Þjóðviljinn - 18.02.1983, Qupperneq 9
Föstudagur 18. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Starri í Garði skrifar:
Hverjum á
að senda
reikninginn?
Á þessum vandræðatímum
sem manni skilst að gangi nú
yfir þjóðina er þó eitt sem er
vandalaust, minnsta kosti fyrir
þá sem kynda hús sín með raf-
magni, en það er að koma tekj-
um sínum í lóg. Algengar tölur á
nýjustu raforkureikningum hér
um slóðir eru 8-10.000 krónur
fyrir tveggja mánaða tímabil!
Hér er átt við þá sem rafmagn
nota til kyndingar.
Landsvirkjun, þetta ríki í rík-
inu með peningamálapáfa ís-
lendinga í broddi fylkingar, Jó-
hannes Nordal, þann hinn sama
og ber höfuðábyrgð á álsamn-
ingunum frægu, hótar að
Landsvirkjun hækki raforku-
verð til íslendinga um meira en
helming á þessu nýbyrjaða ári.
Framsókn sér svo um það í
kompaníi við peningafurstana,
íhaldið og annað slíkt dót, að
ekkert raunhæft sé gert til að
knýja Álverið til að borga sjálft
sitt rafmagn. Til að bíta höfuðið
af skömminni koma svo Fram-
sóknarþingmenn til þess fólks
sem fékk áðurnefnda raforku-
reikninga og bjóða því upp á að
kjósa sig til Alþingis nú í apríl.
Mikil er sú lítilsvirðing sem því
fólki er sýnd. Og lítil eru geð
guma ef slfkt verður þegið.
Sú saga gengur hér, sem ég
veit þó ekki hvort er að fullu
sönn, að Laxárvirkjun hafi
grætt 60 miljónir króna á síðasta
ári! Laglegur heimanmundur
það, sem hún kemur með í búið
Starri í Garði
nú þegar hún gengur í eina sæng
með Landsvirkjun.
Hér er svo að lokum vísukorn
sem kom í hugann við lestur á
mínum raforkureikningi sem
hljóðaði upp á kr. 7.500.-:
Alið heimtar af mér fé
er það helst að frétta.
Steini litli og Gvendur G
greiða mœttu þetta.
16. febrúar 1983,
Starri í Garði.
li
Mótmæla hækkun
raforkuverðsins
Á fundi hreppsnefndar Hafnarhrepps 3. febrúar
1983, var eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða:
„Hreppsnefnd Hafnarhrepps mótmælir harðlega
sífelldum hækkunum sem orðið hafa á raforku tii
heimilisnota, hitunar húsnæðis og R.O. veitna.
Hækkanir á gjaldskrá R.A.R.I.K. eru nú 125% á
milli áranna 1981-1982 vegna almennra heimilisnota
en nokkru minni til hitunar íbúðarhúsnæðis vegna
niðurgreiðslu.
Hreppsnefnd tekur undir framkomin mótmæli í
þessu efni og varar alvarlega við þeirri þróun að hinn
almenni notandi sé látinn greiða raforkuhækkanir
langt umfram almennar verðlagsbreytingar."
Búnaðarblaðið Freyr
Okkur hefur borist 1. tbl. Freys, þ.á. Gefur þar
m.a. að líta cftirtalið efni:
„Við árarnót" nefnist ritstjórnargrein, þar sem
fjallað er um þann samdrátt í lífskjörum, sem nú á sér
stað og leitast er við að setja hann í samhengi við
þróun mála undanfarna áratugi, mannfjölgun í
heiminum, mengun o.fl. Jafnframt er bent á hvernig
lagt hefur verið til að brugðist verði við málum.
Magnús Óskarsson segir frá tilraunum, sem gerðar
hafa verið á Hvanneyri með ræktun jarðarberja,
ásamt lauslegri áætlun um hagkvæmni jarðarberja-
' ræktunar hér á landi. „Aukin áætlanagerð - arðbærari
búskapur" nefnist grein eftir Gunnlaug A. Júlíusson,
sem nú stundar nám í búnaðarhagfræði í Svíþjóð.
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri segir frá „Háskóla-
dögum" við landbúnaðarháskólann í Ási í Noregi, þar
sern fjallað var um aðlögun búvöruframleiðslu að
markaðinum þar í landi og þær aðgerðir, sem þar er
mælt með. Kynnt eru í máli og myndum, smáhýsi,
sem Magnús A. Olafsson.-arkitekt hefur hannað og
hugsuð eru fyrir bændur til að leigja ferðamönnum.
Ásgeir Ó. Einarsson, dýralæknir hefur grafið upp
aldargamla grein um sjúkdóma í jslensku búfé, eftir
Snorra Jónsson dýralækni. Hefur Ásgeir þýtt greinina
úr dönsku og lætur fylgja athugasemdir sínar með
henni. Fyrirtækið Glóbus hf. er nú 35 ára og er sagt
frá starfsemi þess í myndum og máli. Þá er frásögn og
litmyndir frá sýningu Gefjunar á áklæðum og glugg-
atjöldum og loks bréf frá bónda og svar við því.
- mhg
MS-fréttir
Mjólkursamsalan í Reykjavík hefur nú hafið útgáfu
rits er nefnist MS-fréttir. Ábyrgðarmaður þess er
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjóikursamsöl-
unnar.
Um ástæður fyrir útgáfu blaðsins segir svo m.a.:
„Yfir því hefur stundum verið kvartað að mjólkur-
framleiðendur, eigendur Mjólkursamsölunnar, vissu
ekki nógu mikið um þá miklu starfsemi, sem fram fer'
á hennar vegum. Útgáfa MS-frétta er tilraun til þess
að bæta þar úr".
í þessu fyrsta tbl. er fjallað um byggingu hinnar
nýju mjólkurstöðvar við Birtuháls í Reykjavík. Þá er
raícin, í stórum dráttum, saga Mjólkurstöðvarinnar í
Reykjavík, en hún var 47 ára á sl. ári. Nefna má og
greinina „Matarpakkar í grunnskóla", en þar er frá
því greint, að Mjólkursamsalan hefur gert samning
við Fræðsluráð Reykjavíkur um að útbúa og sendi til
reynslu matarpakka í fjóra grunnskóla í Reykjavík í
vetur.
Ýmislegt fleira er að finna í þessu riti þeir>-M ‘Cam-
sölumanna. ~
Grasköggla-
framleiðslan
Framleiðsla á graskögglum varð allmiklu meiri á sl.
ári en árið 1981. Þá nam hún 9.986 lcstum en nú
12.152 lestum. Enn meiri var þó framleiðslan árið
1980 þvi þá var hún 12.858 lestir.
Auk þessa framleiddi svo fyrirtækið Fjallafóður
120 lestir af graskökum. Heykögglaframleiðsla
Eyfirðinga nam 535 lestum og Húnvetninga 100
lestum.
Graskögglaframleiðslan skiptist þannig á verk-
smiðjur:
FóðurogfræíGunnarsholti..........3.185 lestir.
Stórólfsvallabúið................ 3.254 lestir.
Flateyjarverksmiðjan A-Sakft.....3.413 lestir.
Fóðuriðjan íÓlafsdal.............1.150 lestir.
BrautarholtsbúiðáKjalarnesi...... 1.150 lestir.
mhg
Stjórnmálaflokkar
styðji iðnaðarráðherra
Eftirfarandi ályktun var samþykkt með miklum
meirihluta á fundi í Oslóar-deild SÍNE hinn 3. febr.
sl.:
Almennur fundur í Oslóar-deild SÍNE haldinn 3.
febrúar 1983 lýsir yfir fullum og eindregnum stuðningi
við iðnaðarráðherra Hjörleif Guttormsson og máls-
meðferð hans í álmálinu svokallaða.
Fundurinn undirstrikar nauðsyn þess að íslenskar
auðlindir séu í eigu íslendinga, en þeim sé ekki stjórn-
að af erlendum auðhringum, sem virða einskis rétt
smáþjóða.
Því skorar fundurinn á íslenska stjórnmálaflokka
að fylkja sér um kröfur og málsmeðferð iðnaðarráð-
herra.
Innvegin mjólk jókst uml,6%
Nú liggur fyrir hve mikil mjólk barst mjólkursam-
lögunum á árinu 1982. Reyndist hún nema
104.573.239 Itr., 1,6% meiri en árið 1981.
Mælt í lítrum varð aukningin mest hjá Mjólkurbúi
Flóamanna, 779 þús. Itr. en hlutfallslega mest varð
hún hjá Mjólkursamlaginu á Djúpavogi, 8,7%. Hjá
þremur samlögum varð samdráttur í mjólkurinnlegg-
inu: hjá Mjólkurstöðini í Reykjavík og Mjólkursam-
lögunum á ísafirði og Hvammstanga.
Tekið var á móti 38,4 milj. ltr. hjá Mjólkurbúi
Flóamanna. Mjólkursamlag KEA tók á móti 21,3
milj. ltr. 0,7% meira en árið áður, Samlagið í Borg-
arnesi 9,2 milj. ltr., 2,1% aukning, Samlagið á
Sauðárkróki 7,6 milj. ltr. tæpir, aukning 1,7%.
- inhg
c
LANDSVIRKJIIN
Steypustöð til sölu
Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi
tilboð berast, steypustöð sem smíðuð var hjá
Krupp-Dalberg í V-Þýskalandi árið 1966, og
notuð í upphafi við Búrfellsvirkjun. Stöðin var
flutt árið 1974 að Sigöldu þar sem hún var
síðast í rekstri árið 1980.
LÝSING:
4 fylliefnahólf, einangruð og með lögnum fyrir
upphitun, stærð samtals 100 m3.
2 sementsgeymar, stærð samtals 240 tonn.
3 sjálfvirkar vogir fyrir sement, vatn og fylliefni.
Skammtadæla fyrir íblöndunarefni.
Hrærivél, tegund Fejmert S-1500, blandar 1.5 m3 í
hræru.
Afköst um 35 m3 á klukkustund.
Sjálfvirkur vogarbúnaður, tegund Pfister-
Waagen, fyrir sement og fylliefni.
Handstýrður vogarbúnaður fyrir vatn og íblönd-
unarefni.
Minni fyrir 11 mismunandi steypuforskriftir.
Sjálfvirkur prentari skráir vegið efnismagn í hverri
hræru, dagsetningu og tíma.
Gufuketill 800 Mcal/klst.
Væntnalegum bjóðendum verður gefinn
kostur á að taka þátt í skoðunarferð að Sig-
öldu þar sem stöðin er nú.
Þátttöku þarf að tilkynna eigi síðar en 25.
þ.m.
Nánari upplýsingar gefur Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, byggingardeild Landsvirkj-
unar, Grensásvegi 13, Reykjavík, sími
83058.
_
LANDSVIRKJUN
Grjótmulnings- og
flokkunarsamstæða
til sölu
Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi
tilboð berast, grjótmulnings- og flokkunar-
samstæðu sem fyrst var sett upp við Búrfell
árið 1966. Síðar var hún flutt að Sigöldu þar
sem hún var síðast í rekstri sumarið 1981.
LÝSING:
Samstæðan er í járn- og timburklæddu stálgrind-
arhúsi, grunnflötur 4x15 m, hæð 15 m.
Unnt er að mylja grjót í 5 mismunandi stærðar-
flokka.
Afköst, um 60 tonn á klukkustund.
Vélbúnaður, aðallega frá Swedala-Arbrá.
Rafbúnaður, tegund ASEA.
Helstu hlutar samstæðunnar eru:
2 matarar.
3 mulningsvélar.
2 tvöföld hristisigti.
1 sandþvottavél (spiral classifier).
11 færibönd, ýmsar stærðir.
4 geymsluhólf, stærð samtals 75 m3.
Væntanlegum bjóðendum verður gefinn
kostur á að taka þátt í skoðunarferð að Sig-
öldu þar sem samstæðan er nú.
Þátttöku þarf að tilkynna eigi síðar en 25.
þ.m.
Nánari upplýsingar gefur Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, byggingardeild Landsvirkj-
unar, Grensásvegi 13, Reykjavík, sími
83058.
Skjásýn sf.
Myndbanda- og tækjaleiga, Hólm-
garði 34, sími 34666.
Opið virka daga kl. 17-23.30
Um helgar 14-23.30
Einungis VHS í þokkalegu úrvali.