Þjóðviljinn - 01.02.1983, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Þegar svellið er til staðar þá flykkjast bæjarbúar að tU að fylgjast með skemmtUegri keppni.
Yiljum vera annað og meira
en sýningargripir á hátíðum
Rætt við
Guðmund Pétursson
formann Skautafélags
Akureyrar
— Við í Skautafélagi
Akureyrar höfum verið
aö berjast fyrir vélfrystu
svelli hér í bænum í ald-
arfjórðung, en ekkert
orðið ágengt. A vetrar-
iþróttahátíðinni sem
haldin var hér á Akureyri
árið 1970, var okkur heitið
vélfrystu svelli, og ISI
gaf fé til að hefja fram-
kvæmdir. Svellið er enn
ókomið, bæjarfélagið
hefur ekki virt okkur
svars, og Skautafélaglð
hefur því með öllu lagt á
hilluna áætlanir um vél-
fryst svell, og stefnir
frekar að því að fá vall-
arsvæðið okkar í innbæn-
um malbikað nú i sumar.
Það er Guðmundur Pétursson
formaður Skautafélags Akur-
eyrar sem hefur orðið, og hann
er þungorður, vegna þess skiln-
Keppni í hraðhlaupi á síðasta Is-
landsmótinu í þeirri grein, á Akur-
eyri árið 1961. Skúli Ágústsson á
undan og Hjalti Þorsteinsson fylgir
fast á eftir.
íslandsmeistarar í ísknattleik árið
sænska þjálfaranum sínum.
ingsleysis sem starfsemi
Skautafélagsins hefur mátt
mæta hjá yfirvöldum.
Skautafélag Akureyrar átti 46
ára afmæli 1. janúar sl. Nú
starfa um 50 manns i félaginu,
en starfsemin snýst nú orðiö
eingöngu um ísknattleik, en áð-
ur fyrr var einnig æft hraðhlaup
og listdans hjá Skautafélaginu.
Skautaíþróttin
útundan
— Skautaiþróttin hefur að
1980, Skautafélag Akureyrar ásamt
heita má hvergi annars staðar
verið stunduð hérlendis nema á
Akureyri og I Reykjavik.
Skautaiþróttin hefur verið al-
gjörlega útundan. Hún stóð með
ágætum blóma hér á Akureyri
fyrr á árum, en nú er ekki einu
sinni hlustað á okkur, i þessari
miðstöð vetrariþrótta, eins og
Akureyrarbær er oft nefndur.
— Hvernig hafiö þið haldið
uppi starfi t.d. I vetur?
— Það hefur verið gifurlega
erfitt. í fyrsta lagi þá er okkar
aðstaða öll það á eftir, að við
höfum i raun ekki almennilegt
svell nema endrum og eins.
Hér þarf aö sprauta einar
15—20 umferðir yfir malarvöll-
inn til að fá sæmilegan is en i
Reykjavik dugir að sprauta að-
eins 5 sinnum. Þess vegna höf-
um við nú ákveðið að leggja höf-
uðáherslu á að láta malbika
vallarsvæðið i sumar til að létta
fyrir isgeröinni fyrst draumur-
inn um vélfrystinguna er úr
sögunni.
Þá hefur veðráttan i vetur
verið óskaplega óhagstæð.
Snjórinn hefur verið það mikill,
og viö aldrei getað haft svellið
klárt nema i eitt og eitt kvöld i
senn. Það hefur allur okkar timi
farið i að útbúa og laga svell, og
þá er litið þrek hvað þá timi til
Hraðhlaup á Tjörninni í Reykjavlk
árið 1960 síðasta skipti sem slík
keppni hefur þar verið haldin. Ein-
göngu Akureyringar tóku þátt í
hlaupinu og á myndinni eru þeir
Björn Baldursson t.v. og Skúli Ág-
ústsson t.h.