Þjóðviljinn - 09.03.1983, Side 2

Þjóðviljinn - 09.03.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJIIXN Miðyikyúagur 9. mars 4983 Bridge Bridge er heillandi íþrótt. Jafnvel byrj- andi sem lætur flesta ,.æðri“ þætti spilsins framhjá sér fara, kemst á þá skoðun. Sþilið í dag er úr Barometer-tvímenning BR og sannarlega ætti það vel heima í kennslubók í Bridgefræðum. Undir yfir- skriftinni: Byrjendaleiðin. S G5 H 62 T D985 L D10643 S 1063 S K984 H G8 H AK1093 T 76432 T G10 L G95 L K8 S AD72 H D754 T AK L A72 Á flestum borðum varð suður sagnhafi í 3 gröndum, eftir að austur hafði byrjað sagnir á 1-hjarta. Útsþil vesturs eðlilega hjarta-gosi. Og nú skildi mjög leiðir: Austur gaf vitan- lega og það er I rauninni allt sem sagnhafi þarfnast að vita: hjartað liggur sem sé 5-2. Flestir betri sagnhafanna gáfu einnig, vélrænt. Og aftur skildi leiðir. Vestur spilaði seinna hjartanu og nú gripu nokkrir suður- spilarar færið, þegar austur lét nluna nægja, drápu á drottningu, tóku tígul há- karlana og spiluðu síðan hjarta. Austur er endaspilaður 15. slag. Verður að spila upp í blindan, sem nú er orðinn 3ja slaga virði. Á nokkrum borðum voru austur spilararnir vakandi í 2. slag. Þeir stungu upp kóng. Tóku ásinn og settu sagnhafa inn á hjarla drottningu, átta slagir. Ég veit ekki hvort NOKKUR suöurspilaranna fann „byrjendaleiöina"; að drepa 11. slag, taka tíglana og spila hjarta. Einfalt en afar gott þó. Gefur einhver sig fram? (Hermann vonar það). Skák Þeir sem grannt fylgdust með viðureign Karpovs og Spasskís I Odessa urðu þess áskynja þegar líða tók á einvígið að í réttu hlutfalli við hið aukna öryggi í taflmennsku Karpovs þá tef Idi Spasskí æ veikar og þeg- ar Karpov t.a.m. vann 9. skák var öllum Ijóst að endalokin gátu ekki verið langt undan. Sá ynni einvígið er fyrr ynni fjórar skákir og fjórða vinningsskák Karpovs lét ekki bíða eftir sér. Hér kemur niðurlagið úr 11. einvígisskákinni og þeirri sfðustu: abcdefgh Karpov - Spasski Síðasti leikur Spasskís var 25. - f7 - f5. Hann hugðist með því notfæra sér losara- lega stöðu biskupsins á h5. En leikurinn hefur þveröfug áhrif. Þess ber þó að gæta að Spasskí hafði teflt byrjunina afar óná- kvæmt og átti við mikla erfiðleika að striða. Sennilega hefur hann því afráðið að leggja mikið á stöðuna þar sem erfiðleikarnir voru nógir fyrir. C6 - peðið var t.a.m. tortíming- unni ofurselt. 26. Rc3 g6 27. Dxc6 gxh5 28. Rd5! (Þó hvítur sé manni undir er hann þó alls ráðandi á borðinu. Svartur á ekkert svar við hinum fjölmörgu hótunum hvíts). 28. ... f4 29. He7 Df5 30. Hxc7 Hae8 (30. - fxg3 strandar á 31. Re7+ og drottn- ingin fellur). 31. Dxh6 Hf7 32. Hxf7 Kxf7 33. Dxf4 He2 34. Dc7+ Kf8 35. Rf4! - og Spasskí gafst upp. Lokaniðurstaöan varð því 4:1 Karpov í hag eða 7:4. Karpov sýndi í þessu einvígi allar sínar bestu hliðar, en Spasskí átli við erfiðleika aö striða á mörgum sviðum ekki aðeins við skákborðið. Það hefur áreiðan- lega haft sitt að segja að Efim Geller aðstoðarmaður hans frá einviginu I Reykjavík var nú kominn við hlið Karpovs og mataði hann af mikilvægum upplýsing- um um skákstíl Spasskís og þá ekki síst, hans helstu veikleika. Eins dauði er annars brauð Veðurblíða skapar verðhrun á skinnavöru Veðurblíðan á Norðurlönd- um í vetur hefur komið illa niður á skinnamarkaðnum. Sala á skinnklæðnaði og dýr- um pelsum hefur stórlega dregist saman og nú er hafíð verðstríð á milli skinnavöru- kaupmanna í Svíþjóð, sem bjóða heimingsafslátt á vörum sínum. Markaðstíminn fyrir pelsa er frá október og fram í apríl. Kaupmennirnir segja að veður- farið hafi meiri áhrif á söluna en efnahagsástandið. Til dæmis hafi verið samdráttur í almennum við- skiptum árið 1977, en hins vegar hafi veturinn verið kaldur og sal- an á pelsum því gengið vel. Ástæðan er líklega sú að kreppan bitnar ekki á kaupmætti þeirra sem skipta við pelsakaupmenn þar sem ein skinnkápa kostar 70- 130 þúsund krónur. Þeir sem ganga í slíkum flíkum eru vana- lega síðastir til þess að axla byrðar kreppunnar. Það er því náttúran sem sér um jafnvægið í búskapnum í þessum efnum sem öðrum: þegar illa árar fyrir jarðræktarbændur og aðra sem háðir eru góðu tíðarfari geta refabændur borið sig vel, en þeg- ar tíðin skánar mega refabændur blása í kaun. Má með sanni segja að fáir komist til jafns við móður náttúru í jafnvægislist búnaðar- hagfræðinnar. ólg. Allur er varinn góður Sveinbjörn hreppti hnossið Þar sem nú var búið að ákveða latínuskólahúsinu stað þótti sjálf- sagt að hefjast sem fyrst handa við byggingu þess. Og vorið 1844 kom frá Kristjánssandi í Noregi tilhöggvið timbur í bygginguna. Þá hafði um skeið dvalið hér norskur múrari, er sjá skyldi um að koma húsinu upp og var búið að ganga frá grunni þess þegar timbrið kom. Unnið var af miklu kappi við bygginguna allt sumarið. Gekk verkið vel og var húsið komið undir þak um veturnætur en síð- Sveinbjörn Egilsson varð fyrsti rektor Latínuskólans í Reykjavík en hafði áður kennt við skólann á Bessastöðum frá 1822. an var smíðinni haldið áfram all- an veturinn. Hugmyndin var að halda Alþingi í húsinu næsta sum- ar og átti það sinn þátt í þeirri áherslu, sem á það var lögð að koma því upp. Ýmsar ágiskanir voru uppi um það hverjum yrði falin forstaða skólans. Var ekki talið ósennilegt að hin dönsku yfirvöld hefðu hug a að fela rektorsembættið öðrum hvorum þeirra sr. Pétri Péturs- syni á Staðastað eða sr. Helga J. Thordarsen. Var svo að heyra, að Sveinbjörn Egilsson þætti ekki koma til álita. Þetta fór þó á annan veg en menn hugðu. Á næsta ári var Sveinbirni boðin rektorsstaðan en þess jafnframt óskað, að hann sigldi utan til þess að kynna sér skólamál í Danmörku og gerði hann það sumarið 1845. Gegndi Gísli Magnússon cand. phil. störfum rektors við skólann á meðan hann var ytra. - mhg. FREYJA KOMIN ÚT Út er komið 1. tölublað 5. árg. Freyju, málgagns Málfreyju- samtakanna á íslandi. Meðal efnis í blaðinu eru fréttir af starfi málfreyja, viðtöl við mál- freyjur og ýmsar upplýsingar um það sem er á döfinni hjá hinum ýmsu deildum. Rúm fjögur ár eru nú liðin síðan Fyrsta ráð mál- freyja var stofnað á íslandi, en deildir höfðu þá verið starfandi um nokkurra ára skeið. Nú eru deildirnar orðnar ellefu talsins. í blaðinu er einnig að finna ræður sem hlotið hafa verðlaun í samkeppni málfreyja, margar tækifærisvísur og baráttusöng samtakanna. Abyrgðarmaður Freyju er Ingveldur Ingólfsdótt- ir, forseti Fyrsta ráðs málfreyja.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.