Þjóðviljinn - 25.01.1983, Page 7

Þjóðviljinn - 25.01.1983, Page 7
ÞriSj’udagur 25. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Björgunarsveitarmenn á leið til flugvaliarins á sunnudag Brak úr húsum og öðrum mannvirkjum þeyttist yfir stórt svæði. Alls staðar blasti við eyðileggingin. eftir að fyrstu aðgerðum var lokið. Sumfr mlsstu aleiguna” Þessum vagni verður ekki ekið heilum framar. í baksýn má sjá björgunarmenn að störfum. segir Stefán Skarphéðinsson sýslumaður Stefán Skarphéðinsson sýslumaður á Patreksfirði: Eignatjónið lítilvægt miðað við mannslífin scm týndust. - Ljósm. eik. „Þetta hefur gengið mjög erfiðlega vegna þess að þeir sem saknað var fundust iátnir en miðað við aðstæður hefur björgunarstarfið að öðru leyti gengið vel“, sagði Stefán Skarphéðinsson sýslumaður á Patreksfirði er Þjóðviljinn náði tali af honuni í stjórnstöð almannavarna á Patreksfírði á sunnudag. Hann sagði að slíkt snjóflóð gömul hús við það. Menn hafa hefði ekki fallið í manna minnum hingað til talið að mesta hættan niður þetta gil, enda væru mörg væri við utanverða Vatneyri og þar hefur verið bannað að byggja á vissu svæði, enda koma þar gusur af og til. Sýslumaður sagði að erfitt væri að meta eignatjón af þessu flóði en það væri nú byggingarfulltrúans að meta það. Dæmi væru um að fólk hefði misst aleigu sína, hús, innbú og bíl. Svo væri t.d. um fólkið á Hlíðarvegi 2. Þó væri eignatjónið lítilvægt miðað við þau mannslíf sem týndust. Gfr. -v. Eyðilegging var gífurleg. Þetta er Þórðarhús, kennt við Þórð Guðbjartsson sem þar bjó lengi og dó á tíræðisaldri fyrir einu til tveimur árum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.