Þjóðviljinn - 07.01.1983, Síða 3
Föstudagur 7. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Noregur:
200 manns
á dag missir
atvinnuna
Allt þar til í haust hefur Noregur
verið ásamt íslandi það land Evr-
ópu sem minnst atvinnuleysi hefur
ríkt. Undanfarið hefur hins vegar
sigið mjög á ógæfuhliðina í Noregi
og eru afleiðingar hægri stjórnar
að koma í Ijós. Að sögn Matthíasar
Garðarssonar, sem starfar í Bodö í
Noregi ríður þessa dagana hol-
skefla atvinnuleysis yfir Noreg. Um
200 manns missa atvinnuna nú dag-
lcga og tala atvinnulausra í Noregi
er komin upp í um 70 þúsund
manns.
Matthías sagði að þessa dagana
lýstu fyrirtæki sig gjaldþrota svo
tugum skipti í hinum ýmsu atvinnu-
greinum. Menn eru mjög uggandi
og svartsýnir á framtíðina, því ekk-
ert bendir til þess að bata sé að
vænta í norsku atvinnulífi, sem snúi
þróuninni við. Það virðist því ljóst
að Noregur komist í hóp þeirra
Evrópulanda þar sem atvinnu-
leysið er orðið að einhverju mesta
böli þjóðanna. -S.dór
„Innflutningurinn er að kollsteypa íslcnskum iðnaði - það er á hreinu,** Magnús Ólafsson, húsgagnasmiður.
„Dýrt að flytja Inn stóla
tll að henda”
(Ljósm. Atli).
„Það er óhætt að segja, að við
höfum hátt á annað þúsund
manns í vinnu fyrir okkur er-
lcndis við að smíða húsgögn sem
hingað eru flutt inn. Það er dá-
góður hópur**, sagði Magnús Ól-
afsson, húsgagnasmiður hjá Ný-
virki í Reykjavík. Hann sat ásamt
fclögum sínum Ragnari og Einari
í kaffistofunni þegar okkur bar að
garði, og okkur var umsvifalaust
boðið upp á katti og spjall með.
Þeir félagar voru sammála um,
að innflutningurinn væri að koll-
steypa íslenskum húsgagna-
iðnaði, „Betri vara? Það þarf alls
ekki að vera. Oftast er um hreint
rusl að ræða, eins og gengur. Ef
þessi vara er vel unnin, þá er
verðið auðvitað hærra, og jafn-
hátt verði á innlendum húsgögn-
um, sem standa fyllilega fyrir
sínu.“
Þeir félagar voru einnig sam-
mála um, að fólk væri dálítið sof-
andi fyrir vöruvöndun - það
skoðaði oft og tíðum húsgögnin
lítið, heldur færi bara eftir
veröinu. „En það er ansi dýrt að
flytja hér inn stóla til þess að
fleygja á haugana eftir árið“,
sögðu þeir að lokum. ast
Magnús Ólafsson, Ragnar Thoroddsen og Einar Guðmundsson á
stofunni, sem skreytt er gömlunt verkfærum. Magnús hefur
þeirra drýgstur við að draga fram gamla muni. (Ljósm. Atli)
kaffi-
verið
„Staðan vissulega erfið”
Hilmar Oskarsson, cigandi Nývirkis, bendir hér á myndir af
barnakojunum og eldhúsbekkj unum og -borðunum, sent
gengið hafa ntjög vel. (Ljósm. Atli).
„Staðan í þessum iðnaði er
vissulega injög erlíð. Santkeppn-
in er mikil erlendis frá og við eig-
uin undir högg að sækja. Við get-
um unað sæmilega við síðasta ár,
en útlitið er óneitanlega svart."
Sá sem þetta mælir heitir I lilm-
ar Óskarsson og hann er eigandi
Nývirkis h/f við Selmúlann, en
þar eru framleidd furuhúsgögn,
sem seld eru í versluninni Furu-
húsiö viö Suðurlandsbraut. Hjá
Nývirki eru framleiddir eldhús-
bekkir og borð, sem notið hafa
mikilla vinsælda. Einnig smíða
þeir barnakojur úr furu, sem
landanum hefur sömuleiðis líkað
vel.
- Heldurðu að húsgagna-
iðnaðurinn hér sc til útflutnings?
„Tvímælalaust ekki,“ segir
Hilmar. „Þeir á Norðurlöndun-
um eru þegar komnir í vandræði
með sinn útflutning vegna sölu-
tregðu og eiga því nóg með sig.
Til þess að hafa næg verkefni
hérna verðum við aö vera í mörgu
- markaðurinn þolir ekki sérhæf-
ingu; hann er ekki það stór.
Þetta er vissulega óhentugt, en
það eina sem hægt er að gera.“
Fyririækið Nývirki hefur þurft
að draga saman seglin; áður unnu
þarna 7 menn en eru nú 4-5.
„Við höfurn ennþá sloppið
fyrir horn - það þýðir ekkert ann-
að en vera bjartsýnn," segir
Hilmar. „Ég geymi mér svartsýn-
israusið fram eftir ári.“
ast
ER SIÓSLYSUM LEYNT?
Landsvirkjun skipar
nefnd um
orkufrekan iðnað:
Fjallarum
orkuverð
Stjórn Landsvirkjunar skipaði
nýlega nefnd til að fjalla um verð-
lagningu og söluskilmála til orku-
freks iðnaðar. í nefndinni ciga sæti
stjórnarmcnnirnir Jóhanncs Nor-
dal, Baldvin Jónsson, Birgir Isl.
Gunnarsson og Böðvar Bragason
og yfirverkfræðingur Landsvirkj-
unar, Jóhann Már Maríusson.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Landsvirkjun verða hclstu verkefni
nefndarinnar þessi:
1. að kanna verðlagningu og aðra
skilmála í orkusölusamningum
Landsvirkjunar við íslenska álfé-
lagið, Aburöarverksmiðju ríkisins
og íslenska járnblendifélagið. Lagt
verði mat á æskilegar breytingar á
þessurn samningum með tilliti til
kostnaðarverðs raforku hér á
landi, raforkuverðs í samkeppnis-
löndum og samkeppnisstöðu við-
komandi fyrirtækja.
2. að meta hvaða orkuverð og
söluskilmála verði hægt að bjóða
nýjum orkufrekum iðnaði hér á
landi á næstu árunt með tilliti til
viðbótarkostnaðar Landsvirkjunar
vegna nýrrar orkusölu. Reynt
verði að bera þetta saman við orku-
verð og skilmála í samkeppnis-
löndum.
3. að eiga fyrir hönd Landsvirkj-
unar aðild að samningum um
endurskoðun orkusölusamninga
við fyrrgreind fyrirtæki í samráði
við iðnaðarráðuneytið og önnur
stjórnvöld eftir því sent við getur
átt.
Leyfílegur
fjöldi
þorskaneta
4 • /
1 sjo
Sjávarútvcgsráðuneytið helur
að gefnu tilcfni sent frá sér tilkynn-
ingu unt lcyfilegan fjölda þorska-
neta í sjó.
Áhöfn 12 menn eða fleiri 150
net. Áhöfn 11 menn .138 net og
fækkar síðan netunt um 12 miðað
við hvern mann sem fækkar í
áhöfn.
Það frávik ergert á þessari reglu,
að sé sjálfvirkur netaafdráttarbún-
aður um borð í veiðiskipum er slík-
ur útbúnaður lagður að jöfnu við
einn mann og rnega því bátar sem
slíkan búnað nota hafa 12 netuni í
sjó meira, en gert er ráð fyrir hér að
ofan.
I síðasta hefti Sjómannablaðsins
Víkings er viðtal við fyrrverandi
sjómann, Ólaf Þór Ragnarsson,
sem slasaðist um borð í togara og
hlaut af 100% örorku. í viðtalinu
fyllyrðir hann að sjóslysum sé hald-
ið lcyndum og nefnir í því sambandi
að sitt slys hafi aldrci komið til
Sjóslysanefndar og að um borð í
þeim togara scm hann Var á, hafi
átt sér stað 7 slys, sem hann vissi
um, sem aldrci komu fram í skrá
Sjóslysanefndar.
Segir hann að skipstjórnar-
mönnum þyki ekki taka því að geta
Það fullyrðir
sjómaður sem hlaut
100% örorku
eftir sjóslys
um minniháttar slys um borö í
skipum og því engin skýrsla gefin.
Þjóðviljinn snéri sér til Þórhalls
Hálfdánarsonar, starfsmanns
Sjóslysanefndar og innti hann álits
á þessum ummælum. Þórhallur
sagði að hann áliti ekki að reynt
væri að halda sjóslysum leyndum,
en aftur á nióti væru margir sýslu-
menn, sem framkvæma sjópróf
vegna slysa, hinir mestu trassar að
skila skýrslum um sjóprófin.
Hann sagði að ef sjómaður verð-
ur lengur en 10 daga frá vinnu
vegna slyss, kæmi til kasta Trygg-
ingastofnunar rtkisins og þaðan
fengi Sjóslysanefnd allar skýrslur.
Ef viðkomandi er frá vinnu minna
en 10 daga greiðir útgerðin honum
laun og þá er ekki víst að frá slysinu
verði greint. Því rnætti það vel vera
að frá minniháttar slysum eða
óhöppunr sé ekki greint sem skyldi.
Undanfarin ár hafa átt sér stað
270 til 340 sjóslys á ári sem skýrt
hefur verið frá í skýrslum Sjóslys-
anefndar. Loks má geta þess að
Þórhallur sagðist ætla að hafa tal af
Ólafi vegna þessara ummæla, enda
alvarlegt mál ef satt reynist að
reynt sé að leyna sjóslysum, eður
að frá þeim er ekki greint vegna
kæruleysis.
-S.dór