Þjóðviljinn - 19.04.1983, Síða 3
Þriðjudagur 19. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Skoðanakannanir í þremur blöðum:
S j álf s tæðisf lokkurínn
Æ n. r JB r eða 1200 manns. P
stefnir á stórsigur
Qqmh\r‘jutnf cknXonotnnniinnm í KrÞmur KIóAiirrs cpm Kirtnct nm f vrir \
Samkvæmt skoðanakönnunum í þremur blöðum sem birtust um og fyrir
hclgina er líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn vinni sigur í kosningunum á
laugardag og nái algjörri lykilstöðu í íslenskum stjórnmálum. Er honum
spáð frá 24-27 þingmönnum, samhliða því að atkvæðadreifing á aðra
flokka myndi gefa honum völd umfram þetta.
Skoðanakannanir birtust í Helg-
Tafla 1: Hlutfallslegt fylgi flokkanna.
arpóstinum, Morgunblaðinu, en sú
könnun var unnin af Hagvangi og í
DV.
í meðfylgjandi töflum má sjá, að
fylgi Sjálfstæðisflökksins í öllum
könnunum virðist vera frá u.þ.b.
25-27 menn, ef sérframboð á Vest-
fjörðum er tekið með.
Alþýðubandalaginu er spáð frá 7
og upp í 10-11 þingmenn í þessum
könnunum. Hagvangskönnunin er
sú fyrsta af sínu tagi, og hefur því
ekki viðmiðun við fyrri kannanir.
Hjá Helgarpósti og DV sýnir nið-
urstaðan fylgisaukningu hjá Al-
þýðubandalagi, miðað við síðustu
könnun.
Alþýðuflokknum er spáð 4-5
þingmönnum, Framsóknarflokki
8-16 þingmönnum, en tvær kann-
anir hafa hann með u.þ.b. 13 þing-
menn.
Bandalagi jafnaðarmanna og
Kvennalistunum er spáð töluverð-
um byr og 8-11 þingmönnum sam-
tals.
Könnun Hagvangs
í könnun Hagvangs var stuðst
við 1300 manna úrtak úr Þjóðskrá.
Þar afnáðistí 1044, ogafþeim tóku
824 afstöðu til stjórnmálaflokka,
79% af nettóúrtaki, en 63% af
brúttóúrtaki. Fáir neituðu að
svara, en um 18% þeirra sem
náðist í voru óákveðnir.
Könnun DV
Könnun DV er unnin með þeim
hætti, sem áður hefur verið, nema
hvað úrtakið er helmingi stærra,
Helgarp. Hagvang. DV
Alþýðuflokkur 9,5% 7,3% 7,3%
Framsóknarfl. 13.2% 16,8% 17,9%
Bandalag jafn. 11,6% 9,9% 10,9%
Sjálfstæðisfl. 43,1% 44,9% 41,0%
Alþýðubandalag 15,3% 13,1% 15,0%
Kvennalistar 6,3% 7,2% 7,2%
T-listi 0,7% 0,8% 0,3%
BB-listi 0,3%
Tafla 2: Þingmannafjöldi flokka í skoðana-
könnunum.
Alþýðuflokkur
Framsóknaril.
Bandalag jafn.
Sjálfstæðisfl.
Alþýðubandalag
Kvennalistar
Helgarp.
5
8
7
27
9
4
Hagvang.
4
13
5
27
7
4
DV
4
12-13
6
24-25
9
4
NB: Fulltrúi T-listans á Vestfjörðum er talinn með Sjálfstæðisflokki.
. Par er þó ekki um
sambærilegan hlut við Hagvangs-
könnun að ræða, þar sem DV bæt-
ir inn í úrtakið ef ekki næst í fólk.
Það sem er nýtt í könnun DV er
það, að þar er reynt að spá í hina
óákvéðnu og þá sem ekki svara
með hliðsjón af fráviki fyrri kann-
ana frá raunverulegri niðurstöðu.
Munar þar mest um frávikið í kosn-
ingunum 1979, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn tapaði niður stóra sigr-
inum síðustu daga fyrir kosn-
ingar. Samkvæmt þeim út-
reikningi, sem Þorvaldur Búason
hefur unnið, fá Alþýðubandalag og
Framsóknarflokkur meira en
skoðanakannanir gefa þeim, en
Sjálfstæðisflokkur minna. Svona
umreikningur er þó mjög um-
deilanlegur og erfitt að miða við
fyrri sögu, enda vart líklegt að
sagan endurtaki sig nákvæmlega.
Það sem við blasir er því, að
Sjálfstæðisflokkurinn á möguleika
á stórsigri. Alþýðubandalagið á
möguleika á að halda sínum hlut,
ef vel er staðið að verki síðustu
dagana. Þingsæti þeirra Ólafs Jó-
hannessonar og Jóns Baldvins
Hannibalssonar hanga á bláþræði.
cng.
Áfengisvarnar-
nefnd Selfoss:
hefurlög
aö engu
Bæjarstjórn Selfoss hefur á
fundi 13. apríl samþykkt til-
lögu Guðmundar Kr. Jóns-
sonar og Guðmundar Sig-
urðssonar, bæjarfulltrúa,
þess efnis, að um leið og kosið
verður til Alþingis hinn 23.
apríl vcrði kosið um hvort
leyfa skuli að opna áfcngisút-
sölu á Selfossi.
Vakin er athygli á, að
bæjarstjórn hafði að engu 30.
gr. 2. mgr. áfengislaga er
kveður á um að áfengisvarn-
arnefnd eigi að fjalla um og
vera ráðgefandi hvað varðar
mál þetta. Áfengisvarnar-
nefnd Selfoss fékk málið í
hendur sama dag og það var
tekið fyrir í bæjarstjórninni.
Umfjöllun varð því ekki við
komið hjá nefndinni þar sem
bæjarstjórn gaf ekki tíma til
slíks.
Svo er að sjá sem hér sé um
að ræða einkaframtak flutn-
ingsmanna. Ekki er vitað til
að í bænum hafi verið f gangi
hreyfing er gæfi tilefni til þess
sem hér hefur verið lýst.
Nefndin bendir á að ástand í
áfengismálum í bænum mætti
gjarnan vera betri en raun ber
vitni um. Þá bendir nefndin og
á, að í bænum er í gangi all-
kröftug fjáröflun til stuðnings
SÁÁ og verður ekki séð að
hér sé á ferðinni framlag til
stuðnings því málefni.
Nefndin skorar á íbúa Sel-
foss að mæta á fund í Selfoss-
bíói 21. þessa mánaðar kl.
20.30, þar sem mál þetta verð-
ur til umræðu.
(Fréttatilkynning frá
Áfengisvarnarnefnd
Selfoss.)
Áskorendaeinvígin:
Kortsnoj mætir Kasparov
Viktor Kortsnoj vann Ungverj-
ann Lajos Portisch í níundu og síð-
ustu skák einvígis þeirra sem lauk í
Bad Kissingen um helgina. Kort-
snoj sigraði því í einvíginu með
sama mun og næsti mótstöðu-
maður hans í keppninni, Harry
Kasparov. Kasparov vann landa
sinn Alexander Beljavskí 6:3 í ein-
vígi sem lauk í Moskvu fyrir rúm-
um mánuði. Hann gat því hafíð
undirbúning undir einvígi sitt við
Kortsnoj með góðum fyrirvara, því
sýnt var hvert stefndi er Kortsnoj
hlaut 3'h vinning úr fyrstu fjórum
skákum einvígisins.
Yfirburðasigur Kortsnojs nú
kemur talsvert á óvart, því bæði var
Portisch mun hærri á Elo-
skákstigunum og að auki hafði
Kortsnoj gengið mjög illa á skák-
mótum fyrir einvígið. Er þar
skemmst að minnast klénnar fram-
mistöðu hans á mótinu í Wijk aan
Zee, er hann hlaut aðeins 6 vinn-
inga af 13 mögulegum.
Kasparov
Þrátt íyrir góðan sigur Kortsnojs
er Kasparov talinn hafa alla
möguleika í einvíginu við Kort-
snoj. Kasparov er með 2690 Elo-
stig, en Kortsnoj með 2600 stig.
Þeir hafa einu sinni mæst áður yfir
skákborðinu, á Ólympíumótinu í
Luzern, en þar bar Kasparov sigur
úr býtum í frægri skák.
Frá Alicante á Spáni spyrjast
þau tíðindi, að Ungverjinn Zoltan
Ribli hafi tögl og hagldir í einvígi
sínu við Filippseyinginn Eugenio
Torre. Torre bað um frest á 7. ein-
vígisskákinni sem átti að fara fram
síðastliðinn laugardag, en þá var
staðan 4:2, Ribli í hag. Fyrstu fjó-
rum skákum þessa einvígis lauk
með jafntefli, en Ribli vann 5tu og
6tu skák. Ribli er til alls líklegur í
heimsmeistarakeppninni nú, því
enn hefur hann ekki tapað skák í
henni. Hann
var taplaus í svæðamóti A-
Evrópuríkjanna í 21 skák, taplaus
á millisvæðamótinu í Las Palmas á
síðasta ári og enn taplaus í einvígj-
unum. Um tuttugu ár eru liðin frá
því að Tigran Petrosjan tryggði sér
réttinn til að skora á þáverandi
heimsmeistara, Botvinnik. Tefldi
hann 68 skákir til að ná réttinum og
tapaði aðeins einu sinni.
Sigri Ribli, mun hann mæta sig-
urvegaranum úr einvígi Húbners
Kortsnoj
og Smyslovs, sem enn stendur yfir í
Veleden í Áusturríki. Þeir voru
jafnir að loknum 10 skákum og
þurfa því að tefla fjórar til viðbót-
ar. Tveim fyrstu skákunum í auka-
einvíginu lauk með jafntefli, svo
staðan er enn jöfn, 6:6. - hól.
Tryggið ykkur
miða í Stóra
ferða-
happdrættinu
Fimmtíu
glæsilegir
ferða-
vinningar
Viltu komast til Rimini
eða upp í Borgarnes fyrir
100 krónur? Það er aldrei
að vita nema þín verði
lukkan ef þú tryggir þér
miða í Stóra
ferðahappdrættinu, sem
Framkvæmda-
stofnun:
VUI sitt
Þjóðviljanum hefur borist eftir-
farandi stjórnarsamþykkt Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins frá 4.
mars sl.
„Stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins samþykkir sem lokasam-
þykkt, að af 20% aflahlut nýs fiski-
skips Hraðfrystihúss Breiðdælinga
renni 1,5% til Byggðasjóðs.
Jafnframt ítrekar stjórn stofnun-
arinnar þá ófrávíkjanlegu kröfu
sína, að af aflahlut hinna svo-
nefndu raðsmíðaskipa renni 1,5%
af 20% aflahlut til Byggðasjóðs,
þegar þar að kemur“.
Alþýðubandalagið hefur
hleypt af stokkunum, til
aðfjármagna
yfírstandandi
kosningabaráttu.
Að sögn Óttarrs Magna Jó-
hannssonar sem veitir happdrætt-
inu forstöðu er búið að senda miða
til félaga og stuðningsmanna Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík og
dreifa stóru upplagi til flokksfélaga
um allt land. Álls eru 50 glæsilegir
ferðavinningar í boði, bæði hér
innanlands og úti um allan heim.
Þeir sem ekki hafa tryggt sér
miða geta fengið keyptan miða, og
einnig tekið í umboðssölu, hjá
aðalskrifstofu Alþýðubandalagsins
að Hverfisgötu 105 og hjá flokksfé-
lögum um land allt.
Kosningabarátta er dýr og því
eru allir félagar og stuðningsmenn
hvattir til að kaupa og selja öðrum
miða í Stóra ferðahappdrættinu.
Kaupið sjálf, seljið vinum ykkar,
vandamönnum og vinnufélögum
og ekki síst andstæðingum.