Þjóðviljinn - 20.01.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 20.01.1983, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 20. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Stórlelkur Péturs, - ÍR vann IBK Kcppnin í Úrvalsdeildinni í körf- uknattleik er nú orðin geysilega spennandi bæði á toppi deildarinn- ar og botni. ÍR-ingar sem um mið- bil mótsins virtust heyja vonlausa fallbaráttu hafa tvíeflst við kottiu Péturs Guðmundssonar í liðið og stefna á að halda sæti sínu í deildinni. Með tilkomu Pcturs hef- ur komið ný stærð inn í deildina sem raskar fullkomlega hinu steindauða jafnvægi sem þar var fyrir. í gærkveldi unnu .ÍR-ingar glæsilegan sigur á efsta liðinu ÍBK. Lokatölur urðu 72:66 eftir að stað- an í háltleik halði verið 34:25, ÍR í vil. Pétur átti stórleik í fyrri hálfleik, skoraði þá 20 stig.og hirti 15 frá- köst. Hann lagði grunninn að sigri ÍR, því jafnvel þó svo Keflvíkingar næðu að jafna metin í síðari hálf- leik og komast síðan yfir þá var einbeittur sigurvilji ÍR-inga til þess að þeir kornust aftur á réttan kjöl og sigruðu. Stig ÍR: Pétur 26, Gylfi 18, Kri- stinn 9, Hreinn 8, Jón 5, Kolbeinn 4 og Hjörtur 2. ÍBK: Axel 15, Jón Kr. 14, Þorsteinn 11, Brad Miley 10; Björn V. 8, Viðar 8. VS/hól. Barselona vann Super-Cup Fyrsti leikurinn af tveimur í hinni svokölluðu Super-cup keppni fór fram í gærkvöldi í Barcelona að viðstöddum 55 þús. áhorfcndum. Það voru Evrópubikarmeistarar Barcelona sem léku við Evrópu- meistara Aston Villa. Lið Barcelona vann 1:0 eftir harðan og spcnnandi leik. Marcos skoraði mark Barcelona á 55. mín. Iciksins. Gordon McQeen skoraði tvisvar fyrir Manchester United í gær- kvöldi og þeir Bryan Robson og Steve Copsel skoruðu sitt markið hvor. 1 Lundúnum kom Terry Gibson Tottenham yfir þegar ein mínúta var liðin af síðari hálfleik. En ótrú- legur kraftur gaf Burnley 4 mörk* Mörkin komu öll á síðustu 25 mín- útunum.Graham Roberts byrjaði með glæsilegu sjálfsmarki og stuttu síðar skoraði Billy Hamilton eftir heilmikið klúður Ray Clemence. Fimm mínútur fyrir leikslok skoraði Steve Taylor þriðja mark Burnley og á síðustu sekúndunum skoraði Hamilton sitt annað mark, 4:1 fyrir Burnley. -hól. Þórdís Gísladóttir. Hún hefur nað Olympíulágmarkinu í hástökki sem er 1,86 metrar. Hún stökk þessa hæð á bandaríska háskólameistaramótinu í fyrra. íþróttir Umsjón: Viðir Sigurðsson Hinn cfnilegi leikmaður Þróttar, Lárus Ingi Karlsson í harðri baráttu á línunni. Steinar Birgisson tekur hann engum vetlingatökum svo sem sjá má. Ljósin.: -eik. Víkingur — Þróttur 23:23 Páll jafnaði á eUeftu stundu Víkingar skutust á toppinn í l.dcild með því að gera jafntefli við Þróttara í allspcnnandi leik í Laug- ardalshöllinni í gærkvöldi. Jöfnun- armark Þróttara kom á allra síð- ustu mínútu leiksins, en þegar tæp núnúta var eftir af leiknum var staðan 23:21, Víking í vil. Virtust Víkingar vera búnir að bóka sigur, en með inikiu harðfylgi tókst Þrótt- urum að jafna. Leikurinn var jafn mestan part fyrri hálfleiks og höfðu Þróttarar oftar yfirhöndina, 2:0, 3:1 og 4:1. Víkingum tókst þó að jafna metin og ná forystunni, 10:9, 13:11 og síðan 14:11, en þannig var staðan í hléi. í síðari hálfleik höfðu Víkingar að því er virtist ntikla yfirburöi og þegar iítið var eftir af leiknum, 5 marka forskot. Viggó Sigurðsson var þar í miklu stuði og skoraði hann 7 mörk í röð fyrir Víking. Mikil barátta Þróttara undir lok- in, í bland við mikla heppni og góða markvörslu Ólafs Benedikts- sonar gerði þeim kleift að jafna. Páll Ólafsson skoraði jöfnunar- markið þegar 2-3 sekúndur voru til leiksloka. Mörk Víkings: Viggó 10, Guð- mundurS, Sigurður Gunnarsson 4, Hólmar, Steinar, Páll og Einareitt mark hver. Mörk Þróttar: Einar 5, Páll 4, Konráð, Gíslí, Lárus 3 mörk hver. Magnús og Jens 2 ntörk hvor og Ólafur H. eitt mark. -hól. Olympíuleikarnir í Los Angeles 1984 Lágmörkln eru snúin í blaðinu í gær var getið nokkuð um þau láginörk sem alþjóðlega ol- ympíunefndin hefur sett fyrir næstu Olympíuleika sem eins og kunnugt er verða haldnir í Los Angeles á ári komandi. Lágmörk þessi eru afar ströng og Ijóst er að aðeins örfáir íslenskir frjálsíþrótta- menn eiga möguleika á að ná þeim. Hér koma nokkur til viðbótar við þau sem getið var um í gær.: Spjótkast: 82 metrar Sleggjukast: 71 metri Tugþraut: 7600 stig Frjálsíþróttir kvenna 100 metra hlaup: 11,54 sek. Manchester United og Burnley komust í gærkvöldi áfram í 4—liða úrslit deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu. Bæði liðin unnu stór- 200 metra hlaup: 26,64 sek. 400 mctra hlaup: 52,74 sek. 800 mctra hlaup: 2:02,00 mín. 1500 metra hlaup: 4:09,00 mín. 3000 metra hlaup: 9:05,00 mín. 100 metra grindahlaup: 13,64 sek. 400 metra grindahlaup: 58,64 sek. Ilástökk: 1,86 metrar Langstökk: 6,45 metrar Kúluvarp: 16,80 metrar Kringlukast: 57,00 metrar Spjótkast: 56 metrar Fimmtarþraut: 5700 stig. 1 þessum lágmörkum er í mörg- um tilvikum gert ráð fyrir handtím- atöku og er þá krafist á betn' tima en rafmagnstímatakan mælir. an sigur, Manchester hrcinlega gekk frá Nottingham F’orest 4:0 og Burnley vann frækilegan sigur á Tottenham 4:1. Staðan: Staðan í 1. dcild íslands- mótsins í handknattlcik cftir leikinn í gærkvöldi og leik Vals og Stjörnunnar á þriðjudags- kvöldið er þessi: Víkingur 13 8 3 2 282:259 FH.....12 9 0 4 348:289 18 KR..... 12 8 0 4 274:223 16 Stjarnan 13 7 1 5 261:259 15 Valur.. 13 6 1 6 270:251 13 Þróttur 13 5 2 6 264:272 12 Fram.... 13 0 013 227:372 0 Aðeins er eftir örfáir leikir í þessum parti íslandsmótsins. Þeir verða á dagskrá sem hér segir: I dag kl. 20. Fram - KR í Laugardalshöll. Laugardag 22. jan. kl. 14. í Laugardals- höll Þróttur - Valur. Sunnu- dag 23. jan. kl. 14 í Hafnar- firði ITl - F'ram. Sunnudag 23. jan. kl. 16.15 í Hafnarfirði Stjarnan - ÍR. Sunnudag 23. jan. Laugardalshöll kl. 14. Víkingur - KR hol. Deildarbikarinn í gærkvöldi: Burnley og Man. United áfram

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.