Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1983 BLAÐAUKI Benco 01-1400 Heimastöð Loksins getum við boðið þessa frábæru heimatalstöð á íslenskan markað. 40 rásir AM/FM „SWR“ mælir - „Watt“ mælir - „Mach box“ - stór hátalari - 220 volt og ótal margt fleira. CB áhugamenn, loksins eitthvað sem varið er í. Verð kr. 12.500.- BENCO BASE STATION »»«1 Ol-HOSW/í* mkx DANCOM Vfir 20 þúsund stöðvar seldar. Fjöldi ís- lenskra skipa og hjálparsveita treysta á DANCOM RT 408. DANCOM RT 408 VHF talstöð Er viðurkennd til notkunar í skipum og bifreiðum. 100 rásir á alþjóða skipa- tíðnum og einkatfðnum. □ Full duplex □ Hlustun á rás 16 auk vinnutíðni □ Útbúin fyrir beint uppkall □ Sendiafl 25 w □ Fyrirferðarlítil og einföld í notkun DANCOM RT 408 gefur þér öryggi til sjós. LEITIÐ UPPLÝSINGA R. Sigmundsson h.f. Tryggvagötu 8-101 Reykjavík - Símar 12238 og 12260 Radíóamatörar Radíóamatörar hafa leyfi til aö smíöa og starfrækja eigin sendistöðvar á sérstökum tíðnisviðum til viðskipta við aðra radíóamatöra. Þeireinirfá leyfi, sem hafatekið próf, er yfirvöld taka gilt. Leyfin gefa radíóamatörum einstakt tækifæri til þjálfunar og sjálfnáms í radíó- og rafeindatækni, radíóviðskiptum og til sambanda við félaga sína umallan heim. Fjöldi radíóamatöra nálgast nú eina milljón um víða veröld, og meðal þeirra ferfram ótrúlega fjölbreytt og öflug starfsemi. Ahugamálin eru mörg bæði tæknilegs og félagslegs eðlis. f alþjóðareglugerð um radíó er þjónusta radíóamatöra skilgreind þannig: „Þjónusta sjálfsþjálfunar, inn- byrðis viðskipta og tæknilegra athugana, sem framkvæmdar eru af radíóamatörum. þ.e. mönnum með viðeigandi leyfi og áhuga á radíótækni eingöngu vegna persónulegra markmiða og án fjárhagslegrar ágóða- vonar.“ Félagið íslenzkir radíóamatörar (Í.R.A .) var stofnað árið 1946, og var fyrsti formaður þess Einar Páls- son. Hann barðist mjög ötullega fyrir því, að starfsemi radíóamat- öra yrði leyfð. Átti hann manna mestan þátt í því að það tókst þegar í byrjun ársins 1947, er sett var reglugerð, er leyfði sendingu þeim áhugamönnum sem stæðust sér- stakt próf. Í.R.A sótti fljótlega um inngöngu í Alþjóðasamband radíó- amatöra I.A.R.U, fékk það og hef- ur verið félagi í því síðan. I.R.A. er tengiliður radíóamat- öra og Pósts og síma, og hefur skiiningur þar á milli verið mjög góður á sfðustu árum. Félagið býr við þröngan húsakost og háir það starfseminni mjög. Félagsstöðin, TF31RA, hefur aðsetur í húsa- kynnum félagsins. Hún er sem eign fél'agsins til afnota fyrir alla félags- menn í samræmi við leyfi hvers og eins. Unnið hefur verið að uppbygg- ingu félagsstöðvarinnar með það fyrir augum að félagsmenn geti kynnst sem fjölbreyttustum tækj- akosti. Þar er nú fullkomið morse- og tal (SSB) sendiviðtæki á þeim sex stuttbylgjusviðum sem radíó- amatörar mega nota. Hefur stöðin verið mikið notuð til innalands- og utanlandsviðskipta og var t.d. aðal íslenska viðskiptastöðin við norsku teinæringana, sem sigldu til íslands þjóðhátíðarárið. Hún er einnig ein 11 íslenskra stöðva, sem hefur haft samband um gervitungl radíóamat- öra víðsvegar um gervalla veröld. Erstöðinnýtt til sendinga morse- Hér sést kort til staðfestingar á fjar- skiptasambandi við radíóamatör í Bouake á Fílabeinsströndinni. Efst má sjá kallmerki ísl. stöðvarinnar, þá dagsetningu og árið sem sam- talið fór fram, þá tímasetninguna skv. GMT og tíðnina sem sam- bandið var haít á í megariðum. Þar næst koma upplýsingar um hvern- ig merki ísl. stöðvarinnar heyrðust, þá tegund útsendara sem notaður var (SSB), þvínæst upplýsingar um tækjabúnað amatörsins t Bou- ake og loftnetabúnað. Neðst er svo nafn amatörsins, kallmerki og heimabær á Fílabeinsströndinni. æfinga og QTC-sendinga af al- mennum málefnum radíóamatöra og hefur það eflt mjög sambandið við félagsmenn úti á landi. Fá- mennið háir mörgum af áhugamál- um radíóamatöra. Fjölmennið eitt er þó ekki nóg, það verða að vera menn með getu og áhuga, til að læra það sem þarf. Kunnáttan kemur ekki nema menn leggi eitthvað á sig af sjálfsdáðum, og í okkar sjónvarps- og verðbólgu- hrjáða jrjóðfélagi er sífellt verið að gera okkur að dauðþreyttum á- horfendunt í stað athafnafúsra þátttakenda. Bóka- og blaðasafn fyrirfinnst til afnota fyrir félagsmenn. Opið hús er tvisvar í viku. Á mánudags- kvöldum eru smíðakvöld, en á fimmtudagskvöldum almenn mæt- ing félaga. Á vetrum eru oft fræðslukvöld um ýmsis áhugaverð atriði. Óformleg fræðsla fer fram að staðaldri. Hinir eldri og reyndari leysa úr vandamálum hinna yngri, og menn skiptast á skoðunum og segja frá reynslu sinni. Á hverjum sunnudegi eru ís- lenskir radíóamatörar með útsend- ingu á 3525 kHz og hefst hún kl. 11.00. Póstfang félagsins er P.O.- Box 1058 Reykjavík. -áþj/stuðst við fréttabréf IRA MOTOROLA MICOM 100 SSB-bílatalstöðin Mikil langdrægni — skýrt tal — sendiorka 100 wött — hristi- prófuö — varahlutir og fullkomnustu mælítæki til viögeröa og þjónustu — til afgreiöslu strax. KRISTINN GUNNARSS0N & C0. Grandagarði 7, Reykjavík Símar: 26677 og 21811.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.