Þjóðviljinn - 19.07.1983, Side 3
Þriðjudagur 19. júlí 198á j ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
í veðurblíðunni undir Ólafsvíkurenni þar sem áður skall brim á land. Hreppsnefndir Neshrepps utan Ennis
og Ólafsvíkurhrepps stilltu sér upp til myndatöku skömmu áður en bflalestin frá plássunum beggja vegna
hins nýja vegar óku af stað.
hinn nýi
Ennisvegur
Það var margt um manninn undir
Ólafsvíkurenni sl. sunnudag þegar
þar var opnaður nýr vegur til
bráðabirgða. Heimamenn
prúðbjuggust og mynduðust langar
bílaraðir frá Ólafsvík annars vegar
og Hellissandi og Rifi hins vegar
auk þess sem sjá mátti bifreiðar
hvaðanæva að af Snæfellsnesi.
Nýi vegurinn er gífurleg sam-
göngubót og mátti vel sjá á heima-
mönnum að þetta var stór dagur.
Vegurinn liggur í fjörunni neðan
undir Ólafsvíkurenni, um 2.2 kfló-
metra á lengd. Gamli vegurinn er
um 20 ára gamall og liggur uppi í
Enninu og hefur umferð um hann
ætíð verið hið mesta hættuspil
vegna grjóthruns og snjóflóða-
hættu.
Hinn nýi vegur á sér skamman
aðdraganda og verkið tók undra
skamman tíma. Það var árið 1981
sem þáverandi samgönguráðherra
ásamt þingmönnum Vesturlands-
kjördæmis, hafði forgöngu um að í
Opnaður til bráða
birgða sl. sunnudag
nýjan veg yrði ráðist undir Enninu.
Varð niðurstaða verkfræðinga og
heimamanna sú að hagkvæmast
væri að leggja nýja veginn í fjör-
unni þar undir.
Á síðasta ári var veitt 6.9 miljón-
um króna til undirbúnings- og til-
raunaframkvæmda, sem vinnu-
flokkar Vegagerðarinnar önnuðust
sl. haust. Hannaði síðan Jón
Helgason verkfræðingur hjá Vega-
gerðinni veginn og í vor var megin-
hluti verksins boðinn út. 10 tilboð
bárust og var hið lægsta frá Hag-
virki hf., um 36.8 miljónir króna og
reyndist það aðeins vera um 53%
af áætlun Vegagerðarinnar. Var þá
gerður samningur við Hagvirki hf.
og að viðbættri grjótvörn og öðru
Nýi Ennisvegurinn
Tímamót
sagði Skúli Alex-
andersson alþingis
maður
„Eg fagna alveg sérstaklega þessum
áfanga og er sannfærður um að
þessi nýi vegur muni tengja enn bet-
ur en nú er byggðarlögin hér á Nes-
inu og stuðla að eflingu atvinnulífs
og félagslífs hér“, sagði Skúli Alex-
andersson alþingismaður í tilefni af
bráðabirgðaopnun hins nýja
Ennisvegar á sunnudag.
Skúli Alexandersson: Opnun nýja
vegarins á eftir að stórefla allt
félags- og atvinnulíf hér um slóðir.
„Það má segja að með þessum
áfanga sé Neshreppur utan Ennis
loksins kominn í almennt vegasam-
band. Mér finnst sérstök ástæða til
var samið um verkið fyrir 40.3 milj-
ónir króna.
í upphaflegum útboðsgögnum
var gert ráð fyrir að vegurinn yrði
opnaður til bráðabirgða 1. desem-
ber í ár, en Hagvirkismenn kusu
þann kost að flýta verkinu eins og
hægt væri til að unnt yrði að sinna
framkvæmdum við Sultartanga-
stíflu fyrir Landsvirkjun.
Áætlun Hagvirkis við gerð
Ennisvegar hins nýja hefur staðist
fullkomlega. Ernú um 72% verks-
ins lokið en í haust er í ráði að ljúka
gerð brimvarnar sjávarmegin við
veginn. Næsta sumar er í áætlun að
Ieggja á hann slitlag og ljúka öðr-
um frágangi. Er þá lauslega áætlað
að heildarkostnaður verði orðinn
um 80-85 miljónir króna á núver-
andi verðlagi.
Yfirumsjón með verkinu hafði
Vesturlandsumdæmi Vegagerðar
ríkisins en Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen hf. annaðist eftirlit.
- v.
að þakka Vegagerðarmönnum og
starfsmönnum Hagvirkis fyrir vel
unnið verk því þar hafa menn svo
sannarlega látið hendur standa
fram úr ermum“, sagði Skúli enn-
fremur.
„Þessi áfangi er aðeins einn af
mörgum í samgöngumálum Snæ-
fellinga og allra íbúa Vesturlands.
Það var myndarlega að verki staðið
árið 1956 þegar vegurinn fyrir Jök-
ul var lagður en í mikið ráðist árið
1963 þegar gamli Ennisvegurinn
var brotinn í bergið. Hann hefur
dugað okkur vel í þessa tvo áratugi
en ég er sannfærður um að Enni-
svegur hinn nýi á eftir að reynast
okkur enn betur“, sagði Skúli Al-
exandersson alþingismaður að
lokum. - v.
Þurfum
samfelld
segir Jóhann Berg-
þórsson forstjóri
Hagvirkis hf.
I ræðum þeirra sem fögnuðu hin-
um nýja vegi undir Ólafsvíkurenni
sl. sunnudag kom skýrt í Ijós þakk-
læti til verktakans, Hagvirkis hf.
fyrir einstaklega vel unnin störf.
Kom fram hjá mönnum að fram-
kvæmd vcrksins hefði verið afar
skjótlega af hendi leyst og fyrir
aðeins rúmlega helming þeirrar
fjárhæðar sem hönnuðir Vega-
gerðarinnar höfðu áætlað að þyrfti
til. Við spurðum Jóhann Bergþórs-
son forstjóra Hagvirkis hvernig
þetta væri hægt:
Jóhann Bergþórsson forstjóri Hag-
virkis: Samstæður hópur duglegra
manna átti stærstan þáttinn í að við
lögðum Ennisveg hinn nýja á svo
skömmum tíma.
„Þar skipta margir þættir máli en
ég vil þó sérstaklega nefna afar
samstilltan og duglegan hóp starfs-
manna, óvenju stórvirk vinnutæki
og að síðustu það að okkur tókst að
vinna verkið á lágmarkstíma",
sagði Jóhann.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um
að hægt væri að lækka stórkostlega
kostnað allan við meiri háttar
mannvirkjagerð á íslandi ef sér-
hæfðum verktökum á borð við
okkur væri gefinn kostur á sam-
felldum verkefnum árið um kring.
Okkar stærsta vandamál eru sveifl-
urnar í verkefnum. Við ráðum til
okkar tugi starfsmanna, þjálfum þá
til sérhæfðra verkefna og kaupum
til landsins dýr og afkastamikil
vinnutæki. Oft vill þá svo verða að
þegar einu verki er lokið tekur ann-
að ekki strax við og afleiðingarnar
hljóta allir menn að sjá. Ég vil því
nota tækifærið og skora á opinbera
aðila og aðra þá sem að stórvirkum
framkvæmdum vinna að sjá til þess
að framkvæmdir séu í samfellu
þannig að verktakar í þessari
atvinnugrein hafi næg verkefni árið
um kring. Það er þjóðhagslega
hagkvæmt, á því leikur ekki nokk-
ur vafi“.
- v.
Yfirlit um gæðamat þorsks:
. .... —ET " ;
Lakari fiskur
hjá netabátunum
Út er komin skýrsla þjá Fiski-
félagi íslands, sem Jónas
Blöndal hefur unnið og var hún
kynnt i gær á blaðamannfundi.
Hér er um að ræða yfirlit um
gæðaflokkun þorsks og tekur
það til innanlandslandana.
Byggt er á uppgjörum skipa og
vinnslustöðva og á matsniður-
stöðum framleiðslueftirlits
sjávarafurða.
í skýrslunni er að finna sam-
anburð á milii báta og veiðar-
færa og virðist mega ráða af
henni að gæðin minnki þegar
notuð eru net. Þorsteinn Gísla-
son hjá Fiskifélaginu benti þó á
að tíðarfar spilaði hér einnig inn
í, en tíð var mjög erfið hjá neta-
bátum í vetur. Þeir Fiskifélags-
menn bentu einnig á að fiskur-
inn væri verri á dýpi en á
grunnslóð. Þeir vildu ekki
draga of víðtækar ályktanir af
þessari skýrslu og vildu setja
ýmsa fyrirvara: í gæðamálum
væri alltaf um að ræða persónu-
bundið mat og ekki væri til ein-
hlítur mælikvarði í þeim efnum;
þeir bentu þó á breyttar aðstæð-
ur og stórvirkari veiðarfæri sem
eina skýringu á minnkandi
gæðum þorskafla og sömuleiðis
væri hugarfarið rangsnúið hjá
sumum - meira væri hugsað um
magn en gæði þegar landað væri
innanlands og myndu gæðin ár-
eiðanlega aukast ef menn vönd-
uðu sig jafn mikið þegar þeir
landa hér heima og þegar
landað er á erlendum höfnum.
Þeir félagar lögðu áherslu á
að hér væri um tilraun að ræða,
hina fyrstu sinnar tegundar,
sem væri til komin vegna allrar
þeirrar umræðu sem undanfarið
hefur verið um þessi mál.
- gat.
Frost til fjalla
í fyrrinótt
Það fór víst ekki framhjá neinum
sem var á ferðinni undir miðnættið
á sunnudagskvöldið, að það var
ansi napurt. „Haustið er komið“
sögðu þeir svartsýnustu, „án þess
að við höfum fengið nokkuð sum-
ar“. Þessa nótt komst hitinn, eða
kuldinn öllu heldur, niður undir
frostmark víða í uppsveitum, en á
Hveravöllum varð 2ja stiga frost.
Hér í Reykjavík var hitinn 2.8
gráður. Trausti Jónsson á Veður-
stofunni sagði að þetta væri sjald-
gæft á þessum árstíma og ekki sá
hann neitt sem benti til þess að úr
þessu rættist að ráði hér á Suður-
landi. Að vísu hlýnar eitthvað, en
verður skýjað. Fyrir norðan er hins
vegar útlit fyrir góða daga, sól og
sæmilegan hita. ÞS
FÁNASTENGUR
fnf Höfum til afgreiðslu strax fánastengur úr áli
í lengdum 6-8-10-12-14-16 metra.
-y Fánastengurnar eru með öllum fylgihlutum,
hún, nál, línu og jarðfestingu.
4 Uppsetning er auðveld, leiðbeiningar fylgja
með.
siam
Ólafur Kr. Sigurðsson HF
Suðurlandsbraut 6, sími 83499
iAuglýsið í Þjóðviljanum
[|ll|l)iiilllTTTIIP)il