Þjóðviljinn - 04.01.1983, Page 16
DWÐVIUINN
Þriðjudagur 4. janúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess
tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaösins í þessum
sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmvndir 81257.
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663.
Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll
kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Sex kanadískar stúlkur segja
upp störfum á Djúpavogi
,^Vlunnlegt samkomu
lag ekki haldið”
segir Haukur Már Haraldsson,
blaðafulltrúi Alþýðusambandsins
„Meginatriðið virðist mér vera það að þetta kanadíska fólk er ráðið
hingað á fólskum forsendum, því er lofað gulli og grænum skógum sem
síðan reynist tálið eitt“, sagði Haukur Már Haraldsson blaðafulltrí Al-
þýðusambands íslands í samtali við Þjóðviljann í gær.
Enn eitt dæmið um svik á samn-
ingum við útlent farandverkafólk
virðist nú vera komið upp í íslensku
frystihúsi. Fyrirtækið Búlandstind-
ur á Djúpavogi réð til sín um það
hil 20 kanadíska verkamenn til
starfa í fiskvinnslu sinni sl. haust.
Gerði umboðsmaður fyrirtækisins í
Winnipeg munnlegt samkomulag
við hópinn þar sem fólkinu er lofað
góðum kjörum ogaðbúnaði. Gekk
umboðsmaðurinn frá svokölluðu
„hópatvinnuleyfi", en fyrirtækið á
Djúpavogi gekk liins vegar aldrei
frá atvinnuleyfi fyrir hvern og einn
þegar Kanadamennirnir komu til
Islands, eins og því bar að gera.
„Við hjá Alþýðusambandinu
fengum upplýsingar um þetta mál
nú á milli jóla og nýárs og við at-
hugun á launaseðlum einnar stúlk-
unnar sem kom til okkar, kemur í
Ijós að Búlandstindur hefur greitt
henni algjörlega samkvæmt launa-
töxtum sem hér gilda. Um-
boðsmaðurinn úti Iofaði þeim 4-5
kanadískum dollurum á tímann og
við það var nokkurn veginn stað-
ið“, sagði Haukur Már ennfremur.
„Hins vegar kvörtuðu stúlkurnar
yfir mjög slæmum aðbúnaði, að
þær hefðu ekki getað skipt kaupinu
sínu í erlenda mynt á staðnum, að
það hefði verið stoiið frá þeim pen-
ingum á hótelinu þar sem þær
bjuggu og að það hafi verið fyrir-
tækinu að kenna að þær fengu ekki
atvinnuleyfi", sagði Haukur Már
Haraldsson blaðafulltrúi Aiþýðu-
sambandsins.
„Það er greinilegt að þetta kana-
díska fólk hefur verið ráðið hingað
á fölskum forsendum. Það þekkir
ekki íslenska vinnustaðinn, það
hefur litlar sem engar upplýsingar
um kaup og kjör hér á landi, það
talar ekki tungumálið og það kem-
ur úr gjörólíku umhverfi. Allt þetta
hefur svo orðið þess valdandi að
upp koma þessi átök á milli verka-
fólksins og Búlandstinds á Djúpa-
vogi", sagði Haukur Már að
lokum.
-v.
„Svikin loforð
og slæmur
aðbúnaður”
Sex af sautján kanadískum stúlkum sem réðust til fískvinnslunnar Bú-
landstindar á Djúpavogi í september s.l. hafa sagt upp störfum vegna
óánægju mcð aðbúnað og brota á gefnum loforðum frá uinboðsmanni
fyrirtækisins í Kanada. Þær voru ráðnar til 9 mánaða og áttu samkvæmt
samningnum að fá greitt fargjaldið heim eftir þann tíma.
„Við fengum aldrei atvinnu-
leyfið, sem okkur hafði verið lofað,
kaupið var lægra og fór lækkandi
með gengissigi krónunnar og hús-
næðið var ekki eins ()g okkur hafði
verið sagt," sögðu þær Kim Orvis
og Norma Thomas í viðtali við
Þjóðviljann í gær.
„Margt af því sem við okkur var
sagt stóðst ekki og yfirmenn fyrir-
tækisins voru Iregir til að taka
læknisvottorð gild, þvinguöu fólk
til að vinna þótt það væri lasið og
hirtu ekki um að fara eftir reglum
um öryggi á vinnustaðnum. For-
stjórinn hefur tregast við að greiða
okkur laun fyrir síðustu vikuna og
gefi upp að við höfum ekki sagt upp
með nægum fyrirvara, en við telj-
um okkur ekki bundnar af slíkum
fresti þar sem viö fengum aldrei
neitt atvinnuleyfi eins og okkur var
lofað. Þegar okkur var sagt að við
fengjum ekki nema 2 daga frí yfir
jólin ákváðum við að hætta og fara
til Reykjavíkur meðan fært væri.
Það eru félagar okkar fyrir austan
sem hafa verið að reyna að fá síð-
ustu launin út.“
Þær stöllur sögðu að þrátt fyrir
þessa slæmu reynslu frá „Búlands-
tindi“ á Djúpavogi líkaði þeim vel
hér á íslandi. Þær ættu hins vegar
ekki fyrir farinu heim og væru nú
að leita sér að annarri atvinnu.
Þess má geta aö útlendingar sem
hingað koma til vinnu búa við mjög
gróft misrétti hvað varðar opinber
gjöld, þar sem vinnuveitandi held-
ur eftir 30% af laununi þeirra fyrir
Gjaldheimtuna eða kr. 12,90 af
þeim 43 kr. sem stúlkurnar fengu
Kim Orvis og Norma Thomas:
verið lofað.
greitt á klst. Vinni þær skemur en 9
mánuði fá þær ekkert af þessu
endurgreitt, og er augljóst að hér
er verið að mismuna fólki gróflega
eftir þjóðerni svo að spurning er
hvort þessar skattareglur brjóti
ekki í bága við grundvallarmann-
réttindi. Þá var húsaleiga stúlkn-
anna bundin við gengi Banda-
ríkjadollara og fór því hækkandi
með gengissigi krónunnar og
mundu víst fáir Islendingar sætta
sig við slíkar viðskiptareglur. -ólg.
Fengum ekki það sem okkur hafði
Lög sett i fyrra:
Þverbrotin
á Vestur-
r
Islend-
ingum
„Hvers konar áróður til þess
fallinn að hvetja til innflutnings
verkafólks til landsins er óheim-
ill ef hann er villandi eða
byggður á röngum eða ónógum
upplýsingum“, segir í 6. grein
laga um atvinnuréttindi útlend-
inga cn þau lög voru sctt í fyrra.
Greinilegt er að þessi lög hafa
verið brotin á Vestur-íslending-
unum á Djúpavogi.
„Óheimilt er hverjum manni,
félagi eða stofnun, sem rekur
atvinnu eða starfrækir fyrirtæki
hverju nafni sem það nefnist, að
taka útlendinga í þjónustu sína
gegn kaupgreiðslu í peningum
eða hlunnindum, hvort heldur
er um iangan tíma eða skamm-
an, eða hlutast til um að útlend-
ingar flytjist til landsins í því
skyni, án leyfis félagsmálaráð-
herra“, segir í 2. grein laga um
atvinnuréttindi útlendinga. Þá
er kveðið skýrt á um það í lög-
unum að félagsmálaráðherra
veiti atvinnurekendum at-
vinnuleyfi fyrir útlendinga að
uppfylltum ákveðnum skilyrð-
um.
-óg
Friðrik á „sigurvegaramót”
Kortsnoj líka — og Sovétmenn hætta við
Friðrik Olafsson tefíir á svoköll-
uðu sigurvegaramóti sem hollcnska
stálbræðslufyrirtækið Hoogovcn
stendur fyrir. Mót þetta fer fram í
smábænum Wijk Aan Zee og er sá
háttur hafður á að til þess er ein-
Sem kunnugt er af fréttum lést
maður af völdum hnífsstungu að
morgni nýársdags í fjölbýlishúsi í
Reykjavík. Hann hét Óskar Árni
Blomsterberg, 28 ára gamall til
heim’ilis að Hátúni við Rauðavatn.
ungis boðið skákmönnum er unnið
hafa mótið áður og svo nokkrum
hollenskum skákmönnum. Friðrik
hefur jafnan vcgnað vel á skákmót-
inu í Wijk Aan Zee. Hann sigraði
1959 og deildi efsta sætinu 1976
Sá sem játað hefur að vera valdur
að verknaðinum heitir Þórður Jó-
hann Eyþórsson, til heimilis að
Njálsgötu 79. Hann er 25 ára gam-
all. Rannsóknarlögreglan vildi
ekki í gær gefa upp hvað leiddi til
ineð júgóslavneska stórineistaran-
um Ljubojevic.
Kepþéndur á rriótinu auk
Friðriks verða eftirtaldir: Timman,
Hollandi, Anderson, Svíþjóð,
Browne, Bandaríkjunum, Hort,
Tékkóslóvakíu, Ljubojevic, Júg-
óslavíu, Kortsnoj, Sviss, Nunn,
þessa hörmulega verknaðar.
Veisla hafði verið í íbúðinni, sem
verknaðurinn var framinn í, á ný-
ársnótt, og voru allir veislugestir
handteknir og yfirheyrðir og þá ját-
aði Þórður Jóhann á sig verkn-
aðinn. Hann hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 9.
mars og gert að sæta rannsókn á
geðheilbrigði og sakhæfi.
-S.dór
Englandi, Ribli, Ungverjalandi,
Seirawan, Bandaríkjunum, Ree,
Sheeren, Van der Wiel og Sosonko
allir frá Hollandi.
I stuttu spjalli senr Þjóðviljinn
átti í gær við Friðrik sagði hann að
upphaflega hafði verið gert ráð
fyrir þátttöku þriggjá Sovétmánna
Tals, Balashov og Pshakis. Sovét-
menn hafa hingað til ekki sent
keppendur til leiks á mótum þar
sem Kortsnoj hefur teflt en í uphafi
FIDE-þingsins í Luzern í haust
kom frá þeim tilkynning þess efnis
að framvegis myndu þeir tefla á
mótum með Kortsnoj. Á Olympí-
umótinu hafði Kortsnoj frammi
ýmsa tilburði til stuðnings sovéska
stórmeistaranum Boris Gulko og
konu hans og er það talin ástæðan
fyrir því að Sovétmenn afboðuðu
komu sína til Wijk Aan Zee. í
þeirra stað koma Timman, Ljubo-
jevic og Hort.
Mótinu í Hollandi lýkur 30.
janúar. -hól.
Voðaatburðurinn á nýársdagsmorgun
Játnlng liggur fyrir
Tveir
menn
hröpuðu til
bana í
Vífflsfelli
Félagi þeirra slapp
litið meiddur
Tveir menn, Páll Ragnarsson 30
ára að aldri, til hcimilis að
Smiðjustíg 11 Reykjavík og Gunn-
ar Oskarsson, til hcimilis að Aspar-
felli 4 Rcykjavík létu lífið er þeir
voru í fjallgöngu á Vífílsfelli við
þriðja mann að morgni nýársdags.
Þeir höfðu lagt upp frá Reykja-
vík um kl. 9.30 á nýársmorgni
ásamt bróður Gunnars, Víði Ósk-
arssyni. Lögðu þeir bifreið sinni
við rætur Vífilsfells og lögðu á
brattann. Þegar þeir voru nær
komnir að toppi fjallsins missti
einn þeirra fótanna og síðan annar.
Glerhált var á þessum slóðum og
auk þess stórgrýtt. Runnu þeir Páll
og Gunnar nokkra tugi metra.
Víðir hélt til þeirra og eftir að
hafa búið um þá hélt hann til
byggða til að sækja hjálp. Fór hann
alls fimm kílómetra áður en hann
náði í bifreið á Suðurlandsvegi.
Var lögreglunni í Árbæ gert viðvart
og haft var samband við Slysa-
varnafélag íslands og Landhelgis-
gæsluna.
Vonskuveður á
slysstað
„Um kl. 13 á nýársdag kom Víðir
á lögreglustöðina í Árbæ og stuttu
síðar var okkur tilkynnt um það
sem gerst hafði. Þá þegar höfðu
farið tveir lögreglubílai frá Árbæj-
arstöðinni á vettvang og þess utan
ein sjúkrabifreið með læknum. Við
sendum þegar út björgunarlið með
öllum nauðsynlegum búnaði, vél-
sleðum og öðru. Þá gerðum við
Landhelgisgæslunni viðvart auk
þess sem þyrla varnarliðsins var til
taks. Ailar aðstæður á slysstað
voru mjög slæmar, gekk á með kol-
svörtum éljum og töfðu aðstæður
allt björgunarstarf. Þegar lægði
tókst að koma mönnunum tveimur
í TF-RÁN, þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar og flutti hún þá í Borgarspít-
alann. Þeir voru látnir þegar þang-
að var komið“, sagði Hannes Haf-
stein framkvæmdastjóri Slysa-
varnafélagsins þegar Þjóðviljinn
hafði tal af honum.
Hannes sagði að orsaka slyssins
mætti rekja til mikils harðfennis,
sem þeir félagar lentu í og sagði að
þeir hefðu ekki verið með nægi-
legan búnað við þær aðstæður sem
þarna voru. Brunagaddur var á
þessum slóðum.
Páll heitinn lætur eftir sig konu
og tvö börn, en Gunnar var ó-
kvæntur og barnlaus.
-hól.
Lést af
slysförum
í Chile
Ungur Islcndingur, Sigurður
Pétursson, prcntari, lést af slys-
förum í Chile um áramótin.
Sigurður, sem var 27 ára gamall,
var á ferðalagi um S-Ameríku, en
hann hcfur starfað í S-Afríku s.l.
tvö ár. Hann drukknaði við bað-
strönd sunnan við Santiago, höfuð-
borg Chile.