Þjóðviljinn - 18.02.1983, Page 2

Þjóðviljinn - 18.02.1983, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. febrúar 1983 Nóaflóð af ritgerðum „Hugleiðingar í lok annar" nefnist grein í nýútkomnu Bene- venfum, skólablaði Mennta- skólans við Hamrahlíð. Böddi nefnist greinarhöfundurinn og hann leiöir hugann að öllum þeim aragrúa ritgerða sem menntskæl- ingar ku þurfa að skila nú á dögum. „Einhver staðar uppi í hillu eöa niðri í skúffu liggur svo heljar bunki af ritgerðum. Þær eiga eitt sameiginlegt, en þaö er að þeim hefur öllum veriö skilaö til kenn- ara í hinum ýmsu greinum, að minnsta kosti þrisvar og hafa fengiö jafn margar einkunnir. Annað sent þær eiga sameigin- legt er að þeim var öllum skilað á síðasta kennsludegi annarinnar eða seinna. Þetta eru reyndar ekki allar ritgeröir sem þú skilaðir þessa önnina, því sumar hafa vinir þínir fengið að láni. Sumar eru í ruslafötunni vegna þess að þú fékkst bara C+ fyrir þær en fannst þú eiga skiliö A + . Einstaka ritgerðum týndu kenn- ararnir. Það er í sjálfu sér ekki skrýtið þegar þess er minnst að hver og einn þeirra hefur að minnsta kosti 300 ritgerðir í tösk- unni sinni. í hólfinu sínu eða á skriíborðinu heima. Það er engin furöa þó einstaka ritgerðir týnist í þessu Nóaflóöi ritgerða sem kennarar kalla yfir sig á hverri önn vitandi það að enginn skilar fyrr en á síðasta degi." Skák Karpov aö tafli — 99 Polugajevskí virtist niðurbrotinn maður eftir ófarirnar í 4. og 5. skákum einvígisins. Hann fékk þokkalegustu stöðu í 6. skák en kraftmikil taflmennska Karpovs gerði hon- um lífið leitt svo sem sjá má á niðurlagi skákarinnar. Karpov - Polugajevskí 34. Bc1! (Afgerandi!) 34. .. Db5 35. Rh6+ Kh8 36. Rxf7+ Hxf7 (Þvingað. Ef 36. - Kg8 þá 37. Rh6+ og 38. Hxf8 + .) 37. Hxf7 Bf6 38. Df2 Kg8 39. Hxf6! gxf6 40. Dxf6 - Svartur gafst upp. enda stutt í mátið. Staðan: Karpov 2 - Polugajevskí 0. Hannaði sjálfvirka suðuvél „Eg byrjaði að vinna við þessa vél í júlí-ágúst í sumar og hún var tekin í notkun nú í janúar.“ Þann- ig mæltist Magnúsi Alexíussyni rafmagnstæknifræðingi en hann hefur hannað nýja vél til þess að sjóða saman enda á hljóðkútum sem eru framlciddir hjá Fjöðrinni hf. Vélin er sjálfvirk og er það ör- tölva sem stjórnar suöunni. I lingaðtil hafa hljóðkútarnir ver- iö rafsoðnir meö heföbundnum hætti en við slíka suöu myndast mörg eiturefni sem ekki er beint hollt að anda að sér. Þessi nýja sjálfvirka suöuvél breytir því að þeir sem viö þetta vinna þurfa ekki að vera nálægt suðunni sjálf- ir þó að þeir þurfi að sjálfsögðu aö skammta vélinni kúta til suöu. Magnús Alcxíusson raftæknifræðingur og hönnuður. - Ljósm. Atli - Fr þessi vél ekki alger nýj- ung? „Jú hún et það, cn þaö veröur að líta á að hér er ekki um að ræða almennt sjálfvirka suöuvél. Þessi vél er einungis framleidd fyrir þetta tiltekna verk og því er hér engin stórkostleg nýjung á ferðinni, en nýjung samt." - Er hægt að kalla þessa vél ró- bót eða vélmenni? „Nei þaö er ekki hægt sam- kvæmt skilgreiningu, því vél- menni er sú vél sem vinnur sjálf- virkt í þrívídd en þessi suðuvél vinnur bara á plani." - Má gera ráð fyrir því að þessi aðferð breiðist út og verði notuð það sem koma skal? Það stefnir allt í meiri sjálfvirkni á öllum sviðuni." - Má búast við flciri nýjungum frá þér? „Já ég er alltaf að vinna að ein- hverju en ég held éggefi það ekk- ert upp að hverju ég er að vinna nú sem stendur. Það kemur í við lleiri verkefni? „Já það held ég. Er þetta ekki Afköst jukust um helming „Jú þessi vél brcytir niiklu fyrir okkur. Hún tekur af okkur erf- iðustu suðuna og þá vandamestu, kantsuðuna, en við þá suðu verð- ur að bcita mikilli einbeitingu" sagði Jóhannes Jórisson hjá Fjöður hf. „Það er líka óhætt að segja það að með þessari vél höfum við aukið afköstin um helming því þegar þetta er gert með hefð- bundnum hætti þá sýður einn maður ekki eins samfellt og vélin gerir. Þessu fylgir einnig minni mengun jrví það er ekki hægt að hafa sogið sem sýgur eiturgufurn- ar sem myndast viö suðuna eins nálægt þegar maður sýður þetta sjálfur. Það má því segja að með tilkomu þessarar vélar sé þetta starf að öllu leyti þægilegra en þaö var." - Er þetta einu tcgundin af kút- um sem hún sýður? „Já enn sem koinið er. Það er samt verið að undirbúa hana t'yrir að taka stærri kúta og rriá gera ráð fyrir því að það verði á næstunni" sagði Jóhannes. - kjv Jóhannes Jónsson „aðstoðarmaður" suðuvélarinnar. - Ljósm. Atli. Leikhljóð búin til I nýútkomnu skólablaði Hanir- hlíöinga, Beneventum, eru gefnar uppskriftir að leikhljóðum sem bæði má nota við kvikmyndagerð og uppfærslu leikrita. Fara þær hér á eftir. Rigning. Ca. I bolla af þurrkuðum baunum er velt fram og aftur í sigti. Hljóðnemanum er haldið undir sigtinu (mjög nálægt því - forðist þó að reka sigtið í hljóönemann). Eldur. „Sellofane" er núið saman fyrir framan hljóðnemann. Ef eld- spýtnastokkar eru kramdir, brak- ar jafnvel enn meira í eldinum. Vindur. Silkibútur er dreginn eftir borðplötu undir hljóðnemanum. Því hraðar sem silkið er dregið, þeim mun rneiri verður vind- hraðinn. Briinhljóð Vatni í baðkari er gutlað með- hægri handarhreyfingu, en án þess að skvetta á hljóðnemann. Þrumur. Málmþynna er hrist í einhverri fjarlægð frá hijóðnemanum. Skíðarennsli. Reglustika er dregin eftir teppi eða ábreiðu. Styrk hljóðsinis er stýrt með breytilegri fjarlægð hljóðnemans. Skammbyssuskot. Slegið er með fjöl á borðplötu. Hljóðneminn er hafður eins ná- Iægt og hægt er. Fótatak. Gerviefni er kreist í „göngu- takt" rétt fyrir framan hljóðnemann. Gengið í snjó. Litlir pokar sem í er línsterkja eru kreistir fyrir framan hljóðnemann í „skrefatakt". Bridge Spil no 3 Þú situr i 1. hendi meö eftirfarandi spil: ÁKG2 9 4 ÁD98652 Allir á hættu og pú átt aö segja. Hvaða sögn velurðu? Spilið kom fyrir í úrslitaleik Flugleiða- mótsins í sveitakeppni, milli sveita Ólafs Lárussonar og Tony Sowter. Ólafur sat með þessi spil og valdi að opna á 5 laufum, sem voru pössuð út. Hendi makkers var þessi: D ÁG1054 DG10943 K Útspil Vesturs vartigulkóngur. Sagnhafi leit dýrðina í borði, og hugsaði með sjálfum sér: Það gat skeð, alltaf jafn óheppinn. Borðliggjandi 6 lauf. En heilladísin var til staðar í þessu spili, því Vestur átti laufgosa, tíu, fjórða, þannig aö sagnhafi gaf tvo slagi, slétt staðið 600 til sveitar Ólafs. Á hinu boröinu spiluöu Bretarnir 3 grönd dobluð á þessi spil, og eflaust hefur fyrsta hugsun sagnhafa veriö þar: Hva, eru kom- in jól? En Sigtryggur og Óli Már vissu nokk hvað þeir voru að gera og afraksturinn var 500 (2 niður) til viöbótar til sveitar Ólafs Lárussonar. Þetta eina spil gaf 15 stig til sveitar Ólafs, en það dugði skammt því þetta var eina spilið í seinni hálfleiknum sem þeir gáfu færi á sér. Gætum tungunnar Einhver sagði: Þetta eru at- riöi, sem mönnum hljóta aö hafa yfirsést. Rétt væri: Þetta eru atriði, sem mönnum hlýtur að hafa yfir sést (eða: sést yfir).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.