Þjóðviljinn - 19.04.1983, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 19. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
RUV 0
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund.
7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur Áma Böðvarssonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð:
Hólmfriður Pétursdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Branda
litla og villikettirnir"
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). „Áður fyrr é árunum'1 Ág-
ústa Bjömsdóttir sér um þáttinn.
11.05 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja
11.30 Vinnuvernd Umsjón: Vigfús Geirdal.
11.45 „Farkennarinn“, smásaga eftlr Elísa-
betu Helgadóttur Höfundurinn les.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. Veðurfregnir. Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa - Páil Þorsteinsson og
Þorgeir Ástvaldsson
14.30 „Vegurinn ai brúnni" eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson les þriðja
hluta bókarinnar (6).
15.00 Miðdegistónleikar
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög bama.
17.00 „SPÚTNIK". Sitthvað úr heimi vísind-
anna Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn.
17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónarmaö-
ur: Ólafur Torfason (RÚVAK).
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.45 Tilkynningar.
19.50 Bama- og unglingaleikrit: „Með hetj-
um og forynjum f himinhvolfinu" eftir Maj
Samzelius - 5. þáttur. (Áður útv. 1979).
Þýðandi: Ásthildur Egilson. Leikstjóri:
Brynja Bpnediktsdóttir. Leikendur: Bessi
Bjamason, Kjartan Ragnarsson, Edda
Björgvinsdóttir, Gísli Rúnar Jónsson, Gunn-
ar R. Guðmundsson, Kristín Jónsdóttir, Jón
Sigurbjömsson, Klemenz Jónsson, Hanna
Maria Karlsdóttir, Ása Ragnarsdóttir, Sig-
urður Sigurjónsson, Glsli Alfreðsson, Flosi
Ólafsson, Bjami Steingrimsson, Eyvindur
Ertendsson, Sigurveig Jónsdóttir, Þórunn
M. Magnúsdóttir og Ólafur Öm Thoroddsen.
20.35 Kvöldtónleikara.Píanókonsertib-moll
eftir Xaver Scharwenka. Earl Wild og Sin-
fóníuhljómsvertin í Boston leika; Erich
Leinsdort stj. b. Varsjárkonsertinn eftir Ric-
hard Addinsell. Leo Litwin og Boston Pops
hljómsveitin leika; Arthur Fiedler stj. c.
Konsert fyrir fjóra gítara og hljómsveit eftir
Joaquin Rodrigo. „Los Romeros" og Sin-
fóníuhljómsveitin í San Antonio leika; Victor
Alessandro stj. - Kynnir: Knútur R. Magn-
ússon.
21.40 Útvarpssagan: Ferðaminnlngar
Svelnbjarnar Egilssonar Þorsteinn Hann-
esson les (3).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Saxófónsóló", smásaga eftir Ágúst
Borgþór Sverrisson Höfundurinn les.
22.55 Vínariónlist Sinfóníuhljómsveit Vínar-
borgar leikur lög eftir Robert Stolz; Höfund-
urstj.
23.15 Tveggja manna tal Guðrún
Guðlaugsdóttir ræðir við Þorstein Svörfuð
Stefánsson svæfingartækni.
23.45 Fréttir. Dagskráriok.
Menningar-
bylting
og vísindi
Spútnik-þættir þeir, sem dr.
Þór Jakobsson hefur samið og
flutt í Útvarpið í vetur, hafa verið
hinir eftirtektarverðustu. Þeim
fer nú að fækka um sinn og er að
þeim eftirsjá. Þó flytur dr. Þór þá
vikulega maímánuð út en þá fer
Spútnik í sumarleyfi.
Kl. 17.00 í dag fjallar dr. Þór
um tvennt: í fyrsta lagi vísinda-
starfsemi í Kína og áhrif menn-
ingarbyltingarinnar á hana.
í annan stað fjallar svo dr. Þór
um olíu og olíuvinslu og hvernig
olíuleitin tengist rannsóknum á
ýmsum sviðum öðrum og hefur
áhrif á þær. mhg
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Dýrin i Fagraskógi Barnamynd frá
Tékkóslóvakíu.
20.45 Derrick 1. þáttur. Jóhanna. Þýskur
sakamálaflokkur, framhald fyrri þátta um
Derrick, rannsóknarlögregluforingja i Munc-
hen, og störf hans. Aðalhlutverk: Horst
Tappert og Fritz Wepper ásamt Lilli Palmer.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
21.50 Reykjavík Sjónvarpsumræður fulltrúa
allra framboðslista i kjördæminu. Bein út-
sending. Umræðum stýrir Ingvi Hrafn Jóns-
son, fréttamaður.
22.55 Dagskrárlok.
fr
Ringul-
reið
í skóla-
málum í
Kópa-
vogi
Kæru lesendur.
Við erum nemendur í Víghóla-
skóla í Kópavogi en hann er skóli
fyrir unglinga á aldrinum 13-16
ára. Þessi skóli hefur starfað í 20
ár og er oðinn rótgróinn í bænum.
í honum eru um það bil 350 nem-
endur.
Nú í vetur hefur ýmislegt verið
gert sem ekki hefur áður gerst í
skólanum. Meðal annars hefur
verið komið á fót mötuneyti og í
fyrsta skipti í sögu skólans var
haldin verkefnavika, sem tókst
geysi vel og unnu margir nem-
endur að því að gera skólann vist-
legri, með smíði og saumaskap.
Einnig var loksins hægt að stytta
viðverutíma okkar í skólanum og
gera hann samfelldan, því að
þetta er fyrsti veturinn, sem
skólinn er einsetinn.
Við viljum koma því á fram-
færi, að þessi vetur hefur verið
Krakkar í Víghólaskóla með líkan af skólanum sínum. Mynd: -eik
vita það hvað er að gerast hér í
Kópavogi.
Hér eru ýmsir kennarar, sem
munu jafnvel missa stöður sínar
og einnig fjölmargir krakkar,
sem munu missa vináttubönd
vegna þess að þeim verður dreift
á hina og þessa skóla.
Við biðjum þig, sem lest þetta
nú, að veita okkur lið í baráttunni
gegn myrkraverkum bæjarstjórn-
ar Kópavogs, í baráttunni um líf
Víghólaskóla, með því að tjá þig
um málið.
Við þökkum blaðinu kærlega
fyrir birtinguna.
Virðingarfyllst,
Magnús Árni Magnús'son 8-F,
Kristján Pétur Vilhelmsson 7-H,
Gunnar Guðmundsson 7-N,
Flosi Þorgeirsson 8-C, Sváfnir
Sigurðsson 7-E, Halldór Gunn-
arsson 9-B, Hjörleifur Finnsson
7- G, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
8- D, Jón Eyþórsson 9-D, Örn
Árnason 7-F, Þórhildur Þórhalls-
dóttir 8-E.
mjög góður, t.d. hefur skólinn
sjaldan komið eins vel út í sam-
ræmdu prófunum og einnig öðr-
um prófum. Nú virðist okkursem
bæjaryfirvöldum finnist einsetinn
skóli vera algjört bannorð hvort
sem skólanum vegnar betur þeg-
ar hann er einsetinn eður ei. Þau
eru komin með það á heilann að
einsetinn skóli sé skóli, sem ekki
er fullnýttur og nú ganga okkar
háttvirtu yfirmenn í bæjarstjórn
með þá flugu í hausnum að það sé
góð úrlausn á húsnæðisvanda-
málum skólanna hér í Kópavogi,
(en þau eru í hinum mesta ólestri
hér í bæ vegna þess að Mennta-
skólinn í Kópavogi hefur einung-
is vesaldarlegt þak yfir höfuðið)
að leggja niður skólann okkar og
lofa MK að fá húsnæði Víghóla-
skóla. Okkur, nemendum Víg-
hólaskóla, yrði svo dreift á barna-
skólana hér í Kópavogi, sem yrðu
þá aftur tví- og þrísetnir. Við
erum á þeirri skoðun að þetta sé
engin lausn. Hér ér aðeins verið
að auka á vandamálið, ekki að
leysa það.
Einnig viljum við vekja athygli
á því, að við teljum að bæjar-
stjórnin viðhafi hér mjög ólýð-
ræðisleg vinnubrögð því að
meinið er, að hér í Kópavogi vita
mjög fáir um þessar fyrirhuguðu
framkvæmdir. Það er stutt síðan
okkur var sagt frá þessu og sagt,
að þetta væri í þann veginn að
verða samþykkt. Þetta kom því
sem reiðarslag yfir okkur og for-
eldra okkar, sem einnig vissu
ekkert um þetta mál.
Við viljum eindregið hvetja
alla, hvort sem þeir búa í Kópa-
vogi eða ekki, að tjá sig um málið
og veita okkur lið. Það er á
hreinu að við munum ekki yfir-
gefa skólann okkar með góðu og
án þess að leyfa almenningi að
Útvarpsfrétt
á dögunum
Eiginkona
forsetans
Gömul kona á. Húsavík hringdi:
Eftirfarandi mátti heyra í út-
varpinu nýlega.
„Sýslumaður Árnesinga var
mættur á sýslumörkunum til að
taka á móti Vigdísi Finnboga-
dóttur ásamt eiginkonu sinni.“
Vill þessi góði fréttamaður,
ekki upplýsa okkur nánar um
þessa eiginkonu forsetans?
Þegar limir
líkamans
vildu ekki
vinna
Limir líkamans urðu einhverju sinni
leiðir á því að þjóna hver öðrum og
ásettu sér að hætta því. Fæturnir sögðu
við hina limina: „Því skyldum við einir
bera ykkur? Útvegið ykkur fætur sjálf-
ir, ef þið viljið ekki ganga“.
Hendurnar sögðu: „Því eigum við að
vinna fyrir öllum? Fáið ykkur sjálfír
hendur, ef þið viljið láta vinna.“
Munnurinn möglaði: „Ég væri mikill
einfeldningur ef ég alla jafna væri að
tilreiða mat fyrir magann, svo hann geti
fengið hann eftir vild sinni; hann verð-
ur sjálfur að útvega sér munn.“
Augununum þótti það einnig mjög
hart, að þau yrðu ein að vera á verði
fyrir allan líkamann og vísa honum
leið. Á líkan hátt mæltu allir hinir aðrir
limir og sögðu upp þjónustunni hver af
öðrum.
En hvernig fór?
Þegar fæturnir vildu ekki ganga,
hendurnar ekki vinna, munnurinn ekki
éta, augun ekki sjá, þá tók líkaminn
allur að morkna og dragast upp. Sáu
limirnir þá, að þeir höfðu breytt ó-
hyggilega og urðu ásáttir um, að gjöra
slíkt aftur. Tóku limirnir nú að þjóna
hver öðrum og fengu við það brátt aftur
hið fyrra fjör og þroska.
Þessa fínu mynd sendi hann Daði Georgsson á Flúðum okkur en þar má sjá
merina Jöldu og væntanlcga hann Daða sjálfan til vinstri á myndinni.
MERIN JALDA
„Daði Georgsson er 7 ára og
hann á meri sem heitir Jalda.
Jalda er orð sem þýðir meri.
Jalda er rauð-glófext með blesu.
Hún er 6 vetra. Daði eignaðist
hana þegar hún var folald og
hann á 2. ári. Þó að Daða finnist
mikið til hennar koma þá vildi
hann teikna hana í þessum þörfu
líkamsstellingum. “
Þannig segir í bréfi sem okkur
barst með þessari ágætu mynd
eftir hann Daða Georgsson sem
á heima á Flúðum í Hrunamann-
ahreppi. Og við þökkum kær-
lega fyrir.