Þjóðviljinn - 12.08.1983, Page 2

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Page 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1983 Bridge Leikur Ólafs Lár. og Sigmundar Stef. í 2. umferð bikarsins var fremur tíðindalítill. Reyndar voru nokkur skemmtileg skiftingarspil á ferðinni, en hvorug sveitin nýtti þau til fulln- ustu. Hér er eitt hart „game" sem Magn- ús Aspelund og Steingrímur Jónas- son tóku: Norður S AD4 H 86 T G73 L AG964 Vestur S KG6 H 542 T A98 L K1083 Austur S10853 H K97 T D64 L 752 Suður S 972 HADG103 T K1052 L D Spilið var utan hættu og Steingrím- ur varð sagnhafi í 3 gröndum. Vestur spilaði út spaða gosa. Eðlilegast virðist nú að fara upp með ás, til að tryggja sér tvö stopp í spaða, EF út- spilið er ekta. En Steingrímur bað um drottningu. Fór síðan í tígulinn, gosi, drottning, kóngur og ás. Spaða kóng- ur átti næsta slag og aftur spaði. Nú svínaði Steingrímur hjarta. Sam- gangur er frekar þvælinn í spilinu, svo sagnhafi sá sér þann kost vænstan að gefa hjartaslag. Austur var inni á kóng og tók spaðaslaginn. Hann hafði horft á félaga sinn gefa til kynna einhver laufgildi með röð hjarta hund- anna þegar litnum var spilað, en valdi samt tígul. Steingrímur vann á tíuna og virtist ekkert alltof ánægður með framvinduna. Spilið skyldi þó klárað: Vestur á hinn bóginn var í enn daprari hugleiðingum en sagnhafi: tígul-7 í borði var harla ófögur sjón. Þegar síð- asta hjartanu var spilað neyddist hann til að fara niður á lauf kóng stak- an. Þegar drottningin í laufi síðan birt- ist stakk hann spilum sínum einfald- lega í bakkann. Eins og sjá má hnekkir austur spilinu með laufi, sem slítur samganginn. Skák Karpov að tafli - 183 Það hefur fylgt Karpov í mótum seinustu ára mikill meðbyr í síðari helmingi viðkomandi móta. Skák- mótin í Bugonjo 1978 og 1980 eru gott dæmi um þessa farsæld hans. Á mótinu '78 hiaut hann 5 vinninga úr síðustu sex skákum sínum og í Bug- onjo 1980 komst hann í efsta sætið með því að vinna fimm síðustu skákir sínar eftir að hafa gert jafntefli í sex þeim fyrstu. Karpov komst upp við hliðina á Spasskí í Bugonjo '78 með því að sigra Júgóslavann Bukic í næst síðustu umferð: Karpov - Bukic Hvítur hefur náð að halda öllu mót- spili svarts niðri og þróar nú stöðu sína á kóngsvæng: 31. Kh2! De7 37. Hc1 Hc6 32. Df2 Bb7 38. Rd5 Rxd5 33. Bg2 Kg8 39. exd5 Hcc8 34. Df3 Kh7 40. Be4 Rc5 35. Dh5 Df8 41. Bxc5! Hxc5 36. Hf1 Rd7 42. g4! - Svartur gafst upp. Hann á enga vörn við hótuninni 43. g5 o.s.frv. vinnuhópur nun.inr í kj.il.r.nn á Fögrubrekkn i Kópavngi. sMar, .n .( Þi8 Revndar komusl ekki aliir fyrir á .nyndinni og snm vorn ún i sjoppu mjnd.r svo samslæS. heild, .8 h.nn r.nnnr eig.nlega ut eitt. ___ ~ , , ... * ir„ cA .rnro horna oinhvÞre v J 'h.nAiin nnn enn í hugskoti mínu, þessi draumurbamæskunnar, þrátt fyrir rúmlega þrjátíu ára vonbrigði. Og ég sökkvi mér enn á ný í sólskinsdrauma, um haf, um glampandi sól, um... Hringir síminn. Ásdís Skúiadóttir býður mér að hitta krakka í Kópavogi. Nú jæja, varla eru þessi krakk- askinn verri en allt hitt fólkið. Klukkan hálf níu að kvöldi þriðjudagsins 9. ágúst stíg ég út úr bíl við leikskólann Fögru- brekku í Kópavogi. Utan á húsið hefur verið límdur miði: „Fagra- brekka“ og undir teiknuð stór ör sem bendir í allt aðra átt en ég átti að fara. Ég átti nefnilega að fara Starfsamir unglingar í Kópavogi: Kóparokk II Ég sit í afskaplega dapurlegum þönkum við skrifborðið mitt. Vinnan hefur verið með stressaðra móti undanfarið, sífelldar sím- hringingar og hlaup úr og í leigubíla. Allskonar fólki finnst þaö endilega eiga erindi við alla landsmenn (eða a.m.k. hluta þeirra í gegnum Þjóðviljann) og auðvitað ber að sinna því öllu - þrátt fyrir stressið. Og svo er það veðrið. Draumur minn um að ganga upprétt á þessu blessaða landi ætlar víst aldrei að rætast. Samt leyndist hann ofan í kjallarann, sagði Ásdís, en örin bendir á stóra blokk á móti. Ég sting mér samt ofan í kjalla- rann - treysti Ásdísi betur en örinni. í dyragættinni skullu á mér þvílíkar hljóðbylgjur að ég ætlaði aldrei að komast inn. En það hafðist. Og þarna stóð Ásdís í málningargalla og stjórnaði málningarvinnu unglinganna í Kópavogi, þótt stjórnin sæist hvergi, en slík stjórn er best. Þarna eru krakkarnir að inn- rétta félagsmiðstöð fyrir sig - hafa fullt leyfi bæjaryfirvalda til að haga henni nákvæmlega eftir sínu höfði. Þau velja meira að segja húsgögnin sjálf. Meiningin er að miðstöðin opni í lok ágúst eða byrjun september. Og þá „Skorum á alla að mæta á Kóparokkið og í félagsmiðstöðina“ hljóðar áskorun þessara ungmenna ur Kópavoginum. Talið frá vinstri: Liv Bcrgþórsdóttir, Héðinn Sveinbjörnsson, Guðjón Þór Baldursson og Flosi Þorgeirsson (Ljósm. —eik—) y. _______________ verður nú fjör í Kópavoginum, maður, og kona. Ég nældi mér í fjögur ung- menni og læddi þeim út í horn til að fræðast betur. Þau heita Liv Bergþórsdóttir, Héðinn Svein- björnsson, Guðjón Þór Baldurs- son og Flosi Þorgeirsson. Tveir hinna síðastnefndu eru meðlimir hljómsveitarinnar XAF, sem hef- ur komið nokkuð oft fram í Kópavogi, en þeir spila einnig sveitinni Eating Plastic, sem er tiltölulega nýstofnuð. Þeir Guð- jón og Flosi eru ásamt öðrum Kópavogspoppurum að undirbúa KÓPAROKK II, sem haldið verður í Bíóbæ nk. laugardag, en rokkið hefst kl. 8 um kvöldið „Þarna mæta flestar Kópa- vogshljómsveitirnar, en þær eru einar 6 eða 7“, segja þeir Guðjón og Flosi. „Þá mun hljómsveitin Vonbrigði einnig koma fram. Svaka fjör. Við skorum á alla Kópavogsbúa og aðra velunnara rokksins að láta sjá sig á rokkhá- tíðinni. Við lofum góðu fjöri“. „Jú, það hefur farið mikil vinna í að undirbúa félags- miðstöðina“, segja Liv og Héðinn. „Hvort við sjáum eftir tímanum? Nei, hreint ekki. Þetta er afskaplega gaman. Það er mik ill áhugi á þessari miðstöð hér enda höfum við enga aðstöðu til að hittast í Kópavogi“. Þau Liv og Héðinn voru sam mála um, að húsnæðið sé hreint ekki það ákjósanlegasta - þetta er nær gluggalaus kjallari, fer- metrafjöldinn ekki mikill og fremur lágt undir loft. „En þetta er þó betra en ekkert“, segja þau og vildu í lokin skora á fólk að láta sjá sig í miðstöðinni, þegar hún tekur til starfa. Unglingastarfshópurinn Kópavogi hefur gefið út merkt blað undir heitinu „Æskan hefur orðið“ og var því dreift nýlega til Kópavogsbúa. Þetta er allra hressilegasta blað og svo er að sj að unglingar Kópavogs geti verið fyrirmynd unglinga um allt land Og stelpurnar hafa verið drif- krafturinn í starfinu (Áfram stelpur!). Þegar ég gekk út úr kjallaran um fannst mér einhvern veginn eins og sólin skini. Samt rigndi úti. Skrýtin er tilveran stundum. ast

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.