Þjóðviljinn - 20.01.1983, Page 16
Kærðir
fyrir
nauðgun
Ung stúlka kærði í fyrri-
nótt tvo menn fyrir
nauðgun og voru þeir
handteknir skömmu síðar
eftir tilvísun hennar.
Arnar Guðmundsson,
rannsóknalögreglumaður
sagðist í gær engar frekari
upplýsingar geta gefið um
málið þar sem mennirnir
tveir væru enn í yfir-
heyrslum.Þeir eru innan
við tvítugt. _ÁI
Skipun stjómamefndar um umhverfismál:
Fyrsta skrefið
að ráðuneyti umhverfismála, — segir Svavar Gestsson,
félagsmálaráðherra
„Frumvarp (il laga um stjórn
umhvcrllsmála hefur verið tii at-
hugunar hjá ríkisstjórninni og ýms-
um umsagnaraðilum frá því s.l.
haust, en ekki hlotið afgreiðslu
enn“, sagði Svavar Gestsson félags-
maiaráðherra í saintali við blaðið í
gær. „Það sem vitað er að þing gæti
staðið mjög stuttan tíina enn, og að
erfitt gæti reynst að ná afgreiðslu
frumvarpsins fyrir þinglok, tel ég
rétt að gera þá tilraun að koma á fót
stjórnarnefnd. (Sjá forsíðufrétt).
Hér væri um bráðabirgðafyrir-
komulag að ræða, þar til Alþingi
hefði tekið ákvörðun um hvernig
stjórnun þessara mála á að vera í
framtíðinni. Það myndi hinsvegar
bæta heildarstöðu umhverfismála í
stjórnkerfmu, þar sem þau hafa
ekki haft ncinn sérstakan scss.“
- Kemur þetta í sama stað niður
og ef frumvarpið helði verið lagt
fyrir alþingi og hlotið þar af-
greiðslu?
Ef alþingi samþykkti frumvarpiö
væri vilji löggjafans ljós, sagði
Svavar. Ef ráöuneytin sex hins veg-
ar og viðkomandi ráðherrar fallast
á þá skipan mála, sem tillagan gerir
ráð fyrir, kemur það að ýinsu leyti í
sama staö niður. Þó má nefna að
t.d. er í frumvarpinu ákvæði um
þátttöku ríkisins í kostnaði við hol-
ræsi sveitarfélaganna, en ekki í til-
lögunni. En holræsin eru nú að
verða eitt alvarlegasta umhverfis-
vandamál sveitarfélaganna vegna
mikils kostnaðar, t.d. Reykja-
víkur.
- Nú hafa ýmsir talið að frum-
varpið gengi of skammt þó aðrir
hafi verið jákvæðir.
Já,-meðeinfaldri skipun stjórn-
arnefndar eins og tillagan gerir ráð
fyrir er hægt að vinna tíma til að
koma þessum málum í varanlegan
farveg, sagði Svavar. Ég tel það
best gert með endurskoðun á
stjórnarráðsreglugerðinni og
lögunr um Stjórnarráð íslands
þannig að stofnað verði sérstakt
umhverfismálaráðuneyti. Laga-
frumvarpið var öðrum þræði hugs-
að sem fyrsta skref í þá átt og að því
leyti kernur þessi tillaga í sama stað
niður, sagði Svavar Gestsson að
lokum. - AI'
Alþýðubandalagið Suðurlandi:
Tolur ur fym
umferð forvals
Fyrri umferð forvals vegna skip-
unar framboðslista Alþýðubanda-
lagsins á Suðurlandi í komandi al-
þingiskosningum fór fram um síð-
ustu helgi. Þetta var tilnefningar-
umferð, en röðun í sæti fer fram í
síðari umferð.
Kjörnefnd hefur ekki látið
fjölmiðlum í té upplýsinar um tölu-
legar niðurstöður. í Tímanum í gær
er frásögn af fyrri umferð forvals-
ins og tölur birtar, en þær tölur eru
allar rangar.
Flestar tilnefningar í fyrri um-
ferð forvalsins hlutu: Margrét
Frímannsdóttir, oddviti Stokkseyri
100, Garðar Sigurðsson, alþingis-
maður, Vestmannaeyjum 98 og
Baldur Óskarsson, framkvæmda-
stjóri, Reykjavík 90.
Fasteignamat ríkisins:
Litlar íbúðir
hækka mest
íbúðarverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði
að jafnaði um 90% í fyrra
Fastcignamat ríkisins hefur
gengið frá nýju fastcignamati og
verða tilkynningascðlar þess efnis
scndir út á næstunni. Alls verða
bornir út 96 þús. seðlar til 75 þús-
und eigenda. Við fasteignamat er
að sjálfsögðu tekið tillit til verð-
hækkana á fasteignum og kemur í
Ijós nú að frá 1. okt. 1981 til 1. okt.
1982 hækkaði íbúðarhúsnæði að
jafnaði um 90%. Þó er þetta nokk-
uð misjafnt eftir stærð íbúða og
hækkuðu 2ja herbergja íbúðir
mest, eða um 100%.
í skýrslu FMR kemur fram, að
verðlag fasteigna hefur hækkað
svipað og byggingarkostnaður á
fyrrnefndu tímabili. Atvinnuhús-
næði hækkaði svipað og vísitala
byggingarkostnaðar en íbúðar-
húsnæði utan höfuðborgarsvæðis-
ins hækkaði um 67%. Þá er þess að
geta að fasteignamat er yfirleitt
15% lægra, en fengist fyrir viðkom-
andi fasteign við staðgreiðslu.
Sú nýjung verður á nýju fast-
eignamatsseðlunum að þar er dálk-
ur með endurstofnverði, en það er
mat FMR á byggingarkostnaði
mannvirkja að frádregnum gatna-
gerðargjöldum og fjármagns-
kostnaði á byggingartíma. S.dór.
Guttormur Sigurbjörnsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, á blaða-
mannafundi í gær (Ijósm. -Atli-).
Atvinnuleysi vex í Kópavogi:
Um 100 manns
atvinmdausir
Óþekkt í Kópavogi til þessa, segir Hrafn Sæmundsson
„Hér í Kópavogi eru um það bil
100 manns scm fá atvinnuleysis-
bætur og því miður hefur orðið
mikil aukning síðustu vikurnar“,
sagði Hrafn Sæmundsson atvinnu-
málafulltrúi í Kópavogi í gær.
„Langstærstur hluti þeirra sem
hafa misst atvinnuna eru iðnaðar-
menn og bygginjgrverkamenn en
síðustu daga hafa bæst við allmarg-
ir sem vinna við verslun og þjón-
ustu. Auðvitað er lægð í byggingar-
iðnaðinum á þessurn árstíma og
það á vonandi eftir að Iagast en ég
hef meiri áhyggjur af þjónustu-
greinunum og óttst að þar kunni að
vera langvinnari vandi á ferðinni",
sagði Hrafn ennfremur.
Hrafn kvað ekkert teljandi at-
vinnuleysi hafa verið í Kópavogi
hin síðari ár og því kæmi þetta
ástand nokkuð á óvart. „Ég hef
orðað þetta svo að hér væri verið
að brjóta grundvallar mannréttindi
á 100 manns og þess vegna tel ég að
grípa verði til róttækra ráðstafana
til að rétta hlut þessa fólks hið
Hrafn Sæmundsson atvinnumála-
fulltrúi: verið að brjóta mannrétt-
indi á þessu fólki.
bráðasta. Þess má og geta að áður
en menn ntissa atvinnuna eru þeir
iðulega langan tíma búnir að vera í
dagvinnu einni saman og þess
vegna tel ég að hér sé oft á tíðum
um enn stærri vanda að ræða en
atvinnuleysistölurnar einar gefa til
kynna“, sagði Hrafn Sæmundsson,
atvinnumálafulltrúi í Kópavogi, að
síðustu. .
Við förum fram á að íhlutun
Bandaríkjanna í málefni El Salva-
dor verði fordæmd, að lýst verði
stuðningi við kröfur þjóðfrelsisafl-
anna um pólitíska lausn á borgara-
styrjöldinni og að brot á almennum
mannréttindum í El Salvador verði
fordæmd, sagði Raul Florez Ayala,
fulltrúi þjóðfrelsisaflanna í El Salv-
ador á blaðamannafundi í gær, en
hann er hér staddur í boði El Salva-
dor-nefndarinnar í tilefni þess að
fyrirhugaðir eru tveir fundir til
stuðnings ofangreindra markmiða.
Eru þeir liður í alþjóðlegum
aðgerðum sem fara fram í öllum
stærri borgurn Evrópu og í Banda-
ríl.junum í kringum 22. janúar, en
þá er 51 ár líðíð frá bændaupp-
reisninni í El Salvador sem kost-
aöi 30 þúsund bændur lífiö.
Fyrri fundurinn verður í Félags-
stofnun stúdenta í kvöld, fimmtu-
dag, kl. 20.00, og mun Raul Florez
Ayala flytja erindi, sýnd verður
kvikmynd, Bubbi Morthens syngur
og Jón Gunnar Grjétarson flytur
ávarp.
A föstudaginn kl. 17.30 verður
stuttur fundur í Bakarabrekkunni
þar sem þau Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir, Ólafur Ragnar Gríms-
son, Guðmundur Arni Stefánsson
og Magnús E. Sigurðsson flytja
ávörp. Síðan verður gengið að
bandaríska sendiráðinu þar sem
Raul Florez Ayala mun flytja stutt
ávarp og afhent verður mótmæla-
yfirlýsing.
Þjóðviljinn hvetur sem flesta til
að mæta á fundi þessa og sýna
stuðning við þjóðfrelsisbaráttuna í
E1 Salvador. ólg.
UÚDVIUINN
Fimmtudagur 20. janúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum Aðalsími Kvöltisími Helgarsími
sínum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir81257. afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Raul Florez Ayala ásamt túlki og félögum El Saivadorncfndarinnar á blaðamannafundinum í gær.
* * /
1
tyðium
Eí Salvador