Þjóðviljinn - 16.03.1983, Blaðsíða 3
Bann við of-
beldismyndum
Síðasta þingdag var samþykkt
frumvarp til laga um bann við of-
beldiskvikmyndum. Þetta er
stjórnarfrumvarp flutt af mennta-
málaráðherra. Hafði frumvarpið
tekið breytingum í efri deild en var
samþykkt með áorðnum breyting-
um í neðri deild á mánudaginn.
Samkvæmt lögum er bannaö að
framleiða eða flytja til landsins of-
beldiskvikmyndir, þ.e. kvikmyndir
þarsem sérstaklega er sóst eftir að
sýna hvers kyns misþyrmingar á
mönnum og dýrum eða hrottalegar
drápsaðferðir. Bannið tekur ekki
til kvikmynda þarsem sýning of-
beldis telst eiga rétt á sér vegna
upplýsingagildis myndarinnar eða
listræns gildis hennar.
Skoðunarmenn kvikmynda
leggja mat á sýningarhæfni mynda
en innflytjendur, framleiðendur
eða dreifingaraðilar og sýnendur
kvikmynda kveðja skoðunarmenn
saman og greiða kostnað við skoð-
un þeirra.
Eftirlit með því að lögunum sé
framfylgt er m.a. í höndum barna-
verndarnefnda og löggæslumanna.
Við breytingu á frumvarpinu var
sérstaklega tekið mið af frumvarpi
Eiðs Guðnasonar sem miðaði mjög
í sömu átt.
-óg
Tvö tilboð Framsóknar
til Sjálfstœðismanna
„Framsóknarflokkurinn hefur
beint tveimur tilboðum til Sjálf-
stæðisflokksins um að mynda
meirihluta í mikilvægum málum
hér á þinginu síðustu vikur“, sagði
Ragnar Arnalds m.a. í eldhúsdags-
umræðunum í fyrrakvöld. Hér var
um að ræða tilboð Framsóknar-
flokksins til Sjálfstæðisflokksins
um að mynda meirihluta í vísitölu-
málinu og knýja fram kjaraskerð-
ingu 1. mars, og tilboð Framsóknar
til Sjálfstæðisflokksins um að
mynda meirihluta á Alþingi um að
taka álmálið úr höndum iðnaðar-
ráðherra.
í vísitölumálinu hryggbraut
Sjálfstæðisflokkurinn Framsókn,
en í álmálinu tók hann bónorðinu,
sagði Ragnar. En vígslan fór þó
ekki fram á þinginu, og ef til vill
munu fleiri en flutningsmenn til-
lögunnar ekki vilja skrá nöfn sín á
spjöld sögunnar sem liðsmenn í
varnarliði Alusuisse. Hinsvegar
hélt Framsóknarflokkurinn áfram
að biðla til Sjálfstæðisflokksins í
sjónvarpsumræðunum með tali um
„sterka stjórn“ sem á hans máli
hefur hingað til boðað hægri sam-
vinnu.
-e.k.h.
Kjördæmisráðstefna AB á Vestfjörðum:
Fullt traust
á Hjörieif
Kjördæmisráðstefna AB á Vest-
fjörðum, haldin á Isafirði 12. mars
’83 lýsir fullu trausti á Hjörleif
Guttormsson iðnaðarráðherra og
þakkar honum skelegga forystu í
álmálinu.
Svo samtvinnuð er hækkað ork-
uverð til ÍSAL hagsmunum þeirra
er dýrasta kaupa orkuna, að ekki
verður á milli skilið.
Við hljótum því að vænta þess að
barátta Hjörleifs í álmálinu og fyrir
jöfnun orkukostnaðar ljúki með
sigri og heitum á íslendinga að
fylkja sér að baki hans, jafnframt
fordæmir fundurinn harðlega ó-
drengilega aðför þríflokkanna að
iðnaðarráðherra þar sem þeir vfla
ekki fyrir sér að fórna verulegum
þjóðarhagsmunum í flokkspóli-
tískum tilgangi. Þá lýsir fundurinn
sérstakri furðu á afstöðu Fram-
sóknarflokksins í málum sem þess-
um, einkum með tilliti til þess að
hann hefur ætíð talið sig berjast
sérstaklega fyrir hagsmunum dreif-
býlisins.
Áhugamenn um jafnrétti milli landshluta
Margvíslegt mis-
rétti úti á landi
Hópur áhugamanna úr Vestur-
landskjördæmi um jafnrétti milii
landshluta hélt fund í Borgarnesi 8.
mars siðastliðinn.
Á fundinn kom Pétur Valdimars-
son frá Akureyri og kynnti stofnun
og starfsemi hliðstæðra samtaka á
Norðurlandi.
Fundarmenn voru sammála um
að umræða um jöfnun atkvæðis-
réttar hafi verið mjög einhliða og
veigamiklir þættir hafi gleymst.
Megi þar einkum nefna margvís-
legt misrétti í félagslegum efnum
sem dreifbýlisbúar verða að þola,
t.d. í verðlagningu orku og sím-
þjónustu. Einnig þann aðstöðum-
un sem felst í staðsetningu stjórn-
sýslu og stofnana í Reykjavík.
Eigi umræða um jafnrétti íbúa
mismunandi landshluta að vera
marktæk hlýtur hún einnig að taka
til þessarra atriða.
Fundarmenn ákváðu að vinna
saman að raunverulegu jafnrétti
landsmanna allra og heitir á þing-
menn kjördæmisins að halda vöku
sinni í þessum málum.
Miðvikudagur 16. mars 1983 ÞJÓÐYILJINN — SÍÐA 3
Kiwanisklúbburinn Esja í stórræðum
Happdrætti til að
fjármagna sjónstöð
Þessa dagana er Kiwanisklúbb-
urinn Esja í Reykjavík að hleypa af
stokkunum happdrætti og mun all-
ur ágóði renna til tækjakaupa í
sjónstöð Blindrafélagsins, sem
verður til húsa í nýbyggingu félags-
ins að Hamrahlíð 17. A fundi frétt-
amanna, sem Blindrafélagið og
Kiwanisklúbburinn Esja boðuðu til
í gær sagði Eyjólfur Sigurðsson for-
maður stjórnar Evrópusambands
Kiwanismanna að hér væri verið
að ráðast í stærsta verkefni í þágu
blindra sem nokkur klúbbur í allri
Evrópu hefði tekist á hendur. Er
kjörorð þessa átaks í þágu blindra
„Birta fyrir blinda“.
í viðbótarbyggingu Blindrafé-
lagsins að Hamrahlíð 17, efstu
hæðinni, er gert ráð fyrir húsnæði
fyrir sjónstöð, en það er stofnun
sem er ætlað að þjálfa og viðhalda
sjón þeirra sem hafa hana skerta.
Að sögn Óskars Guðnasonar fram-
kvæmdastjóra Blindrafélagsins fá
sjónskertir þar skoðun af augn-
lækni, gleraugnafræðingur finnur
viðeigandi sjónhjálpartæki og síð-
an tekur augnþjálfi við. Þá mun
stofnunin einnig annast úthlutun
sérhæfðra hjálpartækja, svo sem
sjónglerja, lessjónvarpstækja o.fl.
Mikill kostnaður er samfara því
að stofnsetja sjónstöðina og er
áætlaður stofnkostnaður 4.6 milj-
ónir á núverandi verðlagi.
Auk happdrættisins, sem nú er
verið að hrinda af stað, verður
haldin mikil fjölskylduskemmtun í
Laugardalshöll á 2. í páskum og
þar verður dreginn út vinnungur-
inn í happdrættinu, sem er Nissan
Cherry bifreið. að verðmæti 220
þúsund krónur. Þar verður fjöldi
lándsfrægra skemmtikrafta . og
verður drætti í happdrættinu út-
varpað.
Forseti Kiwanisklúbbsins Esju væri nú að fara af stað með tækist
er nú Arnór Pétursson og sagði aldrei nema með hjálp hins al-
hann á kynningarfundinum í gær menna borgara.
að átak eins og það sem klúbburinn ~v'
Norræna húsið í kvöld
Tvær sænskar kvikmyndir
í kvöld, 16. mars verða sýndar mínútna litmynd eftir Karsten We-
tvær sænskar kvikmyndir í sam- del. Hann er einn færasti sköpuður
komusal Norræna hússins. heimildakvikmyndarinnar, segir í
Þar er um að ræða 28 mínútna frétt frá Norræna húsinu og í mynd
litkvikmynd um Drottningar- hans má sjá ýmsa þætti úr kvik-
hólmshallarleikhúsið sem Gunnar myndagerð Bo Widerbergs, sem er
Fischer hefur gert og hins vegar 55 góðkunningi hans.
Sjálfstæðisflokkurinn:
„Mikil eindrægni”
Mikil eindrægni ríkti á fundi
frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
í Borgarnesi um sl. helgi að því er
segir í fréttatilkynningu sem flokk-
urinn sendi fjölmiðlum.
Segir í fréttatilkynningunni að
Geir Hallgrímsson formaður Sjáif-
stæðisflokksins hafi sett fundinn
nánar tiltekið kl. 13.00 sl laugardag
en Friðjón Þórðarson bauð fundar-
menn velkomna í Vesturlandskjör-
dæmi. Sagt er að á fundinum hafi
verið samþykkt kosningayfirlýsing
en ekki segir gerr frá innihaldi.
-óg
Leiðrétting
í grein Stefáns Friðbcrgs Hjart-
arsonar um Nóvudeiluna í Þjóðvilj-
anum í gær varð sú villa neðst á bls.
6 að sagt var að Tryggvi Emilsson
hefði ekki borið tillögu bæjar-
stjórnar undir atkvæði eftir að 11
fylgjendur Verkamannafélagsins
voru gengnir af fundi.
Þarna átti að sjálfsögðu að
standa bæjarstjóri en ekki Tryggvi.
Rétt er setningin svona: „Tryggvi
segir síðan í „Baráttan um
brauðið" að bæjarstjóri hafi vitað
hverjir færu með umboð verka-
lýðsins, því ekki hafi hann (bæjar-
stjóri) borið undir atkvæði tilboð
bæjarstjórnar, eftir að 11 fylgjend-
ur Verkamannafélagsins hefðu
gengið af fundi, -eftir sátu 40 vinnu-
þurfandi menn.“
Kjartan
Þuríður
Gestur
Listi Alþýðubandalags
í Vestf j arðakj ördæmi
Listi Alþýðubandalagsins í Vest-
fjarða kjördæmi við Aiþingiskosn-
ingarnar í vor hefur verið ákveðinn
en hann skipa:
1. Kjartan Ólafsson, ritstjóri
Reykjavík.
2. Þuríður Pétursdóttir, kennari ís-
afirði.
3. Gestur Kristinsson, skipstjóri
Súgandafirði.
4. Halldór G. Jónsson formaður
Verkalýðsfél. Vörn Bfldudal.
5. Finnbogi Hermannsson, kennari
ísafirði.
6. Kristinn H. Gunnarsson, skrif-
stofustjóri Bolungarvík.
7. Pálmi Sigurðsson, bóndi Klúku
Kaldranarneshreppi Strandasýslu.
8. Gróa Bjamadóttir, verslunar-
maður Patreksfirði.
Halldór
9. Sigrún Egilsdóttir, húsfreyja
Vífilsmýri Önundarfirði.
10. Játvarður Jökull Júlíusson,
fyrrverandi bóndi Miðjanesi
Reykhólasveit.
Finnbogi