Þjóðviljinn - 19.04.1983, Síða 7

Þjóðviljinn - 19.04.1983, Síða 7
Þriðjudagur 19. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 . \ 'XiíHHSim *»««<» utiiin 1 uunúutmMm u»n*4t» ituttuntt iiitmnum tiitntiiiim iuatntiniuiii ííM*ti*«*í*IMíi :*»«♦« tHHtiitU Hvað er til ráða þegar tapið eykst og eykst? Nú auðvitað að stækka! Oskabörnin túlka tap álversins og umreikna það yfir í grænar flöskur! Ljósm. Atli. Söngsérframboðið, sem skipar 13., 5., 21. og 12. sæti G-listans: Sigrún Valbergsdóttir, Grétar Þorstcinsson, Silja Aðalsteinsdóttir og Margrét Pála Ólafsdóttir. Ljósm.-Atli. Og frambjóðendur skemmtu sér líka vel. Frá hægri: Arnór Pétursson, Guðrún Hallgrímsdóttir,.Ólafur Ragnar Grímsson, Guðrún Helgadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Margrét Björnsdóttir og Svavar Gestsson. Ljósm.-Atli. „Engir tvístraðir, sundraðir og stefnulausir smáflokkar munu stoðva íhaldsins eftir kosningar. Alþýðubandalagið eitt er fært um að veita launafólki þá forystu sem nú er þörf á,“ sagði Guðmundur J. Guðmunds- son. Ljósm. Atli. Fleygjum ekki sjálfstæði þjóðarinnar fyrir ameríkanismann og erlendan auðhring Úrslitin ráðast í Reykjavík Tryggjum fjóra þingmenn fyrir Alþýðubandalagið í Reykjavík - Getur það verið að kjósendur meti einskis þá féiagslegu þjónustu sem hefur verið byggð upp við þroskahefta en íhaldið hótar nú að mola niður? - Getur það verið að fjöldi fóiks meti einskis að hér hefur verið full atvinna undanfarin þrjú ár meðan atvinnuleysi hefur herjað á grannþjóðir okkar? Getur það verið að fólk vilji atvinnuleysi? Vonandi enginn vísvitandi. - Getur það verið að menn meti einskis félagslegrar íbúðabyggingar? Getur það verið að fólk vilji aftur vísa fátækasta hluta Reykvíkinga í kjallaraholur og hermannabragga eins og var hlutskipti þúsundanna í Reykjavík fyrr á árum. - Getur það verið að menn meti einskis ókeypis fræðslu skólakerfisins? Vilja menn heldur greiða námsbækur barnanna að fullu þannig að sá geti lært sem á fjármuni - hinn sitji hjá eins og í menntakerfi yfirstéttanna í Bretlandi? - Getur það verið að ákvörðun borgarstjórnaríhaldsins um að borga börnin inn á gæsluvellina meðan fasteignaskattarnir eru Iækkaðir sé meirihluta manna að skapi? - Vilja menn ekki ókeypis heilsbrigðisþjónustu - vilja menn heldur borga fyrsta daginn á sjúkrahúsinu sem kostar nú um 7.000 kr? - Vilja menn ekki verðlagsetirlit? Vilja menn frekar 170% hækkun hita- veitunnar og frelsi til að okra á lífsnauðsynjum almennings? - Vilja menn gefast upp fyrir Alusuisse? Vilja menn frekari útfærslu hernáms- ins? - Þessar spurningar bar Svavar Gestsson fram í upphafi ræöu sinnar í Háskólabíói á laugardag- inn á kosningafundi G-listans. Spurningarnar sagði Svavar fram komnar vegna úrslitanna í skoð- anakönnun Morgunblaðsins sem birt var á laugardaginn en þar kom fram að hægri öflin eru í stórsókn. Þegar hægri öflin sameinast er fráleitara en nokkru sinni fyrr að vinstriöflin tvístri sér. Þau eiga heldur enga samleið með ópólit- ískum kvennalista sem ekki þorir að taka afstöðu í herstöðvamál- inu, efnahagsmálum og atvinn- umálum né heldur með gervirót- tækni Vilmundar sem hefur stofnað bandalag um ekki neitt. Ekki dettur nokkrum manni í hug að þessir aðilar verji þjóðina fyrir árásum afturhaldsins á lífskjör allrar alþýðu. Ekki dettur mönnum í hug að Framsóknar- flokkurinn sé. samastaður fyrir vinstrimenn; þar hafa hægri öflin tekið völdin. Og Alþýðuflokkur- inn hefur engan innri styrk. Alþýðubandalagið er eini flokkurinn sem heill og óskiptur gengur fram í baráttunni gegn hægri öflunum. Andspænis árásum hægri aflanna er Alþýðubandalagið eina aflið sem dugir. Annars er valdataka íhaldsins, liiUgri aflanna, yfirvofandi í næstu viku. Alþýðubandalagið ætlar að stöðva framsókn hægri aflanna hvað sem það kostar. Að lokum sagði Svavar Gestsson: Látunr ekki eitt augnablik ó- notað - það er aðeins ein vika eftir þar til kosið verður. Látum vita að við teljum að það hafi verið rétt að stofna lýðveldi á íslandi 17. júní 1944. Látum koma fram að við vilj- um ekki fleygja sjálfstæði þjóðar- innar fyrir ameríkanismann og erlenda auðhringa. Látum aðvörunarorð ókkar heyrast hvarvetna í þessu fjöl- mennasta kjördæmi landsins, því úrslitin ráðast í Reykjavík. Láttu finnast að blóð þitt er rautt og heitt og lifandi! Fram til baráttu, starfa og sig- urs fyrir G-listann! Tryggjum fjóra þingmenn fyrir Alþýðubandalagið í Reykjavík. Haukur Helgason og Ólafur Ragnar Grímsson. Ljósm.-ívar. Ólafur Stefánsson, Svavar Gcstsson og Sigurður Breiðfjörð. Ljósm.-ívar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.