Þjóðviljinn - 20.01.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 20.01.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. janúar 1983 Við höfum tekið saman í þetta súlu- rit 18 vörutegundir til þess að fólk sjái muninn skýrar en tölur láta uppi. Fremsta súlan sýnir hækkun- ina sem varð á Dagsbrúnartaxta í almennri hafnar- og fiskvinnu frá 2. júní árið 1980 til 20. desembcr árið 1982. Sá taxti hækkaði um 177,2 prósent á þessu tímabili. Hin- ar súlurnar sýna síðan hækkunina á 18 matvörutegundum. Alls voru tegundirnar 41, og aðeins 6 þeirra hækkuðu minna en Dagsbrúnar- taxtinn. Þær eru allar teknar með í súluritið. Hinar tegundirnar hækk- uðu allar meira en Dagsbrúnar- taxtinn, og eins og sjá má á súlun- um hækkuðu sumar allmiklu meira. O) n to Borðið frekar flögur en pöffs! Með því að stúdera vel og vand- lega töiluna þá arna má fá býsna haldgóðar vísbendingar um hvern- ig hagkvæmt er að kaupa í matinn. Það er t.d. augljóst, að fyrir þá sem endilcga vilja úða í sig með sætmeti í morgunmat er ólíkt betra að velja hcldur Kellogs kornilögur en Kók- ópöffs. Hækkanir á kornflögunum eru sýnu minni en á pöffsinu. I heild virðist þessi könnun benda nokkuð sterkt til þess, að neytendur ættu að fara hægt í sak- irnar nteð að velja matvöru, sem greitt er fyrir með dollurum. Vegna óhagstæðrar stöðu hans við íslensku krönuna undanfarið hefur verð á slíkum varningi þotið upp úr öllu valdi. En hér kemur svo taflan góða frá könnun Neytendafélags Reykja- víkur og nágrennis. Megum við biðja um meira. - ast Verðkönnun Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis Matvara hækkar meira en launin „Þessi kömiun sýnir, að hér hef- ur verið ákveðin kjaraskerðing. Hversu mikil hún er sjáum við hins vegar ekki á könnuninni. Þetta er ákveðin leiðbeining fyrir neytend- ur fyrst og frcmst, og vísbcnding um það hvernig haga má inn- kaupum.“ Þetta sagði Jóhannes Gunnars- son, formaöur Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis, í sam- tali við blk. um könnun þá, er fé- lagið gekkst fyrir á verði fjöl- margra vörutegunda í 25 verslun- um á höfuðborgarsvæðinu dagana 20.-21. desember síðastliðinn. Könnun þessi var í samræmi við verðkönnun, sem gerð var dagana 2.-4. júní 1980, en þá var kannað verð söntu vörutegunda í sömu verslunum. Tilgangurinn var að bera saman meðalverð á vöruteg- undunum miðað við tímamörkin. Jafnframt var reiknaö út hversu mikil hækkun hafði orðið á launum og var miðað við Dagsbrúnartaxta í almennri hafnar- og fiskvinnu. Sá taxti hafði hækkað um 177,2 prós- ent á þessu tímabili. Af þeim 41 vörutegundum, sem Neytendafé- lagið lét kanna, höfðu aðeins 6 hækkað minna en Dagsbrúnartaxt- inn en 12 höfðu hækkað um og yfir 300 próse t! Línuritið hér að ofan sýnir 18 þessara vörutegunda. En hvaða almennar niðurstöður er hægt að draga af þessum könn- unum? Jóhannes Gunnarsson sagði að það væri einkum þrennt: I fyrsta lagi hefðu landbúnaðar- vörur hækkað nokkru meira en laun. Verðið segir þó alls ekki til um hækkunina, því flestar land- „Þessar kannanir cru fyrst og fremst vísbending til neytenda um það hvernig skynsamlegast er að haga innkaupum“, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- félags Reykjavíkur og nágrennis. búnaðarvörur eru niðurgreiddar. Hér má benda á verðhækkun á kjúklingum og eggjum, en hvorugt er niðurgreitt. Kjúklingar hafa hækkað um 301,2 prósent og eggin um 370,0 prósent. í öðru lagi hafa innlendar iðnaðarvörður hækkað meira en launin - þar koma til vörugjald og almenn kjaraskerðing. Hér má benda á grænar baunir frá Ora, sem hafa hækkað um 261,2 prós- ent, og fiskbúðing, sem hefur hækkað um 205,2 prósent. í þriðja lagi hafa innfluttar vörur hækkað mjög mikið - og þá eink- um og sérílagi vörur sem við greið- um fyrir meö dollurum. „Þessar staðreyndir benda óneit- anlega til þess, að fólk getur sparað töluvert með því að beina neyslu sinni fremur að innlendum vörurmf!r sagði Jóhannes Gunnars- son. Hann vildi að lokum ítreka, að fólk ætti að fara varlega í að draga ályktanir um hversu mikil kjarask- erðing hefur verið á grundvelli þessara kannana. Hér er aðeins verið að athuga matvöru, en ótal fleiri þætti þyrfti að athuga til þess að segja nokkuð um skerðinguna í heild. Þess skal að lokum getið, að Neytendafélag Reykjavíkur og ná- grennis, sem stofnað var sl. vor, hefur aðsetur að Austurstræti 6 í Reykjavík, og þar er opið alla virka daga milli klukkan þrjú og fimm. Síminn er 21666. - ast Meðal- Meðal- Mis verð verð munur 2.-4. 20.-21. í % Land búnaðarvörur júní ’80 des. ’82 Nýmjólk 1. Itr. 3,59 9,70 170,2% Smjör 500 gr. 18,33 55,00 200,1% Gouda ostur 26% 1 kg. 34,71 97,50 180,9% Lambalæri 1 kg. 27,71 85,00 206,7% Nautahakk 1 kg. 40,33 129,84 221,9% Kjúklingar 1 kg. 29,63 118,88 301,2% Kartöflur 2,5 kg. 9,95 16,30 63,8% Egg 1 kg. 12,88 60,53 370,0% Mjölvörur, sykur, grjón Sykur Dansukker 2 kg. 9,39 24,26 158,4% Flórsykur Dansukker 'h kg. 3,41 7,93 132,6% Phillsbury’s hveiti 5 lbs. 7,66 33,60 338,6% Pama hrísmjöl 350 gr. 3,22 13,62 323,0% River rice hrísgrjón 454 gr. 3,10 13,11 322,9% Solgryn haframjöl 950 gr. 6,52 28,28 333,7% Morgunkorn Kellog’s kornflögur 375 gr. 10,40 34,14 228,3% Coco Puffs 340 gr. 11,99 52,76 340,0% Bökunarvörur Royal lyftiduft 450 gr. 7,35 29,50 301,4% Goldcn Lye’s sýróp 500 gr. 13,14 39,58 201,2% Royal vanillubúðingur 90 gr. 1,99 6,19 211,1% Drykkjarvörur Quick kókómalt 906 gr. 18,09 86,83 380,0% Melroses te 40 gr. 3,55 11,30 218,3% Egils appelsín 25 cl. 1,45 5,45 275,9% Brauð og kökur Heilhveitibrauð form ósneitt 2,36 8,95 279,2% Frón mjólkurkex 400 gr. 4,97 20,02 302,8% Ritz saltkex rauður 200 gr. 5,42 22,82 321,0% Niðursuðuvörur Ora grænar baunir V. dós 6,03 21,78 261,2% Ora rauðkái 'h dós 6,67 19,34 190,0% Ora fiskbúðingur 'h dós 11,65 35,56 205,2% Ora maískorn V; dós 6,71 27,94 316,4% Lockwood jarðarber 382 gr. 9,59 25,50 165,9% Aðrar matvörur Gunnars majones 250 ml. 4,19 17,11 308,4% Vilko sveskjugrautur 85 gr. 4,69 16,86 259,5% Libby’s tómatsósa 340 gr. 4,19 16,63 296,9% Hreinlætisvörur íva þvottaefni 2,3 kg. 22,89 79,03 245,3% Þvol uppþvottalögur 2,2 ltr. 12,89 43,13 234,6% Hreinol grænt 0,5 ltr. 4,14 11,41 175,6% Plús mýkingarefni 1 Itr. 6,39 21,74 240,2% Lux sápa 90 gr. 2,12 6,47 205,2% Colgate flúor tannkerni 90 gr. 5,02 17,82 255,0% Eplasjampó Sjöfn 295 ml. 770 22,70 194,8% Niveakrem 60 ml. 5,86 16,38 179,5%

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.