Þjóðviljinn - 27.05.1983, Síða 1
DJOÐVILIINN
Blaðamaður
Þjóðviljans fór fyrir * ' ' \
skömmu í leiðangur
um Suðurnes og
árangurinn birtist í
máli og myndumí
blaðinu í dag.
Sjá 9
maí 1983
föstudagur
113. tölublað
48. árgangur
Stjómarskipti
síðdegis í gær
Stjórnarskipti fóru fram í gær. Um klukkan 11 fyrir
hádegi mætti ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen til síð-
asta ríkisráðsfundar á Bessastöðum og var henni að
fundi loknum veitt lausn frá störfum
greiddu 121 atkvæði með þáttöku í
stjórninni á þeim grundvelli sem
fyrir lá, 31 greiddi atkvæði á móti
og 9 sátu hjá.
Skipting ráðuneyta og skipan
ráðherra í stjórn Steingríms er sem
hér segir.
Steingrímur Hermannsson er
forsætisráðherra, Halldór Ás-
grimsson, sjávarútvegsráðherra,
Alexander Stefánsson, félagsmála-
ráðherra og Jón Helgason fer með
landbúnaðarmál ásamt dóms- og
kirkjumálum. - Eru þá taldir allir
ráðherrar Framsóknarflokksins.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
eru þessir: Geir Hallgrímsson,
utanríkisráðherra, Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra,
Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, Matthías Á.
Mathiesen, viðskiptaráðherra,
Sverrir Hermannsson, iðnaðar- og
orkumálaráðherra og Matthías
Bjarnason fer með heilbrigðis- og
tryggingarnál ásamt samgöngu -
málum.
Sjá 5
Hin nýja ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar tók síðan við
stjórnartaumunum eftir hádegið í
gær. í miðstjórn Framsóknar-
flokksins var stjórnarþátttaka í
hinni nýju ríkisstjórn samþykkt án
mótatkvæða á fundi í fyrrakvöld,
en í flokksráði Sjálfstæðisflokksins
6
Allt á sömu bók hjá
meirihluta
borgarstjórnar
Reykjavíkur. Sagt
frá málum á síðasta
fundi borgar-
stjórnar.
Einn kemur þá annar fer. Dr. Gunnar Thoroddsen afhenti Steingrími Hermannssyni forsjá
þjóðarbúsins í stjórnarráðinu í gær. Ljósm. Atli.
Tíu mánuðir frá 1.3. til 31. 12. 1983:
Verðlagið hækkar um 60%.
kaup um 12,3% á sama tíma
Þetta er 30% kauplækkun með leiftursókn
Þann 1. mars s.I. voru verð-
bætur á laun síðast greiddar út í
samræmi við kjarasamninga.
Samkvæmt boðaðri stefnu
hinnar nýju ríkisstjórnar, þá
mun framfærslukostnaður
hækka um nær 60% frá 1. mars
til ársloka, en á þessum sömu
tíu mánuðum á kaupið hins veg-
ar aðeins að hækka um 12,3% í
krónutölu.
Það er augljóst mál, að nái
þessi stefna ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar fram að
ganga, þá verður kaupmáttur
almennra launa um 30% lakari
við lok þessa árs heldur en tíu
mánuðum fyrr.
Og um kaupið fer ekkert milli
mála. Krónutala þess á aðeins að
hækka um 8% 1. júní og um 4% 1.
október, eða samtals um 12,3%, á
móti 60% hækkun verðlags.
Sú kjaraskerðing sem þarna er
boðið upp á er svo hrikaleg að við
fátt verður jafnað, og munar þá
litlu þótt bætt sé við kaupið þeim
skitnu 2 prósentum, sem fólk með
mánaðartekjur undir 9.581.- krón-
ur á að fá aukalega í skaðabætur!
framfærslukostnaður myndi hækka
frá upphafi til loka þessa árs miðað
við það sem fyrir liggur um áform
ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. -
Svarið var að þessi hækkun yrði um
80%, nema eitthvað óvænt kæmi
upp á.
Miðað við aðrar upplýsingar sem
fyrir liggja þá er ljóst að þetta þýðir
eins og áður sagði um 60% hækkun
framfærslukostnaðar á 10 mánuð-
um, frá 1. mars til áramóta.
Boðskapur ríkisstjórnarinnar er
stríðsyfirlýsing á hendur samtaka
launafólks, og felur í sér alvarleg-
ustu tilraun sem hér hefur verið
gerð um langt skeið til að breyta
tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu í
grundvallaratriðum alþýðu manna
í óhag.
k.
Sjá4
Ályktun miðstjórnar ASÍ
Afnám samningsréttar
Á miðstjórnarfundi Al-
þýðusambands íslands, sem
haldinn var í gær, var sam-
þykkt samhljóða eftirfarandi
ályktun:
„Ný ríkisstjórn er tekin við
völdum. Þær aðgerðir sem
hún hefur boðað sýnast að
meginefni snúast um afnám
samningsréttar um kaup og
kjör og kaupmáttarskerðingu
tvöfalt til þrefalt meiri en
nemur samdrætti þjóðartekna
síðastliðin tvö ár, Stefnt
virðist að því að um næstu
áramót verði kaupmáttur um
fjórðungi lakari en á síðasta
ári.
Ekki verður séð að mótuð
hafi verið samræmd atvinnu -
stefna, þannig að enn á ný er
kjaraskerðing eina svarið til
þjóðarinnar.
Verkalýðshreyfíngin mót-
mælir þessum aðgerðum
harðlega og miðstjórn AI-
þýðusambands íslands sam-
þykkir að boða til formanna-
ráðstefnú 6. júní næstkom-
andi.
Sjá viðtöl við
nokkra forystumenn
launafólks á baksíðu
Frá miðstjórnarfundi Alþýðusambands íslands sem hófst kl. 15 í gær
og lauk um kvöldmatarleytið. Það eru þau Kristín Mántyla, Guðjón
Jónsson og Ásmundur Stefánsson sem bera saman bækur sínar. Ljósm.
Atli