Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 12.08.1983, Blaðsíða 23
1 Föstudagur 1'2. ágúst 1983 ’ÞJÓÐVILJINN —’SÍÐA 23 RUV © 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tón- leikar. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorð - Hilmar Baldursson talar. 8.30 Ungir pennar. Stjórnandi: Dómhildur Sigurðardóttir (RÚVAK). 8.40 Tónbilið. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Hif opp, æpti anamaðkurinn" eftir Hauk Matthias- son Höfundur les (2). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) 10.30 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundartelli sér um þátt- inn (RÚVAK). 11.05 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjónarmaður: Hermann Ragnar Stef- ánsson. 11.35 Sumarkveðja frá Stokkhólmi. Um- sjón: Jakob S. Jónsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 14.00 „Hún Antonía mín“ eftir Willa Cather. Friðrik A, Friðriksson þýddi. Auður Jóns- dóttir les (11). 14.30 Á frívaktinni. Ragnheiður Gyða Jóns- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16,00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurtregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Hljómsveitin Fíl- harmónia í Lundúnum leikur forleik að „Oberon" óperu eftir Carl Maria von Weber. Wolfgang Sawallisch stj. / Emil Gilels og Nýja fílharmóniusveitin i Lundúnum leika Pi- anókonsert nr. 1 i b-moll op. 23 eftir Pjotr Tsjaíkovský. Lorin Maazel stj. 17.05 Af stað í fylgd með Tryggva Jakobssyni. 17.15 Upptaktur - Guðmundur Benedikts- son. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Brúðubíllinn í Reykjavik skemmtir. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor- oddsen kynnir. 20,40: Hugsað við tóna. Ingibjörg Þorbergs les frumort Ijóð, samin við tónlist eftir De- bussy, Chopin og Prokofjeff, (áður útvarpað 1981). 20,55. Létt lög: Menuhin, Stefane Grabbolli og félagar leika. 21,05. Karl faðir minn, smásaga eftir Damon Runyan, Karl Ágúst Úlfsson les þýðingu sína. 21.30 Hljómskálamúsik Guðmundur Gilsson kynnir. 22.15 Veðurlregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Ástvinurinn" eftir Evelyn Waugh Páll Heiðar Jónsson les þýðingu sina. (2). 23.00 Náttfari Þáttur i umsjá Gests Einars Jónassonar (RÚVAK). 00.50 Fréttir. 01.00 Veðurtregnir. 01.10 Á næturvaktinni - Ásgeir Tómasson. 03.00 Dagskrárlok. RUV 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.50 Steini og Olli Skopmyndasyrpa með Stan Laurel og Oliver Hardy. 21.10 Vélmenni Bresk fréttamynd um þróun og notkun vélmenna og sjálfvirkra vinnu- véla. Þýðandi og þulur Bogi Arnar Finnbog- ason. 21.35 Verðbólga Bresk heimildarmynd sem fjallar um eðli og orsök verðbólgu. Þýðandi og þulur ögmundur Jónasson. 22.00 Mannætan (Blue Water, White Death). Bandarisk bíómynd (rá 1971. Hvítháfurinn eða mannætuhákarlinn er talinn skæðasta rándýr heimshafanna. Sveit kafara og kvik- myndatökumanna freistaði þess að ná myndum af ókindinni undan strönd Afríku. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.40 Dagskrárlok. Útvarp kl. 10.45: Fornu minnin Fyrir 33 árum kom út bókin Faðir minn en þar skrifa 27 höf- undar um feður sína. Meðal höf- undanna er Þorsteinn M. Jónsson, fyrrum skólastjóri, sem á þarna þátt um föður sinn, Jón Ólafsson bónda á Útnyrðingsstöðum i Völlum. - Jón á Útnyrðingsstöðum vildi gjarnan að Þorsteinn gerðist bóndi en hugur hans stóð til mennta á öðrum sviðum. Vonir Jóns rættust þó að nokkru því jafnframt kenn- slunni stundaði Þorsteinn búskap fyrst eystra og síðar bæði í Skjald- arvtk og á Svalbarði. í þætti Einars frá Hermundar- felli, „Mér eru fornu minnin kær“, sem er í Akureyrarútvarpinu núna kl. 10.45 flytur Þórhalla, dóttir Þorsteins, þátt hans um Jón á Út- nyrðingsstöðum. -mhg fr ndum Bjarni Harðarson skrifar: Rétt í þessu var ég að lesa ágæta grein í Sunnudagsblaði Þjóðvilj- ans, eftir Elísabetu Þorgeirsdóttur: „Bólgan, sem vex“. Þar reifar hún eilítið þann vanda, sem stafar af skiptingu landsinsí Reykjavíkog allt hitt. Til þess að fría sig vandræðum (og mér til mikillar uppörvunar), tekur hún strax í upphafí fram, að hún sé ekki þjóðfélagsfræðingur. Enda fjallar hún bara um málin eins og ég og þú og gefur okkur venjulegum lesendum undir fótinn með það, að við megum líka skrifa um þjóðfélagið og dlt það. Ég ætla því bara að byrja og taka fyrir efni skylt því, sem Elísabet reifaði. Sjálfur er ég með annan fótinn í höfuðborginni, án þess þó að telja mig þaðan, er eiginlega á þeim ágæta aldri þegar maður þarf ekki að telja sig búsettan á neinum ákveðum stað. Þessa dagana vinn ég í frystihúsi í litlu plássi, langt í burtu frá höfuðborginni. í lands- fjórðungi, þar sem vegalengdir eru mældar í fjarlægðum milli plássa, Vinnan göfgar manninn sem eru hver öðru lík: Nokkur hundruð sálir, slatti af aðkomu-' fólki, frystihús, togari (og eð bátar), verslun, pósthús, skóli og e.t.v. gistihús. Og hver er nú munurinn á að búa í svona plássi eða þá í Reykjavík? Jú, hér vinna menn að framleiðslu- störfum, andstætt Reykvíkingum, sem flestir stunda þjónustustörf í einni eða annari mynd. Nú er sjálf- sagt enginn fær að dæma um hvort sé skemmtilegra eða betra og tæp- lega hægt að telja þetta mjög afger- andi fyrir muninn á lífi á þessum stöðum. Enda vinna margir hér við þjónustu og sýnast hreint ekkert reykvískari en aðrir, og víst er eitt stærsta frystihús landsins í Reykjavík. Menningin......... Er það þá menningin? Ef nú menning á eitthvað skylt við mann- leg samskipti og mikil og góð menning merki um að menn lifi í sátt og samlyndi hver við aðra held ég að X-firðingarnir úti á landi séu betur settir en margir höfuðborgar- búar. En hvað er ég að fara? Sam- kvæmt blöðum og tímaritum er menning hlutir eins og bíó, leikhús, tónlist, bækur, blöð og tímarit. Og þá hafa Reykvíkingar vinninginn. Og þó. Sem þiggjendur menningar standa þeir sjálfsagt framar en sem þátttakendur í skapandi starfi held ég að landsbyggðarlýðurinn standi þeim síst að baki. Er þetta þá paradís á jörð, að búa í litlu krummaskuði úti á landi? Nei, andskotinn... Að minnsta kosti er það svo með okkur, sem höfum haft nasasjón af borgarlíf- inu, að við viljum halda áfram að vera þiggjendur í menningunni. Við fáum líka stundum að hverfa inn í fjöldann og vera ein (sem ekki er hægt í fámennu samfélagi), og margt fleira mætti telja. Og vinnan Og þó er ónefndur einn ómetan- legur kostur þessa stærsta sjávar- pláss á landinu, umfram flest hinna. Þar hefur vinnumafían verið kveðin niður, ef hún hefur nokkurntíma náð þangað. Hér á ég við þann hugsunarhátt, sem telur 40 stunda vinnuviku jaðra við at- vinnuleysi og þy kir sjálfsagt að vinm a svo lengi og mæta eins snemma og fyrirtækið óskar. Andskoti, sem lýsir sér í endalausu og sljóu púli árið um kring, í skít ogslori, án nokkurs tilgangs eða tilhlökkunar í lífinu. Þankagangur, sem nauðgar ágætu spakmæli um að vinnan göfgi manninn. Öðru fremur er ónáttúra þessi viðloðandi fiskverkun og raunar allan sjávarútveginn. Það verður jú að bjarga þeim afla sem á land berst er viðkvæðið, og það fer sko enginn heim fyrr en það er búið. Það er talað um aflann, sem berst, rétt eins og þar ráði guðlegir kraft- ar. Kannski að barmafullum togarakössum skoli upp á bryggj- una í stórstreymi? Nei, öðru nær. Hér er einfald- lega um ríkjandi stefnu kapítalísks þjóðíélags að ræða, þar sem atvinnutæki skulu nýtt til fulls með óhóflegu vinnuálagi og dagvinnu- kaupi haldið niðri með offramboði á næturvinnu. Af sama toga er það svo að öll vinnuaðstaða við þennan undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar er lakari en víðasthvar annarsstað- ar. Meiri áhersla er lögð á launa- hvetjandi kerfi en manneskjulega vinnustaði. Með öðrum orðum: Velmegun landsbúa er að stórum hluta haldið uppi með vinnudýrum fiskiðnaðarins. brjó Pyrlukanínan Þessar kanínur skaltu klippa út. Klipptu svo í lín- meö lími eöa límbandi. Láttu svo eyrnaþyrlurnar una á milli eyrnanna. Þar sem eru brotnar línur skaltu fljúga til jarðarinnar. Kannski er betra aö nota stífari brjóta. Brjóttu annað eyraö fram og hitt aftur á báö- pappír en er notaður í dagblöö og þá er bara aö nota um kanínunum. Ýttu flipanum inn fyrir og límdu hann kalkipappírinn góöa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.