Þjóðviljinn - 19.07.1983, Síða 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. júlf 1983
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi vestra
Að þessu sinni liggur leiðin í sumarferð Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra á einn fegursta og sérkennilegasta stað landsins:
gljúfrin í þjóðgarðinum við Jökulsá á Fjöllum: Hljóðakletta,
Hólmatungur og Ásbyrgi. .
Ferðin hefst fyrir hádegi Iaugardaginn30. júlíog er miðað við sameiginlega
brottför frá Varmahlíð kl. 10. Hópferðir verða frá öllum þéttbýlisstöðum a
Norðurlandi vestra og veita umboðsmenn ferðarinnar upplýsingar á
hverjum stað. Farið verður um Akureyri, Mývatri og Grímsstaði, Asbyrgi og
þaðan upp með Jökulsá vestan megin. Gist verður tvaer nætur í tjöldum viö
Hljóðakletta og efnt til fagnaðar eins og venja er með dagskrá og
fjöldasöng.
Nægur tími ætti að gefast til skoðunarferða um Gljúfrin á sunnudeginum en
á mánudag verður ekið um Tjörnes og Húsavík heim á leið.
Þátttakendur hafi með sér tjöld, nesti og annan viðlegubúnað.
Þátttökugjald er kr. 1000 en hálft gjald fyrir þátttakendur 14 ára og yngri.
Umboðsmenn ferðarinnar eru:
Siglufjörður: Svava Baldvinsdóttirs. 71429, Sigurlína Þorsteinsd. s.
71406.
Sauðárkrókur: Bragi Skúlason, s. 5245, Rúnar Backmann, s. 5684 og
5519.
Hofsós: Gísli Kristjánsson s. 6341.
Varmahlíð: RagnarArnaldss.6128.
Blönduós: Sturla Þórðarson s. 4356 og 4357, Vignir Einarsson s. 4310.
Skagaströnd: Ingibjörg Kristinsd. s. 4790.
Hvammstangi: Eyjólfur Eyjóifsson s. 1348, ElísabetBjarnadóttirs. 1435.
Þátttaka er öllum heimll
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Austurlandi 23. júlí
Eins dags gönguferð frá Oddsdal í Norðfirði um Grákoll
tii Viðfjarðar (15-20 km).
Fararstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Nauðsynlegur útbúnaður: Góðir gönguskór, hlífðarföt og nesti fyrir
daginn.
Gisting: Aðkomufólk sem óskar eftir gistingu þarf að panta hana með
fyrirvara í Hótel Egilsbúð, Neskaupstað, sími 7321.
Ef óskað er eftir svefnpokaplássi þá tilkynnið það við skráningu. Tjald-
stæði er yst í Neskaupstað.
Þátttaka tilkynnist (m.a. vegna bátsferðar) til einhvers eftirtalinna eigi
síðar en 18. júlí:
Einar Þórarinsson í síma 7606 eða Valur Þórarinsson í síma 7690 Nes-
kaupstað.
Margrét Oskarsdóttir í síma 6299 Eskifirði.
Jóhanna Þóroddsdóttir í síma 4134 Reyöarfirði.
Anna Þóra Pétursdóttir í síma 5283 Fáskrúðsfirði.
Jóhanna lllugadóttir í síma 1622 Egilsstöðum. ,
Ferðaáætlun: Þátttakendur koma í bílum (einkabílum eða rutum, ef a þarf
að halda) að brúnni á þjóðvegi innarlega á Oddsdal. Frá Neskaupstað
verður lagt af stað frá Egilsbúð kl. 8:30.
Lagt af stað í göngu frá þjóðvegi kl. 9 stundvíslega. Að á völdum stöðum á
leiðinni til Viðfjarðar og eftir dvöl þar siglt með bátum til Neskaupstaðar um
kvöldið, þaðan sem menn fá ferð til að nálgast einkabíla sína á Oddsdal,
Ábending um landabréf: Uppdráttur íslands, blað 114 „Gerpir".
Öllum heimil þátttaka - Alþýðubandalagið.
Aðalfundur Alþýðubandalagsins
í Rangárþingi
verður haldinn fimmtudaginn 21. júlí kl. 21.00 að Geitasandi 3 Hellu. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
Sigurður Guðgeirsson
Fáein kveðjuorð
Sú óvænta harmfregn barst okk-
ur til Danmerkur nú fyrir nokkrum
dögum, að Sigurður Guðgeirsson
væri þungt haldinn og vart hugað
líf, svo síðar að hann hafi látist s.l.
miðvikudag. Okkur setti hljóð við
þessa helfregn, því að ekki áttum
við þess von, að dauðann bæri svo
brátt að, þó að við vissum, að Sig-
urður hefði ekki gengið fullkom-
lega heill til skógar undanfarið.
Með Sigurði Guðgeirssyni er
genginn til feðra sinna langt um
aldur fram fágætur drengskapar-
maðurog óvenju heilsteyptur pers-
ónuleiki, einn þeirra manna, sem
maður veit að marga slíka hittum
við ekki á lífsleiðinni. Kynni við
Sigurð urðu öllum ávinningur.
Hér verða ekki rakin störf Sig-
urðar eða æviferill, þar sem ég er
nú staddur skortir til þess alla að-
stöðu, enda veit ég, aðtilþess verða
aðrir. Þessi fáu fátæklegu orð eiga
aðeins að flytja síðustu kveðju
okkar hjóna og fjölskyldu okkar
fyrir áratuga vináttu sem aldrei bar
skugga á og treystist með hverju
árinu sem leið, vináttu þar sem við
vorum fyrst og fremst þiggjendur
en hann og hans ágæta kona
veitendur. Þá minnumst við ekki
síður einstakrar hjálpsemi hans
ávalt er eftir var leitað.
Kynni okkar Sigurðar hófust
fyrir alvöru fyrir tæpum 19 árum,
þegar ég hóf störf hjá
Verkamannasambandi íslands, en
hann hafði þá fyrir skömmu tekið
við forstöðu nýstofnaðs Styrktar-
sjóðs Dagsbrúnarmanna. Alltaf
síðan og fram í júní s.l. hefur okkar
daglegi vinnustaður verið að Lind-
argötu 9 og samstarf okkar verið
einstaklega náið og ánægjulegt,
enda byggt á gagnkvæmu trausti og
trúnaði. Ekki hvað síst var þetta
samstarf ánægjulegt meðan ég ann-
aðist bókhald styrktarsjóðsins og
síðar er við önnuðumst sameigin-
lega afgreiðslu atvinnuleysisbóta
vörubifreiðastjóra.
Sigurður var skjalavörður og
skrifstofustjóri allra þinga Verka-
mannasambands Islands og naut
sín þar til fulls reglusemi hans og
vandvirkni.
Meðferð fjármuna var í höndum
Sigurðar með þeim hætti sem best
verður á kosið, enda naut hann í
þeim efnum fullkomins trausts og
virðingar.
Okkur, sem nánust dagleg sam-
skipti höfðum við Sigurð, finnst
svo stórt skarð fyrir skildi að vart
verði fyllt og áreiðanlega mun
langur tími líða, þar til við höfum til
fulls áttað okkur á, að ekki sé
lengur hægt að leita til hans ekki
aðeins með málefni og vandamál
hins daglega starfs, heldur og ekki
síður hins persónulega vinar, sem
gott var að leita til og leita ráða hjá.
Nú hljómar ekki lengur hressandi
og glaðvær hlátur hans á góðri
stund.
En þó að okkur vinum hans og
samstarfsmönnum finnist að við
höfum mikils misst er það þó lítil-
fjörlegt hjá því mikla áfalli, sem
eftirlifandi eiginkona hans, synir,
tengdadætur, barnabörn og síðan
og ekki síst aldraðir foreldrar, hafa
orðið fyrir. Við hjónin og fjöl-
skylda okkar sendum þeim öllum
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum allar góðar vættir að
styrkja þau í þungri raun.
Vertu sæll kæri vinur. Hafðu
þökk fyrir vináttuna og dreng-
Iyndið.
Þórir Daníelsson
Gott
framtak
á Húsavík
Það er margt gert til þess að laða að
ferðamenn, sumt af viti og annað
miður einsog gengur. Á fjörur okk-
ar rak nýlega dæmi um ágætt fram-
tak Húsvíkinga hvað þetta varðar.
Olíusala Kaupfélags Þingeyinga
á Húsavík hefur gefið út kort af
bænum og eru þar merkt inn á ýms-
ar þær stofnanir og byggingar sem
ferðamönnum getur komið vel að
vita hvar eru staðsettar. Þá er stutt
ágrip af sögu bæjarins, bæði á
ensku og íslensku.
Ábyrgðarmaður bæklingsins er
KORT AF
HÚSAVÍK
VIÐ SKJÁLFANDA
OLÍUSALA KÞ
NAUSTAGIL
élanitn viMlun itnmr U
Jónas Egilsson og liggur upplýs-
ingaritið frammi hjá Olíusölu
Kaupfélagsins á Húsavík.
SIMI 53468
smuatt
Séð yflr Slglufjörð, en þar munu félagar í sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandl meðal annars
staldra við.
Alþýðubandalagið
á Vesturlandi
um
verslunar-
manna-
helgina
Það verður lagt af stað frá Borgarnesi, laugardaginn 30.
júlí og komið heim að kvöldi mánudags 1. ágúst.
Farið verður um Húnavatnssýslur, um Skagafjörð og til
Siglufjarðar. Gist báðar nætur að Húnavöllum.
Svefnpokapláss og hótelherbergi eftirvali.
Leiðsögurriaður er Magnús H. Gíslason frá
Frostastöðum.
Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst til þessara manna:
Akranes: Guðbjörg Róbertsdóttir, sími 2251, Ingunn Jónasdóttir,
sími 2698. Borgarnes og nærsveitir: Ríkard Brynjólfsson, sími
7270, Halldór Brynjúlfsson sími 7355. Snæfellsnes sunnan
heiðar: Jóhanna Leópoldsdóttir, sími 7691. Hellissandur: Sigríður
Þórarinsdóttir, sími 6616. Ólafsvík: Anna Valversdóttir, sími 6438.
Grundarfjörður: Ingi Hans Jónsson, sími8811. Stykklshólmur:
Guðrún Ársælsdóttir, sími 8234. Búðardalur: Kristjón Sigurðsson,
sími 4175. Reykjavík: Magnús H. Gíslason, sími 81333. Tilkynnið
ykkursemfyrst.
Ferö fyríralla fjölskylduna!
Öllum heimil þátttaka!
Kjördæmisráð.