Þjóðviljinn - 27.05.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.05.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. maí 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagskonur athugið! Minnum ykkur á stofnfund Friðarhreyfingar íslenskra kvenna \ Norræna húsinu kl. 17.00 í dag, föstudag. Sænski þingmaðurinn Maj Britt Theorín flytur ræðu. Fjölmennið á stofnfundinn. Starfshópur ABR Kveðja Magnús Konráðsson Hinn 18. þessa mánaðar lést Magnús Konráðsson, rafvirkja- meistari, eftir harða baráttu við erfiðan sjúkdóm. Magnús var einn af aðalhvatamönnum að stofnun Samtaka gegn astma og ofnæmi og var kjörinn fyrsti formaður þeirra. Embætti formanns gegndi hann síðan fimm fyrstu árin eða frá 1974 til 1979. Sem aðalmerkisberi sam- takanna á fyrstu árum þeirra vann hann ötullega að málefnum astma- og ofnæmissjúklinga og byggði traustar undirstöður undir það starf sem samtökin inna af hendi í dag. Öll störf sín fyrir samtökin vann Magnús af miklum áhuga og sérstakri alúð og kom í örugga höfn mörgum brýnum málum öllum astma- og ofnæmissjúklingum til hagsbóta. Etir að Magnús lét af starfi for- manns, gegndi hann til dauðadags embætti formanns minningar- og styrktarsjóðs samtakanna. Með Magnúsi hafa samtökin misst mætan félaga og baráttumann og um leið og við þökkum honum frá- bær störf í þágu okkar, sendum við eftirlifandi eiginkonu og börnum innilegar samúðarkveðjur. Stjórn samtaka gegn astma- og ofnæmi. Ný og fersk Æska Barna- og unglingablaðið Æskan hefur tekið stakkaskiptum. Bæði hefur alit útlit blaðsins verið fært í nýtískulegri búning og eins hefur efnisvalið verið stokkað upp að verulegu leyti. í nýjasta tbl. Æskunnar eru við- töl við frægar barna- og unglinga- stjörnur fyrirferðamikil. í því sam- bandi nægir að telja upp viðtöl við Bubba Morthens, Ragnhildi Gísla, Línu langsokk, Ómar Ragnarsson og Björgvin Halldórsson. Af föstum þáttum í blaðinu má nefna: Ævintýr; sögur; Æskupóst; poppþátt; krossgátu; þrautir; leiki; skrýtlur o.m.fl. Þá stendur Æskan fyrir margvís- legum uppákomum, s.s. áskrif- endagetraun með glæsilegum vinn- ingum; Bókaklúbb Æskunnar, Æskuskemmtun þar sem hljóm- sveitir spila, ókeypis veitingar eru í boði, bingó o.m.fl. Æskan kemur út 9 sinnum á ári. Hún er 56 siður (nema jólablað. Það er 72 síður). Þar af eru 12 lit- síður. Gjafir tfl Færeyinga Við vígslu Norðurlandahússins í Færeyjum 8. þ.m. afhenti Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra, stofnuninni Ijósrit af Skarðsbók að gjöf. Þá skýrði hann frá þeirri ákvörð- un ríkisstjórnarinnar að veita 150 þúsund krónur á þessu ári til efling- ar menningarsamstarfi íslendinga og Færeyinga. Myndi verða lagt til við Alþingi að framvegis yrði ár- Stóra ferðahappdrættið Gerið skil sem aílra fyrst. Hægt er að greiða gíróseðla í öllum bönkum og póst- húsum. Rauður: þríhymingur =Viðvörun Gera aukaverkanir lyfsins sem þú tekur þig hættulegan í umferðinni? yu^FEHOAR Ibúar í Vesturbæ syðri lega í fjárlögum tilsvarandi fjár- hæð. Hluta af þessu fé á að verja til að styrkja færeyskan námsmann til háskólanáms á íslandi en að öðru leyti til að efla samskipti milli ís- lands og Færeyja á sviði myndlist- ar, leiklistar, tónlistar o.fl. Landstjórn Færeyja og forráða- menn Norðurlandahússins í Fær- eyjum munu gera tillögur um ráð- stöfun fjárhæðarinnar. Fjöru- hreinsun Laugardaginn 28. maí munu íbúasamtök Vesturbæjar syðri gangast fyrir hreinsun í hverfinu, þar sem lausu rusli, sem safnast hefur saman í vetur í fjörunni fram af Ægisíðu, Sörlaskjóli og Faxa- skjóli, svo og á opnum svæðum í hverfinu, verður safnað saman og því ekið á hauga. Borgin mun ileggja til ruslapoka, sem menn geta tekið eftir hádegi á laugardaginn við þrjár verslanir í hverfinu, KRON við Dunhaga, Melabúð og Skjólakjör. Pokana, svo og annað rusl, má svo skilja eftir við gang- stéttarbrún og mun hreinsunar- deild borgarinnar sjá um af- ganginn. I frétt frá samtökunum segir m.a.: „íbúasamtök Vesturbæjar syðri taka til hverfanna sunnan Hring- brautar, frá Eiðsgranda austur að Vatnsmýri. Tilgangur samtakanna er að leita samstarfs við og aðstoða bæjaryfirvöld í þeim málum, sem þessi hverfi varða. Upphaflegt bar- áttumál samtakanna, verndun fjör- unnar við Ægisíðu, Sörla- og Faxa- skjól, er ennþá ókomið í höfn; að vísu tókst að forða því að fjaran yrði gerð að losunarstað fyrir mold úr húsagrunnum á Eiðsgranda, en hins vegar er ógengið frá formlegri friðlýsingu hennar og frárennsli- mál eru ennþá í ólestri: þar eru mörg skolpræsi alltof stutt, sem veldur því að fjaran er talin heilsuspillandi og óæskilegur leikvangur fyrir börn. Þessi fjara er hin eina á allri strandlengju Reykjavíkur sem ósnortin er að mestu, og ríður á að vernda hana og gera að þeirri paradís útivistar og náttúruskoðunar sem margir borgarbúar erlendis mundu aka tugi km til að njóta á fögrum degi. í sumar hyggjast samtökin standa fyrir gönguferðum um fjöruna með leiðsögn náttúrufróðra manna um jarðfræði, fugla- og smádýralíf“. Leikfélag Reykjavíkur í 50. skipti í kvöld (föstudagskvöld) og á sunnudagskvöld verða sýningar hjá Leikfélaginu á hinu nýja leikriti Per OIov Enquist ÚR LÍFIÁNAM- AÐKANNA en leikritið hefur vakið mikla athygli hér sem annars stað- ar. Aðalpersónurnar eru ævintýra- skáldið H.C. Andersen og leikkon- an Jóhanna Lovísa Heiberg. Þau eru leikin af Þorsteini Gunnarssyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur. Sýn- ing Leikfélagsins hefur hlotið ágæt- ar umsagnir, var í gagnrýni sögð „einn mesti viðburður þessa leikárs...“ „metnaðarfull og vönd- uð“ og leikararnir þykja skila hlut- verkum sínum afbragðsvel. Auk Þorsteins og Guðrúnar leika þau Steindór Hjörleifsson og Margrét Olafsdóttir en leikstjóri er Haukur J. Gunnarsson. Á laugardagskvöldið er 50. sýn- ing á leikriti Kjartans Ragnars- sonar SKILNAÐI og eru nú aðeins eftir örfáar sýningar á verkinu. Þar eru Guðrún Ásmundsdóttir, Soffía Jakoþsdóttir, Valgerður Dan, Aðalsteinn Bergdal, Jón Hjartar- son og Sigrún Edda Björgvinsdóttir í hlutverkum.en leikstjóri er Kjart- an Ragnarsson. Á laugardagskvöld er enn ein miðnætursýning á HASSINU HENNAR MOMMU eftir Dario Fo en ekkert lát er á aðsókn þessa verks. Trúlega verður ekki unnt að hafa nema eina til tvær sýningar í viðbót. Gísli Halldórsson og Mar- grét Ólafsdóttir eru þar í stærstu hlutverkum. Punktakerfið afnumið Sérgæðingshátturmn tekur aftur við - Nú tekur sérgæðishátturinn aftur við í lóðaúthlutun Reykjavík- urborgar, sagði Sigurjón Pétursson á síðasta fundi borgarstjórnar, þegar punktakerfíð við ióðaúthlut- un var aflagt. Sigurjón Pétursson sagði að regl- urnar um punktakerfið hefðu reynst gallaðar og öðru hvoru hefði þurft að gera undanþágur frá þeim í borgarráði. Þó væri það nú svo, að jafnvel gallaðar reglur væru skárri heldur en þau kunningjasambönd sem hefðu ráðið lóðaúthlutun áður fyrri og íhaldið vildi nú taka aftur upp. Davíð Oddsson sagði að afnám punktakerfisins væri áfangi í frjáls- ræðishátt. Nýju reglurnar væru ekki jafn flóknar og þær gömlu, enda hefði þurft að breyta þeim á hverju ári. Punktakerfið hefði ekki gert annað en taka ábyrgð af borg- arfulltrúum, sem þeir vel risu undir. Guðrún Jónsdóttir sagði að punktakerfið hefði verið gallað. En meðal þeirra breytinga sem gerðar væru á lóðaúthlutun væri slíkar, sem fælu í sér greiðslu á gatna- og holræsagerð langt fram í tfmann. Auðsætt væri að þær nægðu ekki fyrir framkvæmdum við ný hverfi. Það þýddi svo í fram- tíðinni að skorið yrði niður annars staðar og ef meirihlutinn væri sjálf- um sér líkur myndi niðurskurður bitna fyrst og fremst á félagsmálag- eiranum. Voru síðan nýju reglurn- ar samþykktar með 12 atkvæðum gegn 5. -óg Undanþága um að leyfa bifreiðastöður á gangstéttum Gengið á rétt gangandi fólks Með þessari undanþáguheimild er gengið á rétt gangandi vegfar- enda sagði Guðrún Jónsdóttir á síðasta fundi borgarstjórnar er ver- ið var að ræða breytingar á lög- reglusamþykkt Reykjavíkur, þar- sem veitt undanþáguheimild frá banni við að leggja ökutækjum á gangstétt. Guðrún Jónsdóttir borgarfull- trúi Kvennaframboðs gagnrýndi harkalega þessa breytingartillögu. Benti hún á að á einum stað í borg- inni hefði undanþága verið leyfð frá reglunni, við Landakotsspítala og væri einsog fleiri væru á leiðinni. Þessi breyting fæli í sér mikla hættu fyrir börn og hjólreiðafólk, fyrir fólk með barnavagna sem kæmist ekki eftir gangstéttum leiðar sinnar og fyrir blinda og sjóndapra. Áður hefðu hjólreiðar verði leyfðar á gangstéttum sjálfsagt til að spara gerð hjólreiðabrauta. Venjan væri sú að allt væri til sparað fyrir gang- andi vegfarendur á meðan einka- bfllinn nyti forgangs í öllu tilliti. Undanþáguheimildin væri á sömu nótum, hún væri ódýr lausn á kostnað gangandi fólks. Lagði Guðrún fram bókun frá fulltrúum Kvennaframboðsins þar- sem auk ofanritaðs kemur fram að réttara sé að leysa umferðaröng- þveiti borgarinnar með öðrum hætti svo sem með bættri og ódýr- ari aímenningsvagnaþjónustu. Var málinu svo vísað til 2. umræðu. -óg Náttúruvernd fær litla náð___ Misskflið upphlaup Sagði borgarstjórinn í Reykjavík Þetta er misskilið upphlaup sagði borgarstjórinn í Reykjavík um þá athugasemd borgarfulltrúa minnihluta, að ekki hefði verið haft samband við Náttúruverndarráð vegna framkvæmda við Grafarvog. Grafarvogur er á náttúruminja- skrá. Sigurjón Pétursson benti á að Grafarvogur væri á náttúruminja- skrá og að honum væri nær að halda að þessi framkvæmd væri lögbrot. Hafði Sigurjón ásamt Guðrúnu Jónsdóttur mælt með því í borgarráði að borgarverkfræðingi væri falið að hafa náið samráð með Náttúruverndarráði um þessar framkvæmdir með það fyrir augum að vernda lífríki vogarins einsog föng eru á. Þessi tillaga Guðrúnar og Sigurjóns fékk engan stuðning Sjálfstæðismanna í borgarráði sem létu bóka að Náttúruvemdarráð hefði fengið upplýsingar um „meg- inframkvæmdir tengdar nýju skipulagi". Sigurjón kallaði þessa afgreiðslu slys í borgarráði og bað borgarstjórn endurskoða þessa af- stöðu með því að styðja tillögu um náið samráð við Náttúruverndar- ráð. Davíð Oddsson sagði að hér væri um misskilið upphlaup að ræða. Það hefði verið haft samband við Náttúruverndarráð um þessar framkvæmdir hins vegar væri engin ástæða til þess að hafa samband við ráðið í hverju tilviki. Stjórnarandstaðan í borgar- stjórn lýsti sig samþykka tillögu Sigurjóns og vitnuðu menn til bréfs Náttúruverndarráðs þar um. Hefði borgarverkfræðingur þurft að kalla á fulltrúa Náttúruverndarráðs til að fylgjast með framkvæmdum þessum ef fylgt væri laganna hljóðan. Tillaga Sigurjóns um frestun og samráð var felld með hjásetu Sjálfstæðisflokksins í borg- arstjórn. - óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.