Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 21
Helgin 25.-26. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 sHáH Urslit Evrópumótsins hefjast í lok mánaðarins Um þessar mundir eru að heijast í Búlgaríu úrslit Evrópukeppni iandsliða í skák. íslendingar tóku sem kunnugt er þátt í Evrópu- keppninni í fyrsta sinn í fyrra og stóðu sig vel, (við sigruðum Svía 9:7 og töpuðum naumlega fyrir Englendingum 7'A:8'/2,) þegar þess er gætt að þarna eru á ferðinni tvær af toppþjóðunum frá síðasta Olym- píumóti. í Búlgaríu má gera ráð fyrir að Sovétmenn vinni enn einn sigurinn. Á tveim síðustu mótum hafa þeir verið algerlega einráðir enda lið þeirra skipað öflugum stórmeistara á hverju borði. Það kann að setja strik í reikninginn að Harry Kasparov verður ekki með nú vcgna einvígisins við Kortsnoj. Að öðru leyti munu tefla Karpov heimsmcistari, Petrosjan, Poluga- jevskí, Tukmakov, Geller, Balas- hov, Beljavskí, Tal, Yusupov og Vaganian. Sveit þessi er sannarlega ekki árennileg og má telja víst að hún beri sigur úr býtum. Ungverjar hafa undanfarin ár veitt Sovét- mönnum harða kcppni, en þeir tella án Zoltan Ribli, sem hefur öðrum hnöppum að hneppa, þar sem er einvígi hans við Smyslov. Ungverjar eiga mörgum góðum skákmönnum á að skipa, cn gallinn er sá að fyrir hvern einn stór- meistara geta Sovétmenn stillt upp þremur til mótvægis. Aðrar hættulegar þjóðir eru Englendingar og Júgóslavar sem hafa innan sinna vébanda harðskeytta sveit skákmanna. Aðrar sveitir koma vart til greina en það hlýtur að gleðja margan aðdáanda Bents Larsens að sjá hann að tafli í eitt af sárafáum skiptum sem hann fæst til að tefla fyrir þjóð sína. Hann átti ekki svo lítinn þátt í því að koma Dönum áfram á kostnað geysisterkrar skákþjóðar - Tékka. Mikhael Tal á fast sæti í sovéska liðinu og þarf engan að undra. Það kom þó sú tíð að Tal var ekki talinn gjaldgengur í sovéska ólympíuliðið en nú efast enginn um stöðu hans í liðinu. Tal hefur átt við heilsubrest að stríða undanfarið og varð af þeim sökum að hætta keppni á Sovéska meistaramótinu í apríl síðast- liðnum. Að meistaramótinu slepptu hefur hann staðið sig ágæta vel og sigrað á þrem alþjóðlegum mótum með stuttu millibili. Þá stóð hann vel fyrir sínu í Ólympíusveit Sovétmenna. Eina afbragðsvel- teflda skák af hans hálfu rakst sá sem þessar línur ritar á fyrir nokkr- um dögum. Tal á í höggi við einn öflugasta stórmeistara Sovét- manna, skákmann sem fyrir 5-6 árum var talinn hugsanlegur arf- taki Karpovs heimsmeistara, en síðan dró ský fyrir sólu: Umsjón Helgi Olafsson Teflt á alþjóðlega skákmótinu í Sochi 1982. Hvítt: Mikhael Tal Svart: Oleg Romanishin Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. RO e6 3. Rc3 Rc6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 aó 6. Be2 Rge7 (Mark Taimanov, sovéski stór- meistarinn hvort sem er í skák eða píanóleik, er upphafsmaðurinn að þessari leikaðferð. Svartur undir- býr uppskipti á d4 og síðan tekur hinn riddarinn sér stöðu á c6. í sumum tilvikum getur riddarinn farið til g6). 7. 0-0 Rxd4 8. Dxd4 Rc6 » 9. Dd3!? (Áður hefur verið leikði 9. De3. í aths. sínum tilfærir Tal dæmi úr skák G^llers (hvítt) gegn þessum sama Romanishin. Þar varð fram- haldið. 9. - Be7 10. Dg3 0-0 11. Bh6 Bf6 12. Hadl Db6 13. Bf4 g6 14. Bd6 He8 15. e5! og dagar svarts eru brátt taldir. En möguleikar á endurbótum eru alltaf fyrir hendi. Þannig má í stað 9. - Be7 reyna 9. - Dc7 eða 9. - Bd6.) 9. .. Dc7 10. Bg5 h6 11. Bh4 (Biskupinn virðist ekki útrétta mikið á h4, en hann hefur þó allt- ént framkallað veikingu í kóngs- stöðu svarts. Að auki á hann sök á vissum liðsskipunarvandamálum sem svartur á við að stríða.) íbúð óskast Á ekki einhver 2ja-3ja herb. íbúö sem hann vill leigja pari utan af landi. Erum meö eitt barn og annað okkar er í námi. Helst þurfum viö íbúö til 2ja ára frá 1. sept. Getum borgaö sanngjarna leigu. Velunnarar hringi í síma 39342 og fái upplýsingar hjá Maríu. PÓST- OG SfMAMÁLASTOFNUNIN Tilkynning til símnotenda Á blaðsíðu 458 í símaskrá 1983 hefur mis- prentast svæðisnúmer símstöðvarinnar Vogar Vatnsleysustrandarhreppi. Svæðisnúmerið er92 ekki 99. Vinsamlegast skrifið inná blaðsíðu 458 svæðisnúmer 92 í stað 99. Pöst- og símamálastofnunin. 11. .. Re5 (Eftir 11,- Bd6 á hvítur svarið 12. Dh3.) 12. Dd2 Dd6 13. Dcl! (Tal gefur þessurn leik upphróp- unarmerki enda á hann það fylíi- lega skilið. Hvítur býr um sig að baki víglínunnar og er þess albúinn að láta til skarar skríða við hentugt tækifæri) Við fyrstu sýn virðist hann eiga hagstæða leið: 13. Dxd6 Bxd6 14. Hadl Bc7 15. f4 Rc6 16. e5 o.s.frv. en þegar betur er að gáð á svartur ýmislegt í fórum sínum s.s. eins og leikinn 15. - g5!, í stað 15. Rc6, og ef 16. fxg5 þá 16. Rg6 með góðri stöðu.) 13. .. Dc5 (Hindrar 14. f4 en hvítur á sára- einfalt svar.) 14. Khl (Nú er hvítum ekkert að vanbún- aði. Hinum hógværa fótgönguliða. f2-peðinu skal hleypt af stað.) 14. - Rg6 ' (Ekki 14. - g5 15. Bg3 d6 vegna 16. Bh5! ásamt - f4 við tækifæri.) 15. Bg3 Be7 16. f4 0-0 (16. - d6 kom til greina en hvítur á framhaldið 17. e5 dxe5 18. Re4 o.s.frv.) 17. e5 (I góðu hófi geta menn stilít upp stöðunni og spurt sig: Hversvegna lék hvítur ekki 17. f5! Re5 18. f6! Bxf6 19. Hxf6 gxfó 20. Bh4! De7 21. Dxh6 Rg6 22. e5! og vinnur. Tal hefur áreiðanlega velt þessum möguleika vel fyrir sér og hitt á vörnina 17. - Bg5, í stað 17. - Re5. Eftir 18. Ddl Re5 19. Rd5! exd5 20. Bxe5 virðist svartur eiga við mikla erfiðleika að stríða, en hann heldur þó teflanlegri stöðu með 20. - dxe4! 21. Bd6 Dc6, því eftir 22. Bxf8 Kxf8 má svartur allvel við una. En hvítur þarf ekki að taka skiptamuninn; hann getur leikið 22. f6! Bxf6 23. Hxf6 gxf6 24. Dd4 með myljandi sókn. Fyrir aldar- fjórðungi hefði Tal ekki látið segja sér tvisvar og vaðið út í flækjurnar. En með aldrinum gerast menn íhaldssamir og þeim svíður undan tapi, þeir svo mikið sem peði. Leið Talseröruggog.tryggir honum áframhaldandi yfirburðastöðu.) 17. - b5 18. Rc4 Db6 19. Bd3 (Hvítum hefur á augabragði tek- ist að skipa liði sínu í áhrifastöður.) 19. .. Bb7 20. Ddl Hac8 21. De2 (Hvassara var 21. Dh5 strax.) 21. .. Bd5 22. b3 Dc6 23. Hael Bb4 24. Hdl Be7 25. Rd2 Dc3 26. Bel Db2 27. Re4 (Með drottninguna á herkví á b2 heldur riddarinn sigri hrósandi til baka. Svartur getur ekki leikið 27. - Dxa2 vegna 28. Rc3 og vinnur.) 27. .. Da3 28. Dh5 Hc6 29. Rf6+! (Þetta sjá nú allir, gæti einhver sagt. En kúnstin liggur í því að fá svona stöður upp.) Efstuborðsmenn sigurstranglegustu sveitanna í úrslitum Evrópumótsins sem hefst innan skamms í Búlgaríu. Karpov, Ljubojevic, Portisch og Miles. 29. .. Bxf6 (Eða 29. - gxf6 30. Bxg6 Kg7 (30. - fxg6 31. Dxg6+ Kh8 32. Dxh6+ Kg8 33. Dg6+ Kh8 34. Hd3 og mátar) 31. f5 Hxc2 32. Hxd5! edx5 33. Bxt7 Hxf7 34. e6! dxe6 35. Dg6+ Kf8 36. fxe6 og vinnur. Takið eftir að með 36. fxe6 opnaðist leið hvítur drottningar- innar að hróknum á c2.) 30. exf6 Db2 31. 15! exf5 32. Bxf5 Hxf6? (Hroðalegur leikur í tapaðri stöðu. Svartur gat barist eitthvað áfram með 32. - Be6 og hafi hann á annað borð ætlaö að gefa manninn var ntun betra aö leika fyrst 32. - Bxg2- 33. Kxg2 Hxf6 o.s.frv.) 33. Hxd5 Re7" 34. Hc5 Rxf5 35. Hcxf5 g6 36. Dg4 Hxf5 37. Hxf5 Hc8 38. Hfl Dcl 39. Dg3 Dxc2 40. DD! - Svartur gafst upp. Tjaldbúöir Geithálsi v/Suðurlandsveg, simi 44392. TRÍÓ-tjald er trygging fyrir góðum fjölskylduferðum um mörg ókomin ár. TRÍO-tjalddúkurinn er umfram allt vatnsheldur, litsterkur og þéttur. TRÍÓ-tjaldstengurnar eru úr léttu stáli og þola sitt af hverju. Það sýnir átta ára reynsla á Islandi. 5 stærðir TRÍÓ-hústjalda. Verð frá kr. 10.500,- 5 manna tjald með himni kr. 5.700.- Tjaldstólar frá kr. 205.- Tjaldbekkir kr. 640.- Svalastólar úr áli og stáli kr. 280.- SENDUM UM LAND ALLT Auglýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.