Þjóðviljinn - 07.04.1983, Blaðsíða 16
mODVIUINN
Fimmtudagur 7. apríl 1983
Aðalsfmi Þjóðvlljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag tll föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins f síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
snjóhúsi. Næsta dag hélt hann af
staö í átt til Esjufjalla en komst
ekki nema 3 km. vegna veðurs og
byggði þá nýtt snjóhús. Á páska-
dag gekk hann frá húsi þessu í
námunda við Grímsvötn í átt til
Esjufjalla og áði norðan við þau
eftir 9 klst. göngu í þoku og 20 m.
skyggni. Sagðist hann hafa geng-
ið á skíðum eftir áttavita, og hefði
hann getað haldið um 15 km.
hraða á klst. Það tafði hins vegar
að bindingarnar á skíðunum bil-
uðu hvað eftir annað, og endan-
lega brotnaði annað skíðið norð-
an Esjufjalla. Mánudagurinn og
þriðjudagurinn voru erfiðastir,
þar sem hann þurfti að ganga nið-
ur sprunginn Breiðamerkurjök-
ul, og gaf hann á tímabili upp alla
von um að ná til byggða.
En niður komst hann kl. 1
aðfaranótt miðvikudagsins og var
tekinn upp af flutningabíl á
þjóðveginum á Breiðamerkur-
sandi á miðvikudagsmorgni og
kominn til Reykjavíkur kl. 18 í
gærkvöldi. Roger var veðurbar-
inn en virtist óþreyttur. Fætur
hans voru reifaðir og kalblöðrur
voru á fingrum. Þegar við
spurðum hann hver hefði verið
tilgangurinn með ferðinni var
svarið: „Tilgangur? Ég er fjall-
göngumaður, það er allt og
sumt.“
- ólg
Þá greip mig undarleg
Franskur höfuösmaður kominn
til byggöa eftir 11 daga
hrakningaferö yfir Vatnajökul
„A hádcgi á þriðjudaginn var
ég örmagna cfst í Brciðamerkur-
jökli. Stormurinn var svo mikill
að ég gat ckki gcrt snjóhús og ég
var allur orðinn blautur og farinn
að.kala. Eg skreið í svefnpokann
og trúði að hér myndi ég deyja.
Þá greip mig undarleg tilfinning.
Eg sá konu mína og son. Þau
ræddu við vini mína sem fluttu
þeim frcgnir af dauða mínum. Þá
hugsaði ég mcð mér: Þú átt ekki
ncma 20 kin. cftir, og þótt þú
vcrðir að skríða þá átt þú að geta
það. Ég lagði af stað kl. 12.30 í
hvassviðri og skafrenningi yfir
sprunginn jökulinn og sökk upp á
læri í hverju spori. Ég var kominn
niður af jöklinum kl. 1 um nóttina
eftir að hafa dottið einu sinni hálf-
ur ofan í sprungu. Síðasta hlut-
ann fór ég að mestu á 4 fótum.
Þetta var hræðileg reynsla og ég
myndi ekki leggja aftur upp á jök-
ulinn nú þótt þið byðuð mér tugi
miljóna franka.“
Þetta sagði Pichon Roger, 32
ára gamall höfuðsmaður úr
franska hernum í viðtali við Þjóð-
viljann í gærkvöldi, nýkominn úr
lífsháska á Vatnajökli eftir 12
daga hrakninga. Roger lagði upp
frá Reykjavík laugardaginn 26.
mars og fór í Fljótsdal, þaðan
sem bændur flutlu hann á snjó-
sleða upp að Snæfelli á sunnudag-
inn. Það tók hann 4 daga að kom-
ast þaðan upp í Kverkfjöll þar
sem hann hreppti svo illt veður að
hann varð að setjast að í snjóhúsi.
Pichon Roger höfuðsmaður var kalinn á fingrum eftir hrakningana á
Vatnajökli. Hér bcndir hann á kalblöðrurnar. Ljósm. Atli.
Roger var 5 daga á Vatnajökli. Grímsvatna en gat ekki fundið
í fyrsta áfanga ætlaði hann til þauvegnaillviðris. Hannsvafþáí
Innflutningsbann á hráu kjöti en:
Mðdð af smyghiðu
kjötí í vershuium
„Það er satt best að segja ýmislegt sem bendir til þess að hér sé á
markaði og þá á ég við í almennum matvöruverslunum umtalsvert
magn af smygluðu kjöti,“ sagði Hermann Guðmundsson fulltrúi
tollgæslustjóra þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær.
Nýstofnuö leitardeild innan
Tollgæslunnar fór á miðvikudegi
fyrir páska í könnunarferð í tvær
verslanir í Reykjavjk sem valdar
voru af handahófi. Önnur verslun-
in sem er í Nóatúni hafði á boðstól-
um eftirfarandi smyglvarning: 112
kíló af nautakjöti, 61 kíló af
öndum, 52 kíló af kalkún, 5 kíló af
spægipylsu og 2 kíló af skinku.
„Það fór ekkert á milli mála að hér
var á ferðinni smyglvarningur, því
umbúðirnar voru erlendar. Þetta
var allt saman hrátt kjöt nema
skinkan og „innflutningur" þess
stangast því á við lög frá 1928 sem
leggja blátt bann við innflutningi á
hráu kjöti vegna hættu á gin- og
klaufaveiki."
I hinni vershjninni var til muna
minna magn af smygluðum varn-
ingi eða 7 kíló af skinku. Hermann
sagði að eftir að kjötið hafði verið
gert upptækt hefði verið kallað á
menn frá heilbrigðiseftirlitinu og
þeir hefðu athugað það.
„Það var á starfsmönnum eftirlits-
ins að skilja að hefðu þeir verið
kallaðir beint á vettvang án þess að
kjötið hefði veriö gert upptækt
hefðu þeir hreinsað alla verslunina
út,“ sagði Hermann. „Og þann
hátt ætlum við okkur að hafa á í
framtíðinni að kalla á eftirlitið þeg-
ar upp kemst að versLanir selja
smyglvarning."
Hermann sagði að þeir kaup-
menn sem hlut ættu að máli hefðu
gefið þá skýringu á þessari for-
boðnu vöru að einhverjir menn
hefðu bankað upp hjá þeim og
boðið þeim kjötið til kaups.
„Maður gleypir þá skýringu þeirra
ekki alveg hráa,“ sagði liann.
Niðri í Tollgæslu eru nú miklar
birgðir af smygluðu hráu kjöti.
Sverrir Lúterssson tollvörður hjá
Tollgæslunni sagði að undanförnu
hefðu komið inn um 2 tonn af hráu
kjöti, að mestu leyti úr matvöru-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
-hól.
hk-
Sýnishorn af því smyglgóssi sem starfsmenn Tollgæslunnar hafa vcrið að tína úr matvöruverslunum að undan
förnu. Tollgæslan geymir um 2 tonn af ólöglega innlluttu hrámeti. Ljósm.: —Atli.
Árni Hjartarson, Ástríður Karlsdóttir og Vigfús Geirdal á blaðamanna-
fundi í gær. (Ljósm. Atli).
Samtök herstöðvaandstæðinga:
Stórfundur
á sunnudag
Ekkert lát er á baráttu friðar-
hreyFinganna á meginlandi Evrópu
og ekkert lát mun vcrða á starfsemi
Samtaka herstöðvaandstæðinga á
næstunni.
Fyr-r utan hina hefðbundnu bar-
áttu gegn her og NATO rnunu
.SHA á næstu mánuðum leggja
áherslu á baráttu fyrir kjarnorku-
vopnalausu svæði á Norðurlönd-
unt. Formlega hefst sú barátta á
stórfundi, sem haldinn verður í
Háskólabíói nk. sunnudag, 14.
apríl, kl. 14. Á fundinum verða
flutt ávörp um þetta efni og þeir
stjórnmálaflokkar, sem bera mál-
efnið fyrir brjósti, munu kynna við-
horf sín. Auk þess koma fram
leikarar og tónlistarmenn, m.a.
hljómsveitin Q4U. Kjörorð fund-
arins eru: Kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd. Fundarstjóri verður
Valgeir Guðjónsson.
Kosningahelgina 23.-24. apríl
verður haldinn í Norræna húsinu
samráðsfundur norrænna friðar-
hreyfinga. Þar verður formlega
samþykkt og kynnt samræmd
stefna hreyfinganna varðandi
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum. Tiltekin verður
stærð svæðisins, þær reglur, senr
þar skulu gilda og þær baráttu-
leiðir, sem farnar verða í sókninni
að þessurn markmiðum.
Gert er ráð fyrir að 2-3 fulltrúar
frá hverju Norðurlandanna sæki
fundinn og verði í þeim hópi fræg
nöfn úr friðarbaráttunni á Norður-
löndurn. Skandinavískir fjölmiðlar
eru þegar farnir að sýna sam-
ráðsfundinum áhuga og vitað er
um allmarga fréttamenn, sem
hyggjast korna hingað til lands og
fylgjast rneð umræðum, jafnframt
því sern þeir munu vafalaust gefa
íslensku kosningunum gaunt.
SHA vinna nú, ásamt fleirum,
að undirbúningi undirskriftaher-
ferðar fyrir hinu kjarnorkuvopna-
lausa svæði. Stefnt er að hefja hana
í kjölfar samráðsfundarins.
Margt fleira er á döfinni hjá
Samtökum herstöðvaandstæðinga.
Nánari upplýsingar um samtökin
og starf þeirra fást á skrifstofunni
við Frakkastíg 14, sírni 17966.
-mhg