamynd frá Tékkóslóvakíu. Þýðandi Jón Gunnars- son. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 20.40 Andlegt líf í Austurheimi Þriðji þátt- ur. Java Breskur myndaflokkur um trú og helgisiði í nokkrum Asíulöndum. Þýðandi Þorsteinn Helgason 21.45 Því spurði enginn Evans? Þriðji hluti. Breskur sakamálaflokkur í fjórum þáttum, gerður eftir sögu Agatha Christie. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 22.40 Dagskrárlok. Hvers vegna ekki Barnahorn? „Hvers vegna er ekki Barnahorn- iö lengur í Þjóðviljanum? Okkur finnst það skemmtilegt. Hvers vegna eru búðir lokaðar á laugardögum og sunnudögum? Þá eru pabbi okkar og mamma ekki að vinna og geta farið með okkur í bæ- inn að kaupa dót.“ Helga Gerður 7 ára Ásta Olga 6 ára Bakkastíg 1 og 2. Við verðum að biðjast afsökunar á því að Barnahornið féll út úr blaðinu síðustu rnánuði ársins. Þar kom til að eitthvað varð að láta undan stórfelldu, auglýsinga- og bókaflóði. En auðvitað er það engin réttlæting. Barnahornið á heima á sínum stað í blaðinu ogþess vegna ætlum við að taka upp þráðinn á nýja árinu þaðan sem frá var horfið. Varðandi opnunartíma verslana vísum við á kjarasamninga verslun- arfólks. Þeir sem afgreiða í búðum þurfa líka að eiga frí til að geta verið með börnunum sínum. Ekki satt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.