Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 24
DlÓÐVHMNt Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aöalsími Kvöldsími Helgarsími Föstudagur 12. ágúst 1983 81333 81348 81663 - Lagaprófessor snuprar fjármálaráðherra Fer fram á sömu skattfríðindi og Albert Björn Þ. Guðmundsson, laga- prófessor og fyrrverandi borgar- dómari. hefur í opnu bréfi farið fram á, að njóta sama réttar varðandi greiðsiu opinberra gjalda og fjármálaráðhcrra. Tengist þessi ósk upplýsingum um að fjármálaráðherra láti ekki taka opinber gjöld af launum sín- um í ráðuneytinu, en greiði þau gegnum fyrirtæki það sem hann rekur í eigin nafni. Bréf Björns byggir á rök- semdum, sem hann tekur að mestu orðrétt upp úr viðtali, sem Þjóðviljinn átti við fjármálaráð- herra um málið. Tengsl fjármálaráðherra við innflutningsfyrirtæki, sem hefur mikil viðskipti við hið opinbera, og þessi skattamál hafa vakið töl- uverða athygli, og er víða mikil reiði meðal ríkisstarfsmanna yfir þessu. Er bréf Björns, sem er einn af þekktari lögfræðingum landsins, þannig hörð lögfræðileg gagnrýni á fjármálaráðherra. Bréf Björns sem birtist í Morgun- blaðinu hijóðar þannig: Ég leyfi mérað skrifa þér beint, sem œðsta yfirmanni skattamál- efna, til þess að erindi mitt fái ör- ugglega rétta meðferð í stjórnsýsl- unni. Svo er mál með vexti, að í morgun stofnaði ég einkafyrir- tœki, sem ber nafn mitt. í kvöld hœtti ég öllum afskiptum afrekstri fyrirtœkisins, en fœ þó greiðslur frá því. Ekki er þó hœgt að skil- greina þœr sem laun til mín eða lán. Hér er hreinlega um hluta af mínum persónulega efnahag að rœða. Ég er ríkisstarfsmaður eins og þú. Hingað til hefur, lögum sam- kvœmt, verið tekið mánaðarlega Prófessorinn fyrirfram af launum mínum til greiðslu á sköttum. Nú er ég ekki lengur reiðubúinn til að beygja mig undir slíkar kvaðir og cetla á næsta ári að borga skattana í gegnum fyrirtæki mitt. Þannigget ég, meðal annars, fengið umtals- verðan gjaldfrest. Fjármálaráðherrann Þess skal getið að Gjaldheimtan hefur ekkert við þetta að athuga svofremi greiðslur komi á réttum tíma, en ég hef alltaf staðið í skilum. Virðingarfyllst, Björn Þ. Guðmundsson. Glimrandi sumar- hátíð Þroskahjálpar Landssamtökin Þroskahjálp efndu til mikillar sumarhátíðar sl. mióvikudagskvöld í veitingahúsinu Broadway í Reykjavík. Ekki var annað að sjá er að vel hefði til tek- ist, þegar okkur Þjóðviljafólk bar þar að garði; a.m.k. var húsið troðfuilt af syngjandi fólki í miklu stuði. Þarna komu fram ýmsir inn- iendir skemmtikraftar, m.a. Þor- geir Ástvaldsson og Magnús Ólafs- son, sem skiptust á miklu brandar- aflóði við góðar undirtektir. Há- punkturinn var þó án efa leikur og söngur „The River City Good Time Band“, en það er kór og hljómsveit þroskaheftra einstak- linga frá Bandaríkjunum, sem hér leit við á heimleið úr Norðurlanda- reisu sinni og kom fram í þetta eina Og dansinn dunaði dátt á Broad- way við undirleik The River Good Time Band, sem reyndar vildi láta kalla sig Reykjavík City Good Time Band. (Ljósm. Leifur) sinn. Héldu þau uppi miklu fjöri allt kvöldið og skipst var á gjöfum. Veg og vanda af undirbúningi hátíðarinnar hafði Sigurður Magn- ússon hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og óhætt að segja að þar hafi valinn maður skipað rúmið af undirtektunum að dæma. ast Tvær jarðir i Djúpi lausar Töluvert spurt, segir Haukur Jörundsson í Landbúnaðar- ráðuneytinu Landbúnaðarráðuneytið hefur auglýst tvær jarðir í Nauteyrar- hreppi í ísafjarðardjúpi, til ábúðar. Blaðið hafði samband við Hauk Jörundsson í ráðuncytinu og kvað hann töluvert spurt um jarðirnar en ekki væri gengið frá neinum samningum enn því fyrri ábúendur myndu líklega báðir búa til næsta vors. Jarðirnar eru Hamar og Hafnar- dalur í Nauteyrarhreppi. Haukur sagði að jarðirnar yrðu ekki leigðar nema fólk ætli sér að stunda bú- skap á þeim, því ekki mætti bú- skapur í Djúpinu grisjast meir en orðið er. Meiri þörf væri á að auka hann fremur en hitt. EÞ Bruninn að Þrastargötu: Máíið óupplýst, fólklnu sleppt Bruninn sem varð í húsinu Þrast- argötu 3 í fyrrinótt er enn ekki upp- lýstur. Að sögn Rannsóknarlög- reglunnar miðar þó nokkuð í rann- sókn málsins. Fólki því sem var í yfirheyrslu hjá Rannsóknarlög- reglunni í gær hefur verið sleppt. Húsið, sem varð eldinum að bráð er gjörónýtt og eigandi þess, sem er um áttrætt, er á götunni. -gat Reykjavíkurvika hefst á mánudag Fjórar borgarstofnanlr kynntar Á Reykjavíkurviku sem haldin verður 15.-21. ágúst verða einkum fjórar stofnanir kynntar: Borgar- bókasafnið, Vatnsveitan, Umferð- ardcild gatnamálastjóra og Menn- ingarmiðstöðin að Gerðubergi. Að- auki verður athygli vakin á starf- semi Árbæjarsafns og Æsku- lýðsráðsogá Kjarvalsstöðum verð- ur eitthvað að gerast daglega. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem aðstandendur Reykja- víkurviku héldu í gær. Þeir sögðu að þessi vika væri haldin annað hvert ár, þegar engin Listahátíð er, og hafi sú fyrsta verið 1978. Til- gangurinn er sá að kynna almenn- ingi starfsemi borgarstofnana og að efla lista- og menningarlíf í borg- inni. Á þessari viku verða haldnir ýmsir tónleikar, sýndar verða kvik- myndir, fiskmarkaður verður á Lækjartorgi, útsýnisferð í Bláfjöll og Viðey og á afmælisdegi borgar- innar verða sýndar blóma- skreytingar á Lækjartorgi.Gefnir hafa verið út kynmngarbæklingar um þær stofnanir sem sérstaklega verða kynntar og munu þeir liggja frammi á Kjarvalsstöðum og í við- komandi stofnunum. Auk þess hefur plaggat verið gefið út - það hangir uppi í strætó. f undirbúningsnefnd vikunnar sitja Markús Örn Antonsson for- maður, Katrín Fjeldsted og Kristín Guðmundsdóttir híbýlafræðingur sem tók sæti Gerðar Steinþórs- dóttur. _gat

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.