Þjóðviljinn - 16.03.1983, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 16. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA5
Stefán Jónsson og fleiri:_
Opinber innheimta
af fongum stóðvuð
Opinber gjöld felld
niður af tölvubúnaði
Lagabreytingin
fékk góða fyrir-
greiðslu síðustu
þingdagana
Komið hefur í ljós að skuldakröf-
ur sem hlaðast á fanga meðan þeir
afplána refsingu verða þeim oft um
megn er þeir reyna að ná fótfestu á
ný í samfélaginu. Það er af þessum
. ástæðum, sem lagt er til að breyta
lögum þannig að barnsmeðlög og
dpinber gjöld verði ekki innheimt á
meðan afplánun stendur yfír og
tvöfaldan þann tima eftir að henni
lýkur. Stefán Jónsson var fyrsti
flutningsmaður þessa frumvarps til
laga en þingmenn úr öllum flokkum
voru meðflutningsmenn. Frum-
varpið fékk mjög góðar viðtökur á
Stefán Jónsson. Skuldabyrðin má
ekki verða mönnum um megn er
þeir reyna að ná fótfestu á ný í
þjóðfélaginu.
þinginu og var samþykkt síðustu
dagana sem þingið stóð.
I lagabreytingunni er gert ráð
fyrir að meðlög sem falla á þann
tíma, reiknað í heilum mánuðum,
sem maður afplánar refsingu, vinn-
ur af sér meðlag eða barnalífeyri,
skuli ekki innheimt.
í öðru lagi er gert ráð fyrir því,
vari refsivist lengur en þrjá mánuði
sé óheimilt að innheimta opinber
gjöld hjá fanga meðan afplánun
stendur yfir svo og tvöfaldan þann
tíma eftir að henni lýkur, allt að
einu ári. Dráttarvextir skulu ekki
innheimtir af slíkum skuldum fyrir
þann tíma sem innheimta liggur
niðri.
í greinargerð segir m.a. að eftir
að menn hafi lokið afplánun og
reyni að ná fótfestu á ný, hafi oft-
sinnis farið svo að laun þeirra renni
öll til skuldagreiðslu, en lífeyrir
verði enginn. Þetta sé ekkert nýtt
vandamál, en hafi hins vegar ágerst
vegna hærri dráttarvaxta. Með
Stefáni Jónssyni voru flutnings-
mennirnir Eyjólfur Konráð Jóns-
son, Helgi Seljan, Eiður Guðnason
og Jón Helgason.
-óg.
í fyrradag auglýsi fjármála-
ráðuneytið niðurfellingu gjalda af
ýmsum aðföngum til samkeppnis-
iðnaðar, þannig að nú er heimilt að
fella niður aðflutningsgjöld og söl-
uskatt af tölvubúnaði sem notaður
er af innlcndum framleiðslufyrir-
tækjum í samkeppni við innflutta
framleiðsluvöru, sem ekki ber toll.
í frétt frá fjármálaráðuneytinu
segir að með þessu sé stigið enn eitt
skref af hálfu stjórnvalda í þá átt að
bæta samkeppnisstöðu innlendra
iðnfyrirtækja gagnvart erlendum
samkeppnisaðilum.
Tilgangur stjórnvalda er að
stuðla að því að innlend fram-
leiðslufyrirtæki taki upp nýjustu
tækni í framleiðslu sinni til að auka
samkeppnishæfni sína gagnvart er-
lendri framleiðslu auk þess sem
notkun tölva mun auka margs kon-
ar hagræðingu í íslenskum iðnaði.
-ÁI
Áltillagan
kistulögð
Stuðningsmennn Alusuisse á flótta
Síðustu daga Alþingis voru
þrungnir spennu, ekki síst vegna
tillögu Framsóknarflokks og
stjórnarandstöðu um viðræðu-
nefnd til að ræða við Alusuisse sem
flutningsmenn tillögunnar með Egg-
ert Haukdal í fararbroddi túlkuðu
sem sérstakt vantraust á Hjörleif
Guttormsson, iðnaðarráðherra.
Svo mikið var Framsókn í mun
að koma þessari tillögu áfram, að
Jón Helgason forseti Sameinaðs
þings var knúinn til að ryðja öðrum
málum út af dagskránni til að keyra
umræður um álmálið áfram.
Þingmenn Alþýðubandalagsins
stóðu mjög ákveðið gegn þessu of-
forsi Framsóknar og íhalds. Á öðr-
um degi umræðunnar s.l. föstudag
Kveðjur
og þakkir
á deildar-
fundum
Deildarfundum lauk á
Alþingi í gær með heillaóskum
og kveðjum forseta og þing-
manna.
Eftir stranga fundi að
undanförnu voru síðustu
deildarfundirnir haldnir á
sjötta tímanum í gær. Helgi
Seljan forseti efri deildar og
Sverrir Hermannsson forseti
neðri deildar kvöddu þing-
menn með þakklæti fyrir sam-
starfið á kjörtímabilinu sem
er að ljúka og árnuðu deildar-
mönnum velfarnaðar í lífi og
starfi. þeir Karl Steinar
Guðnason í efri deild og Páll
Pétursson í neðri deild fluttu
forsetum þakkir ogkveðjur
þingmanna.
-óg.
flutti Hjörleifur Guttormsson ítar-
lega og efnismikla ræðu um málið.
í framhaldi af ræðu hans töluðu
þeir Svavar Gestsson og Ragnar
Arnalds, sem ekki hafði lokið máli
sínu er forseti sleit fundi kl. 4.30 að
morgni. Voru þá auk hans 4 þing-
menn Alþýðubandalagsins á mæl-
endaskrá. En tillagan kom ekki
aftur til umræðu.
Þessi málalok fóru mjög fyrir
brjóstið á Framsóknarmönnum og
kom það m.a. fram í máli Halldórs
Ásgrímssonar, varaformanns
Framsóknar í umræðum á laugar-
dag, en Halldór var ein helsta drif-
fjöður að flutningi áltillögunnar í
atvinnuumálanefnd, með Eggert
Haukdal og Friðrik Sófussyni.
Halldór féll frá orðinu er áltil-
lagan var á dagskrá kvöldið áður og
fór af fundi meðan Svavar Gests-
son rakti afstöðu Eysteins Jóns-
sonar fyrrum formanns Framsókn-
arflokksins til álsamninganna
1965-66.
í eldhúsdagsumræðum var ál-
málið einnig mjög til umrasðu bæði
hjá stuðningsliði Alusuisse og hjá
talsmönnum Alþýðubandalagsins,
sem gagnrýndu undansláttarstefn-
una mjög harkalega, og þau tengsl
sem Álusuisse hefði beint inn í
stj órnmálaflokkana.
Lyktir atlögu Alusuissemanna,
að Hjörleifi Guttormssyni eru sem
sé þær, að framhald álmálsins er nú
í höndum iðnaðarráðherra, eins og
Svavar Gestsson benti á í eldhús-
dagsumræðunum.
Einingarhelgi
á Akureyri
Landbúnaðarráöstefna Alþýðubandalagsins
verður haldin á Hótel Varðborg, Akureyri 18. og 19. mars.
Dagskrá:
Föstudagur 18. mars kl. 20:30
1. Setning: Svavar Gestsson
2. Skipulagning framleiðslu, landnýting og heimaöflun og nýjar
búgreinar. Framsögumenn: Jön Viðar Jónmundsson kennari,
Þórarinn Lárusson ráðunautur og Jón Árnason ráðunautur. «
3. Verðmyndunarkerfi landbúnaðarins. Framsögumaður: Ríkard
Brynjólfsson kennari.
4. Úrvinnsla - iðnaður - markaður. Framsögumaður: Guðrún Hall-
grímsdóttir, og fulltrúar Iðnaðardeildar SÍS og Kaupfélags Sval-
barðseyrar.
5. Almennar umræður.
Laugardagur 19. mars kl. 9:30
1. Viðhorf neytenda til landbúnaðarins. Framsögumaöur: Jóhannes
Gunnarsson varaformaður neytendasamtakanna..
2. Stefnumörkun Alþýðubandalagsins í landbúnaðarmálum.
Framsögumaður Helgi Seljan alþingismaður.
3. Almennar umræður.
4. Hópstarf - afgreiðsla mála - ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Steingrímur J. Sigfusson.
Mids tjórnarfundur
Alþýðubandalagsins
verður haldinn á Hótel Varðborg, Akureyri. Fundurinn hefst laugardag-
inn 19. mars kl. 14.
Jóhannes Helgi
Gunnarsson Seljan
Jón Viðar Guðrún
Jónmundsson Hallgrimsdóttir
Svavar Rikharð
Gestsson Brynjólfsson
Þórarinn Steingrímur J.
Lárusson Sigfusson
Jón
Árnason
Almennur fundur
Alþýðubandalagið boðar til almenns stjórnmálafundar á Akureyri sunn-
udaginn 20. mars kl. 15 á Hótel KEA.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins flytur ræðu. Ávörp
flytja Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju, Svanfríður Jónasdóttir
bæjarfulltrúi, Dalvík og Steingrímur J. Sigfússon.
Skemmtidagskrá - m.a. leikur Kammerblásarasveit Tónlistarskólans
undir stjórn Roars Kvan. Fundarstjóri er Heimir Ingimarsson.
FERÐIR
Flogið verður frá Reykjavík kl. 16.00
þann 18. mars og frá Akureyri kl.
20.00 sunnudaginn 20.mars.
Allar nánari uppiýsingar eru gefnar
á skrifstofu Alþýðubandalagsins að
Hverfisgötu 105. Sími 17500. Þátt-
tökutilkynningar þurfa einnig að
berast þangað sem fyrst.