Þjóðviljinn - 18.02.1983, Qupperneq 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. febrúar 1983
Miðstjórnarmenn AB skoðuðu húsnæðið um síðustu helgi og létu vel af, að sögn Sigurjóns Péturssonar, sem hefur umsjón með framkvæmdur.i og fjársöfnun vegna hússins. Ljósm. eik.
Allir velkomnir á sunnudag
Framkvæmdir við hina nýju
flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins
við Hverfisgötu 105 ganga mjög
vel. Verið er að klæða loftið í skrif-
stofuálmunni og innan tíðar verður
lagt gólfefni eða parket á þá álmu.
Að því búnu verða skrifstofur
flokksins og félagsins í Reykjavík
innréttaðar, og stefnt er að því að
húsnæðið verði allt komið í gagnið
fyrir kosningar.
Sigurjón Pétursson, starfsmaður
Sigfúsarsjóðs hefur umsjón með
framkýæmdunum og fjársöfnun
vegna innréttingar flokks-
miðstöðvarinnar. Hann sagði í
gær að undanfarnar helgar hefðu
sjálfboðaliðar unnið að hreinsun
og rykbindingu á hæðinni og að á
morgun, laugardag væri brýnt að fá
nokkurn hóp til slíkra starfa. Vinn-
an hefst kl. 13 og eru þeir sem tök
hafa á beðnir að mæta á staðinn
eða gefa sig fram við Sigurjón á
skrifstofu Alþýðubandalagsins í
síma 17500.
Á sunnudag verður húsnæðið
sýnt almenningi kl. 14-16ogsagðist
Sigurjón vonast til að sem flestir
litu við. Húsnæðið hefur tekið
miklum stakkaskiptum og sagði
Sigurjón að miðstjórnarmönnum,
sem skoðuðu það um síðustu helgi
hefði litist mjög vel á. Þetta er líka
mikið húsnæði, bjart og rúmgott og
útsýnið hreint stórkostlegt, sagði
Sigurjón. Myndirnar hér á síðunni
voru teknar þegar miðstjórnar-
menn skoðuðu húsið.
Fjársöfnunin hefur að hans sögn
gengið vel. Leitað hefur verið til
^nokkurra kaupstaða úti á landi og
framundan er umtalsverð söfnun í
Reykjavík, sem verður nánar
kynnt síðar.
Hér sýnir Sigurjón Gunnlaugi Haraldssyni, Akranesi, stigauppganginn, en við hann verður að notast þar til Panelklætt loftið á eftir að setja mikinn svip á hæðina. Þetta er skrifstofu-
lyftan verður tilbúin. Ljósm. - eik. álman, Snorrabrautarmegin. Ljósm. - eik.
Lagningardagar i MH:
„Erum að hressa
upp á samskiptin
miíli nemenda”
Þessa dagana standa yfir svokall-
aðir lagningardagar í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Nemendur
taka sér frí frá reglubundnu námi í
þrjá daga og gera sér þess í stað
ýmist til skemmtunar, fræðslu og
gamans. Ýmsar sýningar eru í
skólanum s.s. kvikmynda og vídeó
sýningar, svifdrekaflug og
fallhlífarstökk er kynnt og hljóm-
sveitir spila á kvöldin svo eitthvað
sé nefnt sem þarna er boðið uppá.
Þjóðviljinn brá sér upp í Hamra-
hlíð nýlega og ræddi þar við þrjár
stúlkur sem eiga sæti í lagninga-
daganefnd. Þær heita Anna Þóra
Haraldsdóttir, Birna Gunnarsdótt-
ir og Anna Birna Michelsen.
Þær sögðu að lagningardagarnir
hefðu gengið skrykkjótt undan-
farin ár og ekki verið á hverju ári.
En þeir hefðu verið endurreistir
vorið 1980 og hafa gengið vel síð-
an.
-En hver er megintilgangurinn
með þessum lagningardögum.?
„Tilgangurinn er aðallega sá að
tengja nemendur betur saman.
Þetta kerfi sem er hérna í skólanum
býður ekki upp á náin persónuleg
samskipti milli nemenda og með
lagningardögunum erum við að
reyna að bæta úr því. Það sem við
eigum við með því að kerfið bjóði
ekki upp á náin samskipti er það að
hér eru engir bekkir eins og í hefð'-
bundnum skólum og þess vegna er
hér ekki sá bekkjarandi sem er í
skólum með bekkjarkerfi. Hér
myndast aftur á móti vina- og
kunningjahópur sem safnast
saman á ákveðnum borðum í mat-
salnum og við reynum á lagningar-
dögunum að blanda þessum hóp-
um eitthvað saman. Einnig kynn-
umst við nýnemunum í kringum
það starf sem hér fer fram."
- Og hvernig hefur þetta tekist?
„Vel hingað til. Við höfum
kynnst hér fólki sem okkur datt
ekki í hug fyrst að hægt væri að
kynnast. En með því samstarfi sem
hér fer fram á lagningardögunum
hefst þetta. Við bjóðum upp á
vandaða dagskrá og reynum að
hafa hana sem fjölbreyttasta. Eldri
nemendur vinna með yngri nem-
endum og hér er starfað þvert á
klíkur og hópa. Fólk skráir sig í
hópa eftir áhugamálum og því sent
Stúlkurnar sem rætt var við. Frá vinstri: Anna Þura Haraldsdóttir, Birna
Gunnarsdóttir og Anna Birna Michelsen. Ljósm. - kjv.
það vill gera þessa daga. Við höf-
um verið lengi að undirbúa þetta
og það hefur gengið vel."
- Taka kennararnir þátt í þessu
með ykkur?
„Þeim er boðið að vera með og
þeir geta skráð sig í hópa ef þeir
vilja. Það má benda á að einn kenn-
arinn verður rneð kynningu á
Mexíkó."
- Eru nemendur virkir í þessu
starfi. Nú er Hamrahlíð mjög fjöl-
mennur skóli?
„Það hefur tekist ágætlega hing-
að til. En það verður alltaf að gera
ráð fyrir því að einhverjir nenni
ekki að taka þátt í svona starfi. En
hvað sem því líður þá er dagskráin
áhugaverð og við vonum að sern
flestir komi og láti sjá sig."
Þess má geta í lokin að meðal
þeirra hljómsveita sem fram koma
á lagningardögum eru Bakka-
bræður, Kos, Vonbrigði, Þeyr og
fleiri hljómsveitir. Einnig reka
Hamrahlíðingar útvarpsstöð þessa
daga og er útvarpað til kl. 23.00 í
kvöld. Útvarpað er á 9E5 HMz
- kjv