Þjóðviljinn - 21.07.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA1— ÞJÓÐVILJINN'Fimmtudagiir 21. júlí 1983
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastióri: Guörún Guðmundsdóttjr.
Jlltstjórar: Árni B^rgmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson;
Lúövik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. '
Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, Guðjón Sveinbjðrnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Handrita- Og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson,
Ólafur Björnsson.
Pökkun; Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkgyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Siðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prént.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Viðmiðunin er 20 mills
• Formlegar viðræður milli nýrrar ríkisstjórnar og
Alusuisse hefjast í dag. Af blaðafréttum að dæma
hafa samningamenn núverandi stjórnvalda þegar
spilað úr höndum sér öllum þrýstingi á auðhringinn
og eiga nú undir það högg að sækja að treysta á
góðvild og umhyggjusemi Svisslendinga fyrir íslensk-
um þjóðarhag.
• í sama mund fjalla stjórnvöld nú um beiðni
Landsvirkjunar, sem fer fram á að hækka heildsölu-
verð raforku til almenningsveitna um 31%, en það
myndi þýða um 23% hækkun raforkuverðs til reyk-
vískra heimila. í forystugrein Tímans er fjallað um
hækkun bensínskatts og áform opinberra fyrirtækja
um hækkanir á gjaldskrám, og þar segir m.a.:
„Hækkun bensínskattsins hefur þó ekki veruleg áhrif
á verðbólguhraðann í samanburði við þær miklu
hækkunarbeiðnir sem nú Iiggja fyrir frá ýmsum op-
inberum fyrirtækj'um, eins og Landsvirkjun, Hita-
veitu Reykjavíkur, Landssímanum og ýmsum
fleirum. Ef allar þessar hækkunarkröfur næðu fram
að ganga, myndi árið 1983 verða mesta skattahækk-
unarár í þjóðarsögunni. AUt viðnám gegn verðbólgu
væri þá fokið út í veður og vind.“
• Að því er tekur til Landsvirkjunar eru tengslin við
álsamningana augljós. Á síðustu árum hefur Alu-
suisse fengið í sinn hlut milli 50 og 60% af orkusölu
Landsvirkjunar. Almenningsrafveiturnar í landinu
hafa nú að undanförnu orðið að greiða fimmfalt
hærra verð en Alusuisse. Verðmunurinn þarna á
milli er 400% en ætti að öllu eðlilegu aðeins að vera
50%. Þetta þýðir að orkusalan til Alusuisse stendur
ekki undir framkvæmdakostnaði Landsvirkjunar
eða afborgunum lána. Þunganum af þessu er velt yfir
á almenning í landinu með sífelldum hækkunum ork-
uverðs. Þessu samhengi gera flestir landsmenn sér nú
grein fyrir og munu þessvegna fylgjast grannt með
álsamningunum.
• Á stjórnarfundi Landsvirkjunar í sl. viku neitaði
Jóhannes Nordal formaður að fallast á tillögu Ólafs
Ragnars Grímssonar um frestun á kröfu um 31%
hækkun á gjaldskrá til almenningsrafveitna. Tillagan
var rökstudd með þeim hætti að slík hækkun á raf-
orku til almennings væri óverjandi meðan allt væri í
óvissu um hvað fengist fyrir raforku til Alusuisse. í
skýrslu sem Landsvirkjun hefur sjálf gefið út kemur
fram að raforkuverðið til Alusuisse þyrfti að hækka
úr 6.5 mills í 18-22 mills til þess að hefðist upp í
framleiðslukostnað. Það er ljóst að næðist slík hækk-
un fram þá þyrfti raforka til almennings ekki að
hækka langt umfram almenna verðlagsþróun í
landinu.
• Nú vill svo til að Jóhannes Nordal er ekki aðeins
formaður stjórnar Landsvirkjunar heldur einnig for-
maður viðræðunefndar ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar í samningum við Álusuisse. Almenning-
ur í landinu mun að sjálfsögðu fylgjast vel með því
hvort hann verður eins grimmur í verðlagningu ork-
unnar til Alusuisse eins og hann er fús til þess að
hækka orkuverðið til almennings um tugi prósenta.
• Tíminn krafðist þess í síðustu viku að fólkið í
landinu fengi allar upplýsingar um gang álviðræðna.
Sverrir Hermannsson segir hinsvegar að nóg sé talað
og hefur lokað málið inn í nefnd hjá Jóhannesi Nor-
dal og Seðlabankahirð hans. Fjölmiðlafréttir benda
til þess að búið sé að ganga að þeirri kröfu Alusuisse
að fallið verði frá alþjóðlegum gerðardómi, og engar
opinberar kröfur eru uppi af íslands hálfu um orku-
verð. Menn geta hinsvegar haft það til viðmiðunar að
framleiðslukostnaðarverð á raforku í orkukerfinu
eins og það er í dag mun vera um 20 mills. í ljósi
þeirrar viðmiðunar verður árangurinn af samninga-
viðræðum metinn.
klippt
Albert
talar
Við höfum í þessum pistlum
vakið athygli á því, að Morgun-
blaðið hefur breitt þykka þagnar-
blæju yfir Albert Guðmundsson
og margháttaðar yfirlýsingar
hans að undanförnu. Einkum
hefur blaðið verið harðlæst í sam-
bandi við yfirlýsingar Alberts um
niðurskurð á þeim sviðum sem
heyra undir Ragnhildi Helga-
dóttur menntamálaráðherra -
hvort sem er til námsmanna eða
menningarstofnana.
Svarthöfði DV, sem er sá aðili í
þjóðfélaginu sem mestar áhyggj-
ur hefur af velferð Alberts,
bregst með sérkennilegum hætti
við þessari stöðu í fyrradag. Þar
er málum svo lýst, að ríkisfjöl-
miðlar séu alltaf að spyrja Albert
sárasaklausan um hluti, sem falli
undir menntamálaráðuneytið
vegna þess, að þar sitji illa inn-
rættir menn sem séu að fiska eftir
ágreiningi innan ríkisstjórnarinn-
ar! Eða eins og þar segir meðal
annars: „Hinir undarlega tíðu
spurningatímar, þar sem fjár-
málaráðherra situr fyrir svörum,
benda til þess að í gegnum hann
telji ríkisfjölmiðlarnir mögulegt
að koma einhverju af stað innan
stjórnarinnar."
Bakari
og smiðir
Hér er komið eitt af þessum
frægu dæmum þar sem bakari er
hengdur fyrir smið, munkurinn
skammaður - en átt við sköllótta
manninn, ráðist á Albaníu en
Kína haft í huga. Ríkisfjölmið -
larnir koma þessu máli nefnilega
sáralítið við. Það er stjórnar-
blaðið Tíminn sem hafði lofsam-
lega forgöngu um að „koma ein-
hverju af stað“ innan ríkisstjórn-
arinnar með því að setjast við hlið
Alberts og skrúfa frá hans
skoðanakrana. Og ef Albert er
að gefa stórorðar yfirlýsingar um
mál, sem heyra undir aðra ráð-
herra, við hvern annan er þá að
sakast en Albert Guðmundsson
sjálfan?
En það má ekki segjast, því Al-
bert er ginnhelgur maður í DV,
að minnsta kosti hjá Svarthöfða.
Og því er það ráð rekið, að kenna
margfrægum laumukommum hjá
útvarpi og sjónvarpi um
lausmælgi karlsins og hugsan-
legar afleiðingar hennar undir
stjórnarsæng. Þó getur jafnvel
Svarthöfði ekki stillt sig um að
senda fjármálaráðherra ábend-
ingu þegar hann segir um sölu
ríkisfyrirtækja: „Það er því tími
til kominn að fara rólega í sakirn-
ar í orðræðum við fjölmiðla, enda
er hið rétta, að mörg mál eru í
athugun og ekkert verið ákveðið
enn hvað verður selt og hvað
ekki“.
Sjónarspil
En hér er Svarthöfði óvart far-
inn að skjóta á nágranna sína á
DV. Það eru fyrst og fremst þeir
sem hafa haldið uppi ríkiseigna-
sjónarspili Alberts með nær dag-
legum spurningum í allar áttir til
ráðherra og annarra ábyrgðar-
manna um þessa hluti. Hitt getur
svo vel verið, að Albert meini
ekki nokkurn skapaðan hlut með
því tali öllu saman. Eins víst að
hann viti það fyrirfram, að þegar
til sölu ríkiseigna kemur verða
mörg ljón í vegi hjá samráðherr-
um hans. En honum hefði samt
með fjölmiðlaspili sínu tekist að
koma því inn hjá sakleysingjum,
að það var hann, Albert, sem
vildi skera niður báknið. Það
voru hinir sem ekki þorðu!
Sonur minn
Sverrir!
En fleiri ráðherrar eru nú
Sönnum íslendingum til armæðu
en Albert og sú tímasprengja sem
tifar milli hans og Ragnhildar
Helgadóttur. Morgunblaðið hef-
ur eins og kunnugt er óspart
brigslað Framsóknarmönnum
fyrir tilhneigingar til að selja sig
Rússum fyrir baunadisk í SÍS-
viðskiptum. En nú er „svikari"
kominn í ljós í eigin herbúðum og
er það Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra. Hann hefur
meira að segja sagt við sovéska
sendiherrann að „Morgunblaðið
mótaði ekki stefnu íslensku ríkis-
stjórnarinnar“ í viðskiptamálum
og vill hann engu að síður skipta
við Rússa en þeir í SÍS. Og mega
Morgunblaðsmenn reyna á sér
hlið fornkveðna að án er illt gengi
nema heiman hafí.
Við bíðum spenntir eftir því
hvað leiðarinn og Staksteinar
segja.
- ÁB.
avo mænr avarthofðí
Svo mælir Svarthöfði
bvo mælir Svarthöfð
Þetta er þörf V
taka gjarnan af ikarlö ög-ic -•> vj^^fOiat „
ielja elgl þetU eöa hltt og gtugíSM. efK,Ptj . e^a ít)
• ‘ ' " “ ...... þeðto-j'Jl Pvi
<
dynu inn af löeuiöniuin vflr blööfé-
lagF
Ja»
Lánstraust íslendinga i
bví minnsta í V-Evrónu
af þvl þarfaata, lem
■tjórn getur teklö iér fyrlr hcm'
n fcaia fjuimiaiar íag ái Ragnor Arnalds fyrrverandi fjármálaráðherra:
haga oröræðum itnum þan|
ivo vlrölat aem litlö lamband lé mC
fjérmálaráöuneytii og menntamól
.Könnunin lítt marktæk"
tll þeu, aö I gegnum hann teljl
fJöhniölarntr mögulegt aö kom
hverju af itaö „tnnan itjómi
ar". »
Ea þetta er dálítlll a
86 ipamaöantefna, iem tekl
app i kjölfar þesi, aö viö vorf
tapa efnahagilegu aJálfaUet
■tjómartima kommúnlita, ie
hátt ikrtfaölr hjá riklafJölmK
meöhöndlaölr meö andakt, á
an betrl talamann
Guðmundiaon, fjármálaré
Hann mun ekkl hafa teklö mi
gleöíbragöl vlö embættl fj
ráöberra. En fynt hann er
kominn, mun þjóöln njóta fæ
vlö aö koma lagi á í Jármálin
■em aöstcöur leyfa. 8em fj
ráöherra hlýtur hann aö ra
■em inerta önnur ráöuneytl.
t J. þannlg lett, aö á mlðju
þau flest, ef ekU öll, báln
veltlngar itnar, og þurfa a
um vtðbctur. Þaö gctur
erfltt aö fá þeiaar vlðbafí
fjármálaráöuneytlnu, vegni
þar ittur maöur sem er aö ■[
þennan og þvilíka llöi þarf
fyrlr- raöa, enda myndl þaö varp
a tiðu legu IJófll forsjár á fjár
rmála- hcrra.
benda
og slcorid
Lánstraust
Islendinga
Nokkur hvellur hefur orðið í
fjölmiðlum út af niðurstöðum
könnunar á lánstrausti ríkja sem
Institutional Investor hefur gert -
komu þær upplýsingar í Frjálsri
verslun fyrir skömmu. Banka-
stjórar ýmsir voru spurðir og
skipuðu þeir íslandi svo neðar-
lega að aðeins tvær Evrópuþjóðir
þótt óefnilegri lántakar - Portú-
gal og Tyrkir.
Alþýðublaðið spyr Ragnar
Arnalds, fyrrum fjármálaráð-
herra um þessa könnun í gær.
Ragnar vill ekki taka mikið mark
á henni vegna þess hvernig að
henni sé staðið og minnir á að í
könnun Institutional Investor
hafí íslendingar jafnan lent mjög
neðarlega. Síðan segir Ragnar:
Önnur
könnun
„En það er til önnur könnun,
sem gerð hefur verið á vegum
Euromoney, sem er marktæk og
ég kynnti niðurstöður einnar
slíkrar á síðastliðnu ári. Niður-
stöður hennar eru ekki byggðar á
einkunnagjöf bankastjóra, held-
ur á þeim lánakjörum sem við-
komandi land nýtur á lánamörk-
uðum heims. Þar kemur fram
raunveruleg spegilmynd af láns-
traustinu. Betri kjör endurspegla
þar meira traust og öfugt. í þess-
ari könnun hafa íslendingar jafn-
an lent í efstu sætum; alltaf lent
meðal tíu efstu þjóðanna, held ég
megi segja af um 120 þjóðlöndum
heims. Þessi könnun er satt að
segja miklu marktækari, en sú
sem nú er vitnað til um slakt lán-
straust okkar íslendinga. Ég tel
hana reyndar lítt marktæka."
- ekh.