Þjóðviljinn - 19.07.1983, Blaðsíða 2
• 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, Þriðjudagur 19. júlí 1983
Skák
Karpov að tafli - 170
Karpov mætti Spánverjanum Mart-
in í 10. umferð skákmótsins í Las
Palmas. Hann var þá með 8 vinninga
af 9 mögulegumj Eftir að hafa byggt
upp vænlega sóknarstöðu lét
heimsmeistarinn til skarar skríða í
þessari stööu:
Karpov - Martin.
27. Bxf6! gxf6
28. Rgcf6+ Bxf6
29. Rxf6+ Kf8
30. fxg6 hxg6
31. Dg4 Df7
32. Dxg6 Rce5
33. Rh7+!
- Svartur gafst upp. Einfaldast eftir
33. - Ke7 er 34. Rg5! t.d. 34. - Rxg6
35. Hxf7+ Kd8 36. Hxd6+ og mát í
næsta leik.
Bridge
*
Landslið okkar hélt utan um síð-
ustu helgi, til þátttöku í E.M. í Wiesba-
den, V-Þýskalandi.
Og meðan þeir „mala" andstæð-
ingana á meginlandinu skulum við
rifja uþp nokkur „níðingsverk" sem
þeir hafa fra'mið gegn mörlandanum
nýverið.
Látum Jón Baldursson og Sævar
Þorbjörnsson hefja leikinn: Isl. mót í
tvímenning '83. Urslit:
Norður
S A7
H 72
T A832
LAD862
Vestur
S D5
H G109
T DG964
L KG4
Suður
S K84
H AK6
T K1075
L 1073
Jón sat í suður og Sævar í norður.
Sagnir gengu.
Valið á Þórarni Sigþórssyni og
Guðmundi Páli Arnarsyni í landslið
var óumdeilanlegt.
Það er þó með þá eins og t.d. vinið;
ein árgerðin er betri en önnur, þó
uppskriftir breytist ekki.
1983 hefur verið gott ár fyrir þetta
mikla tvimennings par, sveitakeppni
ekki undanskilin.
Austur
S G109632
H D8543
T -
L 95
Orslit Isl.móts í sveitak. V gefur,
A-V á hættu:
Norður
S AK873
H 73
T D53
L 843
Vestur Austur
S- SD10
HKDG109862 H-
T A7 T KH642
LD105 LAKD962
Suður
S G96542
H A54
T 1098
L 7
Leikbrúðuland fær mjög góða dóma í Finnlandi:
„Búnar að sprengja utan af
okkur húsnœðiðu
- spjallað við Bryndísi og Helgu -
„Við erum búnar að sprengja
utanaf okkur húsnæðið og vitum
satt að segja ekki hvar við sýnum
næsta vetur. Sýningin sem við
æfðum fyrir Vasa -hátíðina er of
viðamikil tii að hægt sé að sýna
hana á Fríkirkjuveginum, en við
munum að sjálfsögðu nota
aðstöðuna þar áfram, þótt við
þurfum stærra húsnæði fyrir
þessa sýningu. Það er ekki um
auðugan garð að gresja í Reykja-
vík þegar húsnæði fyrir ieikstarf-
semi er annars vegar. En við von-
um að við finnum húsnæði fyrir
haustið“, sögðu þær Bryndís
Gunnarsdóttir og Helga Steffen-
sen hjá Leikbrúðulandi, þegar
við spjölluðum við þær á dögun-
um, en í vor fóru þær á alþjóðlega
brúðuleikhúshátíð í Vasa í Finn-
landi.
Sýningin sem þær frumsýndu
þar samanstendur af 4 nýjum
leikþáttum og fékk hún mjög
góða dóma. Stærsta dagblaðið í
Finnalandi (Helsingin Sanomat)
segir m.a. um sýningu
Leikbrúðulands:
Helsingin Sanomat (stærsta dag-
blað í Finnlandi); 11.6.’83:
Leikbrúðuland frá íslandi var
með skemmtilega sýningu frá
sjónrænu sjónarmiðli og tækni-
lega hugmyndaríka. Sýningin var
sería af tröllasögum. Þessi sýning
á rætur sínar í íslenskri þjóðsagn-
ahefð og var í grundvallaratr-
iðum ef til vill frumlegasta sýning
mótsins og efnislega skemmti-
legust - mest spennandi.
Tæknileg framkvæmd brúðu-
leikhússins hjá íslendingunum
var hugmyndarík. Hinar ýmsu
tegundir brúðuleikhúss sam-
ræmdu íslendingarnir af snilld
allt frá notkun svarts leikhúss til
þráða og hanskabrúða.
Kirsikka Siikala (einn
þekktasti leikhúsgagnrýnandi
Finna)“.
Við spurðum þær stöllur hvort
þær hefðu haft tækifæri til að
ferðast mikið erlendis með sýn-
ingar sínar:
„Já, við höfum gert það, enda er
leikbrúðulistin mjög alþjóðleg og
byggir yfirleitt meira á sjónræn-
um áhrifum en texta. Flest allir
brúðuleikhúshópar ferðast því
mjög mikið. Við höfum t.d. farið
'visvar til Chicago, tvisvar til
Finnlands, tvisvar til Luxemb-
urgar og einnig til Noregs og fleiri
landa.“
„Er meira um konur en karl-
menn í brúðuleikhúshópunum?“
„Nei, alls ekki. Þó virðist meira
um konur þar sem brúðulistin á
erfitt uppdráttar, en meira um
karlmenn þar sem hún er viður-
kennd. í Vasa voru t.d. hópar frá
Spáni og Frakklandi og þar voru
karlmenn í miklum meirihluta,"
sögðu þær að lokum.
Á hátíðinni í Vasa kenndi einn
íslendingur, Messíanna Tómas-
dóttir, en námskeið voru haldin í
tengslum við hátíðina.
Leikþættirnir 4 sem gerðir
voru fýrir Vasa-hátíðina heita
„Eggið“ og „Risinn draum-
lyndi“, eftir Helgu Steffensen,
„Búkolla" byggt á þjóðsögunni
og „Ástarsaga úr fjöllunum“
byggt á sögu Guðrúnar Helga-
dóttur. Leikstjóri var Þórhallur
Sigurðsson.
Hallveig Thorlacius, Bryndís Gunnarsdóttir og Helga Steffensen reka
Leikbrúðulandið.
„Ástarsaga úr fjöllunum“ byggt á sögu Guðrúnar Helgadóttur.
„Styðjið
lítil-
magn-
ann“
Það eru margir sem eru tilbún-
ir að styðja við bakið á lítilmagn-
anum. Það sannast best á söfnun-
inni „Ný sjónarmið“ sem hefur
safnað fé til að reyna að rétta illan
fjárhag Álversins í Straumsvík.
Þessa klausu rákumst við á í
blaðinu Eystra-horn, sem geflð er
út á Hornafirði.
Styðjum Alusuisse
í verki, segir starfsfólk
Hafnarhrepps.
Starfsfólk skrifstofu Hafnar-
hrepps hefur ákveðið að verða
við tilmælum um samskot til
handa Álverinu í Straumsvík.
Eftirtalir aðilar gefa:
Árni Kjartanss. lOOkwst.
JónS.Friðrikss.,skrifst.stj. lOkwst.
Þorsteinn L. Þorsteinss. hitav.stj.
100 kwst.
Ragnar Imsland, eldv.eftirlitsm.
10 kwst.
Hákon Valdimarss., bygg.meist.
100 kwst.
Björn Kristjánss., sveitarstj.
10 kwst.
Gísli O. Aras., heilbr. ftr. og safnv.
10 kwst.
Ásta H. Guðmundsd. húsm. og
gjaldk. lOkwst.
Svandís Valdimarsd. húsm. og
skrifst.t. lOkwst.
Samtals gerir þetta 360 kwst.,
sem hér með afhendist söfnun-
arnefndinni.
Gjört á Höfn 29. mars 1983.
Þetta er þó nýtt undir sólinni. Sólarraforkuver í Frakklandi.
Grasnytjar
sr. Björns í Sauðlauksdal
Fyrir 200 árum kom út í Kaup-
mannahöfn bókin Grasnytjar
eftir sr. Björn Halldórsson í
Sauðlauksdal. Hann var mikill
áhugamaður um ræktun og bætta
búnaðarhætti og í þeim efnum
mjög á undan sínum samtíðar-
mönnum. Meðal annars má telja
hann upphafsmann kartöflu-
ræktar á Islandi.
Sr. Björn ritaði allmargar
bækur. Kunnust þeirra mun Atli
vera, hið merkasta rit. í Gras-
nytjum sínum fjallarsr. Björn um
190 tegundir jurta, til margra
hluta nytsamlegar, svo sem til
matar og drykkjar, skepnu-
fóðurs, lækninga, handavinnu
ýmiss konar, bygginga, eldiviðar
o.fl.
Nú hefur bókaforlag Odds
Björnssonar á Akureyri látið ljós
prenta Grasnytjar ásamt skýr-
ingum og fylgir henni nafnaskrá,
sem tekin er saman af Helga
Hallgrímssyni, náttúrufræðingi.
Er þetta mikið sómastrik hjá
bókaforlaginu.
-mhg.