Þjóðviljinn - 19.07.1983, Side 7

Þjóðviljinn - 19.07.1983, Side 7
Þriðjudagur 19. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 7 „Hægribylgjan” í Evrópu er borgaraleg óskhyggja Eftir kosningar í Vestur- Þýskalandi og Bretlandi hafa marg- ir skrifað um það fagnandi í hægri- sinnuð blöð að úrslitin væru stað- festing á því að hægribylgja mikil og góð væri risin í Evrópu og mundi væntanlega skola kratisma og marxisma á haf út. En þegar litið er yfir kosningar í Vestur-Evrópu á þessu ári og tveim næstliðnum árum, þá kemur það helst í ljós, að hægribylgjan er varla annað en borgaraleg óskhyggja. Sumar kosningar benda til vinstri- sveiflu, aðrar til hægrisveiflu og enn eru þess dæmi að miðjuöflin sæki fram. Stundum er reyndar erf- itt að gera grein fyrir því hvað er á seyði. Mjög algengt er svo, að kosningar láti fyrst og fremst í ljós vissa pólitíska þreytu og þar með óánægju með þá sem með völdin fóru - hvort sem valdhafarnir töld- ust til hægri eða vinstri. Þýskaland og Bretland Kosningarnar í Vestur- Þýskalandi fyrr á árinu sýnast bera vitni hægrisveiflu þar í landi: Kristilegir demókratar unnu 4.3% atkvæða en sósíaldemókratar töp- uðu 4.7% atkvæða. En þegar við rifjum það upp í leiðinni, að Kristi- legir unnu fyrst og fremst fylgi af samstarfsaðila sínum borgara- legum en sósíaldemókratar töpuðu til Græningja, sem í fyrsta sinn náðu þeim 5% atkvæða sem þarf til að komast á þing, þá verður vís- bendingin um hægrisveiflu þar í landi miklu óljósari en margir frétta skýrendur vilja vera láta. I Bretlandi var svo alls ekki um fylgisaukningu fhaldsflokksins að ræða, þótt hann kæmi vel út úr skiptingu þingsæta. íhaldsflokkur- inn tapaði 1.5% atkvæða frá næst- síðustu kosningu. Verkamanna- flokkurinn tapaði 9.5% - en frá báðum fór fylgið inn til miðjunnar, til bandalags Frjálslyndra og Sósí- aldemókrata. Einmenningskjör- dæmakerfið gefur Thatcher mikinn þingstyrk, en landsmenn þokuðu sér til miðju ef nokkuð var. Aðrar kosningar Nokkru síðar var kosið á Ítalíu. Þar tapaði hinn stóri hægriflokkur, Kristilegir demókratar, allmiklu fylgi. Vinstriflokkarnir unnu hins- vegar ekki á, heldur var óvenju- mikið um auð atkvæði og auk þess bættu smáflokkarnir í miðjunni við sig fylgi. Ítalía mun því teljast til þeirra Evrópulanda þar sem smá- vægileg miðjubylgja reis. Hið sama má segja um Finnland - þar unnu sósíaldemókratar á en kommúnist- ar töpuðu - sigurvegarar kosning- anna urðu svo þeir sem hömruðu mest á spillingu og dugleysi gömlu flokkanna, Dreifbýlisflokkurinn svonefndi. í Portúgal lá straumurinn hins- Pflagrímur sýnir lotningu ,,karlmannsrót“ á frjósemishátíð i Nagoja. Vilja eiga inni hjá mörgum guðum Japan er þéttbýlt land - bæði að guðum og mönnum. Samkvæmt opinberum skýrslum telja 98 miljón Japana sig vera Shintotrúar, ensá átrúnaður, forneskjulegur mjög um margt, var ríkistrú fram til 1945. Svo telja 88 miljónir Japana sig vera Búddista og 14 miljónir eru kristnir eða fylgja ýmsum smærri trúarbrögðum. Þessar tölur eru út af fyrir sig hagskýrsluundur: samtals eru trúaðir um 200 miljónir en Japan- ir eru hinsvegar 117 miljónir! Ástæðan er sú að Japanir eru hagsýnir menn og þeir leita sér trausts og halds í fleiri en einum trúarbrögðum samtímis. Þetta þýðir líka, að kristni á nokkuð erfitt uppdráttar - bæði er að Jap- anir eiga erfitt með að sætta sig við að öll sannindi séu í einni trú fólgin og svo er það, að kristnar kirkjur hafa einatt lagt mikla áherslu á umbun handan við gröf jTrúarlíf Japana: Stríðið gegn stjórn Nicaragua:_ CIA vill tvöfalda gagnbyltingarhermn Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur gert áætlanir um að stórauka stuðning sinn við þær gagnbyltingahersveitir sem reyna að steypa stjórn Sandinista í Nicaragua. Um leiðerað líkindum í uppsiglingu togstreita milli Reagans forseta og þingsins um þennan stuðning við gagnbyltingarmenn. Washington Post skýrði frá því í sl. viku að CIA hefði gert áætlun um stuðning við gagnbyltingaher sem teldi 12-15 þúsund menn. Bíður leyniþjónustan eftir því að forsetinn leggi blessun sína yfir þennan stuðning, sem bæði verð- ur veittur í vopnum og peningum. Þessi áform fela í sér stór- aukinn stuðning við þau öfl sem leitast við að steypa stjórn Sand- inista í Nicaragua. Ekki er nema rösk vika síðan, að haft var eftir bandarískum embættismönnum að gagnbyltingarherinn teldi um átta þúsundir manna. í grein um þetta mál í Washington Post er bent á það, að hér sé um her að ræða, sem sé allmiklu stærri en skæruherinn vinstrisinnaði í E1 Salvador. En hin opinbera rétt- læting Bandaríkjastjórnar á stuðningi við það lið sem herjar á Nicaragua er sú, að með því móti eigi að stöðva stuðning frá Nicar- agua við vinstrisinna í E1 Salv- ador. Gagnbyltingarmennirnir sjálf- ir hafa aldrei dregið dul á það, að markmið þeirra sé að steypa stjórn Sandinista. En CIA heldur sig við fyrri formúlur og segir að tilgangurinn með því að hjálpa andstæðingum Sandinista sé „að þvinga fram breytingar í stefnu stjórnar Nicaragua og þ.á.m. á aðstoð við vinstriskæruliða í E1 Salvador“. Útskýringin á því að CIA held- ur sig við slíka formúlu er m.a. sú, að í fyrra samþykkti banda- ríska þingið lög sem banna stjórninni að veita aðstoð sem notuð sé til „að steypa stjórninni í Nicaragua eða ögra til hernaðar- árekstra milli Nicaragua og Honduras". En hægrisinnar hafa bækistöðvar í Honduras eins og kunnugt er. áb. vegar greinilega til vinstri, í þeim kosningum sem þar voru haldnar í sumar. Blökk miðju- og hægri- manna, sem þar hefur farið með völd (Lýðræðisbandalagið) tapaði 29 þingsætum, sósíalistar urinu hinsvegar 25 þingsæti og urðu stærsti flokkur landsins - Komm- únistaflokkurinn vann þar einnig nokkuð á. 1982 og 1981 í fyrra fóru fram þingkosningar í þrem Evrópulöndum. Úrslitin í Hollandi eru dálítið erfið í túlkun vegna þess hve sérkennilegt flokkakefið þar er - þó munar þar mestu um allverulegan sigur hæg- risinnaðs Frelsisflokks. En í Sví- þjóð náðu sósíaldemókratar og kommúnistar hreinum meirihluta atkvæða og hröktu borgaralega stjórn frá völdum og á Spáni unnu sósíalistar stórkostlegan sigur, fengu 48.7% atkvæða og hlutu hreinan meirihluta á þingi. í hitteðfyrra gerðist það svo, að sósíaldemókratar bæði í Noregi og Danmörku urðu fyrir nokkrum skakkaföllum. Aftur á móti unnu vinstrimenn þá eftirminnilega kosningasigra bæði á Grikklandi og í Frakklandi, en bæði ríkin höfðu óralengi búið við hægri- stjórnir. Þess skal um leið getið að því er Danmörku varðar, að um leið og sósíaldemókratar þar urðu fyrir skakkaföllum vann Sósíalíski alþýðuflokkurinn góðan sigur, og því varð tilfærslan milli blakka þar í landi næsta lítil.fáD byggði á yfirliti í Infornration.) og dauða. Japanir vilja hinsvegar hafa hag af guðum sínum - hér og nú. Furðu algengt er að Japanir leiti á víxl til hinna ýmsu trúar- bragða eftir því hvað tilefnið er. Flest börn eru skírð að hætti shintotrúarmanna, hjónabönd eru tengd annaðhvort að shinto- sið eða á kristna vísu (vegna þess að hvítur brúðarkjóll þykir fall- egur). Dauðanum er svo mætt á búddíska vísu, vegna þess að sú trú þykir Japönum huggunarík- ust á erfiðum stundum. Hlýðniboð sterk Sumum kann að virðast, að japanskt trúarlíf beri vott um fyrirmyndar umburðarlyndi. Það er að sönnu rétt, að shintotrú og búddismi hafa lengi lifað hlið við hlið í landinu án þess að til trúar- bragðastyrjalda kæmi. Hitt er annað mál, að prestar beggja trú- arbragða gengu rækilega fram í ríkishollustu - einnig á þeim tím- um þegar Japan fylgdi fasískri út- þenslustefnu. Shintoklerkar boðuðu hatur á óvinunum og skilyrðislausa baráttu - þeir lögðu meðal annars blessun sína yfir sjálfsmorðsflugmennina frægu (kamikaze). Afstaða Japana til trúarbragða er líka partur af velgengni þeirra í viðskiptum. Það er til dæmis mjög til siðs hjá japönskum stór- fyrirtækjum að senda starfsmenn sína í hugleiðsluþjálfun í klaustur, ekki síst klaustur zen- búddista. Þar læra væntanlegir sölustjórar að tæma hugann í hugleiðslu og síðan er hann fyllt- ur með fyrirlestrum um efni eins og „trú og hlýðni við yfirboðara", eða „hvers vegna er ég stoltur af Japan“. - áb endursagði.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.