Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 27
tíeíéi'n' 2éiV-2é; júní1 lí>83 Í<j6ÐVÍl;jlNN A'SÍÐÁ'27 Álviðræðurnar Kynning á sérþekkingu a sviði jarðhita- rannsókna Verkfræðiþjónustan Virkir hf. og aðiidarstofur fyrirtækisins í samvinnu við Orkustofnun munu í næstu viku halda fund í Alþjóða- bankanum í Washington um jarð- hitamál. Viðskiptaráðuneytið og liðnaðarráðuneytið hafa auk Gunnlaugs Sigmundssonar hjá Norðurlandsskrifstofu Alþjóða- bankans hafa veitt aðstoð við undirbúnings fundarins, en ætlunin er að kynna fyrir sérfræðingum bankans þá þekkingu og reynslu sem fyrirtækið hefur í sambandi við beisiun og nýtingu jarðhita. Fimm íslenskir sérfræðingar munu flytja erindi á fundinum, en reynslan hef- ur sýnt að öflug kynningarstarf- semi er nauðsynleg við öflun verk- efna fyrir íslenska ráðgjafarþjón- ustu erlendis. Ekkert markvert gerðist á fundi hinnar nýju samninga- nefndar um stóriðju með full- trúum Alusuisse í gær. Á fund- inum var rætt um það hvernig viðræðum skuli haldið áfram, „prócessinn“ eins og einn viðræðumanna orðaði það. Engin tiiboð komu fram af hálfu Alusuisse um efnisatriði deilunnar, hvorki að því er varðar raforkuverð og stækkun álversins, né deiluna um skatta fyrirtækisins. En Alusuisse heldur fast við kröfuna um stækkun álversins. Iðnaðarráðherra tók ekki þátt í hinum formlegu viðræðum í dag, en hitti fulitrúa Alusuisse hinsveg- ar í einkasamkvæmi á vegum Jó- hannesar Nordai, formanns ál- viðræðunefndar. Eina ákvörðunin sem fundurinn tók, var að halda næsta samninga- fund í Reykjavík 21. og 22. júlí. I samninganefnd um stóriðju sitja þeir Jóhannes Nordal, Seðla- bankastjóri, Guðmundur G. Fór- arinsson og Gunnar G. Schram. Enginn fulltrúi stjórnarandstöðu fær að fylgjast með gangi mála. Meó þeim þremenningum sátu fundinn þeir Páll Flygering ráðu- neytisstjóri og Garðar Ingvarsson, sem er ritari nefndarinnar. Með þeim Alusuisse doktorun- um Múller og Ernst, sátu fundinn fyrir hönd Alusuisse þeir Ragnar Halldórsson og Halldór H. Jónsson. Hvorki iðnaðarráðherra né aðrir þeir sem talað var við vildu láta neitt eftir sér hafa um efnislegar viðræður við Alusuisse. eng. Ferðaskrifstofa svipt leyfi setti ekki fullnægjandi bankatryggingu fyrir rekstrinum Matthías Bjarnason samgöngu- ráðherra afturkallaði síðastliðinn flmmtudag ferðaskrifstofuleyfið af ferðaskrifstofunni Olympó hf. I bréfi sem fjölmiðlum barst frá ráðuneytinu er ástæðantilgreindsú að Olympó hafi ekki sett fullnægj- andi bankatryggingu fyrir rekstr- inum, en sú upphæð er sam- kvæmt ákvörðun ráðuneytisins 800 þús. krónur. Kristján Guðlaugsson annar tveggja framkvæmdastjóra Olym- pó hf. sagði í samtali við Pjóðvilj- ann í gær að þessi ákvörðun sam- gönguráðherra hefði komið á övart þar sem verið sé að ganga frá trygg- ingum. Hann viðurkenndi aödreg- ist hefði úr hömlu að greiöa trygg- ingarnar en kvaöst eiga von á því að ákvörðun ráöherra gengi til baka þar sem Olympó heföi tekist að safna fyrir tryggingum. Kristján sagöi aö fyrst urn sinn a.m.k. heföi afturköllun ráöherra engin áhrif á feröir viðskiptavina skrifstofunnar og ferðaskrifstofan gætu haldið áfram aö selja farmiöa í umboðs- sölu. - hól. frá Guðmundur G. Þórarinsson, sem sagði sig úr fyrri álviðræðunefnd með dramatískum hætti, er aftur kominn á kreik í viðræður við Alusuisse. Virðist fara vel á með þeim Guðmundi og Paul Múller. SKALHOLTSSKOLI Alusuisse í samtali við Þjóðviljinn sagði iðnaðarráðherra, að efnislega væri ekkert unt máliö að segja á þessu stigi, og aðspurður um það áhuga- mál sitt að taka skattamálið úr gerðardómi, sagði hann: „Þeir vís- uðu málinu í gerð, það er þeirra að taka það þaðan", og átti þar við Alusuisse. I fréttatilkynningu frá iðnaðar- ráðuneytinu eftir fundinn segir að þar hafi verið rædd þau deiluefni „sem lúta að álmálinu og hugsan- lega endurskoðun álsamninganna. Hér var fyrst og fremst um könnun- arviðræður aö ræða, sem tóku til allra aðalþátta málsins", segir í til- kynnirtgunni. i ALMENNT KJARNANÁM Hringdu í síma 91-15015 og fáðu upplýsingar um skólann. Umsóknarfrestur um skólavist er til 10. júlí. FJOLMIÐLABRAUT LEIÐTOGABRAUT MYNDMENNTABRAUT Engin tilboð Næsti fundur verður 21. júlí

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.