Þjóðviljinn - 21.07.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 21.07.1983, Blaðsíða 11
Fimmtudagur Ú. júlí 1983 ÞJÓÐViLÍÍnN - SÍÐA1*-" Umsjón: Víðir Sigurðsson LeikÍBVog KR f restað Fresta varð leik KR-inga og Eyjamanna í 8-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ i gærkvöldi. Leikurinn átti að fara f'ram á Laugardalsvellinum, en þar sem ekki gaf til flugs urðu Eyjamenn að sitja heima. l'cir þurfa þó ekki að bíða lengi, því leikurinn fer fram i kvöld, el' vcðurguöirnir lofa, og hefst hann W. 19.30. Þrír leikir í 1. deild kvenha Þrir leikir fara fram í 1. deild kvenna í íslandsmótinu í knattspyrnu. Úrslitin S kvöid munu að öllum iíkindum ráða því hvort eitthvert lið fær stöðvað lið Breiðabliks á leið til sigurs i deildinni. Á Kópavogsvelli mæta Blikastúlkurnar Val og hefst leikurinn kl'. 20. Á sama tíma hefjast tveir leikir. Á Garðsvelli leika Víðir Garði, og ÍA og á Víkingsvelli leika Víkingar og KR. , Þá fer fram einn leikur í 2. deild kvenna. Fylkir og FH leiká í A-riðli deildarinnar og fer leikurinn fram á Árbæjar- velli. ísland á fimm þátt- takendur Fimm íslenskir borðtcnnis- menn taka þátt í Evrópumóti unglinga í borðtennis sem hefst á morgun 1 Malmö í Svi- þjóð. Þar af eru þrír piltar og þrjár slúlkur. íslcnsku kepp- endurnir eru Arna Kjærne- sted, María Hrafnsdóttir, Bergur Konráðsson, Sigur- björn Bragason og Trausli Kristjánsson. Þjóðirnar ríáfa verið dregn- ar i riðla og keppa íslendingar við eftirtaldar þjóðir, í stúlknafiokki: England, V- Þýskaland, Luxemborg og Frakkland. Og drengirnir (þeir lentu í mjög sterkum riðli) við: Svíþjóð, Danmörk, Skotland og Svtss. Landskeppnín fer fram dagana 22/7 - 26/7, og að loknu eins dags fríi hefst ein- staklingskeppni, en þar er keppt í einliðaleik, tvfliðaleik og tvenndarkeppni. Þar mun Arna keppá við Heckwolf frá V-Þýskalandi, María situr hjá í fyrstu umferð. Sigurbjörn keppir við Sgouropoulos frá Grikklandi, Bergur situr hjá í fyrstu umferð. Trausti mun ekki taka þátt í einstaklings- keppni þar sem hann mun sameinast hópi frá Æsku- lýðsráði Reykjavíkur, sem er áförum til Gautaborgar. í tví- liðaleik keppa þær Arna og María við Krauskopf og Lang frá Austurríki, og Bergur og Sigurbjörn við þá Manneschi og Borgetto frá ítalfu. í tvenndarkeppni keppa Berg- ur og Arna við Madesís og Zerdila frá Grikklandi og Maria og Sigurbjörn við þau Hovden og Rasmussen frá Noregi. Auk unglinganna fara þeir BjÖrgvin Hólm Jóhann- esson landsliðsþjálfari og Gunnar Jóhannsson sem far- arstjóri, en hann mun jafn- framt sitja þing Evrópusam- bandsins. Nokkur harka var í leik Blika og VÍkinga í gærkvöldi. Hér kýta þeir Vignir Baldursson og Heimir Karlsson, en Benedikt Guðmundsson reynir að stilla til friðar. Guðmundur Ásgeirsson hafði fremur lítið að gera í marki Breiðabliks í leiknum í gærkvöldi. Hér slær hann frá marki eftir eina af fáum sóknarlot- um Víkinga. Breiðablik í undanúrslit í Bikarkeppni KSI eftir 1:0 sigur yfir Víkingum: Gula sp jaldinu óspart veifað Heldur virðist vera að draga á milli bestu og lökustu 1. deildar- liðanna a.m.k., ef marka má úrslit leikja í 8-liða úrslitum bikarkeppni KSI í gærkvöldi. íslandsmeistarar Víkings sem hafa verið gjörsamlega heillum horfnir í allt sumar máttu enn þola tap, nú fyrir létt leikandi og skemmtilegum Blikum. Leikur liðanna fór fram við varhuga- verðar aðstæður á Kópavogsvelli, rennblautan völl. Brciðablik skoraði eitt mark, án þess að Vflc- ingar gætu svarað fyrir sig, og ef eitthvað var, þá voru Blikar nær því að bæta öðru eða þriðja mark- inu heldur en hitt. Mcð sigrinum í gærkvöldi halda Breiðabliksmenn sér í sigurmöguleikum í tveim stærstu knattspyrnumótum, 1. deildin er þeim galopin til meiri- háttar afreka. Nokkur harka setti svip sinn á leikinn í gærkvöldi. Virtist sem leikmenn væru hálfhræddir við að reyna meiriháttar kúnstir. Barist var um hvern einasta bolta, og lítið um skemmtileg tilþrif. Það sem sást kom frá Breiðabliki og strax á 3. mínútu leiksins áttu þeir tækifæri til að komast yfir er Hákon Gunn- arsson komst í gegnum vörn Vík- inga og þrumaði á markið, en Ög- mundur Kristinsson varði frábær- lega vel. Blikar áttu nokkur hættu- leg upphlaup sem flest strönduðu á Ögmundi í marki Víkings sem var langbesti maður fslandsmeistar- anna. Hann varði laust skot Sig- urðar Grétarssonar á 34. mínútu sem hitti boltann illa í þröngri stöðu skammt frá marki. Stuttu síðar varði Ögmundur meistara- lega frá Sigurjóni Kristjánssyni og merkileg mínúta sigldi í kjölfarið er þrír Blikar, Benedikt Guðmunds- son, Sigurður Grétarson og Vignir Baldursson fengu allir að sjá gula spjaldið. Virtst dómarinn, Þor- varður Björnsson taka mun harðar á öllum brotum Breiðabliks- manna, en sjá í gegnum fingur sér ef Víkingar voru á ferð, jafnvel þó svo þeir gerðu sig seka um grófan leik, eins og t.d. Heimir Karlsson. Aðeins var lokið um fimm mín- útum er Sigurður Grétarsson skoraði eina mark leiksins af miklu harðfylgi. Hann fékk góða send- ingu inn í vítateiginn, gaf sér tíma og þrumaði í vinstra markhornið. Ögmundur varði frábærlega, en boltinn fór í stöngina og út, og Sig- urður var kominn aftur eins og eldibrandur og stangaði í netið. Var laglega að þessu marki staðið hjá Sigurði sem sýndi mikla útsjón- arsemi í þröngri stöðu. Blikar gáfu ekkert eftir þrátt fyrir markið og sköpuðu sér oft góð færi. Trausti komst í gegn, en skot hans geigaði, og þegar stutt var til leiksloka komst Sigurjón aleinn innfyrir vörn Víkinga, sem höfðu hætt sér of framarlega. Hann nýtti færi illa og úr varð markspyrna. Víkingar á hinn bóginn náðu aldrei að skapa sér almennileg færi. Við þær aðstæður sem voru á vellinum hefðu langskot átt vel við, en eng- inn virtist hafa uppburði í sér til að reyna slíkt. í síðari hálfleik fékk Magnús Þorvaldsson gult spjald. Blikar leika léttarl og skemmti- legan bolta um þessar mundir. Sig- urður Grétarsson er stórhættu- legur leikmaður sem gæti reynst Blikum dýrmætur í hinni hörðu keppni í deildinni. Hjá Víkingum var Ögmundur langbestur. Sóknarleikur liðsins virðist í molum um þessar mundir. Lagist það atriði ekki, getur barátt- an um fallið, sem sjáanlega er framundan, orðið erfið. Sveinbjörn á skotskónum Skagamenn áfram eftir sigur á ÍBK í bikarkeppninni í gærkvöld Skagamenn halda áfram í bikar- keppni KSÍ eftir að hafa unnið ÍBK í hörðum og spennandi leik í Kefla- vík í gærkvöldi. Skoruðu Skaga- menn þrjú mörk gegn einu marki Keflvíkinga. Gífurleg barátta var í leiknum í gærkvöldi og gnótt marktækifæra. Keflvíkingar skoruðu þegar í byrj- un leiks. Það var Björgvin Björg- vinsson sem skoraði, en á 31. mín- útu leiksins jafnaði Sigurður Lár- usson fyrir Skagamenn. í síðari hálfleik tóku Skagamenn öll völd í leiknum og bættu við tveim mörk- um. Það var Sveinbjörn Hákonar- son sem var þar að verki í bæði skiptin. Sigurður Lárússon: jafnaði leikinn fyrir Skagamenn á 30. mínútu Calvin Smith á 10,20 sek. Bandaríski sprctthlauparinn Cahiti Smith sigraði öruggiega í 100 metra hlaupi á mtklu frjálsí- þróttamóti sem frant fór í Luxcni- burg f gær. Calvin var þó fjarri sínu bcsta, því hann Itljóp 100 metrana á „aðcins" 10,20 sck. í 2. sæt i varð landi hans, Ron Browne á 10,67 sek. í 3. sætí varð breski hlaupagikkurinn Alan Wells scm hljóp á> 10,69 sek. Aðstæður til hlaupsins voru góðar ea þð dugði það ekki Itlaupurtiiuun til að ná betri árangri, en stutt er síðan Smíth hljóp 100 ittet rana undir 10 sekúndum. í hástökkskeppninnt bar það helst til ttðinda að v-þýski há- stökkvarinn Dietmer Rogenburg stökk 2,30 metra sem dugði hon- u,m til sigurs. Þetta er sama hæð og Þjóðverjinn stökk á Evrópu- meistaramótinu í Aþenu fyrir skömmu ogidugði það honum til sigurs. Einna mesta athygli vakti bandaríska frjálsíþróttakonan Carol Lewis, en hún er systir þess frábæra frjáísíþróttamanns, Carl Lewis sem á góða möguleika á sigri í fjórum greihum á heims- meistaramótinu í Helsinki í næsta mánuði. Carol var nálægt því að stökkya 7 metra, hun flaug 6,97 metra. Þá sigraði Svisslendingurinn Peter Wirz í mfluhlaupi, hann hljóp mfluria á 3:57,74 mín. í 2. sæti varð Mike Boit Kenýa á 3:57,84 mín. og þriðji varð Marc Stevens frá Belgiu á 3:57,98 mín.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.