Þjóðviljinn - 21.07.1983, Síða 5
Fimmtudagur 21. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Tívolí-
st j órnín
íslcndingar hafa löngum gefið
ríkisstjórnum nöfn. Nýsköpun,
Viðreisn, Stefanía - eru ágæt
dæmi um hinn þjóðlega sið. Nafn-
giftin festist í sessi og verður vitn-
isburður um inntak ríkjandi
stefnu. Oft réði tilviljun heitinu.
Táknrænn atburður varð for-
senda nafngiftar.
Undanfarið hefur lítið mál
varpað stóru ljósi á eðli hinnar
nýju ríkisstjórnar. Fjármálaráð-
herrann sleppti tengdasyni sínum
og hamborgarasalanum við
greiðslu á söluskatti. Á kosninga-
fundi Alberts í Háskólabíó hafði
Pétur í Aski gefið öllum
viðstöddum hátt á annað þúsund
hamborgara. Auðvitað taldi Al-
bert sjálfsagt að borga til baka.
Háskólabíó hafði verið troðfullt
og hvað munaði ríkissjóð um vin-
argreiða við Pétur.
Tívolímálið sýndi að hjarta
ráðherranna slær í þágu forstjóra
ogfyrirtækja. Hjalið um „blessuð
börnin“megnar ekki að hylja
spillinguna. Almenningur sá í
hendi sér táknmynd stjórnarinn-
ar. Samningur ráðherrans og
hamborgarasalans um ógreiddan
söluskatt sýndi stjórnarfarið í
hnotskurn. íslendingar hafa eign-
ast sína Tívolí-stjórn.
Tívolí
á öllum sviðum
í Tívolíum þeytast hlutir upp
og niður á ægihraða. Gestum er
boðið að snúast í hring. Skilning-
arvit eru rugluð með alls kyns
kúnstum. Speglasalir skopstæla
veruleikann. Skotbakkar bjóða
gylliboð á fölskum forsendum.
Þar eru Parísarhjól fyrir franska
konsúla og Rússíábanar fyrir fé-
laga í Bilderberg.
í tívolíum er öllu ranghvolft í
von um aukinn gróða. Blekking-
ar eru boðorð dagsins. Mótsagnir
verða hlátursefni. Beinar brautir
hvergi finnanlegar. í tívolíum er
blekkingin forsenda rekstursins.
Pví betri blekking, þeim mun
meiri gróði.
íslenska ríkisstjórnin hefur í
ríkum mæli tileinkað sér þessa
starfshætti. Samningur ráðherr-
ans við hamborgarasalann í bak-
dyrum fjármálaráðuneytisins
endurspeglar hið daglega brauð á
stjórnarheimilinu. Hillurnar eru
fuliar af mótsögnum og blekk-
ingum.
Ólafur
Ragnar
Grímsson
skrifar
I skerðingartívolí er kaupið
skorið til að bæta kjörin. Al-
menningur fórnar, svo fyrirtækin
græði. A hraðbraut hækkana fá
forstjórarnir einir inngöngu en
almenningur bíður fyrir utan og
borgar brúsann. Mjólkin hækk-
ar. Kjötið hækkar. Hitaveitan
hækkar. Rafmagnið hækkar.
Síminn hækkar. Sykurinn hækk-
ar. Kaffið hækkar. Ávextir
hækka. í rauninni hækkar allt
nema fíkjur. Það er reyndar í stíl
við ósköpin. Ráðherrarnir þurftu
á blöðum fíkjunnar að halda.
Svo er auðvitað ratsjártívolí
þar sem ráðherrar rífast um hver
hafi beðið um hvað, hvenær og
hvernig. Speglasalir eru notaðir
til að afskræma svo hagsmuni
hernaðarveldisins að fólkið fyrir
norðan og vestan veit vart hvar á
sig stendur veðrið.
í Tívolí Geirs og Steingríms er
glæsilegri Rússíábani en í flestum
öðrum. f honum rúlla ráðherr-
arnir upp og niður á ægiferð.
Rússneskar flugvélar - olíu-
geymar í Helguvík, hrópar Geir
og brunar niður beygjuna.
Minnkum Sovétviðskipti, æpir
Morgunblaðið örvita af hræðslu,
en Sverrir stimir upp í móti og
kallar fagnandi á meiri síldar-
kaup.Á brautarbeygju birtist svo
Halldór Ásgrímsson með Rússa-
ráðherrann sjálfan upp á arminn.
Albert veifar í ofsabræði efna-
hagssamningnum vonda sem
varð til þess að Berti og Eggert
hlupu úr bílnum hjá Gunnari
Thor. En núna nennir enginn að
hugsa um það. Rússíábani nýju
ríkisstjórnarinnar er svt> ægilega
skemmtilegur.
Tómasar-
tívolí
Tívolístællinn er í öllu og alls
staðar í herbúðum stjórnarinnar.
Framkvæmdastofnun og komm-
issarakerfi var sérstök klessu-
keyrslubraut, sem stuttbuxna-
deild Sjálfstæðisflokksins ætlaði
sér til skemmtunar. Friðrik Soph-
usson var búinn að lofa salíbunu
þegar haustar. Þá skyldi Tómasi
hent út í Tívolítjörnina og Stofn-
unin vonda sprautuð í bláum lit.
En Framsókn hafði hugsað sér
öðruvísi Tómasartívolí. Að vísu
mætti henda tuskuboltum en eng-
inn þeirra myndi hitta. Gamli
kommissarakarlinn mundi áfram
sitja í sínu sæti.
Fyrir tveimur dögum var á
þessum stað frá því skýrt, að mót-
leikur Framsóknar í Tómasar-
tívolíi ríkisstjórnarinnar væri að
setja soninn Eirík til formennsku
í sérstakri endurskoðunarnefnd
gervalls stjórnarráðs og ríkis-
stofnana. í krafti ólokinna nefnd-
arstarfa gæti Tómas svo áfram
setiö við Rauðarárstíg. Fulltrúar
Framsóknar höfðu verið til-
kynntir. íhaldinu voru afhent auð
sæti.
En Tómas krafðist þess að enn
skemmtilegra Tívolí væri við sig
kennt. í blekkingarsal stutt-
buxnadeildarinnar yrði að vera
nefnd á nefnd ofan. Tómas sjálf-
ur fengi framtíð Stofnunarinnar í
eigin hendur.
I Tímanum í gær var tilkynnt
að til viðbótar við Eiríks-
nefndina góðu hefði Steingrímur
stofnsett sérstaka Tómasar-
nefnd með kommissarinn sjálfan
í forsæti. Þar skyldi hann ásamt
Helga Bergs, höfundi Fram-
kvæmdastofnunar á sínum tíma,
og fyrirgreiðslujálkinum Ólafi Þ.
Þórðarsyni, ræða ljúft og létt um
Stofnunina góðu.
Líkt og áður var ekkert sagt um
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Nefndirnar báðar, Eiríks og
Tómasar, eru komnar til sögunn-
ar og engar fréttir hafa borist af
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins.
Kannske finnst enginn þar á bæ,
sem glaður lætur hafa sig að fífli í
hinu sniðuga Tómasartívolíi
stjórnarinnar.
Friðrik Sophusson fullvissaði
stuttbuxnadeildina að Tómas
yrði rekinn úr musteri Stofnunar-
innar strax í haust. En nú sitja
Hánefsstaðafeðgar í tvcimur
nefndum sem gulltryggja seturétt
kommissarsins.
Allt á haus
Svona gerast hlutirnir hjá Tí-
volístjórnum. Þar rekast hornin
saman og allt er á haus. Rangt
verður rétt og hið rétta bara grín.
Blekkingarbullið birtist í fjöl-
miðlunum á degi hverjum. Al-
menningur horfir undrandi á
ósköpin. „Sterka stjórnin“ hefur
á skömmum tíma breyst í for-
kostulegan Tívolígarð. Ráðherr-
arnir hafa eignast sína táknmynd.
Tívolístjórnin sér um fjörið á
Fróni.
Ljóðrœnn
þungi
Aldís Baldvinsdóttir og Kristján Franklín leika tvö stærstu hlutverkin í
kaflanum úr „Blóðbrullaupi“.
Stúdentaleikhúsið sýnir
KARLINN BLAKKUR,
TUNGLIÐ RAUTT
dagskrá úr verkum Garcia
Lorca.
Leikstjóri: Þórunn
Sigurðardóttir
Federico Garcia Lorca hefur ort
fegurst og skrifað best leikrit á
Spáni á þessari öld. íslendingar
kynntust honum fyrst í hcillandi og
seiðmagnaðri Vögguþulu úr
Blóðbrullaupi, sem Magnús Ás-
geirsson þýddi af tærri snilld og
vakti unað margri Ijóðelskri sál.
Síðan var leikritið allt flutt í
Þjóðleikhúsi í þýðingu Hannesar
Sigfússonar og seinna var Hús
Bernördu Alba sýnt í Iðnó. Og nú
hefur hópur á vegum Stúdenta-
leikshúss tekið sig til og búið til dag-
skrá úr Ijóðum, söngvum og
Sverrir Hólmarsson
skrifar um
leikhús
leikritsbrotum, sem gefur okkur
skemmtilega svipmynd af verki
þessa töfrandi skálds.
Sýnd eru atriði úr tveimur
leikritum. Fyrst úr Yermu, sem
aldrei hefur verið sýnd á íslandi, en
Karl Guðmundson hefur nú þýtt af
áhuga og alúð. Yerma er harm-
leikur um óbyrju sem er bundin
viðjum strangra þjóðfélagsreglna
sem gera stöðu hennar óþolandi en
bjóða ekki uppá neina kosti til úr-
bóta. Hér er á ferðinni það yrkis-
efni sem Garcia Lorca var hug-
stæðast, átök milli eðlis og ástríðu
annars vegar og kúgunar og félags-
legrar þvingunar hins vegar. Þetta
stutta atriði var skemmtilega flutt
og Ragnheiður Arnardóttir var
aðsópsmikil í hlutverki Yermu.
Þýðing Karls lét vel í eyrum og er
hér með skorað á leikhús landsins
að taka hana til sýningar.
Atriðið úr Blóðbrullaupi þótti
mér ekki takast eins vel, en þar
held ég að tekstinn hafi skapað á-
kveðin vandamál. Blóðbrullaup er
ljóðrænast af leikritum Lorca og
Hannes Sigfússon hefur þýtt það á
afskaplega hástemmda íslensku.
Þetta er vönduð þýðing og hljómar
oft vel, en hún er líka uppskrúfuð
um of, reynir of mikið á sig, en það
hygg ég mjög andstætt stfl Lorca.
Þessi ljóðræni þungi kæfir næstum
því dramatíkina og atriðið ber ol:
mikinn keim af ljóðalestri.
Það er hressilegur og fallegui
hópur sem ber þessa sýningu uppi.
bæði í leik og söng. Frábær var
flutningur Kristínar Ólafsdóttur og
Valgeirs Skagfjörð á baráttusöngn-
um um hanana tvo sem þau endur-
fluttu í sýningarlok við mikla hrifn-
ingu.
Sverrir Hólmarsson
Námsstyrkir
til
Vestf irðinga
Eins og undanfarin ár verða
veittir styrkir til vestfirskra ung-
menna úr „Menningarsjóði vest-
firskrar æsku“, til framhaldsnáms,
sem þau ekki geta stundað í heima-
byggðinni.
Forgang hafa:
L Ungmenni, sem misst hafa
fyrirvinnu sína, föður eða móður.
2. Konur, meðan ekki er fullt
jafnrétti í launum.
3. Vestfirðingar, sem búsettir
eru á Vestfjörðum.
Vestfirðir eru allt félagssvæði
Vestfirðingafélagsins í Reykjavík,
(ísafjörður, ísafjarðarsýslur,
Standa- og Barðastrandarsýsla).
Umsóknir skal senda Sigríði
Valdimarsdóttur, Hranfseyri við
Arnarfjörð, pr. Bfldudalur. Þurfa
þær að berast fyrir lok júlí og skal
vottorð fylgja frá skólastjóra eða
öðrum, sem þekkir viðkomandi,
efnahag hans og aðstæður.
___________________- mhg
415 miljóna
lán 1 USA
I gær var undirritaður í New
York samningur um lán til íslenska
ríkisins að fjárhæð 15 miljónir
bandaríkjadollara sem er jafnvirði
sem næst 415 miljóna ísl. króna.
Lánið er í formi skuldabréfaút-
gáfu og hafa bréfin verið seld beint
til nokkurra lífeyrissjóða og trygg-
ingafélaga í Bandaríkjunum.
Lánið er veitt til tæpra 10 ára, en
er afborgunarlaust fyrstu fimm ár-
in. Vextir eru 12,85% að meðal-
tali.
Lánsféð mun renna til opinberra
framkvæmda í samræmi við gild-
andi lánsfjárlög.
Lánssamninginn undirritaði Sig-
urgeir Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóri í Seðlabanka íslands, en
Seðlabankinn annaðist undirbún-
ing lántökunnar.
Ferðir á
Horn-
strandir
í sumar mun Djúpbáturinn á ísa-
fírði halda uppi ferðum á Horn-
strandir svo sem verið hcfur
undanfarin ár. Út hefur verið gefin
áætlun, sem sýnir á töfiu ferðir
þær, sem fara á og tíma þann, sem
ráðgert er að vera á hinum ýmsu
viðkomustöðum bátsins.
Nú þegar er orðið ljóst að þessi
áætlun mun riðlast eilítið og hafa
upplýsingar um það verið sendar
þeim aðilum, sem selja ferðir báts-
ins. Breytingar þær, sem um er að
ræða, snerta lítt fyrr auglýsta brott-
farartíma bátsins frá ísafirði, held-
ur fremur viðkomustaði og tíma
þar.
Bókun og sölu í ferðir bátsins
annast Ferðaskrifstofa Vestfjarða
á ísafirði og aðrar almennar ferða-
skrifstofur.
húsbysgjendur
ylurinn er
iftsóður
Afgreiðum einangrunarplast a
Stor-Reykjavikursvcðið frá
mánudegi — föstudags
Afhendum vöruna á byggingarstað.
viöskiptamonnum að kostnaðar
lausu. Hagkvzmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplast "hf
kvoidof Mlf miw rm nm () 7111