Þjóðviljinn - 28.04.1983, Síða 3
BLAÐAUKI
Finuntudagur 28. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Nauðsynlegt er að gefa
arkitektum og
byggingarfyrirtækjum kost
á, að byggja upp í litlum
grúppum eða götum, þar
sem fjölbreytni mannlífs og
stíibragð arkitekta fá að njóta
sín.
um hugmyndir sínar, ef þeir hafa
einhverjar. Þeir geta ekki enda-
laust ætlast- til þess, að fram-
leiðendur eltist við þá. Það er
þeirra að sannfæra framleiðendur
um ágæti hugmynda sinna, eins og
það er hlutverk framleiðenda að
sannfæra viðskiptavini. Ég hef á til-
finningunni, að arkitektar hafi fyrir
atvinnu að teikna eldhúsinnrétt-
ingar og heil hús undir leiðsögn
húsmæðra. Það er því miður mín
skoðun, að arkitektar hafi hingað
til brugðist tréiðnaðinum og einnig
byggingaiðnaðinum. Þeir sleppa
allt of létt frá þessum hlutum.
Nýr vettvangur
í byggingariðnaði
Talið er að þróun á íbúðaþörf
verði einkum stærri íbúðir á þess-
um áratug. Þetta er að vísu stað-
bundið, en sýnir samt hvers ber að
gæta. Af þessunr sökum verðum
við að mæta þessum nýju kröfum.
Innflutt hús eru í þessum stærðar-
flokki og yfirleitt einingahús.
Þarna er nýr vettvangur fyrir aðila í
byggingaiðnaði og þarna verðum
við að standast erlendu samkeppn-
ina. Framleiða vönduð einingahús,
sem standast hvaða samkeppni
sem er, um gæði, hönnunog arki-
tektúr. Þá tel ég alls ekki fullreynt,
að byggingar á steinhúsum, bæði
sem einingahús og/eða með hefð-
bundnum aðferðum, þá á ég við
stöðluð steypumót. Tel raunar að
hægt sé að byggja mun hagkvæm-
ara, heldur en nú er gert. Þá reynir
auðvitað á skipulag í sveitarfé-
lögum og ekki síst á arkitekta.
Ég tel nauðsynlegt, að gefa ark-
itektum og byggingafyrirtækjum
kost á, að byggja upp í litlum
grúppum eða götum, þar sem fjöl-
breytni mannlífs og stílbragð arki-
tekta fá að njóta sín í höndum sér-
hæfðra byggingafyrirtækja. Ég er
viss um, að slíkar grúppur eiga eftir
að njóta vinsælda í framtíðinni sem
verðug samkeppni við innflutning
og þar sem hægt er af sveitarfé-
lögum að gera kröfu um leiksvæði
fyrir börn og fleiri skipulagsatriði.
Góð hönnun
og strangar
gæðakröfur
Að lokum vil ég segja þetta:
• Nauðsynlegt er að hamla inn-
flutning á trévörum, þá sérstak-
lega á innfluttum húsum.
• Nauðsynlegt er að gera mjög
strangar gæðakröfur til allra ein-
ingahúsa og mjög skilmerki-
legar og greinilegar leiðbeining-
ar verða að fylgja með húsunum
um það, hvernig skuli reisa slík
hús og það skuli gert undir eftir-
liti. Til eru dæmi um, að hús eru
beinlínis eyðilögð í uppsetn-
ingu.
• Gera verður kröfur til arkitekta
að þeir sinni þessum iðngrein-
um. Þeir verða sjálfir að sann-
færa framleiðendur um ágæti
vinnu sinnar og hversu nauðsyn-
leg hún er. Þeir verða sjálfir að
beita nauðsynlegri sölu-
mennsku, því það er öruggt, að
góður arkitektúr og góð hönnun
er ódýr vinna og skilar sér aftur.
• Þið sérfræðingar í því að vera
ekki sérfræðingar, eins og sagt
hefur verið um sveitastjórnar-
menn, fulltrúa almennings,
verðið að vera ykkur grein fyrir,
að byggingariðnaður er atvinnu-
vegur, til þjónustu við fólkið í
byggðinni ykkar. Nýtið ykkur
sérhæfni þeirra, sem við hann
vinna, gefið arkitektum og
byggingaiðnaðarmönnum tæki-
færi til að starfa saman að skipu-
lagi lítilla byggðakjarna. Það er
nýr valkostur og ekki sá lakasti.
Álformar eru æ oftar notaöir í
stað heföbundinna efna í bygg-
ingum, sérstaklega í hurðir, glugga
og framhliöar húsa.
Sapa Front álformar hafa alla
þá eiginleika sem arkitektar, verktak-
ar og húseigendur óska eftir og eiga
fullan rétt á.
Öruggt efni, góð hönnun og
ekkert viöhald.
Einangrun gleymist ekki. Hún er
steypt inn í álformana. Ný aöferð
sem uppfyllir ströngustu kröfur.
í fáum orðum sagt: Sapa Front
álformar er byggingakerfi. Heilsteypt,
sveigjanlegt og hagkvæmt, Efni sem
stenst tímans tönn, heldur formi og
er fjárfesting sem skilar aröi í mörg
ár.
Allt eiginleikar sem krafist er af
byggingarefni í samfélagi nútímans
og framtíöarinnar.
Gluggasraiöjan
Gissur Símonarson
Síðumúli 20, Reykjavík Símar: 38220 og 81080