Þjóðviljinn - 07.01.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. janúar 1983
ALÞÝDUBANPALAGID
Alþýðubandalagið Akranesi -
Bæjarmálaráð
Fundur veröur haldinn mánudaginn 10. janúar kl. 20.30 í Rein.
Umræðuefni: Fjárhagsáætlun bæjarins fyrir 1983. - Félagar fjölmennið. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið
Húsavík
Árshátíö Alþvðubandalagsins á Húsavík veröur haldin í Félagsheimili
Húsavikur laugardaginn 29. janúar n.k. Fjölbreytt dagskrá aö venju.
Nánar auglýst síðar.
Undirbúningsnefndin.
Alþýðubandalagið Borgarnesi —
nærsveitum
Félagsfundur. Forval.
Almennur félagsfundur fimmtudaginn 13. janúar næstkomandi í Hótel
Borgarnes ki. 20.30.
Fundarefni:
1) Tilnefning í fyrri hluta forvals.
2) Röðull.
3) Héraösmálefni.
Skoraö er á félagsmenn að fjölmenna og taka þátt í forvalinu.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Egilsstöðum
Fundur í hreppsmálaráöi mánudaginn 10. janúaraö Lagarási 8. Fundur-
inn hefst kl. 20.30.
Fundarefni: Gerðfjárhagsáætlunar. - Framsögumaöur verður Björn Ág-
ústsson. -Stjórnin.
Alþýðubandalagið Suður-
Þingeyjarsýslu - aðalfundur
verður haldinn í barnaskólanum Laugum í Reykjadal
kl. 15.00 laugardaginn 7. janúar. Fundarefni: Kosin
nýstjórn, ræddar reglurogframkvæmd vætnanlegs
forvals í kjördæminu. Stefán Jónsson alþingismaður
mætir á fundinn. Nýir félagar velkonmir. -Stjórnin. Stefán
Fyrsti fundur laga- og skipu-
lagsnefndar Alþýðubandalagsins
Fundur veröur haldinn í laga- ogskipulagsnefnd þeirri sem flokksráðs-
fundur Alþýðubandalagsins setti á laggirnar til þess að endurskoða skipu-
lagflokksinsfyrir landsfund á þessu ári föstudaginn 7. janúar.
Fundur laga- ogskipulagsnefndar verður haldinn að Grettisgötu 3 í
Reykjavíkoghefst kl. 16.
í upphafi fundarinsmunu Ragnar Arnalds, Hjalti Kristgeirsson, Olafur
Ragnar Grímsson og Arthur Morthens hafa stutta framsögu um þau
verkefni sem fyrir liggja.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins.
Arthur Ólafur Hjalti Ragnar
Forval á Suðurlandi
Frá uppstillingarnefnd Alþýðubandalagsins á Suðurlandi:
Ákveðiö hefur veriö aö viðhafa forval vegna komandi alþingiskosninga og
verður það í tveimur umferðum.
Fyrri umferðin fer frant dagana 8. og 9. janúar nk. frá kl. 16 til 22 og sú
síðari 27. janúar kl. 13 til 23.
Á Selfossi verður kosiö aö Fríkirkjuvegi 7.
Upplýsingar um kjörstaöi veita formenn viðkomandi félagsdeildar.
Utankjörfundaratkvæðagreiösla hófst hjá formönnum félaganna 1. janú-
ar sl. fyrir fyrri umferð.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir si'ðari umferð hefst 22. janúar.
Þátttökurétt í forvalinu hafa allirfélagar Alþýðubandalagsinsá Suður-
landi sem hafa verið félagsbundnir ía.m.k. einn mánuð þegar fyrri umferð
ferfram.
Forval Alþýðubandalagsins
í Reykjavak
Fyrri urriferð forvals Alþýöubandalagsins í Reykjavík fer fram 14.-16.
janúar. Kosningin fer fram aö Grettisgötu 3 og verður kjörfundur opinn
sem hér segir:
Föstudaginn 14. janúar kl. 16-21
• Laugardaginn 15. janúar kl. 10-19
Sunnudaginn 16. janúar kl. 10-14
Síðari umferð forvalsins fer síðan fram 28.-30. janúar og veröur hún
nánar auglýst síðar.
Rétt til þátttöku í forvalinu hafa allir féiagsmenn Alþýðubandalagsins í
Reykjavík sem ekki skulda meira en eitt gjaldfallið árgjald og þeir nýir
félagar. sem ganga í félagið í síðasta lagi á kjördag, enda greiði þeir a.m.k.
1/2 árgjald til félagsins viö inngöngu.
Fréttabréf ásamt forvalsreglum hefur verið sent til félagsnianna. Hafi
einhver ekki fengiö sendar forvalsreglurnar er hann beðinn að hafa
sambtind við skrifstofu félagsins. Fréttabréfiö og forvalsfeglurnar liggja
einnig frammi á skrifstofu ÁBR.
Kjörnefnd ABR
Sakarias Daníelsson
verkamaður frá Bjargshóli
Fœddur 12. júlí 1915
Dáinn 30. desember 1982
í dag, föstudaginn 7. janúar
1983, verður Sakarías Danielsson
verkamaður, jarðsettur í Reykja-
vík. Hann varð bráðkvaddur aö
heimili sínu Hagamel 43, þann 30.
des. sl. Sakarías var Húnvetningur.
Hann fæddist að Kollufossi í Mið-
firði þann 12. júlí 1915. Foreldrar
hans voru þau Daniel Jónatansson
bóndi, og kona hans Ágústa Jónat-
ansdóttir. Vorið 1919 flytja þau
hjón aö Bjargshóli í sömu sveit,
með öll börnin sín, en Daniel hafði
þá keypt jörö. Á Bjargshóli bjuggu
þau hjón síðan til dauðadags. Eign-
uðust þau 11 börn, og var Sakarías
6. í röðinni. Af barnahópnum eru
nú 8 á lífi. Árið 1923 flytur Sakarías
að Búrfelli í Miðfirði, þá 8áragam-
all, og þar átti hann heimili þar til
hann flytur til Reykjavíkur vorið
1941. A Búrfelli bjuggu þá Jón
Jónsson bóndi, og kona hans Jú-
líana Jónsdóttir. Reyndust þau
hjónin Sakaríasi sem bestu foreldr-
ar í uppvexti hans þar. Sakarías fór
í Bændaskólann á Hvanneyri og
lauk þaöan búfræöiprófi voriö
1938. Næsta ár var hann heima á
Búrfelli, en fór síðan haustið 1939 í
Reykhoitsskóla, og settist þá í efri
bekk skólans, og lauk þaðan prófi
vorið 1940, eftir eins vetrar nám.
Sakarías hlaut því góða almenna
skólamenntun, eftir því sem þá var
títt. Hann mun hafa haft áhuga á
frekara námi, enda var hann mjög
góöur námsmaður, en af því varð
þó ekki.
Ég kynntist Sakaríasi mjög fljót-
lega eftir að ég kom til Reykjavík-
ur. Ég held það hafi verið haustið
1941. Við unnum þá báðir hjá Loft-
varnanefnd Reykjavíkur við að
reisa loftvarnabyrgi víðsvegar um
borgina. Þá var mikið húsnæðis-
leysi í Reykjavík, og bjó ég hjá ætt-
fólki mínu til bráðabirgða, eins og
margir gerðu þá. Ég man eftir því
að þá hafði hann ásamt Hreggvið
bróður sínum, all gott og rúmgott
húsnæði á leigu hjá Eyjólfi Kol-
beins á Kolbeinsstöðum. Er ekki
að orðlengja það, að hann bauð
rnér að flytja til þeirra bræðra, og
þar var ég síðan um tíma þann vet-
ur. Síðar unnum við saman við ým-
iss konar verkamannastörf, en síð-
ast vorum við vinnufélagar sumar-
ið 1943, hjá björgunardeild breska
sjóhersins, við að bjarga stóru
herflutningaskipi, sem lá inn á
Kleppsvík. Síðan hefur Sakarías
unnið mest við byggingavinnu og
síðustu árin vann hann hjá Eim-
skip, allskonar hafnarvinnu. •
Kynni okkar Sakaríasar hafa því
veriö nokkuð löng, eða liðlega 40
ár. Þó að leiðir okkar hafi skilið um
tíma, þá höfum viö þó alltaf haldið
sambandinu við og hist af og til.
Hann var mjög vel greindur og af-
burða minnisgóður. Hann var bók-
hneigður og las mikið og kunni ó-
grynni af íslenskum ljóðum. Fáum
mönnum hefi ég kynnst með jafn
mikla kímnigáfu og honum. Mátti
segja, að hann kæmi ætíð auga á
broslegu hliöina á hverju máli, og
vekti athygli á öllu sem komið gat
skapinu í betra lag hjá viðmælend-
um hans. Félagslyndur var hann
með afbrigðum, enda ætíð gest-
kvæmt hjá honum, og gestrisni eins
og best varð á kosið.
Spilamaður var hann mjög góð-
ur. og svo fjölhæfur var hann á því
sviði, að ég held hann hafi kunnað
flest spil, sem ég hefi heyrt nefnd.
Við spiluðum mikið saman um
tíma, bæði lomber og bridge, og
mér er kunnugt um, að hann átti að
spilafélögum marga af bestu spila-
mönnum í Reykjavfk.
Síðustu árin hefur hann verið
heilsuveill og ekki getað stundað
vinnu. Hann varskorinn upp vegna
brjóskeyðingar í mjöðm, og
heppnaðist það vel, og stóðu vonir
til að hann fengi það góðan bata,
að hann gæti farið að vinna á ný.
Svo fór þó ekki, því hann varð
bráðkvaddur á heimili sínu 30. des.
sl.
Ég þakka Sakaríasi fyrir sani-
ferðina í lífinu, afburða viðkynn-
ingu og vináttu.
Systkinum hans votta ég samúð
mína.
Jón Snæbjörnsson.
/ /
Arsrít Skógræktarfélags Islands
Jólatré úr Hólaskógi í Iljaltadal.
Okkur hefur borist Ársrit Skóg-
ræktarfélags íslands 1982. Rit-
nefnd þess skipa: Hulda Valtýsdótt-
ir, Sigurður Blöndal, Snorri Sig-
urðsson (ábm.) og Þórarinn Þór
arinsson frá Eiðum. Arsritið kem-
ur nú út í 47. sinn.
Meðal efnis í blaðinu má nefna
grein eftir Jón Gunnar Ottósson,
unt skordýr á birki á íslandi, en Jón
hetur að undanförnu rannsakað
skordýr á trjágróðri hér á landi og
er það verk unnið á vegum Rann-
sóknarstöðvar Skógræktar ríkisins
á Mógilsá. Sigurgeir Ólafsson,
starfsmaður Ranrisóknarstofnunar
landbúnaðarins ritar grein unt
notkun eiturefna við garð- og skóg-
rækt. Eru þetta hvorttveggja gagn-
merkar greinar, sem allir, sem fást
við skóg- og garðrækt, ættu að lesa.
Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum á
þarna tvær greinar. Nefnist önnur
„Oft er í holti heyrandi nær". Eru
það hugleiðingar um hver sé hin
upprunalega merking orösins
„holt" og færir Þórarinn gild rök að
því að það hafi merkt skógur. Hin
greinin er samantekt um fyrstu um-
fjöllun Alþingis um skógræktarmál
en þau komust þar á dagskrá árið
1865. Þá flutti dr. Jón Hjaltalín
landlæknir „Uppástungu um skóg-
rækt og trjáplöntun á íslandi".
Alþingi tók málinu hið besta, kaus
í það nefnd en síðan var samin og
samþykkt bænarskrá til konungs,
svohljóðandi:
„1. Að yðar hátign allra mildi-
legast mætti þóknast að skipa svo
fyrir að samdar og prentaðar verði
almennar reglur um viðhald og
aukningu hinna íslensku birki-
skóga og reglum þessum síðan út-
býtt meðal almennings.
2. Að yðar hátign allra mildi-
legast mætti þóknast að senda
hingað æfðan og duglegan skóg-
fræðing til að ferðast um landið og
útvelja þá staði, sem best virtust
fallnir til trjáplöntunar og segja
síðan álit sitt um. hvernig þessu
best mundi verða fyrir komið".
Konungur brást þannig við þess-
um tilmælum Alþingis að hann
stakk þeim undir koddann og þar
fengu þau að hvíla fyrst um sinn.
A aðalfundi Skógræktarfélags
Islands á Akureyri 27.-29. ágúst í
sumar flutti Hallgrímur Indriða-
son, framkvæmdastjóri Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga fróölegt erindi,
erhann nefndi „Utivist, landnýting
og skógrækt í þéttbýll" og birtist
það í ritinu. Hulda Valtýsdóttir
rabbar við Ólaf Einarsson lækni
unt trjárækt hans í Laugarási í
Biskupstungum er hann var læknir
þar. Hún ræðir einnig við Jón Birgi
Jónsson, forntann Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur um för hans til
Alaska 1981. Birt er erindi sem
Börje Steenberg fyrrurn prófessor
flutti á 15. þingi norrænna skóg-
ræktarmanna í Kaupmannahöfn
11. júní í vor. Nefnist það „Tré í
tækni framtíðarinnar". Þá eru
minningargreinar um fimm skóg-
ræktarfrömuði: Sigurður Blöndal
ritar um Daníel Kristjánsson, Hák-
on Bjarnason um sr. Harald Hope,
Kristinn Skæringsson um Odd
Andrésson, Þórarinn Þórarinsson
um Vigfús Jakobsson og sr. Árni
Sigurðsson unt Steingrím Davíðs-
son. Loks eru fréttir af störfum
Skógræktarfélags íslands og hinna
ýntsu skógræktarfélaga á landinu.
-mhg
Elsku mamma min, tengdamamma og amma okkar
Una D. Sæmundsdóttir
Öldugötu 52
lést á kvennadeild Landsspítalans þann 27. desember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Vilborg R. Sólbergsdóttir Eiríkur Kolbeinsson
Kolbeinn Jakobsson Ólafur Kolbeinsson
Bróðir okkar
Sakarías Daníelsson
frá Bjargshóli lést 30. desember. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskapellu föstudaginn 7. janúar kl. 10.30.
Systkini hins látna.