Þjóðviljinn - 08.03.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. mars 1983
Bridge
Spil no. 1
Það er flest hægt í bridge. T.d. er hægur
vandi að koma heim glórulausum úttekt-
arsamningum þegar „vörnin nennir" ekki
að hirða slagina sina:
S DG93 H K1082 T A86 L G10
S 10852 S 76
H A73 H DG5
T KG5 T 9732
L K63 S AK4 H 964 T D104 L A542 L D987
S gefur/ N-S á hættu. Úrslit Rvk. móts I
sveitakeppni. Áttum snúið. I leik Ólafs Lár.
- Jóns Hjalta. var fariö í game á báöum
borðum: 1-T, 1-H, 1-Gr. og norður hækk-
aði í þrjú, þótt mér sýnist að 2 grönd só
réttara mat. Það vekja jú allir orðið á 12-13
punkta i 1. hönd. og því þá ekki að gera ráð
fyrir því?
Vörnin gekk eins fyrir sig a báðum
borðum, lengi vel. Útspil spaði Sagnhafi fór
í hjartað og A var inni á gosa. Skipt í lauf-9,
á kóng. Meira lauf á drottningu og lauf í 3.
gang. Sagnhafar tóku á ás. Jón Ásbj. spil-
aði nú hjarta 9 og Hermann stakk upp ás.
Enda auðvelt að telja upp að átta í slíkum
stöðum. Jón endaði síðan tvo niður (svín-
aði fyrir hjarta drottningu, síðar).
Á hinu borðinu var vörnin illa á verði.
Þegar níunni var spilað þar, lét vestur lítið.
En slapp því miður með skrekkinn.
Ef sagnhafi staldrar ögn við, er aöeins
EIN vinningsleið í spilinu. Austur má vita-
skuld ekki eiga hjarta-ás. Og ekki dugar að
vestur eigi ADxx, hann getur þá spilað sig
út á spaða (útspil spaða).
Athugið endastöðuna. Því á að stinga
upp kóng og hreinsa spaðann. Spila síðan
hjarta og auðvitað er tígul kóngur...., ann-
ars væri engin saga?
Skák
Larsen er harður í horn að taka - á fjármálsviðinu sem og skáksviðinu.
Bent Larsen
í verkfall!
Danska stórmeistaranum Bent
Larsen gekk ekki sem best á hinu
sterka alþjóðlega skákmóti sem
lauk nýverið í Linares á Spáni.
Boris Spasskí, fyrrum
heimsmeistari, sigraði glæsilega,
hlaut ó'/2 vinning af 10 mögu-
legum og virðist vera á hraðri
uppleið þessa dagana. Hann er
enn meðal efstu manna á Elo-
listanum. Larsen á hinn bóginn er
allur að slappast á skáksviðinu og
hafnaði í neðsta sæti, hlaut
aðeins tvo vinninga af tíu mögu-
legum.
Þegar síðasta umferðin átti að
hefjast kom upp sú óvænta staða
að keppendur mótsins með Larsen
í fararbroddi neituðu að tefla.
Ástæðan er sú að ríkisstjórnin
sem lýtur forræði spænska sósíal-
istaflokksins lokaði fyrir öll
gjaldeyrisviðskipta banka á
Spáni. Stóð því til að keppendur
fengju verðlaun sín greidd í peset-
um og því vildu þeir alls ekki
una. Larsen gat að vísu ekki
vænst mikilla verðlauna, en hon-
um hafði verið lofað 3 þús. dölum
(um 60 þús. krónur) í rásfé og
vildi alls ekki una því að fá aurana
í spænskri mynt. Málið leystist þó
farsællega og keppendur voru
leystir út með dollurum sem eru í
miklum metum um þessar
mundir. _ hól.
Félag íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn 90 ára:
Afþakkaði
þingsætið
Ákveðið hafði verið að Alþingi
skyldi koma saman til síns fyrsta
fundar á árinu 1844. Ofan á varð
þó að fresta því til næsta árs
„vegna ýmissa ófyrirsjáaniegra
tálmana“.
Kosningar til þingsins skyldu
hinsvegar fara fram um haustið
og var kosið í Reykjavík 17. sept.
Urslit urðu þau að kosinn var
Sveinbjörn Egilsson adjukt á
Bessastöðum, með 15 atkv. Árni
stiptprófastur Helgason fékk 11
atkv. og því varaþingmaður
Reykjavíkur. Hér var ekki um
framboð að ræða og er til kast-
anna kom harðneitaði Svein-
björn að taka sæti á Alþingi.
(Ölíkur um það ýmsum nútíma-
manninum). Kom það því í hlut
sr. Árna að sitja þetta fyrsta
ráðgjafarþing sem fulltrúi
Reykjavíkur.
Vorið 1844 var svo Viðeyjar-
prentið flutt til Reykjavíkur.
Ólafi Stephensen var boðin fram-
kvæmdastjórastaðan við prent-
smiðjuna en hann hafnaði. Hlaut
hana því í bili Helgi Helgason,
sem um alllangt skeið hafði verið
yfirprentari í Viðey.
Þegar kosningar til Alþingis fóru
fram í Reykjavík 1844 var
Sveinbjörn Egilsson kosinn með
15 atkv. Sr. Arni Helgason fékk
11 atkv. og varð því varamaður.
En þar sem Sveinbjörn afþakkaði
þingsætið hlaut varamaðurinn
það og varð sr. Árni þannig fyrst-
ur manna fulltrúi Reykjavíkur-
kjördæmis á hinu endurreista
Alþingi. _mhg
Karpov að tafli - 107
Þrátt fyrir tapið í 9. einvígisskákinni
mætti Spasski vigreifur til leiks í þeirri ti-
undu og hóf þegar að tefla til vinnings.
Karpov lagði Caro Kann vörnina til hliðar
og beitti þess í stað eftirlætisafbrigði Spas-
skis, Breyer-afbrigðinu i spænskum leik.
Spasskí náði betir stöðu út úr byrjuninni en
frumkvæði hans varð aldrei nógu rismikið
til þess að það dugöi til sigurs. Eftir heilmik-
il uppskipti og 44 leiki kom þessi staöa upp:
„Hvað segja Hafnar-
stúdentar um þetta”
Sjálfstœðisbaráttu Hafnarstúdenta minnst á afmœlinu
Þann 26. febrúar voru 90 ár
liðin frá því að íslenskir stúdentar
í Kaupmannahöfn stofnuðu með
sér samtök sem þeir nefndu Félag
íslenskra námsmanna í Kaup-
mannahöfn. Það voru þeir Bjarni
Jónsson frá Vogi, Bjarni Sæ-
mundsson og Guðmundur Bjöms-
son sem stofnuðu félagsskap
þenna, og var Bjarni frá Vogi
aðalhvatamaður að stofnuninni.
Hafnarstúdentar hafa alla tíð
látið helstu baráttumál íslensku
þjóðarinnar mjög til sín taka, og
löngu fyrir daga þessa félags-
skapar höfðu fslendingar búsettir
í Höfn, einkum námsmenn, lagt
mikið af mörkum í þágu lands og'
þjóðar.
í tilefni þeirra tímamóta stóðu
íslendingar búsettir í Höfn fyrir
sérstakri dagskrá sem haldin var í
salarkynnum Kaupmannahafn-
Bjarni Jónsson frá Vogi
arháskóla á Amager. Þar voru á
dagskrá ræðuhöld og skemmti-
atriði af ýmsu tagi, auk þess sem
hljómsveitin Ego lék fyrir dansi.
í fréttatilkynningu frá Félagi
íslenskra námsmanna í Höfn sem
telur nú um 260 manns er gripið
niður í sögu samtakanna. Þar
segir, að á fyrstu árum þeirra hafi
námsmenn að mörgu leyti mótað
skoðanir margra heima á Fróni
varðandi sjálfstæðisbaráttuna.
„Hvað segja Hafnarstúdentar um
þetta?”, var gjarnan spurt. Fé-
lagið var öflugast á fyrstu árum
þess eða fram til ársins 1918, þeg-
ar heimastjórn var komið á. Þá
dofnaði yfir samtökunum, en á
stríðsárunum lifnaði aftur yfir fé-
lagsskapnum. Voru þá haldnar
kvöldvökur hálfsmnáðarlega. Þá
gaf félagið út tímaritið Frón sem
þeir Jón Helgason og Jakob Ben-
ediktsson ritstýrðu.
Eftir stríð hefur starfsemin ver-
ið mismikil, „...allt eftir stöðu
fallvatna hins pólitíska lífs í
heiminum...”, eins og segir í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Núverandi formaður Félags ís-
lenskra námsmanna í Höfn er
Sverrir Sverrisson.
Spasskí - Karpov
45. Bb8 Re8
46. Rc1 Bd8
47. Ba7
(Vinningsvonir hvits byggjast á veikleika
svarta peðsins á b5. Hann hefur þó einnig í
veikleika að líta, á c3).
47. ... Ba5
48. c4
(Nú leysist taflið upp. Reynandi var 48.
Ra2 en svartur á þó létt meö að halda
jöfnu).
48. .. bxc4
49. Bxc4 Kf7
50. Rb3 Bc7
51. Bf2 g5
52. Be1 h5
53. Rc1 Rf6
54. Rd3 Kg6
55. Ba6 g4
56. hxg4 hxg4
57. Rb2 Rh7
58. Rc4 Rg5
59. Kf2 Kf6
60. Bb4 Rf7
- og keppendur sömdu um jafntefli.