Þjóðviljinn - 27.05.1983, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 27.05.1983, Qupperneq 15
Föstudagur 27. mai 1983 ÞJÓÐYILJINN - SÍÐA 15 RUV 0 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orö: Bernharður Guðmundsson talar 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Laxa- börnin", eftir R.N. Stewart þýðandi: Eyjólfur Eyjólfsson. Guðrún Birna Hann- esdóttir lýkur lestrinum (5). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagb. (útdr.). 10.35 „Það er svo margt að minnast á“ Torfi Magnússon sér um þáttinn. 11.05 „Ég man þá tfð Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.35 Frá norðurlöndum Umsjónarmaður: Borgþór Kjærnested. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Á frívaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 „Gott land“ eftir Pearl S. Buck Magnús Ásgeirsson og Magnús Magnus- son þýddu. Kristín Anna Þórarinsdóttir les (9) 15.00 Miðdegistónleikar 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Útvarpssaga barnanna: Sögur frá æskuárum frægra manna eftir Ada Hensel og P. Falk Rönne. „Örninn í Pyreneafjöllum" saga um Jean Bapt- iste Bernadotte Ástráður Sigurstein- dórsson les þýðingu sína (18). 16.40 Litli barnatfminn Stjórnandi: Gréta Ólafsdóttir (RÚVAK). 17.00 Með á nótunum Létt tónlist og leið- beiningar til vegfarenda. Umsjónarmenn: Ragnheiður Davíðsdóttir og Tryggvi Jakobsson. 17.30 Nýtt undir nálinni Kristín Björg Þor- steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljóm- plötur. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor- oddsen kynnir. 20.40 Kvöldtónleikar 21.40 „Hve létt og lipurt“ Sjötti þáttur Höskuldar Skagfjörð 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Órlagaglfma" eftir Guðmund L. Friðfinnsson Höfundur les (19). 23.00 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónassonar 00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Á næturvaktinni Sigmar B. Hauks- son - Ása Jóhannesdóttir. 03.00 Dagskrárlok Þættir Borgþórs Kjærnested í útvarpinu, „Frá Norðurlöndum" hafa vakið óskipta athygli þeirra, sem hlustað hafa. Þeir eru afskaplega fróðlegir og skemmtilegir áheyrnar. Þarna er drepið á ótalmörgu í fari og menningu nágrannaþjóða okk- ar og Borgþór kynnir ótal margt fólk og hefur við það viðtöl. Þættir þessir eru á föstudags- morgnum klukkan 11.30. fr ncflum RUV 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.50 Steini og Olli Mannelska geitin Skopmyndasyrpa með Stan Laurel og Oliver Hardy. 21.15 Umræðuþáttur 22.10 Horfnu miljónirnar (Wheeler and Murdoch) Bandarísk sakamálamynd frá 1970. Leikstjóri: Joseph Sargent. Aðal- hlutverk: Jack Warden, Christopher Stone og Van Johnson. Tveir einkaspæj- arar grafast fyrir um mafíumorð og mil- jónarán. Þýðandi Heba Júlíusdóttjr. 23.25 Dagskrárlok Fallkandídat í ráðherra- stól Áhugasamur lesandi hringdi: Hann vildi varpa þeirri spurn- ingu til formanns Sjálfstæðis- flokksins, stjómarformanns í Árvakri og hins nýja utanríkis- ráðherra, en þessum embættum gegnir einn og sami maðurinn Geir Hallgrímsson, hvort hann teldi það virkilega í anda lýðræðisins að maður sem þjóðin hefði hafnað settist nú í ráðherra- sæti. Hvort er nú lýðræðislegra að fela fallkandídatnum frá síð- ustu alþingiskosningum ráð- herraembætti eða Svavari Gest- ssyni umboð til stjórnarmynd- unar? Um sorphreinsun borgarinnar: Er fólki mismunað eftir hverfum? Reiður iesandi skrifar: Þad er margt rætt og ritad um svokallaða stéttskiptingu hér á landi og sýnist sitt hverjum. „Hér hafa það allir svo gott,“ segja sumir og strjúka sólbrúna vel- megunarístruna af velþóknun, en sjá ekki eda vilja ekki sjá lífskjaramuninn sem hér er. Og það er kannski ekki von að velmegunarfólkið sjái flísina í augum landsins, því fólk á einka- bílum sér aldrei neitt. Ef það tæki t.d. einhvern tíma strætó sæi það, bara á klæðaburði fólks, að hér búa margar stéttir. Einu merki stéttaskiptingar langar mig til að koma á framfæri - og jafnvel fá einhver svör við hjá bæjaryfirvöldum ef þau nenna þá að svara. Það mál varðar sorphreinsunardeild borg- arinnar. Þannig er, að ég hef sem Ieigjandi þurft að flytja æði oft undanfarin ár og hef þá búið í mismunandi hverfum borgarinn- ar, fínum sem ófínum. Og það hefur vakið athygli mína, að sorphreinsunarbflar borgarinnar koma á mjög mismunandi tímum í hin ýmsu hverfi. Þannig koma bflarnir í Breiðholtshverfin um áttaleytið á morgnana. í miðbæinn, þar scm ég bjó um skeið, komu þeir upp- úr sjö. En í fínni hverfum'eins og Hlíðunumog á Högunum komu þeir ekki fyrr en uppúr klukkan níu eða síðar. Fína fólkið býr ekki á miðbæj- arsvæðinu né heldur í blokkunum í Breiðholtinu. ófínna fólkið býr ekki í Hlíðunum eða á Högunum. Nú er það svo, að þessum sorp- hreinsunaraðgerðum fylgir ansi mikill skarkali og því hætt við að fólk hrökkvi af værum blundi þegar hreinsunarmenn eru á ferð (því má vel bæta við, að hávaðinn frá þeim er oft skelfilegur og ár- eiðanlega meiri en nauðsyn þyrfti að vera).. Mér segir svo hugur um, að hér sé á ferðinni dæmi um skipulagningu að ofan, þ.e.a.s. raskið ekki ró góðborgaranna fyrr en þeir hafa silast á sínar breiðu fætur sjálfir. Látið almúg- ann hafa það. Eða er þetta bara tilviljun? Ég held hreint ekki, en myndi fagna svari frá viðkomandi yfirvöldum. Hilmar Magnússon, yfirverkstjóri: Fólki ekki mismunað eftir hverfum „Er fólki mismunað eftir hverf- um?“ spurði „reiður lesandi" í blaðinu miðvikudaginn 25. maí. Þar er vikið nokkuð að sorp- hreinsun í Reykjavík og spurt, hvort skipulagt sé af yfirvöldum á hvaða tíma dags sorphreinsunar- bílarnir komi í tiltekin hverfi borgarinnar. Við höfðum samband við Hilmar Magnússon, yfirverk- stjóra sorphreinsunardeildar Reykjavíkurborgar vegna bréfs þessa. Hilmar kvað enga skipu- lagningu vera hvað tímann varðaði hvenær sorphreinsunar- bílar kæmu í tiltekin hverfi. 10 flokkar sjá um að hreinsa borgina og byrja þeir ætíð klukkan 7 á morgnana og hefur hver flokkur viku til þess að fara yfir sitt svæði. Flokkarnir byrjuðu að morgni þar sem þeir hættu að kvöldi. Nokkuð misjafnt væri hversu fljótir þeir væru, þannig það gæti hreyst nokkuð til hvenær þeir kæmu í hverfin. Það er nú það. Gaman væri að heyra í fleiri lesendum um mál þetta. barnahorn Föndur Hér sjáið þið hvernig þið getið teiknað skemmtilegar myndir hvort af öðru. Þið límið teiknipappírsörk á vegginn í hæfi- legri hæð, síðan sest sá sem teikna á við teiknipappírinn eins og myndin sýnir. Lampa er stillt upp við hliðina á fyrirsæt- unni. Nú er aðeins eftir að teikna, og það ætti ekki að vera vandasamt. Sá sem sit- ur fyrir verður auðvitað að vera graf- kyrr. Góða skemmtun. Hér kemur annar teiknileikur og er hann öllu vandasamari, en með góðri æfingu ættuð þið að geta gert margar og skemmtilegar myndir. Þið látið kunn- ingja ykkar hafa blað og blýant og segið honum að teikna óregluleg strik og bogalínur. Síðan eigið þið að halda áfram með teikninguna og búa til myndir úr strikunum. Þetta verður auðvitað erf- itt til að byrja með en smám saman kom- ist þið upp.á lag með þetta. Hér á mynd- inni sjáið þið nokkur dæmi um þennan leik. Var ekki svangur Eftirfarandi samtal átti sér stað milli lítils drengs og móður hans: Mamma, af hverju viltu ekki leika við mig? Ég hef ekki tíma til þess, væni minn. Af hverju hefurðu ekki tíma til þess? Ég þarf að vinna. Af hverju þarftu að vinna? Til þess að fá peninga. Hvers vegna þarftu að fá peninga? Til þess að geta keypt mat handa þér. Þögn. Ég er ekkert svangur. Spýturnar • • • sjo Faðir nokkur átti sjö sonu, og kom þeim illa saman. Þras þeirra og rifrildi gerði þá hirðulausa um það sem þeir áttu að gera. Faðir þeirra, sem var mesti heiðursmaður, hafði lengi tekið eftir þessu, og fékk það hon- um áhyggju. Einn dag kallar hann þá alla á fund sinn og leggur fyrir þá sjö spýtur, fast- lega samanbundnar í knippi og segir: „Hverj- um ykkar, sem getur mölvað þetta spýtu- knippi í sundur, skal ég gefa hundrað ríkis- dali.“ Bræðurnir þreyttu nú á þessu aflsmuni sína, hver eftir annan, en allir jafnt fyrir gýg: „Það er bráðómögulegt", sögðu þeir allir. „Nei, ónei“, sagði faðirinn, „ekkert er auðveldara“. Þá leysti hann sundur knippið og mölvaði síðan hæglega hverja spýtuna eftir aðra. „Já með þessu móti“, gullu við allir synirnir, „þá er það reyndar hægðarleikur þetta getur hvert barn gert“. En faðirinn tók þannig til orða: „Svona fór nú með spýturnar synir mínir, en gætið þess að ekki fari eins fyrir ykkur, því hér er líkt; komið. Svo lengi sem þið eruð sáttir og hald ið hóp sem einn maður, mun enginn yfirbuga ykkur, en ef einingarbandið slitnar, sem á að halda ykkur saman, þá munuð þið fá sömu afdrifin eins og þessar spýtur, sem liggja hér brotnar fyrir fótum okkar. (Úr Lestrarbók Þórarins Böðvarssonar).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.