Þjóðviljinn - 07.01.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJÍNN Föstudagur 7. janúar 1983
Leitað eftir
Humor and
Irony in the
New Testa-
ment
Dr. Jakob Jónsson vill gjarnan
eignast 1-2 eintök af doktorsrit-
gerö sinni: Humour and Irony in
the New Testament sem Menn-
ingarsjóður gaf út en er nú upp-
seld. Þeir sem kynnu að eiga ein-
tök aflögu eru beönir aö tala viö
höfundinn.
Gætum
tungunnar
Oft er sagt og ritað: aö skrifa niö-
ur.
Þaö þykir ýmsum útlenskulegt
aö þarflausu.
Oftast nægir: að skrifa. (Stund-
um er jafnvel íslenskulegra: aö
skrifa upp.)
Skák
Karpov að tafli - 77
Eftir 11 umferðirá millisvæðamótinu í Len-
inqrad hafði Kortsnoj náð vinningsforskoti
á rtæsfu menn, var með 9 vinninga, og því
næst komu Karpov, Byrne, Larsen og
Smejkal með 8 vinninga. Smejkal komst á
toppinn meö þvi aö vinna 7 skákir i röð! Á
sama tima þegar biðskákum var ólokið var
sfaða mála þannig hjá aumingja Tal, að
hann var meö 1 vinnig og 6 biðskákir! í 12.
umferð komst Karpov upp viö hliöina á
Kortsnoj. Hann vann Ulhmann glæsilega á
meðan Kortsnoj tapaöi fyrir Rukavina. Lok
skákar Karpovs og Uhlmanns voru
athyglisverð, því Karpov þótti tefla meistar-
alega:
Uhlmann - Karpov
37. ..Bc6!
(Það er eftirtektarvert hverníg þessi biskup
fer að því að hafa áhrif á gang mála. 37. -
Bxe4 er hættulegt vegna 38. Hel! Hd4 39.
Rc3 o.s.frv.)
38. Df3 Be8!
39. b4 Bg6
40. Rf2 Dd4
a^bcdefgh
41. Rh3 e5
42. Rf2 Hb2
43. Kh2 Dc4
44. Hd1 Hb3
45. Rd3 Dxe4
- Hvítur gafst upp, Staöa efstu manna
eftir þessa umferð: 1.-2. Karpov og Kort-
snoj 9 v. 3. Byrne 8V2 v. 4.- 5. Larsen og
Smejkal 8 v. Peir siðast nefndu töpuðu fyrir
Tal og Hubner
Þeir vísu
sögðu
„Vandamál laganna, eru lög-
fræðingarnir.“
„Á hverjum degi drepa hermennirnir saklaust fólk í mínu landi“, skrifar Hilda Chávez 12 ára gömul með
þessari mynd sinni.
„Ég hef koniið upp á vegkantinn. Ég hef séð þá skjóta fólk“, segir Rigoberto 9 ára um þessa mynd sem hann
teiknaði.
360 þúsund böm hafa
flúið frá E1 Salvador
Kúmlega 360 þús. börn frá El
Salvador hafa tlúið land, vegna
þeirrar ógnarstjórnar og óaldar
sem ríkt hel'ur í landinu á síðustu
árum. Hér er um að ræða tjölda
sem samsvarar hátfri annarri ís-
lensku þjóðinni, ef slík viðmiðun
skýrir ástand mála eitthvað fyrir
lcsendum.
Stór hluti þessara salvadorsku
flóttabarna búa á Norðurlönd-
um, einkanlega í Svíþjóð. Nýlega
kom út þar í landi lítiil bæklingur
sem hefur aö innihaldtt teikning-
ar, kvæöi og frásagnir eftir flótta-
börnin frá E1 Salvador. Það ætti
ekki að koma neinum á óvart að
efnisinnihaldiö er sem sé'st á
myndunum hér á síðunni. Hel-
reið dauðasveitanna uni landið
hefur markað djúp spor í endur-
niinningum barnanna um föður-
landið.
Til frekari fróðleiks niá geta
þess, að af 5 miljónum íbúa í E1
Salvador eru börn innan við 14
ára aldur rúmur 40% íbúanna.
Um 60% þeirra barna sem fæðast
ná ekki eins árs aldri og meðal-
aldur er aðeins 59 ár.
í þessu gróðursæla landbún-
aðarlandi á fámenn yfirstétt
studd dyggum ráðum og vopna-
búnaöi frá Bandaríkjum Norður
Ameríku, langstærsta hluta alls
ræktanlegs lands. Aðeins 2% íbú-
anna á yfir 64% af ræktanlegu
landi. Slíkt segir meira urn arðrán
og kúgun á alþýðu þessa lands en
löng orðræða.
Fleiri
sérkennileg
frímerki
Við birtum á dögunum hér á
síðunni myndir af öðru vísi frím-
erkjum, sem við rákumst á í tírrta-
riti alþjóða íþróttasambandsins.
Þessi uröu útundan og við Iátum
þau því fljóta hér nieð. Það
undarlegasta er, að minnsta frí-
merkið er verðmest.
Snjólausar
skíða-
brekkur
Snjólausar skíðabrekkur ryðja
sér víða til rúms bæði vestan og
austan megin Atlantsála.
Það er stórt efnafyrirtæki í Wa-
les á Bretlandi sem er helsti fram-
Ieiðandi slíkra gerviskíðabrauta.
Undirstaðan er járngrind, húðuð
sérstakri plastkvoðu. Þessa renn-
inga er síðan hægt að Ieggja.líkt
og teppi í fjallshlíðar og þá er
ekkert eftir nema spenna á sig
skíðin.
Meðfylgjandi mynd er einmitt
tekin í einni slíkri skíðabraut í
Snowslope í Wales.
Ekkert
réttlæti
Mark Twain sagði eitt sinn:
„Það er ekkert réttlæti í himna-
ríki. Ef svo væri, þá yrðir þú látin
standa fyrir utan, en hundinum
þínum yröi hleypt inn."
Bænaskrá
í stað kosn-
ingalaga
Það bar til tíðinda á árinú 1839
að embættisinannanefndin, sem
til varð samkvæmt konunglegri
tilskipun frá árinu áður, kom
saman í Reykjavík til þess að
ræða „ein og önnur Island snet-
andi má!efni“.
Tvö voru þau mál, sem hæst
bar hjá embættismannanefn-
dinni. Ánnað var að semja kosn-
ingalög fyrir kjör fulltrúa íslend-
inga á stéttaþingið í Hróarskeldu.
Hitt var hvort flytja ætti skólann
frá Bessastöðum til Reykjavíkur
og verður að því vikið síðar.
Ekkert varð úr því að nefndin
semdi kosningalög. Aftur á móti
sömdu þeir Þórður Sveinbjörns-
son dómstjóri, Bjarni Thorarens-
en amtmaður og Páll Þórðarson
Melsted bænarskrá til konungs
og var efni hennar það, að íslend-
ingar þyrftu engan fulltrúa að
senda til Hróarskeldu heldur
fengju þeir sitt eigið stéttaþing
hér í landinu sjálfu.
Þeim þremenningum hefur
sjálfsagt veist auövelt að semja
bænarskrána. Hinsvegar gekk í
brösum með að fá einhvern til
þess að skrifa fyrstur undir hana.
Ástæðan var sú, að menn ótt-
uðust að konungur kynni að snúa
reiði sinni gegn þeim, sem fyrstur
skrifaði undir svo frekt plagg og
teldi hann vera upphafsmann
þessa tiltækis. Þetta vandamál
leystist þó með því að Þórður
dómstjóri varð fyrstur til þess að
undirrita bænarskrána, enda
málið ekki óskylt þar sem hann
var einn af höfundum hennar.
-mhg